Morgunblaðið - 17.01.2022, Side 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2022
–– Meira fyrir lesendur
Sérblað Morgunblaðsins
kemur út 21. janúar
• Hvernig skipuleggur fólk efri árin?
• Áhugavert fólk sem lifir til fulls.
• Að finna ástina á efri árum.
• Hvernig á að skipuleggja fjármálin.
• Fólk lætur gamla drauma rætast.
Auglýsendur athugið
SÉRBLAÐ
Á BESTA
ALDRI
NÁNARI UPPLÝSINGAR
UM AUGLÝSINGAPLÁSS:
Bylgja Björk Sigþórsdóttir
Sími: 569 1148 bylgja@mbl.is
Fyrir nokkrum árum
lést heimilislæknirinn
minn í Bratislava í Sló-
vakíu, þá aðeins 58 ára
gamall. Ég naut þeirrar
gæfu að eignast hann
sem minn besta vin í
heil 15 ár, eða þar til
hann lést. Eftirlifandi
kona hans er læknir og
eiga þau saman eina
dóttur, sem stundaði
nám í almannatengslum. Læknirinn
var mjög sérstakur maður. Hann var
kaþólskur og mikill mannvinur. Oft
sagði hann við mig þegar ég heimsótti
hann á stofuna og vildi borga fyrir
læknisverk hans: „Við erum vinir,
kristnir menn taka ekki fé af öðrum
kristnum mönnum.“ Við það sat.
Heilu stundirnar ræddum við saman
um heima og geima á þeim fimmtán
árum sem ég naut þeirrar gæfu að
þekkja þennan góða vin. Hann hafði
eitt sinn á orði að þegar við næðum átt-
ræðisaldri myndum við enn sitja sam-
an og spjalla. Ég var þá ekki í nokkr-
um vafa um að læknirinn næði þeim
aldri auðveldlega eftir hraustlegu útliti
hans að dæma og heilbrigðum lífs-
venjum hans, en ég var ekki eins viss
um sjálfan mig, sem hafði átt við van-
heilsu að stríða í gegnum árin. „O, þú
átt nógan kraft ennþá til að berjast,“
sagði læknirinn og brosti.
Læknirinn átti bróður, sem dó
rúmlega fertugur úr hjartaslagi. Það
var ættgengur sjúkdómur. Lækn-
irinn var ákveðinn í að gera tilraun til
að lengja líf sitt með sérstökum lífs-
stíl. Hann átti bóndabýli úti á landi og
vann sem bóndi þegar hann var ekki
á læknastofunni. Hann ræktaði allt
lífrænt, var með hænsni sem gengu
laus, kanínur og tólf býflugnabú.
Húsið hans var einangrað fyrir
hættulegum bylgjum og hann keypti
aldrei neitt úr stórmörkuðum. Hann
var hreystimenni í sjón og ekki sást
grátt hár í vöngum þótt hann væri að
nálgast sextugt. Hendur hans voru
sigggrónar af búverkum bóndans.
Hann gekk um berfættur á bóndabýli
sínu, jafnvel um vetur í snjónum.
Læknastofan var einnig vel loft-
ræst með opna glugga, þótt svalt
væri úti.
Ekki vildi hann bólusetja dóttur
sína þegar hún var ung-
barn og var hún þess
vegna barna hraustust,
að hans sögn. Hún var
með óskemmdar tennur
og hafði aldrei þurft á
sýklalyfjum að halda.
Hann slátraði fyrir
hana kanínum og steikti
fyrir hana lifrina úr
þeim og gaf henni að
borða. Hann vann hörð-
um höndum sem bóndi
og sagði að búskap-
urinn væri hin raun-
verulegu verðmæti, en gaf lítið fyrir
peninga úr pappír.
Hann ætlaði að sigra erfðir sínar
með fullkomnu líferni, drakk hvorki
né reykti og tók af sér samstundis
þau aukakíló sem örsjaldan komu í
ljós. Yfir vetrarmánuðina borðaði
hann svína- og gæsafitu ofan á brauð.
Með líkamlegri vinnu brenndi hann
fitunni en hélt eftir D-fjörvanum úr
fitunni, sem var góð vörn við sýk-
ingum.
En einn daginn fékk minn góði vin-
ur hjartaáfall sem leiddi hann til
dauða, sjö árum eftir að bróðir hans
dó úr sama sjúkdómi. Hið ótrúlega
hafði gerst.
