Morgunblaðið - 13.01.2022, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 13.01.2022, Qupperneq 53
Íslands. Þórður var traustur og tryggur félagi sem hefur reynst mér ákaflega vel alla tíð enda hef- ur okkar góði vinskapur haldist allt frá fyrstu kynnum. Þórður var mjög skipulagður maður og ekki síst honum að þakka að góður fé- lagsskapur fyrrverandi skóla- félaga hefur haldist alla tíð þar sem við höfum hist mánaðarlega og spjallað um lífið og tilveruna. Einnig var Þórður upphafsmaður að briddsklúbbi nokkurra félaga þar sem spilað var reglulega í tugi ára. Með þessum kveðjuorðum langar mig að þakka mínum kæra vini fyrir allt hið góða sem hann hefur veitt mér í gegnum tíðina. Þegar við Þórður útskrifuðumst úr fjórða bekk Verslunarskólans vorið 1949 skrifaði Þórður eftirfar- andi til mín sem mig langar að til- einka honum að leiðarlokum. Vertu svo kvaddur með vinsemd og ást Vinurinn tryggasti aldrei mér brást Fetaðu jafnan um lukkunnar leið Lífdaga þína um órunnið skeið. Hvíl í friði, kæri vinur. Þorvaldur Tryggvason. Kveðja frá Brunabótafélagi Íslands Fallinn er frá Þórður Haukur Jónsson, fyrrverandi aðstoðarfor- stjóri Brunabótafélags Íslands og síðar framkvæmdastjóri hjá VÍS. Þórður starfaði hjá Brunabóta- félagi Íslands og síðar arftaka þess, VÍS, í rúmlega 41 ár. Hann var sæmdur gullmerki Brunabóta- félagsins árið 1996 eftir að hann lét af störfum. Ég kynntist ekki Þórði fyrr en árið 1999 þegar þáverandi for- stjóri Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands (EBÍ), Hilmar Pálsson, fór þess á leit við Þórð að hann myndi rita sögu tryggingafélagsins Brunabóta- félags Íslands. Ég áttaði mig fljótt á því að Brunabótafélagið hafði verið afar mikilvægur hluti af lífi Þórðar. Hann réðst ungur til starfa hjá félaginu og vann sig fljótt upp í áhrifastöðu og varð að- stoðarforstjóri þess árið 1981. Þegar Brunabótafélag Íslands og Samvinnutryggingar stofnuðu VÍS réðst Þórður til starfa þar sem einn af framkvæmdastjórum þess. Þegar hugmyndin kviknaði um að nauðsynlegt væri að skrifa sögu Brunabótafélagsins þótti einsýnt að Þórður væri rétti maðurinn til verksins. Hann þekkti mjög vel sögu þess og hafði yfirgripsmikla þekkingu á starfseminni. Þá hafði hann einnig lagt hönd á plóg við að breyta Brunabótafélaginu í eign- arhaldsfélag sem síðan var gert með sérstökum lögum árið 1994. Þórður hafði aðstöðu hjá EBÍ við skrifin og því kynntist ég hon- um vel á þessum tíma. Þórður kom mér fyrir sjónir sem afar ljúfur og viðkunnanlegur maður. Hann hafði ákaflega góða nærveru og vann sína vinnu við bókina af mik- illi nákvæmni. Það var því mikil ánægja þegar bókin kom út árið 2001. Þórði hafði tekist að skrifa sögu Brunabótar 1917-2000 þann- ig að bókin er mjög læsileg, skemmtileg og prýdd miklum fjölda mynda. Engum nema hon- um hefði tekist að koma til skila þeim góða Brunabótaranda sem fyrrverandi starfsmenn töluðu um að hefði ávallt ríkt hjá félaginu. Þá var ekki síðra að Þórður hélt áfram að líta inn hjá okkur hér í Brunabót eftir útgáfu bókarinnar og hafði aðstöðu hjá okkur til að sinna ýmsum skrifum og öðrum hugðarefnum. Kaffispjallið við Þórð var alltaf mjög gefandi og skemmtilegt. Að leiðarlokum vil ég þakka Þórði af alhug fyrir störf hans í þágu Brunabótar og minnumst við hans með mikilli hlýju. Ég sendi börnum hans og fjölskyldunni allri mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Anna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri EBÍ. MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022 ✝ Stefán-Þór fæddist í Reykjavík 28. sept- ember 1945. