Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.02.2022, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 18.02.2022, Qupperneq 16
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ásdís Kristjánsdóttir er 43 ára verk- og hagfræðingur. Eiginmaður hennar er Agnar Tómas Möller og eiga þau saman þrjú börn; tví- bura, stelpu og strák sem eru 13 ára, og yngri strák sem er 10 ára. Þau búa í efri byggðum Kópavogs, í Hvörfunum, þar sem náttúran er við höndina, en Ásdís stundar reglubundna hreyfingu og fjöl- skyldusport. Ásdís tekur hlýlega á móti okkur á fallegu heimili fjölskyldunnar á björtum og fallegum vetrardegi þar sem snjórinn skartar sínu fegursta. Hversu lengi hafið þið búið hér í efri byggðum Kópavogs? „Við bjuggum fyrst úti á Kársnesi en fluttum svo hingað í Hvörfin fyrir rétt um áratug síðan. Hér líður okkur ákaflega vel. Nálægðin við náttúruna og helstu þjónustu eru sannkölluð forréttindi,“ segir Ásdís. Það sem heillaði þau við húsið var annars vegar staðsetningin og hins vegar skipulag hússins. „Húsið er þannig uppbyggt að það nær vel utan um fjölskylduna og hér líður okkur vel. Náttúrufeg- urðin í Kópavogi er engu lík og allt um kring eru afskaplega fallegar gönguleiðir sem hentar vel fyrir hundafólk eins okkur. Reyndar er hundurinn okkar ákaflega latur og þrjóskur, hann neitar einfaldlega að fara út í göngutúra þegar veðrið hentar ekki, sem hefur verið ansi oft á þessum fyrstu vikum ársins,“ segir Ásdís og hlær. Fjarlægð heimilisins frá skóla og öðrum tómstundum fannst henni líka skipta miklu máli sem og sam- göngur til og frá vinnu. „Umferðin hefur verið að þyngj- ast einna helst í Reykjavík en þó einnig hér í efri byggðum. Arnar- nesvegurinn mun sem betur fer létta á þeirri umferð þegar hann verður tilbúinn en því miður er nú eitthvað lengra í að umferðar- vandinn leysist í Reykjavík.“ Tennis nýjasta áhugamálið „Í raun má segja að reynsla mín komi úr atvinnulífinu annars vegar og hins vegar úr uppeldis- starfi barna minna en þau hafa alist upp í Kópavogi nánast alla sína ævi. Í gegnum börnin mín hef ég því snertifleti við svo margt, hvort sem það er skólinn, íþrótt- irnar, tónlistarnámið eða aðrar tómstundir. Okkur fjölskyldunni hefur alltaf liðið vel í Kópavogi og hér viljum við búa.“ Ásdís hugsar vel um heilsuna og passar sig að halda daglegri rútínu samhliða vinnu og fjölskyldulífi. „Ég hef mikinn áhuga á alls kyns hreyfingu. Ég hef verið í um Myndlist eftir íslenska listamenn prýðir veggina. Heimilishundur- inn Perla er mikil dekurrófa og nýtur sín best þegar hún fær að hafa það notalegt með húsmóðurinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINk Fallegar ljósar viðarinnréttingar eru í forgrunni í eldhúsinu og við eldhús- eyjuna slær hjarta heimilisins. Kaffistellið sem Ásdís erfði frá ömmu sinni og afa er í miklu dálæti hjá henni og orðið sextíu ára gamalt. Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is áratug í þjálfun með systur minni og vinkonum hjá sama þjálfara, á sama tíma í hverri einustu viku. Það gefur mér ótrúlegan kraft að eiga góða vinkonustund í ræktinni. Auk þess stunda ég reglulega hlaup, Pilates og tennis. Við hjónin byrjuðum nýverið að æfa tennis í Tennishöll Kópavogs og er tennis því okkar nýjasta áhugamál. Þá förum við mikið á skíði þegar tími gefst og aðstæður leyfa. Það er okkar fjölskyldusport.