Morgunblaðið - 13.01.2022, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 13.01.2022, Qupperneq 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is C ovid hefur haft gríðarlega mikil áhrif á andlega líðan og heilsu barna og ung- menna. Við meðferðaraðil- ar finnum mikið fyrir því og málin sem við vinnum með hafa þyngst. Mörgum fullorðnum líður almennt illa í Covid og börnin endurspegla oft heimilislífið. Róðurinn er því ansi þungur hjá mörgum núna, en í Covid eru reyndar líka tækifæri fyrir fólk til að læra ný bjargráð,“ segja þær Soffía Elín Sigurðardóttir og Paola Cardenas, sem báðar hafa starfað sem barnasálfræð- ingar árum saman. Þær eru reynsluboltar þegar kemur að meðferðarvinnu með börnum og ungmennum og fjölskyldum þeirra. Þær segjast ekki aðeins finna fyrir aukningu í þungu málaflokkunum sem þær vinna með í gegnum barna- verndarstarfsemi, heldur leitar fólk sem hefur verið heldur vandalaust einnig meira til þeirra. ,,Eitt af því sem við sjáum í okk- ar starfi er að það hefur vantað bjargráð hjá börnum og unglingum í nútímasamfélagi til að takast á við erfiða líðan og tilfinningar. Þegar við vorum börn fengum við tækifæri til að læra ýmislegt sem börn í dag hafa mörg ekki tækifæri til, sem kemur kannski til af því að börnin okkar lifa flest í mjög vernduðu umhverfi. Þeir foreldrar sem ólust til dæmis upp við sjávarsíðuna og lærðu hversu langt mátti fara út á ísilagðan sjó, þeir myndu aldrei leyfa börnum sínum í dag að gera slíkt hið sama. Þetta eru allt aðrir tímar. Kynslóð barna og ungmenna í dag hefur því miður af sumum verið kölluð niðrandi nöfnum sem fela í sér merkingu vesaldóms. Við viljum benda á að það erum við hin fullorðnu sem sköpum aðstæð- urnar sem börnin okkar alast upp við. Þau eru til dæmis hluti af veröld tækniframfara, en þau bjuggu tæknina ekki til. Heimurinn sem þau alast upp í og færnin sem þau til- einka sér, er það sem við sköpuðum og gáfum þeim,“ segja þær og bæta við að þær viti af fenginni reynslu að einka sér þetta, þá eru þau móttæki- leg og fljót að skilja hvað hugtökin merkja. Við teljum nauðsynlegt að kenna ungum börnum orð í tengslum við tilfinningar, en með bókunum er- um við líka að búa til tækifæri fyrir foreldra til að tala um þetta við börn- in, þegar þeir lesa bækurnar með þeim og spjalla saman,“ segja þær og taka fram að bækurnar nýtist líka eldri börnum og ungmennum. ,,Við þurfum að kenna börnum að sumar hugsanir eru bull og vit- leysa og við eigum ekkert endilega að trúa þeim. Við megum alveg efast, þegar við efumst um okkur sjálf. Við erum líka að kenna börnum með þessum bókum að hegðun okkar hef- ur áhrif á hvernig okkur líður, til dæmis ef við höngum inni og gerum ekkert, bíðum bara eftir að allt lagist af sjálfu sér, þá bætum við ekki líðan okkar. Við þurfum að standa upp og gera eitthvað í málunum.“ Til að takast á við mótlæti Bækurnar verða fleiri og sú næst sem kemur út heitir Súper vinalegur, og mun fjalla um kvíða og félagsfærni. ,,Fjórða bókin mun heita Súper kröftug og fjalla um hreyfingu og hvernig hægt er að nota hana til að takast á við mótlæti og fleira. Súper sátt verður bók sem fjallar um að við lítum ekki öll eins út, þótt við eigum öll líkama. Hún fjallar líka um að við eigum ólíkt samsettar fjölskyldur, ólík hús og ólíkt líf. Síðasta bókin heitir Súper ég, og snýst um hver við erum. Þótt bækurnar beri þessi súp- er nöfn, þá erum við ekki að tala um að við eigum að vera fullkomin eða alltaf hundrað prósent. Dagsformið okkar er misjafnt og það er allt í lagi og eðlilegt. Við þurfum ekki alltaf að vera eins. Okkar merking í að vera besta útgáfa af okkur sjálfum, er að mæta þörfum okkar hverju sinni. Þetta snýst ekki um að við eigum alltaf að vera frábær, það er ekki sanngjörn krafa. Við erum öll frá- bær, bara með ólíkum hætti. Allir þessir styrkleikar sem bækurnar fjalla um, eru styrkleikar sem búa innra með okkur öllum og við getum tileinkað okkur þessa styrkleika, kannski mis mikið, en það er allt í lagi.