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Droplaugarstöðum 30. desember 2021. Foreldrar hans voru Elí Gunn- arsson, myndlist- armaður og húsa- málari, f. 26. nóvember 1923, d. 27. ágúst 1997, og Sigríður Valdemars- dóttir, saumakona og húsfreyja, f. 13. september 1921, d. 14. september 1979. Alsystkini Stefáns eru: Hilm- ir, f. 28. september 1944, maki Guðfinna Björg Halldórsdóttir, Már, f. 7. desember 1951, maki Fríða Einarsdóttir, Kári, f. 11. júní 1953, og Alma, f. 2. júní 1958, maki Garðar Sig- urþórsson. Hálfsystkini Stefáns (sammæðra) eru: Valdimar Víðir Gunnarsson, f. 21. nóv- ember 1940, maki Dagrún Björnsdóttir, og Gunný Gunn- arsdóttir, f. 26. nóvember 1941. Stefán var ókvæntur. Börn völlum. Stefán vann einnig á varðskipum og millilandaskip- um. Meðfram matreiðslustörfum til sjós og lands vann hann alla tíð að myndlist, auk þess að fást við skiltamálun og skrautritun. Myndlistaráhuginn var alltaf fyrir hendi, enda Stefán af lista- fólki kominn. Skrautritun lærði Stefán hjá Gunnlaugi SE Briem í Myndlista- og handíðaskól- anum; hann sótti grafík- námskeið við Listaháskóla Ís- lands og stundaði nám í táknmáli við Fjöltækniskólann. Að öðru leyti var hann sjálf- menntaður í myndlist. Stefán hélt í gegnum tíðina nokkrar einkasýningar á myndlist sinni. Menningarmál hvers konar voru í miklu uppáhaldi hjá Stef- áni. Hann var bókelskur og las mikið alla tíð. Meðal annarra áhugamála voru ljóðlist og skák. Hann hafði einnig gaman af ferðalögum og að kynnast er- lendum menningarheimum. Stefán ferðaðist mikið erlendis á yngri árum, en einnig á efri árum þegar tækifæri gafst til. Útför Stefáns fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 13. janúar 2022, klukkan 15. Í ljósi að- stæðna verða aðeins nánustu að- standendur viðstaddir útförina. hans, sem hann átti með fyrrver- andi sambýliskonu sinni Ragnheiði Einarsdóttur, eru: 1) Veturliði Þór, f. 27. maí 1971, maki Sigríður L. Karls- dóttir, börn þeirra eru Sandra Sif, f. 10. október 1991, Hinrik Þór, f. 22. maí 1998, Snorri Karl, f. 31. ágúst 2008, og Atli Már, f. 3. janúar 2013. 2) María, f. 27. mars 1975, maki Djevair Krasnikj, börn Maríu og Gunn- ars M. Jónssonar eru Sólveig Lilja, f. 5. október 1998, Róbert Leó, f. 8. mars 2007, og Albert Ægir, f. 19. febrúar 2011. Stefán var matreiðslumeist- ari, en hann lauk sveins- og meistaraprófi í matreiðslu frá Matsveina- og veitingaþjóna- skóla Íslands. Stóran hluta starfsævinnar vann Stefán á ýmsum veitingastöðum og hót- elum um land allt; þar á meðal á Skíðahótelinu á Akureyri, Hótel Kea, Hótel Holti, Hótel Sögu og Hótel Valhöll á Þing- Faðir minn Stefán-Þór kvaddi okkur um jólahátíðina. Andlátið bar brátt að. Hann var þó búinn að vera nokkuð lengi heilsuveill og rúmliggjandi, allt frá því hann lamaðist vorið 2019. Ég veit að hann er á betri stað núna. Síðustu daga hef ég rifjað upp minningarnar um föður minn. Þær markast af því að ég var skilnaðarbarn og kynntist hon- um í raun þrisvar. Ég á minn- ingaglefsur