Morgunblaðið - 13.01.2022, Síða 4

Morgunblaðið - 13.01.2022, Síða 4
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022 SÓL Í SUMAR BETRA FRÍ FYRIR FJÖLSKYLDUNA SÍMI 585 4000 WWW.UU.IS ALMERÍA FLUG OG GISTING 06. - 16. JÚNÍ ARENA CENTER HOTEL 4* VERÐ FRÁ 79.900 KR Á MANN FULLORÐNA OG 2 BÖRN PORTÚGAL FLUG OG GISTING 07. - 14. JÚNÍ APARTM. VILA PETRA 4* VERÐ FRÁ 95.900 KR VERÐ Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN INNIFALIÐ: FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR, HANDFARANGUR, ÞJÓNUSTUFULLTRÚI Á STAÐNUM OG AÐGANGUR AÐ ÞJÓNUSTUSÍMA. Hátt í 90 prósent mæting var meðal barna á aldrinum fimm til ellefu ára sem boðuð voru í bólusetningu í Laugardalshöll í gær. Mun þetta vera besta mætingarhlutfallið hing- að til. Í samtali við mbl.is sagði Ragn- heiður Ósk Erlendsdóttir, fram- kvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsu- gæslunni á höfuðborgarsvæðinu, að dagurinn hefði gengið afar vel. „Það var 85 prósent mæting í bólusetn- ingu í dag sem er bara æðislegt, það getur verið að einhverjir hafi verið að koma sem voru boðaðir á morgun en miðað við fjöldann sem átti að koma í dag þá eru þetta 85 prósent.“ Krakkar duglegir fyrir norðan Hún bætti við að einnig hefði gengið vel dagana tvo þar á undan, en þá hafi verið um 70 prósent mæt- ing. „Það er bara búið að ganga mjög vel, gengið voða ljúft eins og síðustu daga,“ sagði Ragnheiður. „Það gekk ljómandi vel, krakk- arnir voru bara mjög duglegir,“ seg- ir Ingibjörg Lára Símonardóttir, yfirhjúkrunarfræðingur Heilbrigð- isstofnunar Norðurlands á Akur- eyri, um bólusetningar barna fyrir norðan. „Á svæðinu hérna eru þetta um tvö þúsund börn,“ bætir hún við en rúmlega 600 þeirra voru bólusett í gær. Haldið verður áfram í dag en að því loknu verða auglýstir tímar eftir helgi. Hámarksfjölda barna náð Í sýnatökum síðustu daga hafa börn undir átta ára aldri verið um 500 til 600 talsins og sagði Ragn- heiður að það væri hámarksfjöldi sem hægt væri að ráða við á einum degi. Hún kvaðst hafa áhyggjur af því að börnum ætti eftir að fjölga í sýnatöku á næstu dögum vegna fjölda smita í skólum. „Við ráðum alla vega ekki við meiri fjölda en þetta. Þetta var algjört hámark, við erum komin alveg upp í topp,“ sagði hún og bætti við að það taki um fimm sinnum lengri tíma að taka sýni úr börnum undir átta ára aldri. Þátttakan aldrei meiri - Áhyggjur af því að börnum muni fjölga í sýnatöku - Mikið álag í gær Morgunblaðið/Margrét Þóra Akureyri Börn voru bólusett fyrir norðan í gær, rétt eins og fyrir sunnan. Grunur kom upp um kórónuveiru- smit eins skipverja um borð í Keili, olíuflutningaskipi Olíudreifingar, í fyrradag. Skipið liggur við bryggju á Þórshöfn og í gær var unnið að því að skipta um áhöfn og sótthreinsa skip- ið. Hörður Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Olíudreifingar, segir að ákveðið hafi verið að skipta um alla áhöfnina, þegar þessi grunur kom upp, til að tryggja að skipið geti haldið áfram. Áhöfnin yfirgaf skipið og fór til Egilsstaða í sýnatöku. Skip- ið var síðan sótthreinsað áður en ný áhöfn fór um borð og tók til við að ljúka dælingu úr skipinu á Þórshöfn. „Þetta tefur okkur aðeins en ekki meira en eins og ein bræla, sem nóg er af þessa dagana,“ segir Hörður og telur að áhöfnin og skipið nái að sinna sínum verkefnum, þrátt fyrir töfina. Miklar annir eru í flutningum olíu um þessar mundir, sérstaklega vegna loðnuvertíðarinnar, og þess vegna eru fullar tvær áhafnir á Keili og hægt að skipta um ef slík mál koma upp. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Keilir lá bundinn við bryggju á meðan unnið var að sótthreinsun. Skipt um alla áhöfn olíuskipsins Keilis - Grunur um smit hjá einum skipverja Eitt barn á fyrsta ári liggur á Landspítalanum vegna Covid-19. Um 60 börn eru í nánu eftirliti Barnaspítala Hringsins vegna veir- unnar. Þetta kom fram í máli Þór- ólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundi almannavarna í gær. Þann 1. janúar lágu 23 inni á Landspítala með kórónuveirusmit, en nú eru þeir 46. Fjöldi á gjör- gæsludeild hefur staðið nokkuð í stað. Þrír hafa látist á Landspítala á síðustu fimm dögum vegna Co- vid-19. Tvö börn farið á gjörgæslu Alls hafa 10 börn yngri en 16 ára þurft að leggjast inn vegna Co- vid-19 hér á landi af um 9.300 börn- um sem hafa greinst með veiruna, eða um 0,1%. Tvö börn hafa þurft að leggjast inn á gjörgæslu. Ekki eru komnar fram óyggjandi niðurstöður um virkni bóluefna hjá börnum gegn Ómíkron-afbrigðinu. Þórólfur sagði virkni bóluefna gegn Delta-afbrigðinu aftur á móti jafn- góða og jafnvel betri hjá börnum en hjá fullorðnum eftir örvunar- skammt. Hann sagði útbreiðslu smita vaxandi á meðal barna og því mikilvægt að ná góðri þátttöku í bólusetningu þeirra. Ómíkron í 90% tilfella Ómíkron-afbrigðið greinist núna í um 90% tilfella á meðan Delta-af- brigðið greinist daglega hjá um og yfir 100 manns. Hlutfall þeirra sem þurfa að leggast inn á spítala vegna alvarlegra veikinda er um 0,5% af öllum greindum smitum. Hlutfallið er heldur lægra þegar um er að ræða Ómíkron eða 0,2-0,3%. Spálíkön frá Háskóla Íslands og Landspítalanum sýna að daglegur fjöldi smita mun halda áfram að vera um og yfir eitt þúsund fram eftir mánuðinum. Fjöldi smitaðra á Landspítalanum á sama tíma verð- ur samkvæmt líkönunum um 70 seinni hluta mánaðarins og um 20 manns verða á gjörgæslu, sagði Þórólfur. Ónæmi aukist hægt og bítandi Hann muni líklega koma með til- lögur að hertari sóttvarnaaðgerðum en nú eru í gildi vegna mikillar út- breiðslu kórónuveirufaraldursins. Hann verði fljótur að senda minn- isblað ef þess þurfi og býst jafnvel við nýjum aðgerðum fyrir helgi. Útlitið sé ekki bjart einmitt núna en að til lengri tíma litið væri það bjart. Átti hann þar við næstu vikur eða mánuði. Útbreidd bólusetning muni þar hjálpa til við að auka ónæmi hægt og bítandi í samfélaginu. Þá verði hægt að slaka á takmörkunum. Alls 0,5% smitaðra lögð inn á sjúkrahús - 0,1% barna lagst inn - Sóttvarnalæknir vill herða aðgerðir Fjöldi smita og innlagna á LSH með Covid-19 frá 1. júlí 2021 júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. 1.553 154 1.135 ný innanlands- smit greindust sl. sólarhring Fjöldi staðfestra smita innanlands Fjöldi innlagðra sjúklinga á LSHmeð Covid-19-smit 43 1.500 1.250 1.000 750 500 250 0 206 1.135 10.033 erumeðvirktsmit og í einangrun 10.063 einstaklingar eru í sóttkví 45 einstaklingar eru á sjúkrahúsi, þar af sjö á gjörgæslu, fjórir í öndunarvél Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þríeykið Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason og Alma Möller á fundi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.