Morgunblaðið - 13.01.2022, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 13.01.2022, Blaðsíða 31
Finnur. „Þar sem úthafsöldu gætir ekki víðast í firðinum er lítil hreyf- ing á yfirborði sjávar og því er hægt að nota vélar til sláttar.“ Þegar þangið og þarinn eru kom- in í land er hráefnið flutt í þurrk- unarverksmiðju þar sem sérsmíðað varmaskiptakerfi nýtir yfir 100°C heitt vatn úr jörðu til að þurrka þörungana með heitu lofti. Því næst er hráefnið malað og flokkað eftir grófleika, og loks pakkað í umbúðir. „Þörungamjölið er ríkt að mörgum næringarefnum, snefilefnum, málm- um og joði og er nýtt sem áburður á gróður, til fóðurgerðar og í mat- væli. Þá er rótgróinn markaður í snyrtivörum; í húð- og hárvörum. Ýmsar sögur eru um góð áhrif mjölsins á aukið heilnæmi plantna og dýra.“ Mjölið fer líka í efnavinnslu þar sem svokölluð algínöt eru ein- angruð úr því. Um er að ræða sykr- ur með mjög fjölbreytt notagildi, og þau m.a. nýtt til að binda saman ol- íu og vatn. „Algínöt eru mikið notuð í matvæla- og drykkjarframleiðslu, í snyrtivörur og til lyfjagerðar,“ út- skýrir Finnur. „Mikill og vaxandi áhugi er á þörungum og efnum sem þeir innihalda og fjölbreyttar rann- sóknir eru í gangi víða um heim.“ Afurðir Þörungaverksmiðjunnar eru í hæstu gæðum, m.a. vegna þeirrar þurrkunaraðferðar sem fyrirtækið notar: „Við þurrkum við mun lægra hitastig en sambærilegir framleiðendur, og ristum ekki mjöl- ið. Útkoman er eftirsóknarverðari vara með betri eignleika.“ Varlega verður að fara við nýt- ingu auðlindarinnar og frá upphafi hefur Þörungaverksmiðjan stýrt nýtingunni af nákvæmni. „Að minnsta kosti fjögur ár eru alltaf látin líða á milli sláttar á hverju svæði en rannsóknir hafa sýnt að á þeim tíma nær gróðurinn sér og er orðinn jafnmikill eða meiri en þegar síðast var slegið,“ segir Finnur og bætir við að þessi sjálfbæra nýting sé grundvallaratriði fyrir rekstur verksmiðjunnar. Sjálfbær nýting er auðvitað líka forsenda fyrir þeim lífrænu vottunum sem bæði nýt- ingin á villtum gróðri og fram- leiðslan hafa. Stærstu hluthafar í Þörungaverksmiðjunni leggja ríka áherslu á öryggi og umhverfismál og því má bæta við að nýting á jarðvarmanum er líka sjálfbær, ekki er dælt vatni úr borholum heldur er eingöngu notað sjálfrenn- andi heitt vatn.“Árið 2017 gerði Hafró nýtt mat á lífmassa klóþangs í firðinum og kom í ljós að það hef- ur aukist töluvert frá því sambæri- legt mat fór fram fyrir röskum fjór- um áratugum. Ljóst er að verk- smiðjan er ekki að skaða þessa auð- lind sem klóþangið er og líka að vetur eru mildari en áður og skaði á gróðrinum af öldum íss mun minni en áður var. Áform eru um að auka nýtingu á þangi í Breiðafirði og hefur Finnur áhyggjur af því hve hugmyndirnar eru stórtækar. „Okkar gögn og reynsla sýna að á góðum árum megi taka nokkru meira en nú er gert og fara e.t.v. í 25-30.000 tonn á ári en ef tvöfalda á skurðinn verður þessari náttúruauðlind stefnt í voða og þar með vistkerfi Breiðafjarðar.“ Getur passað vel með fiskeldi Framleiðsla og notkun á þangi og þara gæti átt mikið inni og má víða finna vísbendingar um að nota megi hráefnið til að framleiða verðmæt fæðubótarefni, lífvirk efni og efni sem tengjast lækningavörum. Eitt áhugavert sóknarfæri tengist vist- eldi. Þá eru fiskeldi, ræktun á þangi og ræktun skelfiski látin spila sam- an: „Hugmyndin hefur lengst verið þróuð í Kanada og gerðar hafa ver- ið tilraunir í þessa veru í Noregi. Visteldi miðar að því að fullnýta þau næringarefni sem fara í sjóinn í fiskeldi en skila sér ekki sem fiskur. Skeljar sía korn úr sjónum og þör- ungarnir nýta uppleyst næring- arefni. Velja þarf tegundir sem geta skilað góðu verði á markaði, en að- ferðin heldur aðstæðunum hreinni til lengri tíma, sem kemur sér vel fyrir fiskeldið á hverjum stað,“ seg- ir Finnur. Atvinna Alls starfa um 20 til 25 einstaklingar við að afla hráefnis. Vinnuskipið Karlsey BA var smíðuð í Hollandi 1995. Fyrirtækið gerir út fjölda annarra báta. Starfsgleði Fyrirtækið er mikilvægt fyrir byggðina og nærsveitir. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022 R-&43 &>-;)PI KL""-? L((36 0>= A-6P6 96L;;-5+B2?PG MMMF-B3@-6F>-6F-5 EP6 >6 P? <""P O6N?54P=P?P6 +B2?-6H &>-;30>6?H 54P?5>4"-";3H 4>-("-";P6 N5P$4 70+ P? BO(P 5(Q?3" Q; 5>"@P 3$5O("F A-""-; >6 :C;4 P? :6-";)P +! #'' #!,, N 0-6(3$ @9;3$ >?P 5>"@P 49&038O54 N -B3@-6.>-6F-5 A-6BQ6;-6 S6O?>";- *D** **' />L()P0+( A-6:P$6P6 1&P?:P$6P6 ' '!, JQ5=>&&5BC A-6P6:25 1&+?P6:253$ %D# **' />L()P0+( Útflutningsverðmæti sjávarafurða var alls um 293 milljarðar á árinu 2021. Þetta kemur fram í fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruskipti sem birtar voru í síðustu viku. Um er að ræða 8% aukningu milli ára í krónum talið en 11% aukn- ingu í erlendri mynt og kemur fram í greiningu sem birt er á Radarnum að „á þann kvarða hefur útflutnings- verðmæti sjávarafurða frá Íslandi ekki verið meira á einu ári en í fyrra á þessari öld“. Þá hafi loðnuvertíðin á síðasta ári haft sitt að segja um aukninguna milli ára. „Nam útflutningsverðmæti „ann- arra sjávarafurða“ 31,4 milljörðum króna á árinu 2021, sem er um 91% aukning frá árinu 2020 á föstu gengi. Eins kom loðnan við sögu í þeirri aukningu sem varð á útflutnings- verðmæti á heilfrystum fiski. Nam út- flutningsverðmæti þess afurðaflokks um 36,6 milljörðum króna og jókst um rúm 21% á milli ára.“ Í desember nam útflutnings- verðmæti sjávarafurða 24,5 millj- örðum króna, 6% meira en í sama mánuði 2020. Í erlendri mynt er aukningin rúmlega 8%. „Á þann kvarða hefur verðmæti útfluttra sjáv- arafurða í desembermánuði ekki ver- ið meira undanfarinn áratug.“ gso@mbl.is Ekki meiri verðmæti á þessari öld
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.