Morgunblaðið - 13.01.2022, Side 60
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Fitueyðing
Eyðir fitu á erfiðum svæðum
Laserlyfting
Háls- og andlitslyfting
NÝTT ÁR –
NÝMARKMIÐ
Frábær tilboð og fleiri meðferðir í vefverslun okkar!
TILBOÐ
ALLT AÐ
30%
afslátturí janúar
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
,,Þegar ég fór að vinna að þessari sýn-
ingu þá kom sú hugmynd mjög nátt-
úrulega til mín að fá Úlf bróður minn
til samstarfs við mig. Við erum bæði
flutt til Íslands eftir dvöl erlendis, svo
nú er kominn nýr kafli í lífi okkar og
þetta var kjörið tækifæri til að koma
saman aftur, en við Úlfur höfum oft
unnið saman áður,“ segir Elín Hans-
dóttir sem var boðið að vera með nýtt
verk í Gerðarsafni í tengslum við
Ljósmyndahátíð Íslands sem fer af
stað í dag. Þau systkinin opna saman
sýningu sína Ad Infinitum í Gerðar-
safni í Kópavogi á morgun, föstudag.
Elín er myndlistarmaður en Úlfur er
tónskáld og hljóðlistamaður.
,,Elín var með mjög skýra hug-
mynd strax um það hvernig sýningin
ætti að vera uppbyggð og um hvað
hennar þáttur átti að snúast. Við eig-
um það til að detta á hugmyndatrúnó
þegar við vinnum saman, en það kom
líka mjög náttúrulega til mín hvernig
hljóðinnsetning gæti fylgt því sem
Elín er að pæla með sínum ljós-
myndum í þessari sýningu. Mér
fannst strax myndir hennar í miðju
sýningarrýmisins vera mikill fjár-
sjóður,“ segir Úlfur og bætir við að
hann hafi ákveðið að vinna margrása
verk sem fer í gegnum átta hátalara
umhverfis salinn. ,,Mig langaði með
hljóðinnsetningunni að skapa tilfinn-
ingu um einhverskonar veru eða
vætti, sem verndar fjársjóðinn í miðj-
unni, einskonar mínótár. Hljóðið skap-
ar heilmynd sem er ekki efnisleg, utan
um þessa mjög svo sjónrænu og fal-
legu innsetningu með myndum Elín-
ar. Þetta styður hvað annað mjög vel,
hljóð og mynd.“
Undirmeðvitund og hið óræða
Elín segir að innsetning hennar sé í
hringlaga rými inni í miðjum sýning-
arsalnum.
,,Þar fyrir utan á að vera myrkur og
hljóðverk Úlfs ferðast um í myrkrinu
og umlykur hið sjónræna, og það
myndast einhvers konar ,,vakúm“ ut-
an um miðjuna, sem hefur áhrif á
gestina áður en þeir nota augun. Þeir
nota þá eyrun til að skynja. Það sem
Úlfur gerir með hljóðmyndinni er ekki
ósvipað því sem ég geri, því hann er
líka að skapa einhvers konar heim
sem hefur dýpt og fjarvídd og kallar
fram annars konar skynjun á rými.“
Úlfur bætir við að þótt Elín sé að
vinna með sjónrænar ljósmyndir, þá
sé samt abstrakt hvert viðfangsefnið
sé. ,,Því það talar svo mikið við undir-
meðvitundina, frekar en eitthvað í
framheilanum. Fyrir mér er Elín búin
að skapa einhvers konar stafróf úr
þessum ótrúlega fallegu ljósmyndum
sem teknar eru af teygjum út um allan
heim. Þetta talar til mín á svipaðan
hátt og tónlist gerir, í gegnum undir-
meðvitundina og hið óræða, sem hefur
mikil áhrif innra með manni þegar
maður verður fyrir því. Hvað það er
sem það snertir á innra með manni er
handan orða. Mér finnst það sterkt í
verki Elínar og mig langaði að ná
fram svipuðum áhrifum með hljóð-
myndinni minni.“
Að kafa dýpra inn í sjálfan sig
Elín segir að hún hafi í verkum sín-
um oft leitað eftir upplifun á sjón-
rænni menningu sem sé svipuð og
upplifun fólks á tónlist.
,,Ég er að tala um allt aðra skynjun
en þá sem á sér stað í framheila, eða
inntaki sem við túlkum út frá texta.
