Fréttablaðið - 18.02.2022, Side 40
Kynleið-
réttingar-
aðgerðir
teljast til
valkvæðra
aðgerða
sem hafa
setið á
hakanum
vegna far-
aldursins.
Okkar hlutverk í trans
teyminu er ekki að
segja hver eigi að fá
þjónustu og hver ekki.
Elsa Bára
Traustadóttir,
sálfræðingur
í trans teymi
Landspítala
Ég held að Covid hafi
svo sannarlega sett
strik í reikninginn og
það er allt orðið aðeins
hægara.
Ugla Stefanía
Kristjönudóttir
Jónsdóttir,
formaður Trans
Íslands
Það hefur aldrei verið
neitt sérstakt utanum-
hald fyrir mig.
Alexander
Laufdal Lund
Langur biðtími eftir kynleið
réttingaraðgerð getur reynst
hættulegur þeim sem bíða
slíkrar aðgerðar. Heilbrigðis
ráðherra segir unnið að því
að stytta biðtímann. Frétta
blaðið grennslaðist fyrir um
stöðu trans fólks og ræddi við
sérfræðinga og einstaklinga
sem bíða eftir aðgerð.
HEILBRIGÐISMÁL Alexander Laufdal
Lund er tvítugur trans maður sem
er uppalinn á Húsavík en búsettur
í höfuðborginni. Alexander kom
út sem trans fimmtán ára gamall
og byrjaði í kynleiðréttingarferli
þegar hann var átján, þá búsettur á
Akureyri. Hann kveðst hafa fengið
góðan stuðning fagaðila í sínu ferli
en segir skorta utanumhald fyrir
fólk í hans stöðu.
„Það hefur aldrei verið neitt sér
stakt utanumhald fyrir mig, hvort
sem það var fyrir norðan eða hérna
í bænum. Þannig að ég hef ekki
tekið eftir neinum svaka mun þar
á milli,“ segir hann.
Að sögn Alexanders er mörgu
ábótavant hvað varðar upplýsinga
gjöf til trans fólks um heilbrigðis
þjónustu. Honum var til að mynda
tjáð af aðilum í heilbrigðiskerfinu
að hann þyrfti að fara í eggheimtu
áður en hann myndi byrja á hor
mónum. Alexander pantaði sér því
tíma hjá tæknifrjóvgunarstöðinni
Livio en þegar hann komst loks í
viðtal mörgum mánuðum síðar
fékk hann þær upplýsingar að
hæglega væri hægt að framkvæma
eggheimtuna eftir að hann færi á
hormóna.
„Það er rosa mikið óljóst í trans
teyminu. Ég byrjaði bara á horm
ónum og allt í góðu en eins og að
fá samband við innkirtlalækninn,
það er ekki séns, það er rosa erfitt
að ná sambandi og þótt maður
hringi í innkirtladeildina þá næst
almennt bara aldrei samband
við deildina sjálfa og hvað þá við
læknana. Þannig að maður er bara
svolítið að frístæla,“ segir Alexand
er.
Alexander byrjaði á hormónum
í september 2019 og komst á bið
lista fyrir brjóstnám skömmu
síðar. Hann fékk upphaflega tíma
í aðgerð vorið 2020 en þegar Covid
skall á frestaðist hún um hálft ár
svo Alexander komst ekki að fyrr
en í september 2020. Biðin var
Alexander nokkuð erfið og hefði
hann leitað á einkastofu ef hann
hefði haft tök á því.
„Allir aðrir trans strákar í kring
um mig voru búnir að fara í brjóst
námið fyrir sumarið, þannig að það
var klárlega mjög erfitt.“
Ekki eins ferli fyrir alla
Samk væmt gögnum frá Land
spítala er biðtími eftir kynleið
réttingaraðgerðum hér á landi
mjög breytilegur og getur varað
allt frá tveimur vikum upp í tíu
mánuði, ef frá eru skilin árin 2020
og 2021. Eins og staðan er nú bíða
32 fullorðnir einstaklingar eftir
því að komast að hjá trans teymi
Landspítala og 33 börn eftir því að
komast að hjá trans teymi barna
og unglingageðdeildar.
Elsa Bára Traustadóttir sál
fræðingur hefur starfað hjá trans
teymi Landspítala í rúman áratug.
Hún segir heilbrigðisstarfsfólk vera
meðvitað um að biðin eftir aðgerð
geti verið fólki þungbær en segir
það ekki óeðlilegt að ferlið taki
langan tíma, enda sé að mörgu að
huga.
„Það er alltaf margra mánaða bið
frá því að þú kemur til teymisins
og jafnvel einhver ár, það er ekk
ert óeðlilegt við það. En það ætti
náttúrlega ekki að vera mjög langur
tími frá því þú ert kominn á bið
lista. Við viljum náttúrlega minnka
þann tíma,“ segir Elsa Bára.
Eftir að fólk leitar til trans teym
isins tekur við sex mánaða grein
ingarferli þar sem það hittir geð
lækni og sálfræðing að meðaltali
einu sinni í mánuði. Að því tíma
Vanræktur hópur í heilbrigðiskerfinu
Þorvaldur S.
Helgason
tsh
@frettabladid.is
bili loknu getur fólk farið á karl
eða kvenhormóna, ef það óskar
þess. Ef fólk ætlar sér svo að fara í
aðgerð á kynfærum, ýmist kallaðar
kynstaðfestandi aðgerðir eða neðri
aðgerðir, þá þarf það að hafa verið
á hormónum í að minnsta kosti ár.
