Morgunblaðið - 13.01.2022, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 13.01.2022, Qupperneq 64
Tamara Rojo hefur verið ráðin list- rænn stjórnandi San Francisco- ballettsins, og tekur við starfinu af Helga Tómassyni í árslok 2022 þegar hann lætur af störfum vegna aldurs, en Helgi hefur stjórnað flokknum síð- ustu 37 árin. Frá þessu greinir The New York Times. Rojo verður þar með fyrsta konan og aðeins fimmti stjórnandi San Francisco-ballettsins, sem stofnaður var 1933 og er því elsti atvinnuballettflokkur Bandaríkjanna. „Að mínu mati er þetta frjóasti flokkur Norður-Ameríku,“ segir Rojo og tekur fram að markmið sitt sem stjórnandi sé að láta „listformið höfða til yngri áhorfenda sem hafi stundum ný gildi og prinsipp“. Rojo hefur ver- ið listrænn stjórnandi Enska þjóðar- ballettsins í London síðan 2012 og þykir hafa umbreytt ásýnd flokksins til hins betra með áherslu á alþjóðlegt samstarf og hugmyndarík verkefni. Auk þess bar hún hitann og þungann af því að fjármagna byggingu nýrra höfuðstöðva flokksins sem teknar voru í notkun 2019. „Hún sneri skútunni við,“ segir Alistair Spalding, listrænn stjórnandi Sadler’s Wells-leikhússins, sem átt hefur í nánu samstarfi við Enska þjóðarballettinn síðustu árin. „Hún hefur staðið í fremstu víglínu og leitt starfið með áræði í dagskrárgerð, tekið margar góðar ákvarðanir. Mik- ilvægast af öllu er að hún hefur haft skýra listræna sýn og fundið leiðir til að raungera hugmyndir sínar.“ Leggur áherslu á gagnsæi „Helgi færði San Francisco- ballettinum einstakan smekk, ævin- týraanda, vilja til að taka áhættu og getu til að leysa hvers kyns vanda,“ segir Sunnie Evers, sem situr í stórn flokksins. „Það var yfirþyrmandi verkefni að finna einhvern sem gæti fylgt í fótspor hans,“ segir Evers og rifjar upp að stjórnin hafi leitað að nýjum stjórnanda á heimsvísu í tæpt ár. Haft hafi verið samband við yfir 200 kandídata og listinn þrengdur í átta í júlí. Í þeim hópi voru þrjár hör- undsdökkar manneskjur og þrjár konur. „Mikið hefur verið rætt um það hversu hvítir karlmenn eru áber- andi í ballettinum. Ég er mjög spenntur fyrir því að svo sé ekki hjá okkur,“ segir Evers. Í myndbandsviðtali við Helga sem The New York Times vitnar til kem- ur fram að hann hafi ekki haft nein áhrif á val á eftirmanneskju sinni, en vonaðist til að hún myndi „byggja upp sterkan flokk og reyna nýja hluti“. Bendir hann á að Rojo hafi í verki sýnt getu sína til að bæta Enska þjóðarballettinn og lyfta upp á alþjóðlegan staðal „sem var það sem ég var beðinn að gera þegar ég var ráðinn til San Francisco á sínum tíma. Hún hefur þróað nýja kóreó- grafíu á sama tíma og hún ber virð- ingu fyrir klassíkinni.“ Helgi mun skipuleggja starfsárið 2022-2023, en Rojo hyggst nýta það sem eftir lifir þessa árs í að setja sig inn í nýja starfið, móta listræna sýn sína og skipuleggja komandi starfsár. Rojo segir of snemmt að gefa upp hvað hún hyggist setja á dagskrá í San Francisco. „Ég mun halda áfram að fókusera á konur í hópi danshöf- unda og hvetja nýjar raddir til að túlka klassíkina,“ segir Rojo og tekur fram að eitt af því sem sér finnist svo gefandi við breskt leikhús sé hvernig unnið er með klassíkina á nýskapandi hátt og nefnir Shakespeare í því sam- hengi. Rojo tekur fram að spennandi hafi verið að fylgjast með þeim áhrifum sem Covid-19-heimsfaraldurinn hafi haft á miðlun dans með stafrænum hætti. „Ég trúi því að San Francisco- ballettinn hafi tækifæri til að vera leiðandi á þessu sviði.