Morgunblaðið - 13.01.2022, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 13.01.2022, Qupperneq 28
28 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022 næst. „Drykkjan hefur þó minnkað frá því sem áður var, allar tölur á þessum vettvangi sýna okkur það,“ segir Inga Rós og kveðst ákaflega ánægð með þær viðtökur sem þessir fulltrúar nágrannaþjóðarinnar fengu þar í landinu. Særindi og óuppgerð saga „Fólk tekur manni mjög vel og Grænlendingar upplifa okkur sem mikla frændþjóð, ég finn það mjög vel að viðhorfið gagnvart okkur er allt annað en til dæmis gagnvart Dönum, sem hingað koma til að sinna ýmsum sérfræðistörfum eða öðru. Það er mikil óvissa í garð Dana almennt og mörg særindi og óupp- gerð saga,“ heldur Inga Rós áfram og segir þetta andrúmsloft skapa viss vandræði í samskiptum Græn- lendinga við þessa þaulsætnu herra- þjóð sína á meðan Íslendingum sé tekið með kostum og kynjum. Annað forvitniefni er auðvitað grænlenskur matur. Selir, hvalir, hreindýr og ýmsir sjófuglar er með- al þess sem fyrst kemur upp í hug- ann auk þess sem blaðamann rámar í að hafa heyrt um þjóðarréttinn suaasat, sem mun vera einhvers konar kjötsúpa. Inga Rós er á því að grænlenskur matur sé eins og hún lýsti sjálfu þjóðfélaginu hér að fram- an – alls konar. „Ég get nú annars sagt þér eina sögu af því,“ segir viðmælandinn. „Þegar ég fer í aðalstórmarkaðinn í Nuuk þar sem mér finnst auðvelt að fá allt sem við erum vön að kaupa í matinn,“ segir Inga Rós og dregur örlítið seiminn í orðinu vön til áhersluauka, „þá er nánast allt til, nema hér fær maður ekki ferska mjólk þar sem nánast enginn mjólk- urbúskapur er á Grænlandi. Svo þegar ég kem að kælinum í sjopp- unni fremst í búðinni þar sem gos og súkkulaði er að finna reynist þar líka náhvalsspik,“ segir Inga Rós og blaðamaður fær væga gæsahúð. Kveðst hún þó ekki hafa reynt slíka fæðu, en hins vegar smakkað spik af annarri hvalategund, ótilgreindri. „Húsnæði í Nuuk er mjög dýrt, mun dýrara en Íslendingar nokkurn tímann gera sér grein fyrir, íbúða- skortur í borginni er viðvarandi vandamál vegna þess hve dýrt er að sprengja og byggja,“ segir Inga Rós þegar talið berst að húsnæðismálum í þessari framandi höfuðborg. Hún segir þar af leiðandi mikið byggt á hæðina og því mikið um íbúðablokk- ir þar. „Við reyndar búum í litlu rað- húsi rétt fyrir ofan höfnina og höf- um það gott þar, ágætishúsnæði, kannski ekkert sem nútíma Garðbæingar myndu láta bjóða sér svo sem, var þetta nokkuð mjög for- dómafullt?“ spyr Inga Rós og hlær dillandi hlátri, en blaðamaður bítur á jaxlinn og kyngir Garðabæj- arstolti sínu eins settlega og verða má. Rafræn skattframtöl nýlunda Líklega tengir hinn dæmigerði Íslendingur Grænland við frost, snjó, hundasleða og mun meiri vetr- arhörkur en á fósturjörðinni. Er það svo? „Já, þannig er það almennt, en hér verður hnatthlýnunarinnar auð- vitað vart líka og í rauninni meira en á nokkrum öðrum stað á jörðinni,“ segir Inga Rós og nefnir sem dæmi að hitastigið í Nuuk sé 12 gráður í plús, en þetta spjall átti sér stað í desember. Almennt kveður hún vet- urna í Nuuk þó snjóþyngri og kald- ari en á Íslandi, enda njóti borgin og nágrenni hennar ekki góðs af Golf- straumnum. „Veðrið er þó almennt stöðugra hér, minna um storma, en