Morgunblaðið - 17.01.2022, Page 11
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Stjórnvöld þurfa í ríkari mæli að
hafa samráð við lækna þegar
áherslur í heilbrigðimálum eru
mótaðar,“ segir Steinunn Þórðar-
dóttir, nýr formaður Læknafélags
Íslands. „Starfsumhverfið þarf að
vera aðlaðandi og mikilvægt að
læknisstarfið sé eftirsóknarvert,
enda hagur samfélagsins alls að
gott og hæft fólk sækist í þessi
störf. Slíkt þarf raunar að gerast
með margvíslegum aðgerðum,
enda er heilbrigðisþjónustan í sí-
felldri og hraðri þróun í krafti
þekkingar.“
Auknar fjárveitingar
og rækilegar úrbætur
Þegar kallað var eftir nýjum
formanni í Læknafélag Íslands á
dögunum var Steinunn eini fram-
bjóðandinn og því sjálfkjörin. Hún
er önnur konan sem gegnir emb-
ætti formanns í rúmlega 100 ára
sögu félagsins. Þekkir vel til mála
eftir að hafa sinnt félagsstörfum í
þágu lækna, auk þess að vera yfir-
læknir á heilabilunareiningu öldr-
unarlækninga Landspítalans.
Starf Læknafélags Íslands,
sem um 1.700 manns eru skráðir í,
snýr bæði að almennri hagsmuna-
baráttu lækna og því að vera leið-
andi afl í umræðu um heilbrigðis-
málin. Og almennt talað segir
Steinunn lækna sammála um að úr-
bóta sé þörf. Minnir þar á að síðasta
sumar voru fulltrúum heilbrigð-
isráðuneytis afhentar undirskriftir
tæplega 1.000 lækna með áskorun
um breytingar til bóta. Auka þurfi
fjárveitingar til alls heilbrigð-
iskerfisins og gera rækilegar úr-
bætur, ekki síst í öldrunarþjónustu.
Læknar þekki vel hvar vandinn
liggi og hafi komið ábendingum um
slíkt á framfæri. Þau sem ráði för
og fjármunum verði að bregðast
við.
Steinunn segir að sér hugnist
annars vel sú viðleitni Willums
Þórs Þórssonar, nýs heilbrigðis-
ráðherra, að vinna að meiri sam-
vinnu lækna og annarra stétta,
þvert á rekstrarform. Mikilvægt sé
þar að ganga sem fyrst frá málum
sérfræðilækna sem hafa verið
samningslausir við Sjúkratrygg-
ingar Íslands frá árslokum 2018.
Stórslys í Covid
„Í fyrrasumar, þegar undir-
skriftir lækna voru afhentar, var
sagt að heilbrigðiskerfið á Íslandi
væri einu skrefi frá stórslysi, sem
myndi setja allt á hliðina. Kannski
má þó segja að núna í Covid hafi
þetta slys orðið. Þannig er framboð
á bráða- og gjörgæslurýmum á
Landspítalanum með því allra
minnsta sem gerist í Evrópu, miðað
við höfðatölu. Slíkt hefur skapað
mikinn vanda á sjúkrahúsinu, þar
sem álagið er mikið og rúmanýting
að staðaldri nálægt 100%. Þetta
hefur neikvæð áhrif á starfsánægju
lækna, samanber könnun sem gerð
var meðal almennra lækna sem
starfa á spítalanum þar sem 80%
aðspurðra þótti vinnustaðurinn
ekki aðlaðandi. Þá íhugar um helm-
ingur aðspurðra lækna minnst einu
sinni í mánuði að hætta á spít-
alanum,“ segir Steinunn og heldur
áfram:
„Niðurstaða könnunarinnar er
umhugsunarverð, því á fyrstu
starfsárunum eftir kandídatspróf á
læknum að vera falin sífellt meiri
ábyrgð og spennandi verkefni und-
ir tryggri handleiðslu. Þetta á að
vera skemmtilegur tími í starfi. Sú
var að minnsta kosti raunin þegar
ég var á þessum stað fyrir 15 árum
eða svo. Skýringa á þessari
óánægju virðist vera að leita í sí-
vaxandi álagi og undirmönnun,
óánægju með starfsumhverfi, kaup
og kjör.“
Vísindin haldið
í við veiruna
Síðustu tvö árin hefur heims-
faraldur verið mál mála og gjör-
breytt veröldinni. Enn hefur ekki
tekist að ráða niðurlögum plág-
unnar, sem frá sjónarhóli læknis-
fræðinnar er þó býsna áhugaverð,
segir Steinunn.
