Morgunblaðið - 17.01.2022, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2022
Krabbameinsfélag Íslands hefur
fengið þrjár milljónir króna frá Bláa
lóninu og mun féð renna í Vísinda-
sjóð félagsins. Um er að ræða af-
rakstur söfnunar með sölu á sturtu-
geli Bláa lónsins í mars á síðasta ári
og varasalva í október sl. í tilefni af
átakinu Bleikur október.
Bláa lónið hefur veitt stuðning við
verkefni Krabbameinsfélagsins allt
frá árinu 2015, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Þar er m.a. haft eftir Sigríði
Gunnarsdóttur, formanni Vísinda-
sjóðs Krabbameinsfélagsins, að
stuðningur Bláa lónsins hafi reynst
félaginu mikilvægur í gegnum tíð-
ina. Hann geri því kleift að styðja við
enn fleiri rannsóknir en ásókn í sjóð-
inn hafi aukist verulega.
Tilgangur Vísindasjóðsins er að
efla íslenskar rannsóknir á krabba-
meinum, m.a. með því að styrkja
með fjárframlögum rannsóknir á or-
sökum krabbameina, forvörnum,
meðferðum og lífsgæðum sjúklinga.
Frá fyrstu úthlutun hafa 37 rann-
sóknir hlotið styrki að upphæð 316
milljónir króna. Hefur Bláa lónið
verið einn af helstu stuðningsaðilum.
Þrjár milljónir til
Krabbameinsfélagsins
Styrkur Grímur afhendir Sigríði hjá Krabbameinsfélaginu styrkinn.
Heiða Björg
Hilmisdóttir,
borgarfulltrúi og
varaformaður
Samfylking-
arinnar, hefur
tilkynnt að hún
vilji áfram skipa
2. sæti á lista
Samfylkingar í
Reykjavík fyrir
komandi borgar-
stjórnarkosningar. Flokksval fer
fram í næsta mánuði og hafa allir
núverandi borgarfulltrúar Sam-
fylkingar gefið kost á sér.
Í tilkynningu segir Heiða Björg
að Reykjavík sé „stórkostleg borg á
fleygiferð inn í framtíðina“ og það
sé mikilvægt að „við villumst ekki
af leið, heldur höldum áfram að nú-
tímavæða og byggja upp mann-
væna og góða borg fyrir okkur öll“.
Heiða vill áfram
verma 2. sætið
Heiða Björg
Hilmisdóttir
Kolbrún G. Þor-
steinsdóttir, bæj-
arfulltrúi, vara-
formaður bæjar-
ráðs og formaður
fræðslunefndar,
býður sig fram í
1. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokks-
ins í Mosfellsbæ,
sem fram fer 5.
febrúar nk.
Kolbrún hafnaði í 3. sæti í síðasta
prófkjöri árið 2018. Hún hefur setið
í bæjarstjórn frá árinu 2014 og var
áður fyrsti varabæjarfulltrúi 2010-
2014. Auk þess hefur Kolbrún setið í
stjórn skíðasvæðanna og situr nú
fyrir hönd Mosfellsbæjar í stjórn
Sorpu byggðarsamlags.
Kolbrún var formaður fjölskyldu-
nefndar frá 2010-2016. Hún er kenn-
ari og lýðheilsufræðingur að mennt
og stundar nú nám í stjórnun
menntastofnana við Háskóla Íslands.
Kolbrún stefnir á
fyrsta sætið í Mosó
Kolbrún Guðný
Þorsteinsdóttir
Guðmundur Ingi
Þóroddsson hef-
ur ákveðið að
gefa kost á sér í
flokksvali Sam-
fylkingarinnar í
Reykjavík fyrir
komandi borgar-
stjórnarkosn-
ingar. Guð-
mundur Ingi er
sem kunnugt er
formaður Afstöðu, félags fanga á
Íslandi og annarra áhugamanna um
fangelsismál.
Hann bauð sig fram í forvali
Samfylkingar fyrir síðustu þing-
kosningar en í tilkynningu um
framboðið nú segir hann „utanað-
komandi öfl“ hafa komið í veg fyrir
að hann tæki sæti á lista. Þrátt fyrir
þetta segist hann gera sér von um
góða niðurstöðu nú og stefnir á
þriðja sæti listans í Reykjavík.
Formaður Afstöðu
gefur kost á sér
Guðmundur Ingi
Þóroddsson
ÞAÐ ÞARF EKKI ALLTAF
AÐHJÓLAÚTI
Spinninghjól K-Life
Skoðaðu úrvalið á www.orninn.is
Fri heimkeyrsla og samsetning á Stór Reykjavíkursvæðinu FAXAFEN 8 - SÍMI 588 9890
ME I R I H R E Y F I NG - ME I R I ÁNÆG JA
• Kasthjól: 22kg
• Hámarksþyngd notanda: 150kg
• Reimadrif
• Stillanlegt sæti og stýri
• Einföld tölva
• Pedalar með táklemmum og fyrir SPD klíta fylgir
169.990 kr.
'/ )++0*
þú það sem
(/ ,-&."* "$
á FINNA.is
IÐNAÐARMENN VERSLANIR
VEITINGAR VERKSTÆÐI
BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA