Morgunblaðið - 13.01.2022, Side 18

Morgunblaðið - 13.01.2022, Side 18
Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við erum með vöru sem við teljum að geti bjargað heiminum. Það er enginn annar með þessa tegund af salti og því förum við í útrás eins og víkingarnir forðum. Útrás er ein- hvern veginn miklu sterkara orð en útflutningur,“ segir Egill Þórir Ein- arsson, efnaverkfræðingur og annar eigenda Arctic Sea Minerals sem framleiðir Lífsalt. Lífsalt er heilsusalt sem inniheld- ur 60 prósentum minna af natríum- jónum en annað borðsalt. Ofneysla á natríum getur aukið líkur á hjarta- og æðasjúkdómum. Sérstaða Lífsalts liggur í efnasamsetningu þess, en hlutfall þeirra steinefna sem eru í hverju saltkorni er það sama og í blóði manna. Það hefur verið í þróun í rúman áratug en var sett á markað hér á landi árið 2019. Nú stefna eig- endurnir á að boða fagnaðarerindið víðar og á dögunum fengu þeir styrk upp á eina milljón króna frá Upp- byggingarsjóði Suðurnesja til að hefja útrásina. „Við erum komnir með einkaleyfi í öllum heimsálfum en ætlum að byrja í Þýskalandi. Þetta ástand í heim- inum setur vissulega strik í reikning- inn í öllum slíkum vangaveltum enda þarf að kynna vöruna og það kallar á samskipti. Við stefnum þó ótrauðir á að það gerist á þessu ári,“ segir Egill. Lífsalt hefur fengið dreifingaraðila í Þýskalandi. „Eigandi dreifingar- fyrirtækisins hefur verið í sambandi við okkur síðustu sex árin. Hann hef- ur sjálfur rannsakað salt og skrifað um það bók og hann var svo hrifinn af okkar salti að hann kom sérstaka ferð hingað til lands til að kynna sér það. Þessi maður hefur mikla trú á að varan gangi vel í Þýskalandi enda eru Þjóðverjar mjög framarlega þeg- ar kemur að heilsuvitund. Þetta er auk þess mjög stór markaður, um það bil 200 sinnum stærri en sá ís- lenski, og því góður staður til að byrja á. Þjóðverjar eru stór hluti ferðamanna hér, hafa lengi lesið Lax- ness og fleira slíkt, og mörg íslensk matvælafyrirtæki hafa náð árangri þar.“ Þessa dagana er verið að flytja starfsemi fyrirtækisins og bíður Eg- ill eftir að nýtt húsnæði í Grindavík verði tilbúið. Hann kveðst vonast til þess að framleiðslan verði komin á fullt þar með vorinu. „Við þurfum nokkurt fjármagn til að koma þessu af stað á nýja staðnum og höfum kynnt starfsemina fyrir fyrirtækjum í Grindavík. Það hefur gengið ágæt- lega enda eru mörg öflug fyrirtæki í Grindavík.“ Stefna á útrás með íslenska heilsusaltið - Lífsalt selt í Þýskalandi - Leita fjármagns í Grindavík Morgunblaðið/Árni Sæberg Í víking Egill Einarsson hefur tröllatrú á Lífsalti, íslensku heilsusalti sem inniheldur 60 prósentum minna af natríumjónum en annað borðsalt. 18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022 *7&N 6%F4 LH7B& I11E Höf. Jill Mansell $3FO :BK/3N1 ,0CJ0I4F4BRNG $FA12N/ G70 7/64// GN2/NM4 +A2O (BIDI7 $3BF4BRNG $3FO <KDI ,0II7GF4BRNG ;IME1G2.GG4// +A2O "HIF &7KK3IEHT $3FO 9NII7 +G72IF4BRNG >= JN6NH +A2O *GIN !BG7GNIFFHI $3FO +MSKJ7G +MSKJ7GFFHI >>#??? D.1F< *H.G2NGN6N 8EM0E/JNH 9714C +A2O <GK7 +K-IF4BRNG $3FO P@I7G ;G3-G ,DFK7FHI :N/GNH4// +A2O 'FL7G ,0CJ0I4FFHI $3FO =7ID3K *1@FE +7G7K4FFHI $D. F@/4GF 53NHFNG1KM +A2O 87K13NG :L712MAGC $3FO <KDF763E :L712MAGC# 87K13NG :L712MAGC *I614 G3A214/6EH4// Höf. Alex Michaelide $3FO ?MAGI :E32SIFFHI D4 2N 1 -NGG4// +A2O >7JNKK7 $Q5L63G1# +3IGNL ;3.30F $3FO *K2G@I +3K17 %GIBK2F4BRNG $!FHK/EH .6 GN(HN/ +A2O &7MF7 )I13J7GFFHI $3FO !BG0II <GI7 >K70F3I "+)) >? D4/G%1EGFE 513KML%2EH ' ,G1N/J4# Á gamlársdag fannst æðaskjanni á höfuðborgarsvæðinu í fjórða sinn svo staðfest sé og virðist hafa bor- ist til landsins með dönskum nor- mannsþin. Ferðamáti fiðrildisins, sem fannst á heimili í Reykjavík, var því sá sami og í þrjú fyrri skipt- in. Fyrsti æðaskjanninn fannst 4. janúar 1987 í Reykjavík, næsti 14. janúar 2009 á Seltjarnarnesi og sá þriðji 3. janúar 2013 í Reykjavík og eru allar dagsetningarnar skömmu eftir jól. Um þennan jólagest fjallar Er- ling Ólafsson skordýrafræðingur á facebook-síðunni Heimur smádýr- anna. Þar segir að líkast til hafi púpur borist með trjánum sem fiðr- ildin skriðu úr umvafin yl jólanna. „Hvít fiðrildi á flögri í nágranna- löndunum vekja gjarnan athygli okkar mörlandanna. Æðaskjanni er ein tegundanna og þekkist hann greiðlega á áberandi dökkum skuggum með æðum á gulleitu neðra borði afturvængjanna,“ skrifar Erling. Á pödduvef Náttúrufræðistofn- unar segir að útbreiðsla æða- skjanna sé gjörvöll Evrópa frá Ís- hafi suður til Miðjarðarhafs, Asía austur til Japans og Norður- Ameríka. Þó æðaskjanni sé mjög algeng tegund í nágrannalöndunum þá berst hann mun síður en aðrar tegundir kálfiðrilda til Íslands, enda tengist hann ekki matjurtum eins og þær hinar. aij@mbl.is Ljósmynd/Erling Ólafsson. Jólaskraut Hvít fiðrildi eins og æðaskjanni eru sjaldgæf og vekja athygli Æðaskjanni var einn jólagestanna - Púpurnar ferðuðust með normannsþin Tekið var til óspilltra mála í versl- unum Krónunnar í gær við að fylla kæliborð og hillur af veislukosti þorrans, sem senn gengur í garð. Formlega gerist slíkt á bóndadegi, sem er á föstudag í næstu viku, 21. janúar. „Um þriðjungur af allri sölu á þorramat hjá okkur fer í gegn um bóndadagshelgina. Margir byrja þó fyrr,“ segir Ólafur Júlíusson, vöru- flokkastjóri hjá Krónunni. Saltkjötið, síldin og súra sviðasultan Súrmeti eins og blóðmör, hrúts- pungar, sviðasulta og lundabaggar er í dýru gildi haft á þorranum. Annað sem er ósúrsað kemur þó sterkt inn líka, svo sem saltkjöt, síld og harðfiskur. „Fjölbreytnin í því öllu sem kallað er þorramatur verð- ur æ meiri. Með því að meira sé í boði tekst vonandi betur en ella að halda í þessa skemmtilegu íslensku matarhefð,“ segir Ólafur. Litlir hópar heima og halda í hefðirnar Tilbúnir þorrabakkar sem fást í Krónunni eru framleiddir og fengn- ir frá Múlakaffi. Önnur vara, svo sem súrmeti í fötum eða stökum pakkningum, kemur frá stóru kjöt- iðnaðarfyrirtækjunum. Hjá Krón- unni er raunar búist við verulegri sölu á þorramat á næstunni, því vegna smitvarna verði stóru þorra- blótin, eins og til dæmis íþrótta- félögin hafa haldið, blásin af. Marg- ir muni því í staðinn væntanlega vera með litlar þorraveislur heima og í litlum hópum, meðal annars til að halda í hefðirnar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Veisla Úrvalið er mikið. Metnaður bæði kjötmeistara og verslunarfólks er þróun nýjunga í þjóðlegum mat. Þorramatur í búðirnar og verður sífellt fjölbreyttari - Súrmeti í fötum - Þriðjungur sölu um bóndadagshelgi Morgunblaðið/Árni Sæberg Matur Björn Bergmann og Nikola Vojcova, kjötstjórar i Krónunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.