„Kórónuveiran kom full-
sköpuð í heiminn og sífellt ný af-
brigði hennar skjóta upp kollinum.
Vísindin hafa þó haldið í við veir-
una. Þróun bóluefna tók skemmri
tíma en búast hefði mátt við og
læknar eru alltaf að læra eitthvað
nýtt við þessar fordæmalausu að-
stæður. Lokanir og hömlur hafa
verið óhjákvæmilegar til að verja
heilbrigðiskerfið og starfsfólk, sem
hefur barist í gegnum hvern álag-
stoppinn af öðrum af ótrúlegri
þrautseigju og þolgæði. Í faraldr-
inum höfum við líka séð að íslensk-
ir læknar – rétt eins og annað heil-
brigðisstarfólk – eru á heims-
mælikvarða; margir menntaðir í
fremstu háskólum og sjúkrahúsum
heims. Ísland þarf að vera sam-
keppnishæft um þennan hóp og
bæta aðstæður hans, því læknis-
starfið er alþjóðlegt í eðli sínu.
Læknar geta leitað óhikað á ný mið
í útlöndum, ef því er að skipta.“
Þurfa svigrúm
til þekkingarleitar
Mikilvægt er, segir Steinunn,
að stjórnvöld bæti sem fyrst öryggi
og stöðu heilbrigðisstarfsfólks sem
lendir í alvarlegum atvikum við
störf sín. Við núverandi aðstæður
ríkir óvissa um réttarstöðu starfs-
fólks við slíkar aðstæður sem bæta
þurfi úr tafarlaust, samanber til-
lögur starfshóps á vegum velferð-
arráðuneytisins frá 2015. Sömu-
leiðis þurfi að veita meiri fjármuni
og bæta aðstöðu til vísindastarfs.
Þekkingarleit sé hluti af starfi
lækna, en í þjónustu þeirra við
sjúklinga vakni oft spurningar og
álitaefni sem rannsaka þurfi betur.
Gjarnan sé svigrúm til slíks tak-
markað, það er peningar og tími. Í
upphafi aldarinnar hafi Landspít-
alinn verið meðal bestu sjúkrahúsa
og háskóla á Norðurlöndunum
hvað gæði vísindastarfs varðar, en
hafi nú hrapað á botninn. Sú þróun
sé slæm.
Að frátalinni veiru og venju-
legum kvillum blasa nú við marg-
víslegar áskoranir í heibrigð-
isþjónustu á Íslandi. Þar nefnir
Steinunn að meðalaldur þjóð-
arinnar sé að hækka og stórir ár-
gangar nálgast eftirlaunaaldurinn.
Fólk fætt um 1950, það er úr
barnasprengjuárgöngunum svo-
nefndu, sé nú að komast á efri ár.
Margir úr þeim hópi koma á öldr-
unardeildir Landspítalans og til
Steinunnar sem sinnir fólki með
minnissjúkdóma.
Sækja svör í fag og fræði
„Íslenskt samfélag þarf að
gera betur í öldrunarþjónustu.
Þróa ný og fjölbreytt úrræði og í
meiri mæli einstaklingsmiðuð.
Leggja þarf áherslu ekki eingöngu
á langlífi heldur á heilbrigða öldr-
un og að viðhalda lífsgæðum,“ seg-
ir Steinunn og bætir við að end-
ingu:
„Smit og veirur láta meira á
sér kræla en áður og lífsstíls-
sjúkdómar, sem fólk á besta aldri
finnur gjarnan fyrir, leggjast á
okkur af sífellt meiri þunga. Við
þessum áskorunum verður hægt að
sækja svör til lækna, í fag og fræði
sem ganga bæði út á vísindi og
samskipti við fólk. Að geta orðið að
liði gerir læknisstarfið gefandi og á
margan hátt einstakt.“
Samráð við fagstéttir er mikilvægt þegar stjórnvöld móta áherslur í heilbrigðismálum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fomaður Læknar eru alltaf að læra eitthvað nýtt við fordæmalausar að-
stæður, segir Steinunn sem er yfirlæknir á öldrunardeild á Landakoti.