“ Styrkleikar búa innra með öllum ,,Það hefur vantað bjarg- ráð hjá börnum og ung- lingum í nútímasam- félagi til að takast á við erfiða líðan og tilfinn- ingar,“ segja sálfræðing- arnir Soffía og Paola sem senda nú frá sér bækur til að efla seiglu barna. Morgunblaðið/Eggert Barnasálfræðingar Paola og Soffía eru samhentar, hafa þekkst frá því þær voru unglingar. Bækur Fyrstu tvær bækurnar sem þær Soffía og Paola hafa sent frá sér. www.sjalfstyrkur.is félagslegur stuðningur skiptir öllu máli í lífi barna. ,,Við munum öll lenda í ein- hverju misjöfnu á lífsleiðinni, hjá því er ekki komist, en félagslegi stuðn- ingurinn getur hjálpað börnum mik- ið sem mæta mótlæti og erfiðleikum í lífinu. Hvort sem það eru amma eða afi, vinir eða einhverjir aðrir utan heimilis þar sem barnið hefur skjól og stuðning, þá er það afar mikil- vægt. Einnig skiptir máli að hafa getu og þekkingu til að takast á við erfiðleika.“ Hegðun hefur áhrif á líðan Soffía og Paola hafa þekkst frá því þær voru unglingar og þær stofnuðu saman fyrirtæki fyrir einu og hálfu ári, sem heitir Sjálfstyrkur. Þar halda þær námskeið, fyrirlestra og veita fræðslu. Nú hafa þær gefið út fyrstu tvær barnabækurnar í ser- íu um súper-styrkina, þær heita Súper viðstödd og Súper vitrænn. Í fyrri bókinni segir frá Klöru, fjörugri og uppátækjasamri stúlku sem á stundum erfitt með að ein- beita sér og truflast auðveldlega. Í hinni segir frá Tristan, tilfinninga- ríkum strák sem fær stundum óþægilegar hugsanir og verður þá dapur. ,,Innblástur okkar að því að semja þessar bækur fyrir yngri börn, er fyrrnefndur skortur á bjargráðum, en bækurnar eru ætl- aðar börnum alveg niður í fjögurra ára. Þessa bækur eru fyrst og fremst hugsaðar sem forvörn, til að styrkja börn, efla sjálfsþekkingu þeirra og seiglu svo þau verði úthaldsbetri í því að takast á við eigin líðan. Þessar fyrstu tvær bækur okkar snúast um að kenna börnum að þau geta stýrt hugsunum sínum og breytt þeim og þar af leiðandi líðan sinni. Við erum að kenna þeim að tileinka sér og æfa sig í núvitund, því ef það er byrjað nógu snemma að kenna þeim að til- Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is Honeywell keramik hitarar Verð kr.13.940 Verð kr. 3.970 Verð kr.7.412 Fæst svartur eða hvítur Fæst rauður eða hvítur Nú geta hjólaglaðir í borginni glaðst því Borgarbókasafnið og Hjólafærni á Íslandi leiða saman (hjól)hesta sína og bjóða upp á hjólatúra með bókmenntaívafi einn laugar- dagsmorgun í mánuði frá janúar og fram til apríl. Boðið verður upp á skemmtilega blöndu af útivist, hreyfingu og andlegri næringu. Fyrsti túrinn er nk. laugardag 15. janúar kl. 10-12, en þá verður bókmenntaunnendum boðið í hjóla- túr um Hlíðar og Háaleiti í höfuðborginni. Stoppað verður á vel völdum stöðum og lesin upp ljóð og prósi eftir ýmsa höfunda sem tengjast hverfinu. Fólk getur þannig kynnst skáldunum, farið aftur í tímann, elst við ketti í Kringlunni og ræningja í Öskjuhlíðinni. Í tilkynningu kemur fram að hjólatúrinn hefjist við Borgarbókasafnið Kringlunni, fram- an við inngang safnsins í bílakjallaranum. Þátttakendur skulu mæta vel útbúnir, í hlýjum fatnaði og á hjólum sem henta veðri og færð hverju sinni. Ferðin tekur um eina og hálfa klukkustund og komið við á kaffihúsi í lokin. Hjóla- stjórar eru Árni Davíðsson hjá Hjólafærni á Íslandi og Guttormur Þorsteinsson, sagnfræðingur og deildar- bókavörður á Borgarbókasafninu Kringlunni. Hjóla- túrarnir eru ókeypis og öll velkomin að taka þátt. Skrán- ing fer fram á vefsíðunni borgarbokasafn.is. Næstu hjólatúrar verða eftirfarandi: Stefnumót við ljóðskáld í efri byggðum: Hjólatúr um Breiðholtið laugard. 12.02. Stefnumót á kvennaslóðum: Hjólatúr um miðborg- ina og Vesturbæinn laugard. 12.03. Stefnumót á striga- skóm: Hjólatúr fyrir alla fjölskylduna laugard. 09.04. Hjólatúrar með bókmenntaívafi Blanda af útivist, hreyfingu og andlegri næringu Hjólastjóri Guttormur Þorsteinsson leiðir fyrsta túrinn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.