Morgunblaðið - 13.01.2022, Síða 52
52 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022
✝
Þórður Haukur
Jónsson fæddist
í Reykjavík 23. júní
1930. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans 30. desem-
ber 2021.
Foreldrar hans
voru Jón Berg-
steinsson múr-
arameistari, f. 30.
júní 1903, d. 9. des-
ember 1991, og
Marta Guðnadóttir hjúkr-
unarfræðingur, f. 1. mars 1899,
d. 5. júní 1947. Bræður hans voru
Steinn Rafnar, f. 1932, d. 1944,
og Gunnar, f. 1944, d. 2013. Syst-
ir hans er Ragnhildur, f. 1936.
Eiginkona hans var Regína
Hanna Gísladóttir, f. 17. nóv-
ember 1932, d. 6. júní 2021. Þau
giftust á 25 ára afmælisdegi
Þórðar. Foreldrar hennar voru
Unnur Aðalheiður Baldvins-
dóttir, f. 1912, d. 1977, og Gísli
Sigurðsson, f. 1896, d. 1970.
Börn Þórðar og Regínu eru: 1)
Jón Rafnar, f. 13. júlí 1956. Eig-
inkona hans er Valgerður Ás-
geirsdóttir, f. 4. apríl 1958. Börn
þeirra eru: Regína Björk, Ásgeir
Þór og Helga Rún. Barnabörn
ár bjó Þórður síðan á Sléttuvegi
27 í Reykjavík.
Þórður var aðstoðarforstjóri
Brunabótafélags Íslands þar til
Vátryggingafélag Íslands (VÍS)
var stofnað árið 1989. Þar starf-
aði hann sem framkvæmdastjóri
þar til hann lét af störfum 65 ára
að aldri. Hann hafði unun af fé-
lagsstörfum. Á árum áður starf-
aði hann mikið fyrir Bridge-
samband Íslands og skipulagði
tvö Norðurlandamót. Var einn af
stofnendum Lionsklúbbs Garða-
bæjar, þar sem hann var formað-
ur um tíma, og síðar umdæmis-
og fjölumdæmisstjóri Lions á Ís-
landi. Þórður gekk í Oddfellow-
stúkuna Þórstein árið 1985.
Hann var yfirmeistari þeirrar
reglu 1996-1997. Eftir að starfs-
ævi lauk skrifaði hann bókina
Brunabótafélag Íslands 1917-
2000 að beiðni stjórnar félagsins.
Einnig gaf hann út Niðjatal
Ragnhildar Magnúsdóttur og
Bergsteins Jóhannessonar ásamt
föðurbróður sínum. Fyrir afkom-
endur sína skrifaði Þórður minn-
ingar um ævi sína sem hann kall-
aði Brotabrot.
Útförin fer fram frá Digranes-
kirkju í dag, 13. janúar 2022,
klukkan 13. Framvísa verður
neikvæðu Covid-hraðprófi sem
er ekki eldra en 48 klst. Streymt
verður frá útförinni á slóðinni:
https://tinyurl.com/2p944f84
Hlekkur á streymi
https://www.mbl.is/andlat
þeirra eru: Ísar
Logi, Hekla Björk,
Árni Eyþór, Óliver
Þór, Axel Þór,
Emelía Rós, Apríl
og Haillee Lucio. 2)
Björgvin, f. 14. jan-
úar 1959. Eiginkona
hans er Þórhildur
Garðarsdóttir, f. 15.
júlí 1965. Sonur
þeirra er Garðar.
Fyrir átti Björgvin
Hildi og Hauk. Móðir þeirra er
Anna Margrét Guðjónsdóttir.
Barnabörnin eru Þórður Bjarki
og Rögnvaldur. 3) Unnur, f. 16.
ágúst 1960. Eiginmaður hennar
er Torleif Reintz Söreide, f. 12.
maí 1957. Börn þeirra eru Kari,
Kristin og Jacob Andreas.
Barnabörnin eru Daria, Stella og
William. 4) Marta, f. 17. júlí 1967.
Eiginmaður hennar er Egill Þor-
steins, f. 15. júlí 1963. Synir
þeirra eru Úlfur Þór og Unnar
Elí. Barnabarn þeirra er Iðunn
Ásta. Fyrir átti Egill dótturina
Uglu.
Fjölskyldan bjó lengst af á
Markarflöt 9 í Garðabæ. Regína
og Þórður fluttu síðar í Læk-
jasmára 8 í Kópavogi. Í tæp tvö
Í dag fylgjum við elskulegum
föður okkar síðasta spölinn, hálfu
ári eftir að við kvöddum mömmu.