„Ég á erfitt með að trúa að lækn-
irinn sé dáinn,“ sagði ég við konu
mína. „Jafnvel læknar lifa ekki að ei-
lífu,“ sagði hún þá.
Tilraun læknisins er eigi að síður
merkileg og vísindaleg. Erfðirnar eru
sterkar. Enginn veit hver er næstur,
þótt haft sé á orði að á misjöfnu þríf-
ist börnin best eða ná megi háum
aldri með heilbrigðu líferni. Fjör-
gamlir verða sumir sem drekka og
reykja óspart um ævina, því erfðir
gefa sumum mönnum styrk á við
kraftaverk, þótt aðra leggi þær að
velli óvænt og miskunnarlaust.
Blessuð sé minning míns elskulega
vinar og heimilislæknis. Ímynd heil-
brigðisins féll að lokum fyrir komu
þess sem tekur og skilar aldrei meir.
Í minningu læknis
Eftir Einar Ingva
Magnússon
»Læknirinn var ákveð-
inn í að gera tilraun
til að lengja líf sitt með
sérstökum lífsstíl.
Einar Ingvi Magnússon
Höfundur er áhugamaður um
samfélagsmál, lífið og tilveruna.
Aðstoðarseðla-
bankastjóri lýsti því
nýlega að eftirlit væri
orðið erfiðara í fram-
kvæmd vegna flókins
lagaumhverfis. Verð-
ur að segja að þessi
varnaðarorð séu vel
tímabær.
Heimspekingurinn
Plató orðaði hugsun
sína svo, í lauslegri
þýðingu:
Heiðarlegir menn þurfa ekki
leiðsögn laga til ábyrgrar hegð-
unar en óheiðarlegir munu finna
leið til að sniðganga lögin.
Eitthvað virðist hafa miðað
afturábak varðandi lagasetningu
frá þessari lífssýn heimspekings-
ins fyrir 2.500 árum. Lagasetn-
ingar snúast orðið í auknum mæli
um að mæla fyrir um daglega
hegðun manna og eftirlit þar með.
Lagastakkurinn er sniðinn sífellt
þrengri og afleiðingin er að fjölga
þarf í eftirlitinu með þegnunum.
Þrýstingur frá alþjóðaumhverf-
inu er ugglaust ein af ástæðum
þessa en þá virðist lítt horft til fá-
mennis og smæðar á Íslandi. Ís-
lenskt einstaklingsfyrirtæki skal
lúta sömu lögum og stærstu fyrir-
tæki heims.
Covid-19 hefur með skýrum og
afdráttarlausum hætti sýnt hvert
opinbert ofurátak í heilbrigðis-
málum getur leitt á tækniöld. Raf-
ræn vottorð frá yfirvöldum um lík-
amlegt heilbrigði eru orðin
ófrávíkjanleg skilyrði lífsvið-
urværis.
Það sama er í raun orðið stað-
reynd hvað varðar fjármálalegt
heilbrigði með hið allt umlykjandi
eftirlit með atvinnulífinu. Geti ein-
staklingur eða félag ekki fram-
vísað fjámálalegu heilbrigðisvott-
orði þá verða bankaviðskipti
væntanlega fyrir bí sem og þjón-
usta lögmanna og endurskoðenda.
Ætla má að lögmönnum verði í
framtíð meinað að veita meintum
efnahagsbrotamönnum aðstoð
enda geta þeir
væntanlega ekki
framvísað heilbrigð-
isvottorði í upphafi
viðskipta, að hluta til
samkvæmt eðli máls.
Ákvarðanir eftirlits-
valdsins vera aðeins
bornar undir dóms-
valdið. Á skjön við
stjórnarskrá mætti
segja að ríkisvaldið sé
orðið fjórskipt; lög-
gjafarvald, fram-
kvæmdavald, dóms-
vald og eftirlitsvald.
Eftirlitsvaldið hefur öðlast sjálf-
stætt líf og getur stöðvað eða
eyðilagt rekstur fyrirtækja eins og
dæmin sanna því miður.
Það hlýtur að þyngja allan
málarekstur fyrir dómi að heil-
brigð skynsemi virðist víkja fyrir
óreiðu sem nú gerist við lagasetn-
ingu, svo mjög að jafnvel for-
stöðumenn eftirlitsstofnana eru
klumsa.
