Morgunblaðið - 17.01.2022, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.01.2022, Blaðsíða 10
SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Sterkir hverfiskjarnar með versl- unum og aðstæður til samveru til dæmis á kaffihúsum eða í félags- aðstöðu. Blöndun íbúða og atvinnu- húsnæðis, fjölgun íbúða og bættar tengingar milli svæða. Umferðarör- yggi og aðgerðir gegn umferðar- hávaða og mengun frá bílum. Þessi atriði og mörg fleiri eru í deiglunni í nýju hverfisskipulagi fyrir Breið- holtshverfi í Reykjavík sem sam- þykkt var nýlega. Vistvæn og heilsueflandi svæði eru inntak skipulagsins, sem varð til eftir sam- ráð við íbúa sem hófst fyrir sjö ár- um. Blönduð byggð í nýrri og breyttri Mjódd „Mér finnst útkoman góð og ég er spennt fyrir framhaldinu,“ segir Sara Björg Sigurðardóttir, formað- ur íbúaráðs Breiðholts, í samtali við Morgunblaðið. Búið er að sam- þykkja hverfiskipulagið en á fyrri stigum var haft ítarlegt samráð við íbúa vegna skipulagsvinnunnar og hugmynda leitað. Í krafti skipulagsins eru ýmis spennandi verkefni komin á hug- myndastig. Til stendur að reistur verði leikskóli með aðkomu við göngugötu við Drafnarfell sem og við Völvufell. Þar verða byggðar námsmannaíbúðir og sérbýli á grænum þróunarlóðum. Ásýnd Austurbergs og Gerðubergs mun taka stakkaskiptum og á þeim slóð- um verður hugsanlega reist fim- leika- og danshús. Við Arnarbakka er fyrirhuguð uppbygging 90 íbúða, náms- mannaíbúða sem og almennra íbúða sem og þjónusturýmis á jarðhæð. Að auki er gert ráð fyrir gróður- húsum og matjurtagörðum. Í Selja- hverfi er þróunarreitur nærþjón- ustu við Rangársel, bætt íþrótta- aðstaða í Vetrargarði austast í hverfinu og svo er mikil uppbygging á ÍR-svæðinu. Í nýrri og breyttri Mjódd verður blönduð byggð, þjón- ustu- og atvinnuhúsnæðis nærri við- komustað borgarlínu, sem er væntanleg árið 2026. Umgjörð fyrir heilbrigðara líf Sara Björg væntir þess að fyrstu framkvæmdir skv. hverfisskipulag- inu verði efling hverfis- og þjón- ustukjarnana við Arnarbakka og Völvufell. Með því að efla kjarna innan hverfishluta og styrkja byggðina í kring með blöndun íbúða og atvinnuhúsnæðis gefist íbúum kostur á að skilja bílinn eftir heima og sækja þjónustu hjólandi eða gangandi í skóla, leikskóla, mat- vörubúðir, tómstundastarf, sund- laugina eða gróin græn svæði. „Fimmtán mínútna hverfið verð- ur til með minni umferð, meiri loft- gæðum og meira öryggi fyrir gang- andi og hjólandi. Umgjörð er sköpuð fyrir heilbrigðara líf,“ segir Sara Björg. Í alþjóðlegt samfélag 21. aldar Í Breiðholtshverfi búa um 22 þús- und manns og liðlega fjórðungur íbúanna er af erlendu bergi brotinn. Það fólk býr mikið til dæmis í Bakkahverfi Neðra-Breiðholts og í Efra-Breiðholtinu í Fellum og Hól- um. Þriðji hluti byggðarinnar er Seljahverfi, þar sem sérbýlishús eru áberandi. „Það besta við Breiðholt er þró- unin sem tekið hefur hverfið inn í al- þjóðlegt samfélag 21. aldar. Hverfið hefur gerbreyst frá því ég æfði sund í Breiðholtslaug sem barn. Máttur nærsamfélagsins er mikill, nálægð fólks er mikil í gegnum börnin á göngum leikskólans, á viðburðum í grunnskólanum, úti á íþróttavelli eða í sundlauginni. Einstök sam- vinna og eining hefur verið í mörg ár innan foreldrafélaga grunnskól- anna í hverfinu og íþróttafélaganna. Velvild til hverfisins sést kannski best í hverfishátíðum tengdum 17. júní þar sem íbúar, foreldra- og íþróttafélög hafa tekið höndum sam- an til að gleðja fólkinu í hverfinu,“ segir Sara og að lokum: Íbúar bjóða alla velkomna í hverfið sitt „Þetta segir mér að íbúum er annt um hverfið sitt, vilja breiða út faðminn og bjóða öll velkomin. Þarna birtist styrkur nærsam- félagsins í sinni fegurstu mynd. Breiðholtið er að mínu mati eitt best heppnaða hverfi borgarinnar. Mér hefur alltaf fundist það umvefja hvern hverfishluta á sinn einstaka hátt. Svo er það náttúrperlan El- liðaárdalur, með þéttriðnu stíga- kerfi. Sannkölluð útivistarparadís í miðri höfuðborg, þar sem hægt er að sjá stökkvandi laxa og fjölbreytta fuglafánu. Slíkt sé ekki í mörgum höfuðborgum heimsins, ef þá nokk- urri. Hvað varðar almennings- samgöngur þá eru Breiðhyltingar líka mjög heppnir að hafa Mjóddina í hverfinu. Sérstaklega þegar borg- arlínan kemur, þá verður alger um- breyting fyrir íbúa hverfisins að komast á milli staða og hverfa og skilja bílinn eftir heima.