Þegar við vorum að alast upp sá
mamma um heimilishaldið þar
sem pabbi vann langan vinnudag.
Þegar barnabörnin fæddust, eitt
af öðru, var hann miðpunktur til-
verunnar. Barnabörnin og síðar
langafabörnin hafa alltaf verið
stór hluti af hans lífi og fylgdist
hann vel með þeim öllum, mætti á
íþróttamót, listsýningar og annað
sem þau tóku þátt í. Það fyrsta
sem afabörnin sögðu þegar þau
komu í heimsókn á Markarflötina
var: „Afi komdu að leika.“ Á með-
an fullorðna fólkið spjallaði yfir
kaffibolla með mömmu sat pabbi
með börnunum að leika. Ef þau
voru of lítil til þess gekk hann með
þau í fanginu um húsið og gaf
þeim gott bak-klór. Eftir að
mamma veiktist tók pabbi alveg
við heimilishaldinu. Hann bauð
ekki aðeins upp á kjötbollur og
soðinn fisk. Hann eldaði innbak-
aða nautalund og bjó þá smjör-
deigið og bernaise-sósuna til frá
grunni, gerði humarsoð úr skelj-
um og fletti matreiðslubókum því
hann vildi þróa færni sína. Hann
töfraði fram heilu veislurnar og
leiddist ekki hrósið sem hann fékk
óspart.
Pabbi stundaði heilbrigðan lífs-
stíl löngu áður en það hugtak varð
til. Árum saman var hann mættur
við opnun í Salalaugina, fór í rækt-
ina og tók sundsprett. Hann
stundaði einnig reglulega göngu-
ferðir sér til heilsubótar og golf.
Þetta var honum mikils virði.
Hann var með reglu á öllu, allar
tímasetningar voru nákvæmar,
alltaf sami rástími í golfi, mættur
á sama tíma í sundið og ræktina,
helst að fá skáp númer 425 og
sömu sturtuna.
Allt þar til haustið 2020 mætti
pabbi daglega í sundið en þá varð
hann fyrir því óhappi að lær-
brotna. Í framhaldi af því fékk
hann Covid. Hann lagði mikið á
sig og vann markvisst að því að ná
aftur heilsu en því miður dugði
það ekki til. Í haust greindist hann
með krabbamein sem varð bana-
mein hans.
Pabbi varð í raun ekki gamall
maður fyrr en eftir að hann veikt-
ist. Hann leit heldur ekki á sig
sem gamlan mann og tók ekki þátt
í félagsstarfi aldraðra nema þegar
hann, langt fram á níræðisaldur,
var að „baka fyrir gamla fólkið“
eða „skipuleggja bingó fyrir
gamla fólkið“. Það var honum
mikils virði að hugur hans var
skýr allt fram í andlátið. Hann
mundi allt, var alltaf að lesa og
sanka að sér fróðleik. Fór á leik-
sýningar, myndlistarsýningar og
tónleika.
Foreldrar okkar voru góð sam-
an og þótti alla tíð mjög vænt
hvoru um annað. Árin eftir að
mamma veiktist voru erfið fyrir
okkur öll en hann stóð eins og
klettur við hennar hlið alla tíð og
hugsaði svo vel og fallega um
mömmu í hennar veikindum.
Við eigum pabba svo margt að
þakka, hann var alveg einstakur.
Heilsteyptur, alltaf hvetjandi og
jákvæður, áhugasamur, þakklát-
ur, hallmælti engum, skammaði
aldrei og blótaði aldrei, tryggur,
nákvæmur og samviskusamur.
Hann var okkur öllum mikil fyr-
irmynd og hefur reynst okkar fjöl-
skyldum traustur vinur og klett-
ur.
Við minnumst hans með mikl-
um kærleika, þakklæti og söknuði
en við vitum að mamma tekur vel
á móti Tóta sínum.
Jón Rafnar, Björgvin,
Unnur og Marta.
Elsku besti afi minn nú ert þú
kominn í faðm ömmu sem féll frá í
sumar. Ég hef átt margar góðar
stundir með þér og hefði viljað að
þær hefðu getað orðið fleiri.
Ég hef alltaf litið mikið upp til
þín frá blautu barnsbeini og þú
hefur verið fyrirmynd mín og
margra annarra. Þegar ég var lítil
talaði ég alltaf um ykkur sem afa
og ömmu í draumahúsinu því hús-
ið var stórt og tignarlegt og garð-
urinn eins og ævintýri.
