Morgunblaðið - 17.01.2022, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2022
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u.
At
h.
að
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
.
595 1000
60+
g
28. mars í 15 nætur
Tenerife
Verð frá kr.
239.900
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Mikið var umleikis við Akraneshöfn
um helgina þar sem afla var landað
úr tveimur loðnuskipum sem þangað
komu inn. Snemma á laugardags-
morgun kom Barði NK, skip Síldar-
vinnslunnar, á Skagann og var með
um 2.200 tonn af loðnu. Víkingur AK,
sem Brim hf. gerir út, kom svo á
Akranes eftir hádegi í gær og var þá
þegar hafist handa við að losa skipið,
en ætlað var að um borð væru um
2.700 tonn af loðnu. Á Akranesi fer
aflinn í bræðslu og allar geymslu-
þrær þar eru nú orðnar smekkfullar.
Ekki verður því hægt að taka meiri
afla þar fyrr en líða tekur á vikuna,
segir Sigurður Haraldsson lönd-
unarstjóri.
Loðnan er nú norðaustur af
Langanesi. Á þeim slóðum voru að
veiðum í gær, eins og sjá mátti á mar-
inetraffic.com, alls fimmtán skip; ís-
lensk, norsk og grænlensk. Mestu er
landað í Austfjarðahöfnum, en einnig
hefur verið siglt með afla til Noregs.
Nú er líka svo komið að loðna er orð-
in hæf til manneldis og slík vinnsla á
afurðum er hafin í fiskiðjuveri Síld-
arvinnslunnar í Neskaupstað.
Á laugardag kom Hoffell SU, skip
Loðnuvinnslunnar, til Fáskrúðs-
fjarðar með 1.640 tonn af loðnu sem
fór í bræðslu. Í þrettán tíma land-
legu, meðan landað var, fengu skip-
verjarnir níu hvorki að fara í land né
neinn um borð. Þetta var gert í sótt-
varnaskyni. „Núna er kominn ágæt-
ur kippur í veiðarnar og útlitið fyrir
næstu daga virðist vera gott,“ segir
Friðrik Mar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar, í
samtali við Morgunblaðið.
Heimaey með 2.000 tonn
Skip Ísfélagsins í Vestmanna-
eyjum, Heimaey VE, var í gærkvöldi
fyrir austan land á stími til Eyja með
um 2.000 tonn af loðnu. Um tvo sólar-
hringa tók að fylla skipið.
„Á miðunum hafa skipin verið þétt
á litlum bletti. Já, þetta er fín loðna
sem við náðum núna. Ætli að jafnaði
séu ekki um 40 fiskar í hverju kílói
sem veiðist,“ sagði Ólafur Einarsson
skipstjóri. Hann reiknaði aðspurður
með að verða kominn til Eyja síðdeg-
is í dag, en siglingunni að austan mið-
aði ágætlega þar sem öslað var í
dæmigerðu janúarveðri; norðaustan-
kalda og vindi sem sló í 12-15 metra á
sekúndu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Uppgrip Zibigniew Harasimczuk, til vinstri, og Helgi Þór Þorsteinsson voru um helgina að landa afla úr loðnuskip-
unum sem komu á Akranes. Uppgrip eru víða í sjávarbyggðum vegna loðnuveiði, sem hefur verið stopp síðustu ár.
Loðnan nú við Langanes
- Þrær fullar á Akranesi - Fimmtán skip á einum bletti
- Gott útlit fyrir næstu daga - 40 fiskar í hverju kílói
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skaginn Barði hér við bryggju og í baksýn er fiskimjölsverksmiðjan.
Logi Sigurðarson
Ari Páll Karlsson
Bólusetningar barna í Laugardals-
höll halda áfram í vikunni. Í dag er
komið að bólusetningum barna
fæddra árið 2016. Ragnheiður Ósk
Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri
hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins, segir að bólusetn-
ingar skólabarna í síðustu viku hafi
gengið vel.
Bólusetningarnar á morgun verða
með breyttu sniði fyrir börnin en þau
verða bólusett í svokölluðum sérrým-
um en ekki úti í sal eins og hefur tíðk-
ast. Spurð hvort nóg sé af sérrýmum
svarar Ragnheiður því játandi.
„Við erum ekkert með svo mörg
börn og ef þetta dreifist vel yfir dag-
inn ætti það ekki að vera vandamál,“
segir hún.
Ragnheiður segir bólusetningu
fimm ára barna erfiðari en hjá þeim
sem eldri eru, því börnin séu of lítil til
að skilja almennilega af hverju þau
þurfi sprautu.
„Leikskólaaldur er erfiður aldur
að því leyti að það er erfiðara að tala
þau til. Þá þarf maður frekar að vera
snöggur. Öll skólabörnin í síðustu
viku stóðu sig ótrúlega vel.“
Börnin sem eiga að mæta á morg-
un eru fædd í janúar og febrúar 2016,
og gengur þetta svo koll af kolli út
vikuna.
