Morgunblaðið - 13.01.2022, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.01.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022 Innleiðing nýrrar tegundar tollskýrslu á Íslandi tekur gildi 1. febrúar 2022 Vakin er athygli innflytjenda sem senda tollskýrslur til tollafgreiðslu hjá Skattinum úr viðskiptakerfum sínummeð EDI samskiptum að lokað verður fyrir móttöku eldri tegundar skýrslu (E1) þann 1. febrúar 2022. Frá þeim tíma verður eingöngu tekið við skýrslum á SAD formi (E2). Innflytjendur þurfa að uppfæra kerfi sín í samráði við framleiðanda eða seljanda hugbúnaðar sem fyrirtækið notar. Innflytjendur sem kjósa að uppfæra ekki geta nýtt sér þjónustu tollmiðlara við tollafgreiðslu vörusendinga. Skatturinn býður jafnframt upp á Vef-tollafgreiðslukerfi án endurgjalds. Fjölmörg minni innflutningsfyrirtæki nota þetta kerfi, en það hefur engar tengingar við bókhalds- eða lagerkerfi innflytjenda. Nánari upplýsingar áwww.skatturinn.is/sad-e2 442 1000 Upplýsingaver opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Vegagerðin áformar að hefja út- boðsferli vegna byggingar nýrrar Ölfusárbrúar nærri komandi mánaðamótum. Sem kunnugt er stendur til að framkvæmdin verði með svokallaðri samvinnuleið, skv. lögum þar að lútandi sem Alþingi samþykkti á síðasta kjörtímabili. Slíkt þýðir þá að brúarsmíðin og vegagerð henni samhliða eru í sam- starfi ríkis, verktaka og fjármála- fyrirtækja sem lána fé í verkefnið. Innheimt verða veggjöld af þeim sem nota brúna og munu þau borga framkvæmdina að hluta. Sam- kvæmt samgönguáætlun er kostn- aður við verkið 6,1 ma. kr. á verð- lagi í október 2019, en verið er að uppfæra kostnaðaráætlanir. Vegur í Hellismýri „Útboð á samvinnuverkefni og fjármögnun er tímafrekt og tekur nokkra mánuði. Við gerum eigi að síður ráð fyrir að fara í útboð á næstu vikum. Fyrsti áfanginn þar er kynningarfundur með fjárfestum og verktökum núna í febrúar,“ segir Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar. Ný Ölfusárbrú verður um 330 metra löng; stagbrú með stöpli á Efri-Laugardælaeyju sem er á ánni rétt fyrir ofan Selfoss. Vestan Ölf- usár verður um svonefnda Hellis- mýri lagður að brúnni vegur, sem kemur í beinu framhaldi af nýjum Suðurlandsvegi sunnan Ingólfsfjalls sem nú er verið að leggja. Síðasta haust voru raunar fluttir um 70 þús- und rúmmetrar af efni að vegstæð- inu í mýrinni, það er fyllingarefni úr vegagerð á nærliggjandi slóðum. Austan ár verður vegurinn í heimatúni á kirkjustaðnum Laugar- dælum og lagður yfir hluta golfvall- arins þar. Golfvallarsvæðið fær Vegagerðin afhent í september næstkomandi samkvæmt samningi við Golfklúbb Selfoss. Á þeim stað verður lagður vegur að brúnni sem tengist aftur inn á hringveginn rétt austan við Selfoss. Hnýta lausa enda „Núna erum við að hnýta síðustu lausu endana með Sveitarfélaginu Árborg, meðal annars varðandi lagnir sem um brúna eiga að fara, göngu- og hjólastíga. Þetta er allt að smella saman og miðað er við að brú og vegur verði tilbúin árið 2025,“ segir Guðmundur Valur. Ljósmynd/Vegagerðin Vegstæði Tilfallandi efni, möl og grús, hefur verið notað til að leggja veg úr vestri að þeim stað þar sem brúin verð- ur reist. Miðstöpull hennar verður á Efri-Laugardælaeyju, sem er úti á miðri Ölfusá, eins og sést á þessari mynd. Útboð í undirbúningi - Ný Ölfusárbrú í augsýn - Fjárfestafundur í febrúar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Selfoss