Morgunblaðið - 13.01.2022, Page 2

Morgunblaðið - 13.01.2022, Page 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra . 595 1000 Tenerife y 19 janúar í TVÆR VIKUR! Verð frá kr. 99.150 gg y y VERÐÁMANNM.V. 2 FULLORÐNA 10-60% AFSLÁTTUR ÚTSALAN ER Í FULLUMGANGI Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Inga Þóra Pálsdóttir ingathora@mbl.is Íbúar Bústaðahverfis eru ekki til- búnir fyrir þéttingu byggðar. Meiri- hlutinn mun samt sem áður halda sínu striki hvað varðar þéttingu byggðar, en þó ekki í Bústaðahverfi. Þetta segir Pawel Bartoszek, for- maður skipulags- og samgönguráðs og borgarfulltrúi Viðreisnar, í sam- tali við Morgunblaðið. Reykjavíkurborg sendi frá sér fréttatilkynningu í gær um að hug- myndir um þéttingu við Bústaðaveg hefðu verið lagðar til hliðar. Pawel segir borgina vilja senda þau skila- boð að hlustað sé á íbúa. Í könnun sem Gallup gerði fyrir Reykjavíkurborg og lögð var fyrir íbúa í póstnúmerum 103 og 108 kom fram að meirihluti þeirra væri mót- fallinn þéttingaráformum borgar- innar við Bústaðaveg. „Það sköpuðust blómlegar um- ræður um þessar hugmyndir í hverf- inu og við létum sérstaklega gera Gallup-könnun um afstöðu fólks vegna þess að við vildum ekki bara fá afstöðu þeirra sem hafa sig frammi heldur líka allra annarra. Niðurstaða könnunnar er að í tilfelli Bústaða- vegar er meirihluti andvígur þessum áformum og þegar maður ræðst í slíkt samráð þá er það gert til að taka alla vega eitthvert tillit til nið- urstöðunnar,“ segir Pawel. Kosningar hafi ekki áhrif Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, telur kosningaskjálfta kominn í meirihlutann. „Mér sýnist vera kominn á kosn- ingaskjálfti þegar verið er að senda út fréttatilkynningu sama dag og könnun er birt. Það er mjög óvana- legt að þessi meirihluti hlusti á vilja íbúanna, það hefur ekki verið venj- an,“ sagði Eyþór í samtali við mbl.is. Er blaðamaður óskaði viðbragða Pawels við þessum orðum Eyþórs sagðist hann óhræddur við að taka umdeildar ákvarðanir þó svo að kjör- dagur nálgist, en sveitar- og borg- arstjórnarkosningar fara fram 14. maí. „Allt þetta kjörtímabil hef ég tekið umdeildar ákvarðanir varðandi þétt- ingu byggðar og umferðarmál og verð óhræddur við að taka þær alveg fram að kjördegi. Í þessu tilfelli höf- um við einfaldlega fylgt því verklagi sem við höfum gert í hverfisskipu- lagi, að hlusta á skoðanir íbúa. Ég neita því hins vegar ekki að mér þótti einfaldlega rétt að þessi ákvörðun myndi liggja fyrir sem fyrst þannig að málið myndi ekki skapa einhverja óvissu í hverfinu langt fram að vori.“ Horfa til austurs Pawel segir að samkvæmt könn- uninni séu borgarbúar tilbúnir að skoða lausnir til að gera Miklubraut að minna fljóti og sendir það þau skilaboð að borgin þurfi að hugleiða stokklausnir lengra austur. Bætir hann við að samkvæmt könnuninni sé vilji fyrir því að bæta umferðaröryggi við Bústaðaveg og þurfi því að skoða hvernig hægt sé að útfæra það án þéttingar byggð- ar. „Það eru eiginlega allir til í að gera eitthvað til að bæta umferðar- öryggi við Bústaðaveg. Við munum áfram vinna að því en munum gera það með öðrum hætti heldur en með þessum þéttingaráformum sem þarna voru lögð fram.“ Þétta byggð annars staðar Eyþór Arnalds segir að niður- staða könnunarinnar sýni að þétt- ingarstefnan sem borgin hefur rekið síðustu ár sé að fara í ákveðið skip- brot. Pawel vísar því á bug. „Ég hef staðið með þéttingu og mun gera það áfram. Á þessu svæði var niðurstaðan hins vegar nokkuð afgerandi en það eru margir aðrir staðir í borginni þar sem fólk er vel tilbúið í þéttingu og við munum leggja áherslu á þá staði.