Morgunblaðið - 13.01.2022, Síða 68

Morgunblaðið - 13.01.2022, Síða 68
Birnir Jón Sigurðsson hefur verið valinn leikskáld Leikrit- unarsjóðs Leikfélags Reykja- víkur 2022-2023. Birnir Jón var valinn úr hópi 25 umsækj- enda og tekur við keflinu af þeim Matthíasi Tryggva Har- aldssyni og Evu Rún Snorra- dóttur, en verk þeirra beggja verða hluti af verkefnaskrá Borgarleikhússins á næsta leikári. Birnir Jón er tíunda skáldið sem starfar við leikhúsið undir verndarvæng leikritunarsjóðsins sem leikskáld Borgarleikhússins. Birnir Jón, sem útskrifaðist af sviðshöfundabraut sviðslistadeildar LHÍ 2019, hefur þegar komið að nokkrum uppfærslum í Borgarleikhúsinu. Hann samdi handritið að barnaóperunni Fuglabjarginu sem frum- sýnd var 2021, er einn meðlima sviðslistahópsins Ást og karókí sem setti upp Skattsvik Development Group undir merkjum Umbúðalauss 2020 og einnig einn með- lima sviðslistahópsins CGFC sem setti upp Kartöflur undir merkjum Umbúðalauss 2019. Nýtt leikskáld Borgarleikhússins CANNES hægindastóll Hægindastóll og skammel. Saddle, grár, rauður eða svartur í PVC áklæði. Fullt verð: 199.990 kr. Aðeins 139.993 kr. AVIGNON hægindastóll Hægindastóll með skammel. Dökkgrár, svartur, Saddle eða rauður í PVC áklæði. Fullt verð: 199.990 kr. Aðeins 159.920 kr. MIAMI lyftistóll Stillanlegur hægindastóll með tveimur öflugummótorum. Leður á slitflötum. Aðstoðar þig á fætur. Svartur, grár eða brúnn. Fullt verð: 259.900 kr. Aðeins 194.925 kr. 30% AFSLÁTTUR 20% AFSLÁTTUR 25% AFSLÁTTUR Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði www.DORMA.is Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur. Opið sunnudaga 13-17 á Smáratorgi FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 13. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Átta nýliðar léku með íslenska karlalandsliðinu í fót- bolta þegar það gerði jafntefli, 1:1, við Úganda í vin- áttulandsleik í Tyrklandi. Jón Daði Böðvarsson lék sinn fyrsta leik í byrjunarliði í sjö mánuði og skoraði mark Íslands á upphafsmínútum leiksins. »59 Átta nýliðar í jafntefli við Úganda ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Vicki O’Shea frá Ástralíu var í viku á Íslandi sumarið 2009. Hún féll fyrir landslaginu, kom aftur í desember og var fram í lok febrúar, flutti síðan alkomin til Sauðárkróks 10. október 2010. Hún keypti Gamla pósthúsið áður en hún fór til Ástralíu í febrúar 2010, fékk það afhent í árslok, gerði það upp og byrjaði að leigja ferða- mönnum hluta þess sumarið 2012 en hefur verið með það í langtímaleigu síðan faraldurinn hófst. Skömmu fyrir nýliðin áramót keypti hún húsnæði á Skagaströnd þar sem hún hefur verið í hálfu starfi sem verkefnastjóri Nes-lista- miðstöðvarinnar frá 2014. „Þegar ég hef gert húsið upp flyt ég þangað og þarf þá ekki að keyra daglega á milli.“ Tenging í Ástralíu við Krókinn Hópur Íslendinga flutti til Ástr- alíu í lok sjöunda áratugar liðinnar aldar. Þar á meðal voru hjónin Krist- ín Helgadóttir, kölluð Kidda, og Magnús Jónsson á Sauðárkróki. Þau eignuðust fimm börn og búa þrjú þeirra í Ástralíu, þar á meðal Unnur. Olga, dóttir Unnar og Sigurþórs Baldurssonar, og Ross Di Blasio, sonur Vicki, felldu hugi saman. Parið var í rokkhljómsveit, sem flutti til Lundúna á Englandi. Þau ákváðu að giftast á Íslandi og var brúðkaupið á Sauðárkróki í júlí 2009. Vicki mætti og flutti þegar norður í huganum. Segir að hún hafi sennilega erft nor- ræn gen frá sænskum langafa sín- um, Olof Nilsson, sem flutti til Ástr- alíu 1898. „Þess vegna líður mér svo vel í þessum hluta heimsins,“ segir hún. „Ég sáði fræjum innra með mér og þegar ég kom aftur til vinnu í Ástralíu lagði ég á ráðin um hvernig ég gæti látið drauminn rætast. Þeg- ar ég hef ákveðið eitthvað verður ekki aftur snúið, svo ég sagði upp vinnunni, friðaði vini með því að vera á Sauðárkróki að vetrarlagi og tók svo af skarið í kjölfarið.“ Hún hefur farið víða um landið en á Vestfirði eftir. „Þeir eru á listanum.“ Vicki er fráskilin fjögurra barna móðir frá Geraldton, listfræðingur að mennt, kenndi við Curtin-háskóla í Perth og sá um allar níu starfs- stöðvar skólans í Vestur-Ástralíu. Hún segist hafa talið að ungu hjónin myndu flytja til Sauðárkróks og það hafi þau gert, búið þar í fjögur ár og eignast tvo syni áður en þau hafi flutt aftur til Ástralíu. Þar búi börn hennar og fjögur barnabörn en einn sonur hennar lést eftir að hún flutti til Íslands. „Kidda, sem er 94 ára, er í raun eina tengingin mín hérna,“ segir hún, en þær fóru saman til Ástralíu fyrir jólin 2019 og komu aft- ur í febrúar 2020. „Ég hitti fjöl- skyldu mína alltaf um jólin, ann- aðhvort hér eða í Ástralíu, en nú höfum við ekki sést í um tvö ár.“ Fjarvera ferðamanna kom Vicki mest á óvart þegar hún kom fyrst til Íslands. Hún segist hafa séð fyrir að þar yrði breyting á og slegið tvær flugur í einu höggi þegar hún hafi keypt Gamla pósthúsið, því hún hafi búið þar og haft af því leigutekjur. „Þegar ég var barn fannst mér ég hafa fæðst á röngum stað heimsins. Ég þoli ekki hitann í Ástralíu og núna um jólin var hitastigið til dæm- is yfir 40 gráður fjóra daga í röð. En ég sakna fjölskyldunnar.“ Vicki segir að þar sem hún búi ein og sé innan um erlenda listamenn í vinnunni á Skagaströnd hafi hún ekki lært íslensku auk þess sem flestir Íslendingar vilji tala ensku. „Ég hef reynt að læra íslensku en málið fer inn um annað eyrað og út um hitt. Það gengur ekki neitt.“ Fæddist á röngum stað - Vicki flutti frá Ástralíu til Sauðárkróks og er alsæl Á ferðalagi Vicki O’Shea hefur m.a. skoðað Mývatn og nágrenni. Á Króknum Ross, Olga, Vicki og barnabörnin Felix og Henry.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.