Núverandi Ölfusárbrú og fremst stöplar brúar sem reist var 1891. Verkefnið Hljóðstafir, sem Hljóð- bókasafn Íslands stendur fyrir, fékk í gær sex milljóna króna framlag þegar úthlutað var styrkjum úr bókasafnasjóði. Með verkefni þessu stendur til að samþætta upplestur og texta í bók með aðgengilegu hug- búnaðarkerfi, sem mun nýtast fólki sem glímir við lestrarhömlun. Úr bókasafnasjóði komu að þessu sinni alls 20 milljónir króna sem Lilja Al- freðsdóttir menningarmálaráðherra úthlutaði til ellefu verkefna. Táknmál og traustur samastaður Markmið bókasafnasjóðs er að efla starfsemi safna og fer Rannís með umsýsluna. Sjóðurinn styrkir rannsóknir og þróunarstarf bóka- safna svo faglegt starf þeirra megi eflast. Sjóðnum bárust 18 umsóknir að þessu sinni og sótt var um ríflega 33 milljónir króna. Hljóðbókasafn Íslands veitir þeim þjónustu sem eru blindir eða með sjónskerðingu. Hjá safninu geta við- komandi þá fengið hljóðbækur og er úrvalið mikið. Inntak annarra verkefna sem at- fylgi hlutu úr bókasafnasjóði var annars fjölbreytt. Borgarbókasafn Reykavíkur fékk styrk við verkefni sem miðar að því að fá skapandi fólk til að sinna verkefnum sínum í safn- inu í Gerðubergi í Breiðholti. Sömu- leiðis fékk Borgarbókasafnið stuðn- ing við verkefni á sviði táknmáls- bókmennta og þess að skapa á safninu traustan samastað þeirra sem vilja fyrirsjáanleika á tímum upplýsingaóreiðu. Önnur styrkt verkefni eru stofnun barnabóka- safns, athugun á hugtakinu upplýs- ingalæsi og ný hönnunarhugsun á Amtsbókasafninu á Akureyri. Söfnin séu sjálfsagður viðkomustaður Í ávarpi sem Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra flutti við afhendingu styrkjanna í gær sagði hún mikilvægt að efla bókasöfnin í landinu. Í sinni tíð í mennta- málaráðuneyti hefði stuðningur við bókaútgáfu og læsisverkefni í þágu barna verið efldur með góðum ár- angri. Góð lestrarkunnátta væri lyk- ill að virkri þátttöku í lífinu og að- gerðir stjórnvalda til eflingar læsi miðuðu að félagslegri jöfnun. „Við höldum áfram að styðja við bókaút- gáfu og þar með íslenska tungu. Bókasöfn eiga líka að vera sjálfsagð- ur viðkomustaður, til dæmis barna- fjölskyldna,“ segir Lilja. sbs@mbl.is Hljóðstafir og skapandi fólk - Styrkir veittir úr bókasafnasjóði Morgunblaðið/ Sigurður Bogi Bækur Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra afhendir styrkvið- urkenningu til Marínar G. Hrafnsdóttur frá Hljóðbókasafni Íslands. Prófkjör verður viðhaft við upp- stillingu á framboðslista Sjálfstæð- isflokksins í Kópavogi við komandi bæjarstjórnarkosningar. Próf- kjörið verður 12. mars næstkom- andi. Kjörnefnd hefur auglýst eftir framboðum. Þeim ber að koma á framfæri rafænt fyrir 4. febrúar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Prófkjör í Kópavogi Ákveðið var á félagsfundi Við- reisnar í Reykjavík í vikunni að vera með prófkjör til að velja á lista fyrir kosningarnar í vor. Er þetta í fyrsta sinn sem Við- reisn ákveður að fara í prófkjör frekar en uppstillingu, sem hefur verið meginreglan hjá flokknum til þessa, segir í tilkynningu. Á fundinum var einnig kjörin uppstillingarnefnd og kjörstjórn. Viðreisn í Reykjavík hefur tvo borgarfulltrúa í dag, þau Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur og Pawel Bar- toszek. Varaborgarfulltrúar eru Diljá Ámundadóttir Zoëga og Geir Finnsson. Viðreisn með próf- kjör í fyrsta sinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.