Morgunblaðið - 13.01.2022, Síða 1
F I M M T U D A G U R 1 3. J A N Ú A R 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 10. tölublað . 110. árgangur .
Vatnsmelónur
172KR/KG
ÁÐUR: 245 KR/KG
Melónur
gular
202KR/KG
ÁÐUR: 289 KR/KG
melónur
Kantalóp
279KR/KG
ÁÐUR: 399 KR/KG
Nautapiparsteik
Mjöðm
2.589KR/KG
ÁÐUR: 3.699 KR/KG
30%
AFSLÁTTUR
30%
AFSLÁTTUR
TILBOÐ GILDA 13.--16. JANÚAR
FRÁBÆR TILBOÐ
Í NÆSTU NETTÓ
ÚTSVARIÐ
VERÐI LÆKKAÐ
AÐ NÝJU Á NESI
BÖRNIN
VANTAÐ
BJARGRÁÐ
LJÓST AÐ MENN
VILJA NÁ LENGRA
EN FYRIR ÁRI
NÝJAR BÆKUR 14 FYRSTI LEIKUR Á MORGUN 58MAGNÚS VILL 1. SÆTI 16
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Umboðsmaður barna hefur gert at-
hugasemdir við framkvæmd sýna-
töku hjá börnum á Heilbrigðisstofn-
un Suðurnesja. Salvör Nordal,
umboðsmaður barna, segir að verið
sé að skoða hvort senda þurfi ábend-
ingar um þetta efni til annarra heil-
brigðisstofnana en vonar að aðrir
skoði sín mál í kjölfar frétta fyrir
áramót um ábendingar til Heilsu-
gæslunnar á höfuðborgarsvæðinu
um framkvæmdina á Suðurlands-
braut.
Umboðsmanni
barna hafa borist
ábendingar um
framkvæmd
PCR-sýnatöku á
börnum hjá Heil-
brigðisstofnun
Suðurnesja. Þær
snúast aðallega
um að umhverfi
sýnatökunnar sé
ekki barnvænt og taki ekki mið af
þörfum barna og að starfsmenn hafi
ekki fengið sérstaka þjálfun til að
taka sýni af börnum eða eiga í sam-
skiptum við börn. Ábendingum um
þetta hefur verið komið til stofnun-
arinnar.
Þessar ábendingar eru keimlíkar
ábendingum sem umboðsmaður fékk
fyrir áramót um framkvæmd sýna-
töku á börnum í starfsstöð Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins við
Suðurlandsbraut.
Auk athugasemda um umhverfið
og þjálfun starfsfólks vakti umboðs-
maður athygli Heilsugæslunnar á
því að börn þyrftu oft að bíða mjög
löngum stundum í biðröð eftir sýna-
töku, jafnvel mjög ung börn. Salvör
segist ekki hafa fengið formlegt svar
við ábendingunum. »4, 22
Umhverfið ekki barnvænt
- Umboðsmaður barna gerir athugasemdir við sýnatöku barna - Borist ábend-
ingar um umhverfi og þjálfun starfsmanna - Löng bið barna áður til umfjöllunar
Salvör Nordal
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Suðurlandsbraut Fólk beið eftir
sýnatöku í gær eins og áður.
_ Hafnarfjarðar-
bær hefur selt 70
atvinnulóðir síð-
astliðin fjögur ár
og fjórfaldaðist
salan á milli ár-
anna 2020 og
2021. Á síðasta
ári seldust alls 47
slíkar lóðir, flest-
ar í Hellna-
hrauni.
Þetta kemur fram í grein Rósu
Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra Hafn-
arfjarðar, í blaðinu í dag. Hún segir
áhuga fyrirtækja á lóðum enn vera
mikinn og þess vegna hafi verið
ákveðið að skipuleggja 50 lóðir til
viðbótar. Sé allt tekið saman verði á
árunum 2018-2022 yfir 600 þúsund
fermetrum ráðstafað til atvinnu-
starfsemi í Hafnarfirði. »37
Fjórföldun umsókna
um atvinnulóðir
Rósa
Guðbjartsdóttir
Um 56% útfara á höfuðborgarsvæð-
inu eru bálfarir. Um 2.300 útfarir
eru á landinu á ári. Þar af eru tæp-
lega eitt þúsund bálfarir, að sögn
Þórsteins Ragnarssonar, forstjóra
Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts-
dæma. Kirkjugarðarnir hafa skilað
innanríkisráðuneytinu tillögu um
nýja bálstofu. Þar verða tveir
brennsluofnar með fullkomnum
hreinsibúnaði. Stefnt er að því að
hún verði tilbúin innan 5-6 ára.
Dæmi eru um að trúfélög hafi
helgað sér grafreiti. Þannig eru Ása-
trúarfélagið og múslimar með graf-
reiti í Gufunesgarði og Bahá’í-
samfélagið í Kópavogsgarði. Þá er
óvígður reitur í Gufunesgarði fyrir
þá sem eru utan trúfélaga eða vilja
ekki hvíla í vígðri mold. »6
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sólland Sérstakur grafreitur fyrir
duftker í Fossvogi. Mynd úr safni.
Bálfarir
verða æ
algengari
Ingibjörg Lára Símonardóttir, yfirhjúkr-
unarfræðingur Heilbrigðisstofnunar Norður-
lands á Akureyri, bólusetti ásamt kollegum sín-
um rúmlega 600 börn í höfuðstað Norðurlands í
gær. Bólusett er í slökkvistöðinni.
„Það er ekki annað hægt að segja en að þetta
hafi gengið mjög vel,“ segir hún í samtali við
Morgunblaðið. Bólusett verður þar aftur í dag,
frá klukkan eitt eftir hádegi til klukkan sex. »4
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Bólusetningar barna halda áfram fyrir norðan