Ragnheiður býst við svipaðri mæt-
ingu og í síðustu viku, eða um 60-70%
mætingu, en mörg börn eru þegar
búin þar sem heimilt er að mæta með
systkini í bólusetningu. Samhliða
bólusetningum barna verður opið hús
frá 10-15 fyrir þá sem eiga eftir að fá
örvunarskammtinn og bendir hún á
að það sé kominn tími á Janssen-
þega sem fengu skammt tvö í ágúst.
„Eins og ég segi þá þurfum við að
fara að klára þetta með örvunar-
skammtinn, drífa það í kennarana
sem eru búnir að bíða. Við ætlum að
reyna að gera það í næstu viku,“ seg-
ir Ragnheiður og bætir við að Höllin
verði aðeins notuð undir bólusetning-
ar fram í miðjan febrúar.
„Við ætlum að reyna að nota þenn-
an tíma til þess að klára alla örvunar-
skammta og klára líka seinni
skammtinn fyrir börnin. Þá bara
sleppur þetta fínt til.“
Rík lagafordæmi
Margrét Einarsdóttir, prófessor
við lagadeild Háskólans í Reykjavík,
segir skýra lagalega heimild fyrir
bólusetningarskyldu í Mannréttinda-
sáttmála Evrópu en hún og Hanna
Katrín Friðriksson, þingflokksfor-
manni Viðreisnar, voru gestir í út-
varpsþættinum Sprengisandi á
Bylgjunni í gærmorgun. Í annarri
grein sé fjallað um jákvæðar skyldur
ríkis til að standa vörð um líf almenn-
ings og áttunda grein snúi að skyld-
um ríkis þegar komi að heilsu al-
mennings. Auk þess sé fjöldi
lagafordæma sem staðfesta þá
skyldu. Nýlegt dæmi sé frá Tékk-
landi í apríl á síðasta ári. Sá dómur
hafi verið kveðinn upp í yfirdeild
MDE, þar sem 17 dómarar sitja.
Hann hafi því ríkt fordæmisgildi.
„Ef foreldrar láta ekki bólusetja
börn sín [í Tékklandi] þá eru þau
sektuð og eins er börnunum synjað
um aðgang að leikskóla,“ nefndi Mar-
grét um bólusetningarskyldu fyrir
öðru en Covid-19.
Foreldrar barns þar í landi hafi tal-
ið bólusetningarskylduna brjóta í
bága við réttindi sín um friðhelgi
einkalífs og leitað réttar síns.
Síðasti árgangurinn í bólusetningu
- Janssen-þegar fá ekki boð - Leikskólaaldurinn erfiður - Býst við svipaðri mætingu og í síðustu viku
- Hætta að bólusetja í Höllinni um miðjan febrúar - Skýr lagaheimild fyrir bólusetningarskyldu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bólusetning Vel gekk að bólusetja skólakrakka í síðustu viku.
Logi Sigurðarson
logis@mbl.is
Kórónuveirufaraldurinn hefur nú
geisað í næstum tvö ár og Íslend-
inga er farið að þyrsta í sólar-
landaferðir og ævintýri utan land-
steinanna. Þó að mörgum
Íslendingum sé
ekki illa við kuld-
ann er alltaf gott
að komast til út-
landa og fá smá
sól í kroppinn.
Þórunn Reyn-
isdóttir, forstjóri
Úrvals-Útsýnar,
segir mikinn
áhuga á utan-
landsferðum,
sérstaklega þar
sem sólin skín allan ársins hring
eins og í Portúgal og á Spáni.
„Það er mjög mikið bókað í
kringum páskana. Við ætlum að
vera bjartsýn á að þetta fari að
rúlla af stað,“ segir Þórunn, en
aðalbókunartímabil ferðaskrifstof-
unnar hefst á næstu vikum.
Að sögn Þórunnar er fólk ekki
jafn hrætt að ferðast og fyrr í far-
aldrinum en þó hægist á bókunum
þegar hertari samkomutakmark-
anir eru boðaðar eins og gerðist nú
fyrir helgi.
„Fólk er orðið vant því að vera
með grímu, spritta sig og passa
sig,“ segir Þórunn og hlær.
Vinsælustu áfangastaðir ferða-
skrifstofunnar eru Tenerife, Ali-
cante, Almeria og Portúgal. Þrátt
fyrir að margir Íslendingar virðist
alveg Tenerife-óðir segist Þórunn
telja að það verði mikil dreifing
milli áfangastaða. Spurð hvort hún
telji líklegt að fólk þurfi að afbóka
ferðir með stuttum fyrirvara vegna
faraldursins segist Þórunn ekki
eiga von á því. Þó sé ómögulegt að
segja til um hvað morgundagurinn
ber í skauti sér eins og landsmenn
þekkja í gegnum faraldurinn.
„Á áfangastöðum okkar er alls
staðar verið að gæta að sóttvörnum
og fólk er að fara varlega. Þetta er
komið á annað ár og þessir aðilar
eru vanir að hugsa í hólfum og sótt-
vörnum.“
Margir vilja
komast í sólina
- Páskarnir verða tímar ferðalaga
Þórunn
Reynisdóttir