“ Hverfiskjarnar og vistvæn svæði - Breiðholtinu verður breytt - Hverfisskipulag samþykkt - Heilsuefling og umferðaröryggi eru áherslumál - Þjónustan í nærsamfélaginu - Fimmtán mínútna hverfið - Sérbýli á grænum reitum Morgunblaðið/Árni Sæberg Íbúaráð Styrkur nærsamfélagsins í sinni fegurstu mynd. Breiðholtið er að mínu mati eitt best heppnaða hverfi borgarinnar, segir Sara Björg. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flugsýn Horft yfir Hólahverfið. Í Breiðholtshverfinu öllu búa um 22 þúsund manns og liðlega fjórðungur þess stóra hóps fólks er af erlendum uppruna. 10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2022 Arnar Pétursson, frjálsíþróttamað- ur úr Breiðabliki, og Tinna Sif Teitsdóttir, fimleikakona úr Gerplu, voru á dögunum valin íþróttakarl og íþróttakona Kópa- vogs fyrir árið 2021. Valinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs hvar þau fengu farandbikar og eignarbikar, jafnframt því sem Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri afhenti þeim hvoru um sig 200 þúsund króna ávísun í viðurkenningarskyni frá Kópavogsbæ. Arnar og Tinna Sif voru valin úr hópi 46 íþróttamanna sem fengu viðurkenningu íþróttaráðs eftir til- nefningar frá íþróttafélögunum í Kópavogi. Ástríða fyrir íþróttinni Á árinu 2021 vann Arnar alls níu Íslandsmeistaratitla. Þetta gerði hann í mismunandi greinum allt frá 1.500 metra hlaupi innanhúss og upp í heilt maraþon úti. Hann sigr- aði einnig í 800 m hlaupi á Reykja- vík International Games 2021. Arn- ar hefur samtals orðið 45 sinnum Íslandsmeistari í langhlaupum á löngum ferli sínum. Arnar var val- inn frjálsíþróttakarl ársins 2021 hjá Breiðabliki jafnframt því að vera útnefndur götuhlaupari ársins af Frjálsíþróttasambandi Íslands. Tinna Sif Teitsdóttir varð Evrópumeistari í hópfimleikum kvenna með íslenska landsliðinu í desember sl. „Þar var hún mikil- vægur hlekkur í úrslitakeppninni er hún skilaði flottum umferðum á dýnustökki og var með frábærar gólfæfingar,“ segir í tilkynningu. Hún er uppalin Gerplukona sem hóf ferilinn í áhaldafimleikum og náði að vinna til fjölda Íslands- og bikarmeistaratitla í þeirri grein. Flokkur ársins 2021 var kjörinn meistaraflokkur Breiðabliks í knattspyrnu kvenna. Liðið varð bikarmeistari í knattspyrnu á árinu og náði einnig að komast í riðla- keppni Meistaradeildar kvenna. Fimleikakona og karl í frjálsum - Arnar og Tinna Sif valin íþróttafólk ársins í Kópavogi Ljósmynd/Kópavogsbær Afreksfólk Tinna Sif Teitsdóttir og Arnar Pétursson eru í fremstu röð. Mannlífið í Breiðholti endur- speglar stefnu og strauma al- þjóðasamfélagsins. „Við erum svo heppin að fá þennan fjölbreytta hóp fólks til að setjast að í hverf- inu og taka þátt í samfélaginu,“ segir Sara Björg. Þar minnir hún á að í verslunuum í hverfiskjarna við Lóuhóla sé til dæmis hægt að finna sýrlensk sápustykki, krydd, hunang, baunir og fleira slíkt mat- arkyns frá Mið-Austurlöndum, heimareykt beikon, kæfu og steik- ur í Póllandi og ávexti frá Afríku. „Sú dýnamík sem fjölbreytt íbúasamsetning skapar, það er frumbyggja í bland við fólk af er- lendum uppruna, hefur með öðru kannski ýtt undir ákall um upp- byggingu og breytingar innan hverfiskjarna sem margir eru komnir á tíma. Hugsunin er meðal annars að einfalda líf borgarbúa með komandi kynslóðir í huga,“ segir Sara Björg. Áherslur borgarinnar í skóla- og velferðarmálum segir Sara Björg að taki eðlilega mið af samsetn- ingu íbúa í hverju hverfi. Félags- legar áskoranir og verkefni þeim tengd finnist alls staðar þar sem fólk býr. Borgin hafi frá árinu 2015 í raun lyft grettistaki í málefnum barna með annað móðurmál. Sér- stakur hópur sinni því að byggja brú milli fjöltyngdra barna, for- eldra þeirra og skólanna. Samhliða taki börnin þátt í frístundastarfi frá sínum fyrsta degi í sínum heimaskóla og geti byrjað að mynda vinatengsl frá byrjun skóla- göngu. Nýsamþykkt menntastefna borgarinnar opnar á nýjar leiðir í kennslu og nýsköpun, líkt og farn- ar séu í Fellaskóla. „Markmiðið er að nemendum bjóðist framúrskarandi menntun, þeir nái góðum árangri þannig að þeir geti látið drauma sína ræt- ast,“ segir Sara Björg. Krafturinn felst í fjölbreytni HVERFISSKIPULAGIÐ EINFALDI LÍF BREIÐHOLTSBÚA Morgunblaðið/Sigurður Bogi Veisla Framandi réttir kynntir á fjölmenningarhátíð sem var í Breiðholtsskóla fyrir nokkrum misserum. Ekki er ofsagt að hverfið hafi um margt alþjóðlegt yfirbragð. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.