Læknisstarfið er einstakt og gefandi
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2022
- Steinunn Þórðardóttir
fæddist 1977 og útskrifaðist úr
læknadeild Háskóla Íslands
2004. Hún starfaði á Landspít-
ala og á Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins til 2008 þeg-
ar hún hóf sérnám í öldrunar-
lækningum við Karolinska
sjúkrahúsið í Stokkhólmi. Sam-
hliða náminu þar vann hún
doktorsverkefni um lífsmerki
sem nýtast við greiningu á alz-
heimer. Frá 2014 hefur Stein-
unn starfað við öldrunar-
lækningadeild Landspítala og
er yfirlæknir heilabilunar-
einingar á Landakoti.
- Steinunn hefur lengi verið
virk í félagsmálum lækna og
hefur verið formaður lækna-
ráðs Landspítala frá stofnun
þess í núverandi mynd í byrjun
2021. Í stjórn Norræna öldr-
unarfræðafélagsins og tók við
formennsku þar í fyrra.
Hver er hún?
Morgunblaðið/Eggert
Skurðaðgerð Heilbrigðiskerfið og starfsemin þar snertir líf allra lands-
manna. Þjónustan er líka í sífelldri og hraðri þróun í krafti þekkingar.
Félagar í Björgunarsveitinni Þor-
birni og Slysavarnadeildinni Þór-
kötlu í Grindavík voru á dögunum
valdir Suðurnesjamenn ársins 2021
af útgáfu Víkurfrétta. Sveitirnar fá
þessa viðurkenningu fyrir fórnfúst
starf í Grindavík í aðdraganda eld-
gossins í Fagradalsfjalli og fyrir
vinnu á því hálfa ári sem gosið varð.
Mikið mæddi á björgunarsveitar-
fólki í Grindavík allt síðasta ár og í
raun lengur. Atburðarásin hófst í lok
janúar 2020 þegar land tók að rísa
vestan við fjallið Þorbjörn, skammt
frá byggðinni í Grindavík. Þá var
lýst yfir óvissustigi almannavarna.
Björgunarsveitin Þorbjörn var þá
þegar virkjuð og voru liðsmenn
hennar – og bakverðir allir – á vakt
og í stanslausri vinnu alveg til gos-
loka í september á síðasta ári.
Fjölmargar tilnefningar bárust
Víkurfréttum um fólk sem ætti skilið
nafnbótina Suðurnesjamaður ársins.
Þau sem fengu flestar tilnefningar
voru Sveinbjörg Ólafsdóttir og
hennar samstarfsfólk á Heilbrigðis-
stofun Suðurnesja en Sveinbjörg var
í framlínunni þegar kom að bólu-
setningu fyrir Covid-19. Sveindís
Jane Jónsdóttir knattspyrnukona
fékk einnig tilnefningar, sem og
Elsa Pálsdóttir kraftlyftingakona.
sbs@mbl.is
Þorbjörn og Þórkatla fólk ársins
- Fórnfúst starf við Fagradalsfjall - Víkurfréttir velja
Ljósmynd/Víkurfréttir
Grindavík Frá vinstri talið: Guðrún Kristín Einarsdóttir, formaður Þórkötlu,
Bogi Adolfsson, formaður Þorbjarnar, og Otti Rafn Sigmarsson, félagi í Þor-
birninum, sem jafnframt er formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Árni Tómas
Ragnarsson
gigtlæknir
Ég hef flutt læknastofu mína úr Domus Medica
í Austurstræti 4, 2. hæð, sem er á horni
Austurstrætis og Ingólfstorgs;
hús Thorvaldsensfélagsins.
Gengið inn frá torginu.
Tímapantanir og skilaboð eru í síma 893 9232
mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 9-11.
Árni Tómas Ragnarsson, gigtlæknir.