Fréttablaðið - 18.02.2022, Síða 10

Fréttablaðið - 18.02.2022, Síða 10
n Halldór n Frá degi til dags Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Helgi Magnússon forStjóri og Útgefandi: Jón Þórisson ritStjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, fréttaStjórar: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VefStjóri: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Kalkofnsvegur 2, 101 reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is helgarBlað: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Íþróttir: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Barátta Sjálfstæðis- flokksins í borginni mun verða þung og erfið. Er það kannski þess vegna sem flokkurinn veigrar sér við að hefja hana? Staðreynd- in er sú að íslenzkir blóma- bændur anna alls ekki eftirspurn og inn- flutningur er nauð- synlegur til að mæta stækkandi markaði. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is Fáir eru á þeirri skoðun að Sjálf- stæðisflokkurinn taki við völdum í Reykjavíkurborg eftir borgarstjórnar- kosningar í vor. Ekki einu sinni Sjálf- stæðismenn virðast trúaðir á sigur. Einmitt það kann að stórum hluta að skýra hið æpandi áhugaleysi f lokksins á að koma saman framboðslista sem hægt sé með stolti að kynna fyrir borgarbúum. Þótt baráttan við Dag B. Eggertsson og félaga virðist fyrir fram töpuð þá væri mannsbragur á því fyrir Sjálf- stæðisflokkinn að bretta upp ermar og hella sér galvaskur í slaginn. Sú augljósa leið hefur af einhverjum ástæðum ekki verið valin og í stað þess að drífa sig af stað hefur f lokkurinn kosið að fara í hálfgerðar felur. Það er nánast eins og hann telji sig ekki eiga neitt sérstakt erindi við borgarbúa. Það er stórfurðulegt að horfa upp á þetta slen hjá stærsta stjórnmálaflokki landsins. Vissulega kemur að því að Sjálfstæðisflokkur- inn mun rumska og átta sig á því að borgar- stjórnarkosningar eru á næsta leiti, en hugsan- lega mun sú uppgötvun koma of seint. Það er ekki líklegt að kjósendur taki undir sig stökk og hlaupi fagnandi í faðm flokks sem virðist hafa litla sem enga trú á sjálfum sér þegar kemur að borgarmálum. Fjögur ár enn með Degi B. Eggertssyni blasa við. Það eru alls ekki vondar fréttir því borgar- stjórinn hefur staðið sig vel og er auk þess geðugur og hrokalaus – ólíkt sumum félögum hans í Samfylkingunni. Geðvonska og kvabb öfgafullra andstæðinga borgarstjórans breytir því ekki að hann nýtur virðingar meðal almennings. Sjálfstæðismenn þurfa að viður- kenna þá staðreynd að þeir munu þurfa að hafa mikið fyrir því að telja borgarbúum trú um að borgarstjórnarmeirihlutinn hafi verið á kolrangri leið. Sannarlega hefur meirihlut- inn ekki gert allt rétt en í meginatriðum hefur hann gengið hinn góða veg. Barátta Sjálf- stæðisflokksins í borginni mun verða þung og erfið. Er það kannski þess vegna sem flokkur- inn veigrar sér við að hefja hana? Áhugaleysi þessa stóra f lokks á kosninga- baráttunni er stórmerkilegt. Það er reyndar aldrei gaman að tapa – og tap blasir vissulega við. En á meðan málstaðurinn er góður þá er baráttan alltaf þess virði. Er það virkilega svo að Sjálfstæðisflokkurinn komi ekki auga á mikilvægan málstað sem er þess virði að fyrir hann sé barist? Kannski er það þannig. Sjálf- stæðismenn hafa þó fram að þessu sótt í völd. Kannski hefur það líka breyst. n Uppgjöf Axel Sæland, umsvifamesti blómabóndi landsins, hefur stundum haldið því fram að innflutningur á blómum sé óþarfur; innlendir framleiðendur anni vel eftirspurn á markaðnum. Það er ekki