meira um snjó og froststillur yfir lengri tíma,“ útskýrir Inga Rós. Blaðamann rámar í sögur Íslend- inga af grænlenskri stjórnsýslu, sem ku vera allólík hjá nágranna- þjóðinni. „Það er reyndar allt að breytast, hér eru kennitölur komnar í notkun, en það er reyndar ekki nema eitt ár eða tvö, held ég, síðan hér voru tekin upp rafræn skatt- framtöl,“ segir Inga Rós frá. Leið hennar inn í grænlenska kerfið var þó engan veginn þyrnum stráð þar sem hún var með danska kennitölu fyrir. „Þannig að ég datt bara bein- ustu leið inn í allt hér og er bara með mína dönsku kennitölu, þetta er mjög auðvelt fyrir okkur, sem er- um íslenskir ríkisborgarar og með danskar kennitölur, þarna er auðvit- að bara frjálst flæði á milli,“ segir hún. Hún segir fjölda Íslendinga búa og starfa í Nuuk þótt ekki séu þeir allir búsettir þar allt árið, íslensk fyrirtæki, svo sem Ístak og fleiri verktakar, hafa sinnt fjölda verk- efna í landinu og segir Inga Rós stóran skóla í byggingu í höfuðborg- inni um þessar mundir þar sem Ís- tak sé einmitt að verki. Blaðamann fýsir að vita hvers lags upplifun Inga Rós telji það vera að alast upp í Nuuk. Vissulega er stórt spurt en þó ekki svarafátt. „Ég held að það sé frábært að vera barn í Nuuk. Ef maður talar um það góða við að fara 40 ár aftur í tímann er til dæmis mjög mikið hér um útileiki barna, netið kom seint hingað og er dýrt svo það er mun minna um það hér að börn hangi inni í tölvum,“ svarar gesturinn íslenski, enda al- mælt að glöggt sé gests augað. Inga Rós og Hjörtur eru með tvo unglinga á heimilinu og segir hún þeirra líf ekkert frábrugðið lífi ung- linga annars staðar. „Þeim fannst það nú bara merkilega auðvelt,“ svarar hún þegar blaðamaður for- vitnast um hvernig þessi vistaskipti hafi horft við ungviðinu. „Dóttir mín er komin með grænlenskan kærasta svo hlutirnir eru fljótir að gerast,“ segir móðirin kankvís. Frí í skólanum til veiða Þau íslenska fjölskyldan tjá sig þá bara á dönsku eða hvað? „Já, við gerum það, en hér er eiginlega ekki eitt einasta tungumál sem allir tala, hér eru Grænlendingar sem tala ekki grænlensku og svo eru Græn- lendingar sem tala ekki dönsku, þannig að í skólunum til dæmis er kennt á báðum tungumálunum, grænlensku og dönsku,“ segir Inga Rós og bætir því við að það fyr- irkomulag sé líklega ekki það allra heppilegasta. „Annað sem kom okkur dálítið á óvart ef við erum að tala um muninn á lífi barna og unglinga hér og á Ís- landi er að hér er nokkuð um að krakkar fái frí í skólanum til að fara á veiðar. Sonur minn, sem er 13 ára, fór í skólaferðalag eftir fyrstu vik- una í skólanum og þar stóð til að fara á hreindýraveiðar, sem reyndar breyttist, en það er sem sagt ekkert óeðlilegt við það hér að fara með hópa af skólakrökkum að skjóta hreindýr,“ segir Inga Rós frá og blaðamaður veltir fyrir sér hvað yf- irvöld menntamála á Íslandi segðu við svo blóðugum námsferðum. Flutti bara í stórborgir Á heildina litið, er þá Grænland eins og Ísland fyrir 40 árum, eða átti það bara við um tilveru barna? „Ja, ég vitna nú bara mest í manninn minn um þetta, hann flutti úr bæn- um og vestur á firði fyrir 40 árum og honum finnst þetta á margan hátt mjög sambærilegt og Vestfirðir fyr- ir 40 árum, ég er svo mikið borg- arbarn að ég flutti bara