frá því að ég var 5-6 ára og stopular minningar eftir það allt þar til ég flutti til Reykjavíkur 16 ára gamall til að fara í menntaskóla. Þá kynntist ég föður mínum í annað sinn. Hann átti þá enn í sambandi við Bakkus og samskipti mín við hann mótuðust af því næstu árin. Faðir minn var með sterk karaktereinkenni og lífsstíls- áherslur sem fylgdu honum alla tíð. Gjafmildi, gestrisni og list- hneigð fóru þar fremst á meðal hins jákvæða í fari hans. Alltaf hélt hann heimili, sama hvað á bjátaði í tilverunni. Hann var menntaður matreiðslumeistari og gat töfrað fram máltíðir úr nánast engu; var t.d. ætíð eld- snöggur að útbúa smörrebröd og te þegar ég heimsótti hann. Við feðgar tefldum þá gjarnan og hlustuðum á tónlist saman. „Fé- lagslyndur einfari“ voru orðin sem faðir minn notaði til að lýsa sjálfum sér. Hann sótti reglu- lega listviðburði og kaffi- og veitingahús. Á hinn bóginn gat hann svo dögum skipti sökkt sér ofan í listsköpun á heimili sínu og sá þá engan á meðan. Hann málaði og teiknaði mikið alla tíð og hélt nokkrar myndlistarsýn- ingar. Heimsóknir á Borgar- bókasafnið voru fastur punktur í tilverunni, enda las hann mikið. Hann var ljóðaunnandi og oft með orðasambönd og tilvitnanir á takteinum. Síðustu myndlist- arsýninguna sína tileinkaði hann ljóðum. Skömmu eftir aldamótin ákvað faðir minn að fara í bind- indi (tímabundið að hans sögn). Það bindindi varði út ævina. Í kjölfarið tók líf hans stakka- skiptum, bæði félagslega og fjár- hagslega, til hins betra. Lífsum- gjörðin einkenndist eftir það af stöðugleika. Ég kynntist þá föður mínum í raun í þriðja skiptið og sam- skiptin urðu meiri og dýpri. Hann gerði sér sérstakt far um að sinna og umgangast barna- börnin sín, sem þá voru tiltölu- lega nýfædd. Maður fékk það sterkt á tilfinninguna að í gegn- um samskiptin við barnabörnin væri hann að bæta upp samveru- stundirnar sem hann fór á mis við með mér og systur minni þegar við vorum að alast upp. Faðir minn átti góðan fjórða leikhluta, ef svo má að orði kom- ast. Síðustu átján árin var hann meira til staðar en hin æviárin samanlagt. Hann náði að ferðast nokkuð erlendis, sinna fjöl- skyldu og barnabörnum, sem og myndlistinni, sem var hans lífs- ástríða. Það var því mikið áfall þegar heilsan hvarf hjá honum í einu vetfangi vorið 2019. Hann tók lömuninni af miklu æðru- leysi, en það fjaraði þó hægt og hljóðlega undan lífsþróttinum. Um jólin fékk hann svo loksins að sofna svefninum langa. Ég þakka fyrir samfylgdina elsku pabbi minn og kveð með ljóðinu „Náttmyrkrið“ sem þú myndskreyttir árið 2017. Treystu náttmyrkrinu fyrir ferð þinni heitu ástríku náttmyrkrinu Þá verður ferð þín full af birtu frá fyrstu línu til þeirrar síðustu Veturliði Þór. Stefán-Þór Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, MEINERT JOHANNES NILSSEN, Grænulaut 22, Reykjanesbæ, áður Borgarvegi 11, Njarðvík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn 6. janúar. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 14. janúar klukkan 13. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á https://www.facebook.com/groups/meinert. Gyða Eiríksdóttir Erna Nilssen Unnar Már Magnússon Júlíanna María Nilssen Gyða Minný Nilssen Sigfús K. Magnússon Eiríkur Arnar Nilssen barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, mamma, tengdamamma, amma og langamma, SVANHILDUR H. SIGURFINNSDÓTTIR, Lilla, lést á Landspítala 31. desember. Útförin fór fram í kyrrþey. Grímur Davíðsson Margrét Sigrún Grímsdóttir Erlendur Sigurður Sigurjóns. Sigurfinnur Óskar Grímsson Inga Katrín Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamamma, amma og langamma, JÓNA SIGURBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, fædd á Horni í Mosdal, Arnarfirði, áður til heimilis í Vesturbergi 10, Reykjavík, lést 14. desember á dvalarheimilinu Eir. Útför Jónu fer fram frá Garðakirkju 14. janúar klukkan 13. Gestir eru beðnir um að framvísa neikvæðu hraðprófi sem ekki er eldra en 48 klst. gamalt. Aðstandendur senda starfsfólki á 2. hæð suður á Eir ástarþakkir fyrir góða umönnun. Streymt verður frá athöfninni á vefsíðunni streyma.is undir nafni hinnar látnu. Alda Björk Marinósdóttir Trausti Hauksson Guðmundur Marinósson Guðbjörg Anna Magnúsdóttir Finnbogi Sig. Marinósson Kerstin Haug Marinósson Guðrún Björk Marinósdóttir Vigfús Eiríksson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HENRY ÞÓR HENRYSSON skógarbóndi, Efri-Sumarliðabæ, lést á Landspítalanum laugardaginn 8. janúar. Guðrún Katla Henrysdóttir Helga Sigurjónsdóttir Henry Alexander Henrysson Regína Bjarnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG RAGNHEIÐUR BJÖRNSDÓTTIR, áður Ásenda 19, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju 14. janúar klukkan 13. Vegna gildandi samkomutakmarkana er fólk beðið að framvísa neikvæðu hraðprófi frá viðurkenndum aðila, ekki eldra en 48 klst. gömlu. Athöfninni verður streymt á https://www.youtube.com/watch?v=kxzEEdL7UhQ Jóhanna Guðríður Linnet Kristján B. Ólafsson Ragnheiður Linnet Runólfur Pálsson Hrafnhildur Linnet Runólfsd. Bjarni Páll Linnet Runólfsson Ingibjörg Ragnheiður Linnet Herdís Ágústa Linnet og barnabarnabörn Okkar ástkæra, AUÐUR PERLA SVANSDÓTTIR, lést á Landspítalanum Fossvogi 6. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Kjartan Már Ásmundsson Kolfinna Kjartansdóttir Karitas Kjartansdóttir Eiríkur Friðjón Kjartansson og aðrir aðstandendur Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma og kær vinkona, SVALA LÁRUSDÓTTIR, lést föstudaginn 7. janúar á líknardeild Landspítalans, Kópavogi. Útförin fer fram frá Lindakirkju föstudaginn 21. janúar klukkan 13. Kirkjugestir eru beðnir um að framvísa neikvæðu hraðprófi sem er ekki eldra en 48 stunda gamalt. Streymt verður frá athöfninni á lindakirkja.is/utfarir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið. Bryndís Erla Sigurðardóttir Gunnar Friðriksson Arnar Þór Sigurðarson Jana Sturlaugsdóttir Berglind Lóa Sigurðardóttir Guðjón Leifsson Þór Guðmundsson og ömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BIRGIR THORSTEINSON garðyrkjubóndi, Brún, Flúðum, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 1. janúar. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu hefur útförin farið fram. Hjartans þakkir til starfsfólks HSu fyrir einstaka hlýju og góða umönnun. Margrét Böðvarsdóttir Sigríður Thorsteinson Axel Thorsteinson Heiða Snorradóttir Böðvar Bjarki Thorsteinson Sigurveig Guðmundsdóttir Þorsteinn Thorsteinson barnabörn, barnabarnabörn og fjölskyldur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.