Ég hef sagt mörgum frábærar
sögur af þér í gegnum tíðina og
verið montin að eiga þig sem afa.
Mér er það minnisstætt þegar þú
fórst á þínum efri árum á mat-
reiðslunámskeið og hélst heilu
veislurnar fyrir vini og vanda-
menn. Mér hefur alltaf fundist
aðdáunarvert hvað þú lifðir
heilsusamlegu lífi og varst dugleg-
ur að hreyfa þig. Það er mér í
fersku minni þegar við fjölskyldan
vorum í Fossvogsdal við ána og
við sjáum mann æða eftir göngu-
stígnum í fjarska, beinan í baki og
vel til hafðan. Ég segi „er þetta
ekki afi Þórður?“ en við vorum ef-
ins því við töldum þetta vera um
70 ára mann. Ég skokkaði því til
hans og sá að þetta varst þú, þá 90
ára gangandi á hörkuferð.
Ég hef alltaf verið með stjörnur
í augunum yfir sambandi ykkar
ömmu. Þú varst svo góður við
ömmu og myndi ég óska öllum að
eiga eins fallegt og gott samband
og þið áttuð. Það er mér minnis-
stætt þegar við fórum á tónleika
og þið leiddust frammi og okkur
systrunum fannst þetta svo sætt
og þá sagði amma „við erum búin
að leiðast í 60 ár“. Maður sá alltaf
ástina og væntumþykjuna á milli
ykkar. Þú og amma eigið marga
afkomendur og fannst mér ynd-
islegt að sjá hversu mikil vinátta
var á milli ykkar og barnanna
ykkar.
Mér þykir vænt að hugsa til
helgar- og eftirmiðdagsheimsókn-
anna sem við Apríl og oft pabbi
nutum með þér. Ég er glöð yfir að
Apríl hafi kynnst þér og sá hvað
henni þótti gífurlega vænt um þig.
Hún vildi alltaf knúsa þig og sitja
eins nálægt þér og mögulegt var, í
sófa eða við eldhúsborðið. Í vetur
þegar við Apríl komum og elduð-
um fisk með þér sast þú á enda
borðsins og Apríl vildi sitja nær
þér og færði sig á hornið á borðinu
svo þið gætuð setið á sama fer-
metranum. Við Apríl sáum í Ís-
lendingabók að þú værir elstur af
okkar stórfjölskyldu og var Apríl
montin af því og talaði mikið um
að þú værir elsti forfaðir okkar.
Mér þótti gaman að heyra sögur
af ferðalögum þínum þegar þú
varst yngri, kaupandi föt á fjöl-
skylduna og ferðast um allan
heim. Þú hefur gert og séð margt
á þinni ævi sem lifir í hjörtum okk-
ar.
Ég elska þig elsku afi. Þín verð-
ur sárt saknað.
Hvíldu í friði,
Þín
Helga Rún og fjölskylda.
Elsku afi, takk fyrir allar
skemmtilegu stundirnar í Læk-
jasmára, þegar við bræðurnir
kíktum ótal oft í kaffi til ykkur
ömmu og spjölluðum um allt milli
himins og jarðar. Við munum enn
eftir deginum þegar þú kynntir
okkur bræðrum golf og gafst okk-
ur fyrsta golfsettið. Ekki leið á
löngu þar til við vorum alveg hel-
teknir af golfi og fengum að spila
golf með þér og vinum þínum. Afi
hefur alltaf verið mikil fyrirmynd
fyrir okkur og við sjaldan séð jafn
mikinn herramann eins og afa
sem við höfum lært mikið af og
tökum með okkur í framtíðina.
Hann var alltaf að fylgjast með
öllum úr fjölskyldunni og hafði
mikinn áhuga á því sem við vorum
að gera og mætti oft á fótboltavöll-
inn að horfa á okkur spila og
styðja okkur eins og hann gerði í
öllu sem við tókum okkur fyrir
hendur.
Það er sárt að þurfa kveðja
svona yndislega manneskju og
verðum við ævilangt þakklátir
fyrir þær dýrmætu minningar
sem við eigum um afa.
Úlfur og Unnar.
Nú þegar ég kveð afa minn
Þórð Hauk eru mér efst í huga
þakklæti og fallegar minningar.
Afi var einstaklega vandaður mað-
ur því hann sýndi öllum þeim sem
urðu á vegi hans hlýju, vinsemd og
virðingu. Þessi sömu gildi erfðu
börnin og barnabörnin og ég veit
fyrir víst að hann verður fyrir-
mynd okkar allra um ókomna tíð.