Við erum svo vön því í myndlist að
túlka allt, reyna að setja fram aðstæð-
ur þar sem myndmál hefur beina þýð-
ingu eða skírskotun í eitthvað sem við
þekkjum eða hefur skírskotun í sögu-
lega þekkingu. Ég er næstum óörugg
með þátt minn í sýningunni af því að
inntakið virðist kannski í fyrstu vera
svo einfalt. En einfaldleikinn býður
upp á þessa opnu túlkun sem er mjög
svipuð og það sem við upplifum þegar
við mætum á tónleika, lokum augun-
um og hlustum. Förum í eitthvert
ferðalag, nema í þessu tilfelli þá upp-
lifum við tónlistina meira með líkama
okkar, því við sitjum ekki á stól og tón-
listin kemur ekki úr einni átt, heldur
úr mörgum áttum.“
Úlfur grípur þetta á lofti og segir að
markmið hans með því að nota marga
hátalara sé að láta hljóðið ferðast um
rýmið í stað þess að búa til línulegt
hljóð sem þróast frá a yfir í b. ,,Mér
finnst merkilegt að heyra Elínu tala
um hvað hún er að spá. Þótt eitthvað
sé ekki endilega hannað til þess að
vera túlkað, eða skapað til að fólk taki
það inn og túlki út frá einhverju minni
úr sögum sem við þekkjum, þá þýðir
það ekki að það búi ekki yfir innri
strúktúr. Mér finnst krafturinn ein-
mitt liggja í mystíkinni sem Elín hefur
skapað með þessari sýningu, því hún
hefur innri strúktúr en á sama tíma er
hún óræð. Upp úr því rís mikil mystík
og tækifæri fyrir áhorfanda til að kafa
dýpra inn í sjálfan sig.“
Að lokum er ekki úr vegi að spyrja
hvers vegna þau hafi gefið sýningunni
nafnið, Ad Infinitum, sem gæti lagst
út á íslensku: Að eilífu.
,,Af því að við erum bestu vinir ,,for-
ever“,“ segir Úlfur að bragði og Elín
skellihlær. Úlfur segir nafnið reyndar
vísa til tengsla við óreiðuna. ,,Þegar
við setjum óreiðu í samband við óend-
anleikann, þá rís úr henni merking,
meining og líf.“
Elín bætir við að nafngiftin vísi líka
til ljósmyndanna af gúmmíteygjum,
sem eru hringlaga form sem hefur
ekkert upphaf og engan endi.
,,Þessar teygjur hafa lent í ýmsu á
sínu æviskeiði, þær hafa fallið til jarð-
ar í allskonar ólík form. Eilífðar-
merkið kemur upp aftur og aftur, því
teygjan er einfalt geómetrískt form
sem getur samt teygt sig í óendanlega
margar útgáfur af sjálfu sér.“
Þessar teygjur hafa lent í ýmsu
- Systkinin Elín og Úlfur með sýninguna Ad Infinitum í Gerðarsafni á Ljósmyndahátíð Íslands
- Teygjan er einfalt geómetrískt form sem getur teygt sig í óendanlega margar útgáfur af sjálfu sér
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Listafólk ,,Nú er kominn nýr kafli í lífi okkar og þetta var kjörið tækifæri til að koma saman aftur,“ segja systkinin.
Teygja Ein af ljósmyndum Elínar Hansdóttur á sýningunni Ad Infinitum.
Ljósmyndahátíð Íslands er alþjóð-
leg hátíð sem haldin er í janúar
annað hvert ár og er nú haldin í
sjötta sinn. Markmið hátíðarinnar
er að vinna að framþróun ljós-
myndunar sem listforms. Næstu
tvær helgar verða nýjar sýningar
opnaðar í Ásmundarsal, BERG
Contemporary, Gallery Porti,
Gerðarsafni, Hafnarborg, Korp-
úlfsstöðum, Listasafni Íslands,
Ljósmyndasafni Reykjavíkur,
RAMskram galleríi, og Þjóðminja-
safni Íslands. Fyrstu opnanir verða
í dag, 13. janúar, í Gallery Porti og
á morgun, 14. janúar, í Gerðar-
safni. Hátíðin verður ekki sett
formlega vegna samkomutak-
markana, en sérstök viðburðahelgi
verður haldin síðustu viku hátíð-
arinnar, í lok mars, með fjölbreytt-
um viðburðum, málþingi, fyrir-
lestrum, ljósmyndabókasýningu,
listamannaspjalli á sýningum o.fl.
Á dagskrá eru þrettán sýningar
með erlendum og íslenskum lista-
mönnum. Lokahelgin er 24.-27.
mars 2022. Nánar á www.tipf.is.
Ljósmyndun sem listform
LJÓSMYNDAHÁTÍÐ ÍSLANDS HALDIN Í SJÖTTA SINN
Stilla Ein af mörgum ljósmyndum sem verða á hátíðinni, eftir Hallgerði Hallgrímsdóttur.