Fréttablaðið - 18.02.2022, Side 28
Þessar persónur eru í
mjög ólíkum aðstæð-
um, en þær eru báðar í
neyslu og eiga báðar
börn sem þær eru ekki
að sinna nógu vel af
einhverjum ástæðum.
odduraevar@frettabladid.is
Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Hopps, segir ótrúlega
snjókomu á höfuðborgarsvæðinu
undanfarna daga skemmtilega
áskorun fyrir fyrirtækið frekar en
martröð.
„Þetta er fyrsta skiptið sem Hopp
lendir í svona miklum snjó,“ segir
Sæunn en eins og flestir vita hefur
snjónum svoleiðis kyngt niður í
Reykjavík svo eftir hefur verið tekið.
„Við erum á hverjum degi með
stórar vaktir sem keyra um borgina
að bjarga skútunum og erum að ein-
beita okkur að því að flytja þær að
upphituðum stéttum og miðborg-
inni,“ segir Sæunn. Hún segir hjólin
enn mjög mikið notuð, þvert á það
sem flestir kannski halda.
„Við erum samgöngufyrirtæki og
fólk er búið að velja rafskúturnar
sem fararmáta og getum ekki skellt
í lás og þjónustum notendur okkar,“
segir Steinunn, sem viðurkennir að
það hafi verið mikið að gera síðustu
daga.
„Það sem við erum fyrst og fremst
að gera er að reyna að taka skúturn-
ar úr farvegi snjóruðningstækjanna.
Það gagnast Hopp ekki neitt að vera
með óruddan stíg og við viljum ekki
að stígar séu ekki ruddir vegna raf-
skútna, enda hafa snjóruðnings-
tækin leyfi til að ryðja hjólunum.“
Sæunn segir að ruðningurinn
hafi tekið sinn toll af fararskjótum
Hopps. „Það eru tugir af skemmdum
skútum en það er ákveðinn fórnar-
kostnaður því að notendurnir vilja
skúturnar og við viljum sinna not-
endunum okkar og þetta snýst um
þjónustu.“
Hopp er með átta manneskjur á
vakt á hverjum sólarhring að sinna
hjólunum úti auk starfsfólks á verk-
stæði. „Naglarnir gera mikið og fólk
fer á þessu út um allt, en maður
skilur að sumir séu ragari við að
nota hjólin núna.“ n
Hoppað á skútum
yfir snjóskaflana
Það hefur verið erfitt að nota raf-
skútur í borginni. mynd/aðsend
Disney+
The Book of Boba Fett
aðalhöfundur: Jon Favreau
aðalhlutverk: Temuera Morrison,
Ming-Na Wen og Jennifer Beals
Oddur Ævar Gunnarsson
Kannski er The Book of Boba Fett
jafn sérkennileg sjónvarpssería
og raun ber vitni vegna þess að
væntingarnar voru eiginlega allt of
miklar frá upphafi.
Bæði er serían afleiða hinna vin-
sælu The Mandalorian-þátta og
titilpersónan hefur verið meðal
dularfyllstu og dáðustu persóna
Stjörnustríðsheimsins allar götur
síðan Boba Fett birtist í örfáar
mínútur í The Empire Strikes Back
og Return of the Jedi, þar sem hann
kollsteyptist heldur klaufalega ofan
í alræmdan Sarlacc-pyttinn á Tato-
oine og var talinn af.
Í fyrsta þætti brýst Boba af aðdá-
unarverðum rammleik upp úr ban-
vænum pyttinum og ljóst verður að
sögur af andláti þessa skelfilegasta
mannaveiðara stjörnuþokunnar
hafa verið stórlega ýktar í tæplega
fjóra áratugi.
Hefst þá svaðilför persónunn-
ar um sandöldur Tatooine, sem
ætla mætti að væri eina plánetan í
stjörnustríðskorti Disney, og sköll-
ótt þroskasaga þar sem manna-
veiðarinn kýs af óljósum ástæðum
að snúa baki við sérgrein sinni til
að leggja undir sig glæpaveldi Jabba
heitins the Hutt.
Skrykkjótt framvinda sögunnar
leiðir f ljótt í ljós að slíkt er hægara
sagt en gert og hvatir Boba Fetts
eru óljósar. Aðallega vegna þess
að hann sleppur of billega úr Sar-
laccnum til þess að réttlæta aðra
eins persónuleikabreytingu.