Elsa Bára ítrekar þó að ferlið sé
mismunandi fyrir hvern og einn
einstakling enda sé það algjörlega
undir fólki sjálfu komið hvaða
þjónustu það óskar eftir.
„Þetta er ekki eitt ferli, það er
mjög mikilvægt að átta sig á því,
þetta er ekki ferli sem allir fara
eins í. En í grunninn er það þannig
að það er svona sex mánaða grein
ingar eða matsferli og svo tekur við
meðferð. Það sem fólk er yfirleitt að
sækjast eftir er ýmis hormónameð
ferð og/eða skurðaðgerðir, sumir
vilja kannski bara fara í brjóstnám
og ekkert annað, ekki hormóna,
önnur vilja kannski bara komast á
hormóna.“
Algjörlega lífsnauðsynleg aðgerð
Undir eðlilegum aðstæðum er kyn
leiðréttingarferlið nokkuð langt en
eins og með allar meðferðir á Land
spítala hefur heimsfaraldurinn
sett stórt strik í reikninginn. Ugla
Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir,
formaður Trans Íslands, segist hafa
orðið vör við þetta í sínu starfi.
„Ég held að Covid hafi svo sann
arlega sett strik í reikninginn og
það er allt einhvern veginn orðið
aðeins hægara og hefur allt tekið
aðeins lengri tíma,“ segir Ugla og
bætir við að það sem hafi sérstak
lega lengst sé bið eftir tímum hjá
innkirtlafræðingum og biðtími í
aðgerðir.
Í svari við fyrirspurn Frétta
blaðsins viðurkenndi Willum Þór
Þórsson heilbrigðisráðherra að
biðtíminn væri of langur og sagði
ríkisstjórnina vinna að því að
stytta hann. „Þessar aðgerðir eru
afar mikilvægar fyrir þau sem þær
þurfa. Það er ljóst að biðtíminn
er of langur, en óhjákvæmilega
hafa biðlistar eftir margvíslegum
aðgerðum lengst vegna heimsfar
aldurs Covid19,“ sagði hann.
Kynleiðréttingaraðgerðir, rétt
eins og allar aðgerðir sem eru ekki
bráðaaðgerðir, eru skilgreindar
sem valkvæðar og hefur því illa
gengið fyrir trans teymið að fá
pláss á skurðstofum á Landspítala
í heimsfaraldrinum.
Trans konan Bríet Blær Jóhanns
dóttir segir þetta skjóta skökku
við en að hennar mati eru slíkar
aðgerðir algjörlega lífsnauðsyn
legar fyrir geðheilsu trans fólks.
„Get ég lifað í tvö ár í viðbót? Þetta
er rosalega þungt, að þurfa að bíða
svona,“ sagði Bríet í viðtali við
Fréttablaðið í janúar en sjálf hefur
hún verið á biðlista eftir neðri
aðgerð frá árinu 2020.
Hætta á sjálfskaða og sjálfsvígum
Ugla Stefanía er sammála því að
kynleiðréttingaraðgerðir séu lífs
nauðsynlegar enda skipti þær
sköpum fyrir líkamlega og andlega
heilsu trans fólks. Þegar hún gekk
sjálf í gegnum kynleiðréttingarferli
árið 2010 tók það hana tvö og hálft
ár frá upphafi til enda, sem er tölu
vert fjarri reynslu Bríetar.
„Það sýnir sig líka bara í rann
sóknum að þar sem fólk hefur
greiðari aðgang að aðgerðum og
þeirri þjónustu sem það þarf á að
halda, því betri er geðheilsan. Því
minna er um sjálfsvíg og því minni
er sjálfskaði hjá þessum hópi.
Þannig að þetta er svolítið einfalt
reikningsdæmi en eitthvað sem
mér finnst spítalinn ekki alveg gera
sér grein fyrir. Mér finnst að trans
fólk almennt hafi alltaf verið svo
lítið vanræktur hópur í heilbrigðis
kerfinu,“ segir Ugla.
Elsa Bára tekur í sama streng
og segir rannsóknir hafa sýnt að
trans fólk sé í meiri hættu á sjálf
skaða og sjálfsvígum en aðrir sam
félagshópar. Þá segir hún það skipta
miklu máli að fólk fái viðeigandi
heilbrigðisþjónustu enda kveði lög
um kynrænt sjálfræði á um að hver
og einn einstaklingur hafi rétt til að
skilgreina sína kynvitund sjálfur.
Það sé því ekki á færi heilbrigðis
starfsfólks að segja hver sé trans og
hver ekki.
„Þetta er bara eitthvað sem fólki
er í sjálfsvald sett, hvernig það
skilgreinir sig. Og að sjálfsögðu á
það þá rétt á því að fá heilbrigðis
þjónustu í samræmi við það. Okkar
hlutverk í trans teyminu er ekki að
segja hver eigi að fá þjónustu og
hver ekki. Við erum bara að reyna
að mæta þörfum fólks,“ segir Elsa
Bára. n
Trans fólk kom fyrir rúmri viku að bústað forsætisráðherra Breta í Lundúnum og krafðist þess að mismunun gagnvart hópnum yrði hætt. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
8 Fréttir 18. febrúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