Morgunblaðið - 13.01.2022, Síða 33
FRÉTTIR 33Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, baðst í gær afsökunar á að
hafa sótt umdeilda veislu í garði
Downingstrætis 10, sem haldin var
meðan mjög strangar samkomu-
takmarkanir voru í gildi vegna
heimsfaraldursins.
Sagði Johnson að hann hefði litið
svo á að veislan, sem haldin var 20.
maí 2020, væri vinnutengd, en um 30
manns úr starfsliði forsætisráðuneyt-
isins sóttu hana. Viðurkenndi John-
son að veislan liti illa út, sér í lagi þar
sem Bretar hefðu á þeim tíma þurft
að færa margar fórnir, meðal annars
að geta ekki kvatt deyjandi ættingja.
Keir Starmer, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, sagði að afsökunar-
beiðni Johnsons væri einskis virði.
„Mun hann nú gera það heiðvirða og
segja af sér?“ spurði Starmer, og er
það í fyrsta sinn sem hann hefur
krafist afsagnar Johnsons. Sagði
Starmer jafnframt að forsætisráð-
herrann væri „maður sem kynni ekki
að skammast sín“.
Kurr innan Íhaldsflokksins
Johnson hyggst ekki segja af sér,
heldur hvatti hann þingheim til þess
að bíða skýrslu, sem hann hefur beð-
ið háttsettan embættismann að vinna
um málið.
Mikill kurr mun þó vera innan
Íhaldsflokksins vegna málsins, sem
fengið hefur nafnið „Partygate“ í
breskum fjölmiðlum. Þykir líklegt að
Johnson muni neyðast til að segja
upp mörgum úr sínum innsta hring í
Downingstræti ætli hann sér að
eygja minnstu von um að halda í
embættið.
Forsvarsmenn Lundúnalögregl-
unnar segjast hafa sett sig í samband
við skrifstofu ríkisstjórnarinnar um
málið og eru vangaveltur um að mál
verði höfðað á hendur þeim sem
mættu í veisluna.
AFP
Johnson Hart er sótt að Boris John-
son vegna veislunnar umdeildu.
Biðst afsökunar
á veisluhöldum
- Starmer krefur Johnson afsagnar
Lewis Kaplan,
dómari í skaða-
bótamálinu sem
Virginia Giuffre
hefur höfðað á
hendur Andrési
Bretaprins, úr-
skurðaði í gær að
málinu yrði ekki
vísað frá, líkt og
lögmenn prinsins
höfðu krafist.
Var krafa prinsins byggð á sam-
komulagi sem Giuffre gerði við
auðkýfinginn og barnaníðinginn
Jeffrey Epstein, en lögmenn hans
sögðu að það útilokaði að hún gæti
kært aðra meinta sakborninga fyrir
brot Epsteins gegn sér.
Kaplan sagði hins vegar að það
samkomulag væri um margt óskýrt
og ónákvæmt og að Andrés hefði
ekki verið aðili að því samkomu-
lagi.
Giuffre hefur sakað prinsinn um
að hafa nauðgað sér meðan hún var
undir lögaldri. Andrés hefur ekki
verið ákærður fyrir þau brot, og
snýr málið nú eingöngu að því
hvort að hann sé skaðabótaskyldur.
Úrskurðurinn í gær þýðir að náist
ekki sættir milli málsaðila muni það
fara fyrir dóm. Mun það mál hefjast
líklega á seinni hluta þessa árs.
BRETLAND
Máli Andrésar prins
verður ekki vísað frá
Andrés
Bretaprins
Tedros Adhanom Ghebreyesus, for-
stjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunar-
innar WHO, sagði í gær að Ómí-
kron-afbrigði kórónuveirunnar
væri ennþá hættulegt, ekki síst fyr-
ir þá sem ekki hafa verið bólusettir
gegn veirunni.
„Við megum ekki gefa þessari
veiru fría ferð eða veifa uppgjafar-
fána, sér í lagi þegar svo margir í
heiminum eru enn óbólusettir,“
sagði Ghebreyesus.
Hann benti á að nú létust um
50.000 manns í hverri viku af völd-
um veirunnar, og að sú tala væri
nokkuð stöðug. „Að læra að lifa
með veirunni þýðir ekki að við get-
um eða ættum að sætta okkur við
þessa andlátstíðni.“
WHO
Ómíkron-afbrigðið
enn hættulegt
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Jens Stoltenberg, framkvæmda-
stjóri Atlantshafsbandalagsins,
sagði í gær að enn væri mikill
ágreiningur á milli bandalagsríkj-
anna og Rússlands um öryggismál í
Evrópu, en bandalagið væri
reiðubúið til frekari viðræðna við
Rússa til þess að reyna að draga úr
áhyggjum hvorra tveggja í varnar-
málum.