Í ljósi vigtar Boba Fetts í Star
Wars-heiminum hafa líklega flestir
orðið fyrir vonbrigðum með að fá
ekki að sjá átakanlegri og meira
sannfærandi upprisu Boba frá
dauðum en skyndilausnina sem
kristallar meginvanda upphafs-
þáttanna þar sem lítið virðist vera í
húfi og framvinda sögunnar er hæg
og á köflum hreinlega óspennandi.
Þessi galli er svo áberandi að það
er eins og að handritshöfundarnir
hafi áttað sig á takmörkunum per-
sónunnar í fjórða þætti af sjö og því
tekið snarpa vinkilbeygju með því
að skófla Boba hreinlega til hliðar
í fimmta þætti. Þá stígur Manda-
lórinn, úr sínum eigin þætti, inn í
atburðarásina og stelur senunni.
Ansi kaldhæðnislegt að persónan
sem haslaði sér völl í krafti her-
klæða og vinsælda Boba Fetts reyn-
ist hér í raun betri og mun áhuga-
verðari Boba Fett heldur en sjálfur
Boba Fett.
Enda háir það Boba Fett að per-
sónan hefur alltaf verið fámál og
þannig sveipuð dulúð. Þegar Boba
Fett hins vegar gerist fyrirvaralaust
göfugur og allt of ræðinn gufa per-
sónutöfrarnir upp og sterk rök má
færa fyrir því að grunn persónu-
sköpunin dragi helst söguþráðinn
og þar með þáttaröðina niður.
Strax þegar Mandalórinn mætir
í þætti fimm og skjátími Boba Fetts
er skorinn niður í 20 sekúndur verð-
ur sagan áhugaverðari og spennan
eykst sem skilar skemmtilegu loka-
uppgjöri Boba þegar handritshöf-
undarnir bjarga sér fyrir horn með
öflugum liðsauka Mandalórans og
f leiri óvæntum gestum. n
niðurstaða: Book of Boba
Fett fer ekki nógu vel með
sjálfan Boba Fett. Aðrar persónur
blómstra hins vegar í seinni hálf-
leik sem er miklum mun skemmti-
legri og keyrir upp eftirvænt-
inguna eftir frekari ævintýrum
Mandalórans.
Mandalórinn betri Boba Fett en Boba Fett
Kaflarnir í Bók
Boba Fetts eru
misáhugaverðir
og aðalper-
sónan er fjarri
góðu gamni í
þeim bestu.
mynd/disney
Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir
fer með hlutverk í tveimur
nýjum íslenskum bíómynd-
um í fullri lengd, Berdreymi,
sem frumsýnd er á Íslandi
í apríl, og í kvikmyndinni
Harmi sem frumsýnd er í dag.
ninarichter@frettabladid.is
Margir kannast við Ísgerði Elvu
Gunnarsdóttur af skjánum. Hún
var annar stjórnenda Krakkafrétta
á RÚV um árabil, samhliða leik-
ferlinum. Þá hefur hún gegnt stöðu
verkefnastjóra samfélagsmiðla á
RÚV. Núna hefur hún þó dembt sér
alfarið í leiklistina og leikur hlut-
verk í tveimur nýjum bíómyndum.
Athygli vekur að bæði hlutverk eru
um margt sambærileg þó að þau séu
ekki eins. Í báðum tilfellum er um
að ræða mæður sem eru illa staddar
vegna neyslu.
Lukkulegri í lífinu en bíó
„Ég er aðeins lukkulegri sem
mamma í lífinu en í bíó,“ segir
Ísgerður, sem eignaðist soninn Birgi
Galdur fyrir sjö mánuðum síðan.
Hún segir að það sé þó meiri áskor-
un að takast á við aðstæður sem eru
fjarri hennar raunverulega lífi.
„Þessar persónur eru í mjög ólík-
um aðstæðum, en þær eru báðar
í neyslu og eiga báðar börn sem
þær eru ekki að sinna nógu vel af
einhverjum ástæðum. En þær eru
mjög ólíkar, og myndirnar rosalega
ólíkar. Samt eru þarna sameigin-
legir fletir,“ útskýrir Ísgerður.