Afi Þórður var ávallt góður við
barnabörnin og það sýndi sig í því
að hann lék við okkur og las fyrir
okkur þegar við heimsóttum hann
og ömmu Regínu á Markarflötina.
Að sama skapi mætti hann á flesta
tónleika, íþróttaviðburði og út-
skriftir sem við barnabörnin tók-
um þátt í.
Þórður Haukur var vel lesinn,
víðförull og virkur þátttakandi í
alls kyns félagasamtökum og góð-
gerðarstarfi. Hann sagði
skemmtilega frá ferðum sínum
heimshorna á milli og oft gapti
maður yfir því hversu nákvæmt
minni hans var um minnstu stað-
reyndir, dagsetningar og jafnvel
brottfarartíma, fjörutíu ár aftur í
tímann!
Þórður Haukur og Regína voru
gift í tæp 66 ár. Það var aðdáun-
arvert að fylgjast með hjónabandi
þeirra því þau voru yfir sig ást-
fangin alveg frá því hann bauð
henni í dans í Sjálfstæðishúsinu og
allt fram á síðasta dag. Sama hvert
tilefnið var, alltaf mættu amma og
afi prúðbúin og ávallt hönd í hönd.
Þau voru mjög ólík hjónin.
Amma Regína var einstakur húm-
oristi og örlítið stríðin á meðan afi
var alvörugefinn og hæglátur. Við
afi áttum góðan vinskap í gegnum
golfið og ég var svo heppinn að fá
að dvelja hjá þeim hjónum heilt
sumar og spila með honum dag-
lega á Urriðavelli í Golfklúbbnum
Oddi. Amma átti það til að stríða
afa fyrir að vekja unglinginn (und-
irritaðan) klukkan sex á morgnana
til að fara í golf í roki og rigningu -
að hennar mati var það „ókristileg
vitleysa“. Afi glotti út í annað og
lét þetta sem vind um eyru þjóta
enda vissi hann sem var að þetta
væru ómetanlegar stundir fyrir
okkur báða. Ég sé það í dag að
hann hafði rétt fyrir sér.
Síðustu árin stóð afi sem klettur
við hlið ömmu Regínu í baráttu
hennar við veikindi. Hann studdi
hana dag og nótt og hélt ótrauður
áfram þegar hún flutti á hjúkrun-
arheimili þar sem hann dvaldi hjá
henni eins oft og hann gat. Þó svo
að afi væri sjálfur orðinn veikur lét
hann ekki á sjá og fylgdi henni eft-
ir uns yfir lauk. Ég hugsa til þeirra
með hlýju og söknuði en veit fyrir
víst að þau leiðast hönd í hönd í
Sumarlandinu. Að lokum vil ég
vitna í æviminningar afa þar sem
hann lýsir fyrstu kynnum sínum af
ömmu Regínu:
„Ég hefði teygt mig af svölun-
um fyrir ofan hana og spurt hvort
hún vildi dansa við mig… síðar
minntist Regína þess að þegar á
dansgólfið var komið hefði ég sagt
að ég kynni ekkert annað en
vangadans. Frá þessari stundu
höfum við verið óaðskiljanleg.“
Ég verð ævinlega þakklátur og
stoltur af því að fá að vera nefndur
í höfuðið á jafn einstökum manni
og afi minn Þórður Haukur var og
mun taka hann mér til fyrirmynd-
ar í öllu.
Hvíl í friði.
Haukur Björgvinsson.
Takk.
Þetta litla orð virkar lítið og
saklaust en inniheldur svo mikið
þakklæti, minningar og góðar lífs-
reglur. Afi var einstakur maður,
klár, kurteis, duglegur, hjartahlýr
en eftir því sem ég fullorðnast þá
áttaði ég mig enn betur á öllum
þeim kostum og seiglu sem afi bjó
yfir, þeir eru ekki sjálfsagðir og ég
mun eftir fremsta megni reyna að
tileinka mér þá í leik og starfi. Það
er ljúft að rifja upp minningar frá
Markaflötinni þar sem við barna-
börnin áttum alltaf griðastað hjá
ykkur ömmu, hvort sem það var að
prófa naglalakkið og skartið henn-
ar ömmu, fá ristað brauð með
marmelaði, leika út í garði eða
hrauni eða fá að fara í hárgreiðslu-
leik með afa, teikna eitthvað í
Paint í Macintosh-tölvunni og telja
og dást að öllum apastyttunum
aftur og aftur.