Fulltrúar Rússa mættu til höfuð-
stöðva bandalagsins í Brussel í gær
til að ræða þær kröfur sem Rússar
hafa sett fram um nýja skipan ör-
yggismála í Evrópu. Var þetta fyrsti
fundur á vegum Nató-Rússlands-
ráðsins frá árinu 2019, en samstarf
milli Rússlands og bandalagsins hef-
ur legið að mestu niðri frá 2014,
þegar Rússar innlimuðu Krímskag-
ann.
Alexander Grushko, fulltrúi
Rússa í viðræðunum við Nató, sagði
að þær hefðu verið „djúpar og hrein-
skiptnar“, en að á sama tíma hefðu
þær leitt í ljós „mikinn fjölda ágrein-
ingsefna um grundvallarmál“.
Opnu dyrunum ekki lokað
Ljóst var fyrir viðræðurnar að
sumar af kröfum Rússa voru með
öllu óaðgengilegar fyrir bandalags-
ríkin, sér í lagi sú að stefnu þeirra,
sem kennd er við „opnar dyr“, yrði
breytt þannig að ríkjum á borð við
Finnland, Georgíu og Úkraínu stæði
ekki til boða að ganga til liðs við Atl-
antshafsbandalagið.
Sagði Stoltenberg eftir viðræð-
urnar að það væri ómögulegt fyrir
aðildarríkin 30 að samþykkja þá
kröfu að Rússar gætu haft neitunar-
vald um hvort Úkraína gengi til liðs
við bandalagið eða ekki.
Stoltenberg sagði það hins vegar
jákvætt að viðræðurnar í gær hefðu
farið fram, og að bandalagið hefði
boðið Rússum til frekari viðræðna,
þar sem meðal annars yrði fjallað
um afvopnun og aðrar leiðir til þess
að koma í veg fyrir vopnuð átök.
Fulltrúar Rússa sögðust hins vegar
þurfa að bera þá tillögu undir
stjórnvöld í Moskvu áður en þeir
gætu svarað af eða á.
Dmitrí Peskov, talsmaður Pútíns
Rússlandsforseta, sagði hins vegar
fyrir fundinn að frá sjónarhóli
Rússa stæði þeim ógn af „opnu dyr-
unum“. Hann vildi þó ekki segja
hvort Rússar myndu hefja hernað-
araðgerðir í Úkraínu ef ekki yrði
farið að kröfum þeirra. „Við viljum
ekki standa í hótunum eða setja úr-
slitakosti eins og bandarískir emb-
ættismenn.“
Enn mikill ágreiningur
- Viðræður Rússa og Nató sagðar „hreinskiptnar“ - Rússum boðið til frekari
viðræðna - Stoltenberg segir Rússa ekki fá neitunarvald um stækkun Nató
AFP
Viðræður Wendy Sherman, Jens
Stoltenberg, Alexander Grushko og
Alexander Fomin fyrir viðræðurnar.
Bandaríkjastjórn ákvað í gær að
hefja refsiaðgerðir á hendur
fimm háttsettum Norður-Kóreu-
mönnum, sem tengjast eldflauga-
áætlun landsins, en aðgerðirnar
eru hugsaðar sem svar við til-
raunum Norður-Kóreu með lang-
drægar eldflaugar og kjarnorku-
vopn.
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-
Kóreu, fylgdist sjálfur með til-
raunaskoti landsins í fyrrinótt, en
norðurkóresk stjórnvöld sögðu að
um ofurhljóðfráa eldflaug hefði
verið að ræða, sem ferðast á
fimmföldum hljóðhraða. Er það
önnur tilraun landsins með slíkar
eldflaugar á innan við viku.
Sagði Kim að landið þyrfti að
byggja upp „strategíska hern-
aðarvöðva“ þrátt fyrir refsi-
aðgerðir alþjóðasamfélagsins.
Annað tilraunaskot Norður-Kóreumanna á innan við viku
Vill setja auk-
inn kraft í eld-
flaugarskot
AFP
Ljósmyndaprentun
Frábært fyrir ljósmyndara. Bjóðum upp á prentun
í öllum stærðum, t.d. á striga, álplötu eða pappír.
Xprentehf. | Sundaborg3 |104Reykjavík |7772700|konni@xprent.is
www.xprent.is