Hún var enn að vinna í Krakka-
fréttum meðan á tökum stóð og
segist hafa verið öfganna á milli
þegar kom að förðun og búningum.
„Ég var að skiptast á að fara á sett
fyrir Berdreymi og í Krakkafréttir.
Þarna fór ég í smink á einum stað til
að gera mig sæta, og á öðrum stað
til að gera mig sjúskaða. Þetta voru
fjölbreyttar vikur,“ segir Ísgerður og
hlær.
Ekki fordómar heldur samkennd
„En maður þarf svolítið að ímynda
sér hvernig þetta er. Ég hef unnið
mikið með unglingum og maður
hefur þannig verið í ábyrgðarhlut-
verki gagnvart þeim, en á annan
hátt. En þetta kemur til mín, ein-
hvern veginn.“ Hún segist finna
mikla samkennd með persónunum
sem hún leikur og segist aðspurð
ekki hafa fundið fyrir fordómum
hjá sjálfri sér þegar hún tókst á við
hlutverk mæðra með fíknivanda.
„Það er einhver ástæða fyrir því að
þetta gerist. Aðstæðurnar sem þær
eru í eru þannig að þarna eru hlutir
sem er erfitt að díla við. Fólk kemur
sér í aðstæður sem það ratar ekki
sjálft út úr,“ segir Ísgerður. „Ég held
að það sé líka lykillinn. Að ef þú ert
að dæma fólkið sem þú ert að leika,
þá áttu ekki að leika það.“
Las sögur mæðra af götunni
Tökurnar á Berdreymi og Harmi
fóru fram síðla árs 2020 og um
svipað leyti varð Ísgerður ólétt með
aðstoð glasafrjóvgunar. „Ég fór úr
uppsetningunni beint í tökur á Ber-
dreymi. Svo var ég komin mánuð á
leið þegar við vorum að taka upp
Harm.
„Ég hef þekkt margt fólk á mis-
jöfnum stöðum í lífinu á alls konar
tímabilum, þannig að ég dæmi ekki
þessar aðstæður. En mér finnst
þetta hrikalega sorglegt,“ segir hún.
Ísgerður segist hafa undirbúið sig
vel og lesið viðtöl.
„Ég man að það var viðtal í Frétta-
blaðinu við konur á götunni, viðtal
sem kom á svipuðum tíma og ég
var að undirbúa mig. Ég man hvað
það var fallegt og berskjaldað. Mér
fannst þessar konur svo hugrakkar
og þær komu í viðtal, ennþá í þessari
erfiðu stöðu að vera á götunni. Þær
lýstu því svo vel að það velur þetta
enginn.“
Tvítugir með tvær milljónir
Harmur er einkaframtak ungra
kvikmyndagerðarmanna um tví-
tugt, Halldórs Ólafsonar, Antons
Kristensen og Ásgeirs Sigurðssonar,
sem eru að stíga sín fyrstu skref
í bransanum. Þeir fjármögnuðu
myndina sjálfir og heildarkostn-
aður framleiðslunnar var um tvær
milljónir. „Þetta er svo f lott, þeir
eru ótrúlega duglegir og hafa komið
myndinni á hátíðir erlendis. Þeir
leysa hlutina vel og fóru í kringum
budgetið, komu með sniðugar
lausnir á hlutum sem ég velti fyrir
mér hvernig yrðu útfærðar.“
Berdreymi er kvikmynd eftir
Guðmund Arnar Guðmundsson
sem gerði kvikmyndina Hjartastein
sem fór sigurför á kvikmyndahá-
tíðum erlendis. Framleiðslan er
alþjóðleg en fjórir unglingspiltar
eru í aðalhlutverkunum. Auk
Ísgerðar fara Ólafur Darri og Aníta
Briem með hlutverk í myndinni.
Berdreymi var heimsfrumsýnd á
Berlinale-hátíðinni í síðustu viku
og vann þar til verðlauna í gær. n
Móðurhlutverk í ólíkum myndum
Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir leikkona tekst á við móðurhlutverkið í eigin lífi
sem og á hvíta tjaldinu. Fréttablaðið/Valli
20 Lífið 18. febrúar 2022 FÖSTUDAGURFréttaBlaðiðLíFið FréttaBlaðið 18. febrúar 2022 FÖSTUDAGUR