“ Rojo leggur, sem stjórnandi, áherslu á gagnsæi. „Mér finnst mikil- vægt að dansarar skilji hvernig ákvarðanir eru teknar,“ segir Rojo. Eiginmaður hennar, Isaac Hern- andez, starfaði einnig hjá Enska þjóð- arballettinum og gekk nýverið aftur til liðs við San Francisco-ballettinn þar sem hann dansaði á sínum yngri árum. Evers segir að stjórn flokksins hafi spurt Rojo erfiðra spurninga er snúa að því hvernig Hernandez er valinn í hlutverk, og beðin að svara fyrir þá gagnrýni sem birtist í bresku pressunni 2018 um stjórnarhætti hennar. „Tamara var óhrædd við að viðurkenna mistök og jafnframt afar lausnamiðuð,“ segir Evers. „Sjálf kem ég ekki úr balletthefðinni og þarf því ekki að gæta að ímynd hennar. Ég er aðkomumanneskja og hef áhuga á að bjóða öðrum aðkomu- manneskjum að eiga hlutdeild í list- forminu með það að markmiði að skapa framtíð með þeim. Hver svo sem sú framtíð verður,“ segir Rojo. Nýr listrænn stjórnandi San Francisco-ballettsins - Tamara Rojo tekur við af Helga Tómassyni Nýsköpun Tamara Rojo vill stuðla að því að ballettinn sem listform höfði betur til yngri áhorfenda. Hún talar fyrir skapandi úrvinnslu á hefðinni. Ljósmynd/ballet.org.uk 64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2022 Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is Fagfólk STOÐAR veitir nánari upplýsingar og ráðgjöf. LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL Vönduð og falleg sjúkrarúm fyrir heimili og stofnanir. Örugg, fjölhæf og notendavæn fyrir allar þínar þarfir. Óskarsverðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn 27. mars og í fyrsta sinn í þrjú ár verður kynnir á staðnum til að stýra herlegheit- unum. Þetta upplýsir sjónvarps- stöðin ABC sem sýna mun athöfn- ina í beinni útsendingu. Yfir- standandi heimsfaraldur hefur sett strik í afhendingu ýmissa verð- launa í listheiminum að undan- förnu, en skipuleggjendur Óskars- ins láta engan bilbug á sér finna. Ekki hefur enn verið upplýst hver verður kynnir í ár. Sú hefð að hafa einn eða fleiri kynna var rofin árið 2019 þegar uppistandarinn Kevin Hart sagði sig frá hlutverk- inu sem kynnir í kjölfar harðrar gagnrýni á hann fyrir fordómafull ummæli í garð samkynhneigðra. Þá var brugðið á það ráð að senda athöfnina út án kynnis og hefur sú útfærsla haldist síðan, en samtímis hefur verðlaunaafhendingin verið mjög hófstillt vegna samkomutak- markana heimsfaraldursins. Síðasti kynnir Óskarsverðlauna- afhendingarinnar var því Jimmy Kimmel, sem kynnti útsendinguna árin 2017 og 2018. Meðal þeirra sem orðaðir hafa verið við kynn- inguna í ár eru breski leikarinn Tom Holland, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt sem Kóngulóar- maðurinn. „Ef mér verður boðið að vera kynnir mun ég taka það að mér, enda væri það gaman,“ sagði Holland í samtali við The Holly- wood Reporter í seinasta mánuði. Bob Hope heitinn á metið í því að kynna Óskarsverðlaunahafana, en hann gerði það samtals 19 sinnum. Næstur á eftir honum kemur Billy Crystal með níu skipti. Tilnefningar til Óskarsins verða kynntar 8. febrúar. Óskar Ein vinsælustu verðlaun kvik- myndageirans eru Óskarsverðlaunin sem eru í formi gylltrar styttu af karlmanni. Óskarinn afhentur 27. mars með kynni Fengi Danski þjóðarflokkurinn (Dansk folkeparti) að ráða yrði tón- listarfólki sem gerst hefur brotlegt við lög ekki lengur leyft að koma