Endurskoðendur
Endurskoðendur eru nú skikk-
aðir til að krefja alla viðskiptavini
sína upplýsinga um fjárhagslegt
heilbrigði, eins lags PCR-próf.
Þetta gildir ekki aðeins um nýja
viðskiptavini heldur alla við-
skiptavini, jafnvel þá sem verið
hafa í áfallalausum viðskiptum
áratugum saman. Þessi upplýs-
ingasöfnun skal gerð á hverju ári.
Endurskoðendum ber að til-
kynna meint efnahagsbrot vænt-
anlegs skjólstæðings til yfirvalda
og væntanlega er ekki lengur
trúnaðarsamband milli aðila eftir
það. Það þýðir væntanlega að ekki
er hægt að veita viðkomandi fag-
lega aðstoð til að gera hreint fyrir
sínum dyrum án þess að tilkynna
það.
Þolendur
Ef viðskiptavinur endurskoð-
anda vill ekki eða getur ekki svar-
að fyrirspurn, hvað tekur þá við?
Er þá viðkomandi laus undan
þeirri skyldu sinni að skila fram-
tali sem hann getur ekki nema
með faglegri aðstoð? Lög um pen-
ingaþvætti fjalla ekkert um hið
raunverulega andlag laganna, það
er hver örlög framteljandans
mega vera.
Sporin hræða varðandi tísku-
fyrirbrigðið peningaþvætti fyrir
dómsvaldinu og ætla má að ekki
sé von á betra frá eftirlitsvaldinu.
Stjórnarskráin
Í 74. og 75. gr. stjórnarskrár
lýðveldisins er mælt fyrir um rétt
manna til að stofna félög og
stunda þá atvinnu sem þeir kjósa.
Ekki er þar gerð nein krafa um
vottorð um heiðarleika eða fjár-
hagslegt heilbrigði. Af sjálfu leiðir
að heiðarlegir borgarar jafnt sem
óheiðarlegir mega stunda atvinnu
sér til framfæris.
Með nýjum reglum er þrengt að
þannig að ekki þarf að koma til
óheiðarleiki til atvinnumissis held-
ur einungis neikvæð afstaða eft-
irlitsvaldsins sé því misboðið.
Ætla má að þeir sem grunaðir
eru, grunur er næg ástæða, verði
sviptir möguleikum sínum til
framfærslu fái þeir ekki vottorð
um fjárhagslegt heilbrigði.
Með sama áframhaldi munu
fleiri verða á borgaralaunum við
eftirlitsstörf en þeir sem standa
undir vaxandi kostnaði við op-
inbert eftirlit. Hvert stefnir og
hver eru markmið löggjafans?
Evrópusambandið
Það er til marks um náð hins ís-
lenska löggjafarvalds að nú er
refsilaust með frjálsri aðferð að
svíkja allt að 49.999 evrur út úr
Evrópusambandinu; sbr. úr 3. gr.
l. 140/2018:
Vísvitandi svik gagnvart fjár-
hagslegum hagsmunum Evrópu-
sambandsins að fjárhæð 50.000
evrur eða meira með fölsuðum,
röngum, villandi eða ófullnægjandi
yfirlýsingum eða skjölum sem
leiða til misnotkunar á fjármunum
Evrópusambandsins eða notkun
þeirra í öðrum en yfirlýstum til-
gangi teljast jafnframt vera refsi-
verð háttsemi.
Eins og önnur gjafmildi er þessi
vissulega á annarra kostnað. Með
árlegri almennri þátttöku Íslend-
inga þá væri möguleg eftirtekja
2.000.000.000.000 íslenskar krónur
í kassann. Það er líka ákveðinn
yndisauki að íslensk lög skuli
gilda í Evrópu þótt auðvitað væri
alheimskt betra.
Heimspekingurinn Plató missti
af mögnuðu tækifæri til spakmæla
um lög 140/2018.
Eftir Jón Þ.
Hilmarsson » Plató: Heiðarlegir
menn þurfa ekki
leiðsögn laga til ábyrgr-
ar hegðunar en óheið-
arlegir munu finna leið
til að sniðganga lögin.
Jón Þ.
Hilmarsson
Höfundur er endurskoðandi.
jon@vsk.is
Enn af lögum um
peningaþvætti
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is