til útlanda í stórborgir svo ég get ekki alveg borið þetta saman,“ svarar Inga Rós og vottar fyrir aðkenningu að hlátri. Þau hjónin eru nú í eins árs pró- grammi, svo höfð sé vond íslenska, og eru búsett í Nuuk meðan á því stendur, en eftir það tekur við tveggja ára samningstímabil þar sem Hjörtur mun flakka á milli Danmerkur og Grænlands, en þá segist Inga Rós munu hverfa á nýj- an leik til Kaupmannahafnar þar sem hún hefur löngum unað hag sín- um vel, enda hefur heilinn á Íslend- ingum alltaf verið í Kaupinhafn, eins og Nóbelsskáldið komst einhvers staðar að orði. „Það veit ég ekkert um, Græn- land er fimmta landið mitt og ég hef enga þörf fyrir að vita hvar ég bý eftir fimm ár,“ svarar Inga Rós til- raun til að draga upp úr henni hvort hún sjái þá fyrir sér að ílengjast hjá þeim dönsku og með þeirri yfirlýs- ingu er spurningavaðallinn á enda og þau ferðamálafrömuðirnir Inga Rós Antoníusdóttir og Hjörtur Smárason beðin vel að lifa að sinni meðal grannþjóðarinnar græn- lensku. Eins og Vestfirðir fyrir 40 árum - Íslensk ferðamálahjón kynnast menningu og lystisemdum Grænlands - Náhvalsspik í kælinum í sjoppunni - Dóttirin komin með grænlenskan kærasta - Börn skjóta hreindýr í skólaferðalögum Í Kapisillit Hjörtur, Inga Rós, dýrið Freyja, Jökull Logi og Katla Katrín. Úr stofuglugganum Þarna siglir einhver inn, ofurlítil dugga. Kangerlussuaq Póllinn næstur allra áfangastaða, þriggja tíma flug. VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Ég er nú úr Reykjavík en ég bý á Grænlandi og það er fimmta landið sem ég bý í,“ segir Inga Rós Anton- íusdóttir, verkefnastjóri stafrænnar þróunar hjá Ferðamálastofu, sem búsett er í grænlensku höfuðborg- inni Nuuk ásamt eiginmanni sínum, Hirti Smárasyni, sem tók við stöðu ferðamálastjóra Grænlands í apríl í fyrra. Tenging þeirra hjóna við Dana- veldi er þó sterk, eins og reyndar við Grænland ef út í það er farið, þar sem Hjörtur sinnti fjölda verkefna áður en hann tók við núverandi starfi, en í Danmörku hefur Inga Rós starfað undanfarin ár fyrir Ferða- málastofu í því sem kallað er starf án staðsetningar, nokkuð sem virðist eiga vel við nýjan vinnulífsstíl margra á þriðja ári í heimsfaraldri þótt veiran hafi reyndar engan veg- inn verið kveikjan að störfum Ingu Rósar í Danmörku. Öfgar í báðar áttir „Þannig að ég sinni mínu starfi jöfnum höndum frá Danmörku og Grænlandi,“ segir Inga Rós og er þegar spurð út í þjóðfélagsmynd þessarar nágrannaþjóðar, sem er svo skammt undan þótt Íslendingar hafi kannski ekki verið að flykkjast til Grænlands í fríum sínum fram til þessa. „Stutta útgáfan mín er að þjóðfé- lagið er alls konar,“ svarar Inga Rós blátt áfram, „hér eru gífurlega mikl- ar öfgar í báðar áttir og stéttaskipt- ing þjóðfélagsins mjög áberandi. Hér er margt mjög auðugt fólk, líklega fleira en maður bjóst við, en um leið ríkir hér einnig mikil fátækt og fjöldi fólks býr nánast bara við sjálfsþurft- arbúskap,“ heldur hún áfram. Grænlensk millistétt er að sögn Ingu Rósar tiltölulega lítil og sam- félagsleg vandamál tengd áfeng- isneyslu algengari á Grænlandi en í þeim löndum, sem standa Íslandi Mini Favourite Fyrir börnin Bolli 2.190,- stk Skál 2.190,- stk Skeiðasett 4 stk 2.990,- Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.