Morgunblaðið - 13.01.2022, Síða 59

Morgunblaðið - 13.01.2022, Síða 59
ÍÞRÓTTIR 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022 „Við skulum fara í þennan leik minnugir þess að við höfum afl og getu til að gera vel. Hversu langt það getur fleytt okkur veit enginn en við skulum alla vega fara eins langt og kostur er,“ sagði Guðjón Þórðarson knatt- spyrnuþjálfari eitt sinn í frægri ræðu. Ætli landsliðsmennirnir í hand- knattleik fari ekki inn í loka- keppni EM á morgun með svip- uð skilaboð í íþróttatöskunum? Mikið býr í íslenska liðinu. Þar eru margir hæfileikaríkir leik- menn sem gera það gott í Meistaradeildinni og í Þýska- landi. Liðið hefur undirbúið sig vel og sloppið við smit að mestu. Liðið æfði ekki bara vel í janúar heldur einnig í nóvember. Líklega finnst mörgum tími vera kominn á skemmtilegt mót hjá íslenska landsliðinu. Margir leikmanna liðsins hafa átti vel- gengni að fagna sem landsliðs- menn í yngri landsliðum og hafa nú fengið að kynnast nokkrum stórmótum. Ég er sannfærður um að þessi kjarni getur náð mjög góðum árangri. Spurning er kannski hvenær heldur en hvort. Með þessum kjarna eru svo leikmenn eins og Aron Pálmarsson, Bjarki Már Elísson og Ólafur Guðmundsson sem eru á besta aldri. Verða 32 ára á árinu. Auk þess er Björgvin Páll Gústavsson í hópnum og getur miðlað af þeirri reynslu að vinna ólympíuverðlaun. Ætli íslenska þjóðin eigi það ekki líka skilið að sjá spennandi mót hjá landsliðinu í heimsfar- aldrinum, takmörkunum og öll- um þeim leiðindum? Ísland hefur tvívegis spilað um verðlaun á EM, 2002 og 2010. Ryðja þarf toppliðum úr vegi til að það geti orðið nið- urstaðan en okkar menn munu fara eins langt og nokkur kostur er. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla, Grill 66-deildin: Origo-höll: Valur U – Selfoss U........... 19.30 Austurberg: ÍR – Fjölnir ..................... 19.30 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild karla: Dalhús: Fjölnir – Álftanes ........................ 18 KNATTSPYRNA Reykjavíkurmót kvenna: Origo-völlur: Valur – KR .......................... 18 Würth-völlur: Fylkir – Fram ................... 19 Víkingsvöllur: Víkingur – Fjölnir ............ 19 Í KVÖLD! Ítalía Bikarkeppnin, 16-liða úrslit: Atalanta – Venezia .................................. 2:0 - Arnór Sigurðsson var ónotaður vara- maður hjá Venezia og Bjarki Steinn Bjarkason var ekki í leikmannahópnum. Grikkland PAOK – Panetolikos ............................... 2:0 - Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK. _ Efstu lið: Olympiacos 42, AEK Aþena 33, PAOK 31, Giannina 26, Panathinaikos 26. England West Ham – Norwich ............................ (0:1) Deildabikar, undanúrslit, seinni leikur: Tottenham – Chelsea ............................ (0:1) Spánn Meistarakeppnin, undanúrslit: Barcelona – Real Madrid ...................... (2:3) _ Leikjunum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. Sjá mbl.is/sport/ enski. >;(//24)3;( LANDSLEIKUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Frekar tilþrifalitlum vináttulands- leik karlalandsliða Íslands og Úg- anda í fótbolta á æfingasvæði í Belek í Suður-Tyrklandi í gær lauk með jafntefli, 1:1. Jón Daði Böðvarsson skoraði mark Íslands strax á sjöttu mínútu með skalla af markteig eftir laglega sókn Íslands og fyrirgjöf Viðars Ara Jónssonar frá endamörkunum hægra megin. Jón Daði fékk langþráðar 60 mín- útur með íslenska liðinu en hann var síðast í byrjunarliði í leik þegar Ís- land mætti Póllandi í vináttuleik 8. júní og spilaði síðast mótsleik 24. ágúst þegar hann lék í 20 mínútur með Millwall í enska deildabik- arnum. Þá skoraði Jón Daði sitt fjórða mark í 61 landsleik en hann var lík- legastur í liðinu til að koma bolt- anum í netið og var í tvö önnur skipti hættulegur við mark Afríkuliðsins. Úgandamenn jöfnuðu úr víta- spyrnu eftir hálftíma leik en slæm sending Arnórs Ingva Traustasonar til baka kom Ara Leifssyni í vand- ræði og hann braut klaufalega á sóknarmanni Úganda sem var að sleppa laus í vítateignum. Reynslan var frammi Þeir átta leikmenn sem Arnar tefldi fram á miðju, í vörn og í marki áttu samtals tvo A-landsleiki að baki. Varnarmennirnir Ari Leifsson og Valgeir Lunddal einn hvor. Þeir Jökull Andrésson markvörður, Finnur Tómas Pálmason, Atli Bark- arson, Viktor Örlygur Andrason, Viktor Karl Einarsson og Valdimar Þór Ingimundarson léku hins vegar allir sinn fyrsta landsleik. Reynslan í liðinu var í fremstu víglínu þar sem EM- og HM- fararnir Jón Daði og Arnór Ingvi Traustason með samanlagt rúmlega 100 landsleiki léku ásamt Viðari Ara Jónssyni sem spilaði sinn sjötta A- landsleik. Arnór Ingvi var fyrirliði Íslands í fyrsta skipti. Nýliðunum fjölgaði enn í seinni hálfleik þegar Hákon Rafn Valdi- marsson markvörður og Kristall Máni Ingason komu inn á í sínum fyrsta landsleik. Fleiri lykilmenn hjá Úganda Úganda var eins og Ísland án flestra lykilmanna sinna og var nær eingöngu með leikmenn úr deildinni heima fyrir. Þar voru þó fleiri leik- menn með landsliðsreynslu en í ís- lenska liðinu og einir fjórir af þeim sem hófu leik með Úganda spiluðu mikið í leikjum liðsins í undankeppni HM í haust. Eins og svo oft í þessum jan- úarleikjum var leikurinn ekki mikið fyrir augað enda ekki um mikla sam- æfingu að ræða, þótt kjarninn sem hóf leik fyrir Ísland hafi reyndar spilað mikið með 21 árs landsliðinu undanfarin misseri. Enda snúast þessir leikir fyrst og fremst um að brúa bilið milli 21 árs liðs og A- landsliðs og finna út hverjir eiga möguleika á að stíga skrefi lengra og gera tilkall til sætis í liðinu þegar kemur að mótsleikjunum í sumar. Alfons og Stefán geymdir Ljóst virðist að Arnar Þór Við- arsson landsliðsþjálfari líti á leikinn við Suður-Kóreu á laugardaginn sem stærra og erfiðara verkefnið í þessari ferð. Hann notaði þá Alfons Sampsted og Stefán Teit Þórðarson ekkert í leiknum gegn Úganda en þeir komu talsvert við sögu í haust- verkefnum landsliðsins og eru tveir af reynslumeiri leikmönnunum í hópnum þótt ungir séu. Alex Þór Hauksson, Ísak Óli Ólafsson, Damir Muminovic og Ingvar Jónsson markvörður komu heldur ekkert við sögu í gær og viðbúið að þeir spili á laugardaginn. Endurkoma hjá Jóni Daða - Skoraði mark Íslands gegn Úganda þar sem átta léku sinn fyrsta landsleik Morgunblaðið/Eggert Skoraði Jón Daði Böðvarsson skoraði mark Íslands gegn Úganda í gær og var tvisvar nærri því að koma boltanum aftur í mark Afríkuliðsins. Handknattleiksmaðurinn