“ Íbúar höfnuðu þéttingu byggðar - Afgerandi niðurstaða í Gallup-könnun - Meirihlutinn vilji senda þau skilaboð að hlustað sé á íbúa - Eyþór segir ekki venju að hlusta á íbúa- Nánast allir vilji bæta umferðaröryggi við Bústaðaveg Morgunblaðið/Hari Braut Pawel segir borgina þurfa að hugleiða að færa stokklausnir austur. Pawel Bartoszek Eyþór Arnalds Guðni Einarsson gudni@mbl.is Fjölda dauðra svartfugla hefur rek- ið á fjörur á Austfjörðum und- anfarið. Starfsmenn Náttúrustofu Austurlands fóru á vettvang í gær og könnuðu fjörur frá Berufirði að botni Reyðarfjarðar. Þar fundust hræ 273 svartfugla, mest álkur, langvíur og haftyrðlar. „Hræin voru flest orðin nokkuð skorpin og velkt en af þeim fuglum sem voru nokkuð heilir mátti meta að flestir, þó ekki allir, fuglanna voru mjög horaðir,“ sagði á vef stofnunarinnar. Eins sagði þar að rannsóknir bendi til þess að sjó- fuglar eigi erfitt með að afla sér æt- is þegar veður eru válynd. Þekktir eru atburðir þar sem þúsundir, jafnvel tugþúsundir sjófugla hefur rekið á land. Einn slíkur fellir varð hér við land veturinn 2001-2002 og þá var áætlað að tugir þúsunda svartfugla hafi horfallið í hafinu vestur, norð- ur og austur af Íslandi. Matvælastofnun (MAST) fékk sýni af fuglunum til rannsóknar. Stofnunin birti í gær tilkynningu um sjófugladauðann og minnti á að mikið sé um fuglaflensu í Evrópu um þessar mundir, bæði í villtum fuglum og alifuglum. Ólíklegt er talið að fuglaflensusmit valdi slík- um fjöldadauða í villtum fuglum. Engu að síður ætlar MAST að sjá til þess að sýni verði rannsökuð á Til- raunastöð HÍ að Keldum. Flestar fuglaflensugreiningar í Evrópu eru af skæðu afbrigði fuglaflensuveirunnar H5N1. Finn- ist dauður fugl sem augljóslega hef- ur ekki drepist af slysförum þarf að hafa samband við stofnunina. Fuglaflensuveiran sem algengust er í nágrannalöndunum hefur ekki valdið sýkingum í fólki, að sögn MAST. Dauða svartfugla rekur á fjörur fyrir austan - Hræ 273 svartfugla í fjörum frá Reyðarfirði að Berufirði Ljósmynd/Skarphéðinn G. Þórisson Berufjörður F.v. Hálfdán H. Helgason og Páll Leifsson kryfja dauðan fugl. Lögreglan á ekki að nota Facebook sem samskiptavefgátt fyrir við- kvæmar upplýsingar. Ef samfélags- miðillinn er aftur á móti notaður af lögreglunni fyrir aðvaranir og til að hvetja fólk til að huga að hinu og þessu þá hefur Persónuvernd ekki gert athugasemd við það. Þetta sagði Helga Þórisdóttir, for- stjóri Persónuverndar, í samtali við mbl.is í gær. Lögreglan á Suðurnesj- um er hætt að nota Facebook eftir athugasemd stofnunarinnar varð- andi móttöku upplýsinga. Farið yfir fjögur tilvik Spurð hvort sú ákvörðun hafi komið henni á óvart segir Helga að Persónuvernd hafi gert athuga- semdir við notkun lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á Facebook í fyrra. Farið var yfir fjögur tilvik þar sem lögreglan óskaði eftir ábending- um í gegnum einkaskilaboð. Helga bendir á að ef slíkum upp- lýsingum sé miðlað á Facebook sé þeim um leið deilt til stórfyrirtækis í Bandaríkjunum. Þar að auki sé Fa- cebook með samstarfsaðila, svokall- aða þriðju aðila, sem fái líka þessar upplýsingar. Það gangi ekki að upp- lýsingum um einstakling með tengsl við afbrot sé deilt á slíkan hátt. Ekki fyrir viðkvæm gögn - Athugasemdir gerðar við notkun lögreglunnar á Facebook - Lögreglan á Suðurnesjum er hætt á samfélagsmiðlinum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.