rétt. Félag atvinnurekenda hefur ítrekað bent á að í kringum stóru blómadagana í febrúar, Valentínusardag og konudag, þarf að f lytja inn stóran hluta blómanna af því að innlendir framleiðendur anna hvergi nærri eftirspurn. Á innfluttu blómin leggjast engu að síður himinháir tollar; á Valentínusarrósirnar lagðist þannig á síðasta ári um það bil 88% tollur að meðaltali. Með öðrum orðum tvöfalda tollar hér um bil innkaupsverðið og hafa áhrif á útsölu- verðið eftir því. Í Fréttablaðinu á miðvikudaginn sagði Axel að það væri reyndar rétt að íslenzkir blómabændur önnuðu ekki eftirspurn fyrir stóru blómadagana í febrúar, en þeir gerðu það „alla hina dagana“. Þetta er alrangt eins og sést vel á tölum Hagstofunnar um innflutning á rósum. Í febrúar í fyrra þurfti að f lytja inn 2,7 tonn af rósum, um 32.000 stykki. Allt árið 2021 voru hins vegar f lutt inn 7,9 tonn, væntanlega um 93.000 rósir. Það þýðir að fyrir „alla hina dagana“ þurfti að f lytja inn yfir 60.000 rósir. Staðreyndin er sú að íslenzkir blómabændur anna alls ekki eftirspurn og innflutningur er nauðsynlegur til að mæta stækkandi markaði. Opinberar álögur á vörurnar verða að taka eitt- hvert mið af því. Axel segir réttilega í blaðinu að tollar á blómum séu eingöngu til að vernda innlenda framleið- endur fyrir samkeppni. En hann segir líka að nú í febrúar, í kringum Valentínusardaginn, sé heims- markaðsverðið á blómum svo hátt að innfluttu blómin séu mun dýrari en þau íslenzku, jafnvel án tollanna. Til hvers þurfa Axel og aðrir blóma- bændur þá tollvernd á þessum tíma? Af hverju taka þeir ekki undir tillögur FA um að stjórnvöld gefi út tollfrjálsar innflutningsheimildir sem blómaverzlunin gæti nýtt til að anna eftirspurn, án þess að innkaupsverð blóma tvöfaldist? n Rangfærslur um rósir Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnu- rekenda ser@frettabladid.is Samskipti Tjáningarmáti þjóðarinnar fer óðara að komast í samt lag eftir á að giska tveggja ára torveldi við að umgangast annað fólk, en alþýða manna hefur einkum átt í brösum við nálægðarmörkin innan um sína líka og hvernig almennri kurteisi skuli vera háttað án allrar snertingar og flírulegra vinaláta. Á þann veg hefur mjúkt og innilegt faðmlagið átt sérstaklega undir högg að sækja, en jafnvel líka lauslegt klapp á bakið, að ekki sé talað um handabandið sem hefur ekki verið samboðið aðstæðum um missera skeið nema handhafar hafi borið þykka lopavettlinga og þaðan af þykkari öryggishanska. Og snerting Núna undir hækkandi sól er stóra spurningin í mannlegum sam- skiptum hvort hin mjög svo var- færna og stundum vandræðalega olnbogasnerting víki fyrir gamla fimmfingralófanum sem klesstur er á annan eins á lofti, en þar er auðvitað ekki saman að jafna í snertingu og samneyti líkamsvessa og húðflaga. Hvað sem því líður verður áhugavert að sjá landsmenn tvístíga hver fyrir framan annan á næstu mánuðum afléttinga og takmarkaleysis með þá óræðu spurningu í augum hvaða kveðja hæfi stundu og stað; a) fjarlægt nikk, b) snertilaust bugt, c) oln- bogafipl, d) laust handaband, e) hóflegt faðmlag eða f) þétt faðmlag með kossi á kinn. n Handgerðir íslenskir sófar • Margar útfærslur í boði • Mikið úrval áklæða • Engin stærðartakmörk • Sérsmíði eftir þínum óskum Hvernig er draumasófinn þinn? Kíktu í heimsókn! Opið virka daga kl. 10-18 Laugardaga 11-15 Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - patti.is Sjá nánar á patti.is Skoðun FRéttablaðið 18. febrúar 2022 FÖSTuDAGuR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.