“ Persónulegir hlutir í bland við nýlegri og sögulega Þegar kemur að heimilisstíl Ásdísar vill hún hafa notalegt í kringum sig. „Ég blanda saman persónu- legum hlutum við nýlegri hluti. Ég er ekki endilega að fara eftir stefnum og straumum hverju sinni heldur vel það sem mér finnst fallegt, praktískt og auðvitað þægilegt. Þrátt fyrir að ég geti verið afskaplega litaglöð í fatavali er ég með frekar hefðbundinn stíl þegar kemur að heimilinu. Mikilvægast er að heimilið haldi vel utan um okkur og auðvitað að öllum líði vel á heimilinu.“ Hvað finnst þér gera heimili að heimili? „Heimilið er sannkallaður griða- staður fjölskyldunnar. Hér líður okkur best. Samverustundir okkar hér, myndir af minningunum sem við höfum skapað saman og góðar stundir hér með vinum og fjöl- skyldu eru það sem gerir þetta að heimilinu okkar.“ Fyrsti bollinn sá heilagasti Í eldhúsinu slær hjarta heimilisins og fjölskyldan kemur þar mikið saman. „Eins og sakir standa er skrif- stofan mín í borðstofunni og þá er gott að hafa opið inn í eldhúsið þannig að ég næ öllum samtölum sem þar fara fram.“ Hvað finnst þér ómissandi að vera með í eldhúsinu? „Kaffivélin er ómissandi. Ég drekk mikið kaffi en fyrst og fremst fyrir hádegi. Fyrsti bolli dagsins er jafnframt sá allra heilag- asti á meðan ég les blöð dagsins. Ég fer fyrst á fætur á mínu heimili. Þessi stund er því notaleg og fáir að berjast um blöðin.“ Ertu sælkeri og nýtur þess að elda og baka? „Ég er mikill sælkeri. Við leggj- um mikið upp úr því að elda hollan og góðan mat á virkum dögum en um helgar leyfum við okkur meira. Ég er ekki eins góður kokkur og maðurinn minn. Við höfum því komið okkur upp ágætri verka- skiptingu, maðurinn minn eldar en ég geng frá. Ég sé hins vegar um bakstur heimilisins ásamt dóttur okkar sem er reyndar duglegri en ég að baka þessa dagana. Þá fékk ég nýverið súr frá vinkonu minni og hef verið að prófa mig áfram í að baka súrdeigsbrauð. Óhætt er að segja að rými til bætinga í súr- deigsbakstrinum sé þó nokkurt.“ Þegar kemur að efnis- og litavali inn á heimilið er Ásdís meira í jarð- litum og tímalausri áferð. „Þegar kemur að húsgögnum vel ég meira hefðbundna jarðliti en skreyti þá frekar veggina með lit- ríkum myndum. Fljótlega eftir að við hófum búskap byrjaði maður- inn minn að kaupa myndlist eftir íslenska listamenn sem flest prýða heimilið í dag. Við njótum þess að hafa á veggjunum fallegar myndir sem hafa fylgt okkur lengi.“ Áttu þína uppáhaldshluti sem eiga sér sögu? „Kaffistell ömmu og afa sem ég erfði, en stellið er líklega um 60 ára gamalt. Það fylgir því alltaf sérstaklega notaleg tilfinning að draga það fram. Þá þykir mér einn- ig mjög vænt um teppi sem amma heklaði fyrir okkur þegar við hófum búskap.“ Ásdís segir að þau eigi ekki eiginlegt matarstell en henni þyki stellið frá Royal Copenhagen afskaplega fallegt. „Ég á nokkrar bolla en hef ekki safnað stellinu sjálfu.“ Heimilið prýða líka lifandi plöntur og er rétt eins og hver planta eigi sinn stað. „Mér finnst lifandi plöntur gera heimilið hlýlegra og notalegra og við höfum þær í nánast hverju einasta herbergi. Svo á ég það til að freistast til að kaupa fallega blóm- vendi um helgar,“ segir Ásdís og bætir því við að þeir gleðji augað. Garðurinn er stór partur af heimilinu, sérstaklega á sumrin. Þar er góður pallur og heitur pottur sem er mikið nýttur af fjöl- skyldunni árið um kring. „Á sumrin njótum við þess að sitja úti, hvort sem er að spjalla eða borða úti þessa fáu daga sem það er hægt. Þá er sonur minn duglegur að draga mig í pottinn áður en við förum í náttfötin á kvöldin.“ n Ásdís er alsæl í efri byggðum Kópavogs og segir það forréttindi að búa í nálægð við náttúruna. 2 kynningarblað 18. febrúar 2022 FÖSTUDAGURMatur og heiMili
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.