Það þótti ekki alltaf smart að
sjást með foreldrum sínum á ung-
lingsárunum en ég man þegar ég
gisti eitt sinn hjá ykkur ömmu og
þú skutlaðir mér í skólann á gull-
litaða Volvo-bílnum með gula
Lions-ljónið í afturglugganum, þá
passaði ég upp á að þú keyrðir mig
alveg upp að dyrum og svo steig ég
út úr bílnum eins og prinsessa.
Þú sýndir okkur barnabörnun-
um og barnabarnabörnunum allt-
af einlægan áhuga og velvilja.
Spurðir út í hagi, skóla, vinnu og
líðan. Þú lést þig varða alla tíð.
Bókin Brotabrot sem þú ritaðir
og gafst okkur er dýrmætur fjár-
sjóður fyrir okkur afkomendur.
Að lesa um þín æskuár, lífið með
ömmu Regínu og börnunum ykk-
ar, öll félagsstörfin þín, áhugamál
og það sem þú hefur áorkað á
þinni löngu ævi er magnað og svo
skemmtilegt að lesa og fræðast
um. Þú áttir auðvelt með og hafðir
gaman af að koma fram og halda
tölu og hrífa fólk með þér, auk
framlags til félagsstarfa, og tel ég
að ég hafi þessa kosti frá þér og
þykir afar vænt um það. Ræðan
sem þú hélst í brúðkaupinu okkar
Hreiðars var umtöluð lengi á eftir
af vinum og fjölskyldu en hún var í
senn hjartnæm og með góðar lífs-
reglur fyrir okkur ungu hjónin að
hafa með í framtíðina. Ekki einu
sinni leit gamli maðurinn á blað og
las upp ræðuna, þú varst með
þetta allt upp á tíu.
Þú varst alla tíð virkur og iðinn
við áhugamálin þín; stofnaðir
nokkra Lionsklúbba, varst yfir-
meistari Oddfellow og fararstjóri
landsliðs Bridgesambands Ís-
lands. Svo tók við golfið á seinni
árum og síðast en ekki síst varstu
fyrsti maður á húninn í Salalaug
alla morgna til að komast í tækja-
salinn og sund, helst ná sama
skápnum, nr. 425, og fara á sama
hlaupabrettið, svo fórstu heim og
helltir upp á kaffi fyrir ykkur
ömmu. Þú hugsaðir alltaf vel um
heilsuna, bæði með hreyfingu og
mataræði, og það er til eftir-
breytni fyrir okkur sem viljum lifa
jafn löngu og góðu lífi og þú hefur
gert elsku afi minn.
Síðustu vikur hafa verið erfiðar
fyrir alla fjölskylduna en ég hugsa
hlýtt til síðustu samverustunda
okkar á Sléttuveginum, þegar þú
sagðir okkur Ísari Loga frá ferða-
lögum þínum um Ástralíu og Kan-
ada með Lions og þegar við Hekla
Björk kíktum á þig með reyktan
lax og hrökkbrauð og við spjöll-
uðum um heima og geima.
Elska þig afi minn og knúsaðu
ömmu Regínu frá mér.
Regína Björk Jónsdóttir.
Takk kærlega fyrir allar góðu
stundirnar elsku langafi Þórður.
Ég mun alltaf geyma þær í hjarta
mínu. Til dæmis þegar ég tók við-
tal við þig fyrir skólaverkefni og
þú sagðir mér frá því þegar þú
varst ungur í skóla og frá Týru
tönn sem allir voru hræddir við í
skólanum og að allir skóladagar
byrjuðu á að fara með faðirvorið.
Vá hvað tímarnir eru breyttir því
þú kunnir á Snapchat og Face-
book og varst alltaf með allt á
hreinu. Mér fannst alltaf gaman að
koma í heimsókn til þín og lang-
ömmu og skoða allar flottu apa-
stytturnar þínar. Takk fyrir að
koma alltaf á allar leik- og söngs-
ýningar hjá mér og sýna mér alltaf
einlægan áhuga. Ég elska þig og
mun ávallt gera það og mér þykir
svo gott að vita að þú ert alla vega
kominn til ömmu Gínu.
Hekla Björk.
Kynni okkar Þórðar hófust fyr-
ir um 75 árum þegar við urðum
bekkjarfélagar í Verslunarskóla
Þórður Haukur
Jónsson
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Útfararþjónusta í yfir 70 ár
Við tökum vel á móti ástvinum
í hlýlegu og fallegu umhverfi
Sálm. 9.11
biblian.is
Þeir sem þekkja
nafn þitt treysta
þér því að þú,
Drottinn, bregst
ekki þeim sem til
þín leita.