Fréttablaðið - 18.02.2022, Side 70
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Mér finnst vanta í
umræðuna að fólk viti
hversu mikil vinna fer í
hverja rannsókn.
Sjónvarpsþátturinn Vísindin
og við hefur göngu sína á
Hringbraut á mánudaginn
en þar ræða Þóra Katrín
Kristins dóttir og Sigmundur
Ernir Rúnarsson við fræða-
fólk í Háskóla Íslands um
vísindasamfélagið og mikil-
vægi viðfangsefna þess.
svavamarin@frettabladid.is
Sjónvarpsþátturinn Vísindin og við
kemur nýr á dagskrá Hringbrautar á
mánudaginn en Þóra Katrín Krist-
insdóttir, efnafræðingur og sérfræð-
ingur í þróun á mæliaðferðum lyfja
hjá Coripharma, sér um þáttinn
ásamt Sigmundi Erni Rúnarssyni.
Þáttunum er ætlað, með við-
tölum við vísindafólk í fremstu
röð og fræðafólk á ýmsum sviðum,
að varpa ljósi á þær margvíslegu
rannsóknir sem stundaðar eru við
Háskóla Íslands.
„Hugmyndin er í raun að opna
vísindasamfélagið fyrir fólki þar
sem þarna fara fram svo margar stór-
kostlegar rannsóknir og vinna með
aðkomu gríðarlega flotts fólks,“ segir
Þóra Katrín og bætir aðspurð við að
upphaf þáttanna megi rekja til þess
að hún sendi Sigmundi Erni á Hring-
braut bréf þess efnis að henni þætti
tími til kominn að auka fjölbreytn-
ina á sjónvarpsskjánum hjá fólki.
5x36 = vísindin og við
„Þættirnir eru fimm talsins og 36
mínútur hver,“ heldur Þóra Katrín
áfram og bætir við að hún hafi orðið
margs vísari við gerð þáttanna og í
samtölum sínum við fræðafólkið
hafi hún kynnst ýmsu sem hún
hafði ekki hugmynd um áður.
„Þegar ég fór í efnafræði í Mennta-
skólanum í Kópavogi var ég spurð
hvort ég ætlaði að fara að blanda
málningu í málningarbúð, eins og
það væri það eina sem ég gæti nýtt
mér úr námi mínu.“
Hún bendir síðan á að þetta við-
horf hafi gert það að verkum að hún
hugsaði ekkert meira um að sér-
hæfa sig í efnafræði en þáttunum
er ekki síst ætlað að ná til yngra
fólks og veita þeim sem eru að velja
sér nám einhverja innsýn í hversu
margt spennandi bíður handan við
hornið.
Þóra Katrín bendir jafnframt á að
fólki hætti til að fella sleggjudóma
yfir vísindunum sem byggi oft á
ákveðnu þekkingarleysi og myndi
sér hvaða skoðun sem er án þess
að hafa nokkurn bakgrunn í fræð-
unum.
„Mér finnst vanta í umræðuna
að fólk viti hversu mikil vinna fer
í hverja rannsókn,“ segir Þóra og
nefnir umræðuna um bóluefnin við
kórónaveirunni sem dæmi. „Í raun-
inni bara að sýna fólki að þessar
rannsóknir eru ekki teknar upp af
götunni og því stærri sem þær eru,
því fleiri leggja hjarta sitt í þetta.
Við ræðum, í fyrsta þættinum, við
Heiðu Maríu Sigurðardóttur, doktor
í taugavísindum, en hún hefur verið
að rannsaka hvernig heilinn vinnur
úr sjónrænum upplýsingum eins og
til dæmis hjá einstaklingum með
lesblindu.“
Einnig verður rætt við doktor
Guðrúnu Marteinsdóttur. „Hún
hefur þróað og framleitt snyrtivörur
úr fiski. Það er svo flott hvað hægt
er að gera úr hráefni sem við eigum
í nærumhverfi okkar,“ segir Þóra
Katrín um þessa frumlegu nýtingu
á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar
og gott dæmi um samruna vísinda
og daglegs lífs. n
Vísindasamfélagið opnað
með spennandi fræðafólki
Þóra Katrín ætlar að efla vísindalega fjölbreytni á skjánum og skyggnast bak
við rannsóknartjöldin hjá Háskóla Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
HEIMA ER BEZT
MÁNUDAGA KL. 19.30
OG AFTUR KL. 21.30
ninarichter@frettabladid.is
Kvikmyndamiðstöð er um þessar
mundir að ef la kynningarstarf
á kvikmyndum og bransanum
erlendis og innanlands, samhliða því
að bjóða upp á veitu fyrir íslenskar
kvikmyndir til að mæta þörf sem
hefur verið viðvarandi um nokkurra
ára skeið, en erfiðlega hefur gengið
að nálgast íslenskar bíómyndir á
streymisveitum síðustu ár, með
breyttri tækni og notendahegðun.
„Þetta er búið að vera vandræða-
ástand í nokkur ár, eftir að DVD-ið
hvarf,“ segir Laufey Guðjónsdóttir,
forstöðumaður Kvikmyndamið-
stöðvar.
„Við erum að setja upp veitu, en
við erum ekki að búa til streymis-
veitu heldur erum við að leigja kerfi.
Ekki fyrir fimm hundruð milljónir
eins og var svolítið í umræðunni,“
segir hún.
„Þá verður þetta þannig að rétt-
hafinn fær stærsta hluta greiðslunn-
ar sem greidd er fyrir hvert áhorf.“
Laufey segir að veitan verði komin
í gagnið mjög fljótlega. „Við ætlum að
reyna að byrja á þessu mjög fljótlega,
þetta er spurning um vikur en ekki
mánuði,“ segir hún.
„Við ætlum að byrja með tuttugu
myndir, og þá erum við að hugsa um
erlenda markaðinn, maður þarf svo-
lítið að prófa þetta. Það eru margir
mismunandi samningar sem gilda
um hvert og eitt verk, og í mismun-
andi löndum,“ útskýrir Laufey.
„Við erum byrjuð að setja inn á
kvikmyndavefinn.is horfa-takka,
þar sem er hægt að smella og horfa
og finna út úr því hvar er hægt að sjá
myndina. En þetta er allt í vinnslu.“ n
Íslenskar myndir skila sér í streymið
Laufey Guðjónsdóttir, forstöðu-
maður Kvikmyndamiðstöðvar.
22 Lífið 18. febrúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
Kaka ársins
2018
Verð
3200 kr. -