fram á opinberum tónleikastöðum og tónleikahátíðum sem njóta fjár- hagslegs stuðnings hins opinbera. Þetta kom fram í máli Peters Skaa- rups, sem er talsmaður flokksins hvað viðkemur dómsmálum. Í sam- tali við dönsku útvarpsstöðina 24syv segir hann flokkinn leggja þetta til þar sem hann telji það vandamál að glæpir séu fegraðir, sérstaklega í rapptónlist. „Við leggjum þetta til vegna þess að við sjáum að áberandi liðsmenn glæpagengja, bæði í Danmörku og Svíþjóð, tengjast tónlistargeiranum þar sem þeir dásema líf glæpa- manna,“ segir Skaarup í samtali við P1 Morgen og DR greinir frá. Yrði tillaga Danska þjóðarflokks- ins að veruleika myndi hún hafa áhrif á rappara á borð við Jamaika, sem hefur margsinnis verið dæmd- ur og situr nú í fangelsi fyrir hníf- stunguárás og hótanir. Aðrir tón- listarmenn eru Medina, sem dæmd var fyrir að keyra undir áhrifum vímuefna, og Topgunn, sem dæmd- ur var fyrir ofbeldi. Í frétt SVT um málið kemur fram að í Svíþjóð hafa Svíþjóðardemó- kratarnir (Sverigedemokraterna) skorað á ríkisstjórnina að láta meta hvort ástæða sé til að hætta að leika rapptónlist sem tengist glæpa- gengjum í ríkisútvarpinu. Vill banna brotamönnum að koma fram AFP Formaðurinn Kristian Thulesen Dahl er formaður Danska þjóðarflokksins. Breski leikarin Lennie James, sem þekktastur er fyrir frammistöðu sína í The Walking Dead og The Line of Duty, segir nauðsynlegt að ræða það hvernig leikarar séu valdir í hlutverk. Heitar umræður hafa átt sér stað að undanförnu um það hvort nauðsynlegt sé að leikarar hafi persónulega reynslu af því sem þeir séu að túlka. Nýverið gerði Maureen Lipman athugasemd við það að Helen Mirren væri að leika Goldu Meir í væntanlegri kvikmynd þar sem Mirren væri ekki gyðingur. James segir mikilvægt að ræða hlutina af fullri alvöru og skoða sér- staklega hlutverk þar sem minni- hlutahópar hafi ekki fengið að túlka eigin reynsluheim. „Í þeim tilvikum þar sem samkynhneigðir leikarar hafa ekki fengið tækifæri til að leika samkynhneigðar persónur eða fatl- aðir leikarar ekki einu sinni komið til greina í hlutverk persóna með fötlun finnst mér tvímælalaust að gefa eigi þeim leikurum tækifæri,“ segir James í samtali við BBC en tekur fram að hann geti ekki sam- þykkt það að ákveðin hlutverk eigi alltaf að vera frátekin fyrir tiltekna leikara með vísan til þess að aðeins þannig verði frammistaðan ekta. „Það þarf að meta hvert tilvik fyrir sig og því ekki hægt að búa til algilda reglu,“ segir James. Handritshöf- undurinn Russell T. Davies er með- al þeirra sem leggja áherslu á trúverðugleika. Í sjónvarps- þáttaröðinni It’s a Sin fóru aðeins samkynhneigðir leikarar með hlut- verk samkynhneigðra. „Þú myndir aldrei setja ófatlaðan leikara í hjóla- stól, ekki frekar en þú myndir farða hvítan leikara til að leika hörunds- dökka manneskju,“ segir Davies við Radio Times. Aðrir hafa kallað eftir blæbrigðaríkari nálgun og bent á að list leikarans felist í hæfileikanum til að geta sett sig spor annarra og þannig túlkað ólík hlutverk. „Ég mun berjast hatrammlega fyrir réttinum til að leika hlutverk sem liggja utan míns reynsluheims,“ segir Cate Blanchett. Undir þetta tekur Helen Mirren sem segir það gera lítið úr list leikarans ef öll túlk- un leikara þyrfti að byggjast á lif- aðri reynslu. Nauðsynlegt að ræða leikaraval - Finnst lítið gert úr list leikarans Lennie James
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.