Tumi Steinn Rúnarsson er genginn í rað- ir Coburg í þýsku B-deildinni frá Val. Tumi er 21 árs leikstjórnandi sem er uppalinn hjá Hlíðarenda- félaginu. Vísir greinir frá og segir Coburg hafa greitt Val fyrir þjón- ustu Tuma. Tumi gekk aftur í raðir Vals árið 2020 eftir að hafa leikið með Aftureldingu í tvö ár og varð tvöfaldur meistari með Valsliðinu á síðasta tímabili. Tumi hefur skorað 53 mörk í ellefu leikjum í Olísdeild- inni á leiktíðinni en hann skilur við Val í fjórða sæti deildarinnar. Tumi verður leik- maður Coburg Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þýskaland Tumi Steinn Rúnarsson gengur í raðir Coburg frá Val. Sænska knattspyrnufélagið Kalmar staðfesti í gær að vinstri bakvörð- urinn Davíð Kristján Ólafsson væri kominn til liðs við það frá Aalesund í Noregi og hefði samið til þriggja ára. Davíð er 26 ára gamall og hef- ur leikið með Aalesund undanfarin þrjú ár, eitt tímabil í úrvalsdeild- inni og tvö í B-deildinni, en hann tók þátt í að koma liðinu aftur upp á síðasta ári eftir ársdvöl utan úrvals- deildarinnar. Hann lék áður með Breiðabliki og spilaði 81 leik með Kópavogsliðinu í úrvalsdeildinni á árunum 2014 til 2018. Davíð kominn til Kalmar Ljósmynd/Aalesund Kalmar Davíð Kristján Ólafsson er kominn í sænsku úrvalsdeildina. Vináttulandsleikur karla, Antalya, Tyrklandi, 12. janúar. 0:1 Jón Daði Böðvarsson 6. 1:1 Kaddu Patrick 31.(víti) Ísland: (4-3-3) Mark: Jökull Andr- ésson (Hákon Rafn Valdimarsson 46). Vörn: Valgeir Lunddal Frið- riksson, Ari Leifsson, Finnur Tómas Pálmason, Atli Barkarson. Miðja: Viktor Örlygur Andrason, Viktor Karl ÚGANDA – ÍSLAND 1:1 Einarsson (Kristall Máni Ingason 74), Valdimar Þór Ingimundarson (Gísli Eyjólfsson 60). Sókn: Viðar Ari Jóns- son (Höskuldur Gunnlaugsson 60), Jón Daði Böðvarsson (Sveinn Aron Guðjohnsen 60), Arnór Ingvi Traustason (Davíð Kristján Ólafsson 79). Skot: Ísland 6 (6) – Úganda 5 (2) Horn: Úganda 1. Keflavík hafði betur gegn Njarðvík, 63:52, á heimavelli í Subway-deild kvenna í körfubolta í gærkvöldi. Með sigrinum fór Keflavík upp fyrir Hauka og upp í fjórða sætið en Njarðvík mistókst að fara í topp- sætið. Keflavík byrjaði betur og var með 15:9 forskot eftir fyrsta leikhluta en Njarðvík svaraði í öðrum leikhluta og var staðan í hálfleik 29:28, Kefla- vík í vil. Keflavík lagði svo grunninn að sterkum sigri með glæsilegum þriðja leikhluta, sem liðið vann 18:5. Njarðvík var svo ekki sérlega nálægt því að jafna í fjórða leikhlutanum. Daniela Wallen var stigahæst hjá Keflavík með 20 stig og níu fráköst. Anna Ingunn Svansdóttir bætti við tíu stigum. Aliyah Collier skoraði 14 stig fyrir Njarðvík og Lára Ösp Ásgeirs- dóttir gerði 12. Fjölnir er því áfram í toppsætinu með 20 stig eftir 13 leiki. Njarðvík er í öðru sæti með 18 stig eftir 12 leiki og Valur í þriðja með 16 stig eftir 12 leiki. Keflavík er nú með tíu stig í fjórða sæti, tveimur stigum meira en Hauk- ar, en Haukar eiga þrjá leiki til góða. Keflavík stóð í vegi fyrir Njarðvíkingum Árni Sæberg Drjúg Daniela Wallen átti stórleik fyrir Keflavík í heimasigrinum á grönn- unum í Njarðvík í Subway-deildinni í gærkvöldi og skoraði 20 stig.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.