Morgunblaðið - 17.01.2022, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.01.2022, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2022 ✝ Aðalsteinn Tryggvason frá Melgerði í Eyja- fjarðarsveit fædd- ist 9. október 1946. Hann lést á Sjúkra- húsinu á Akureyri 5. janúar 2022. Foreldrar hans voru hjónin Tryggvi Ingimar Kjartansson, f. 4. febrúar 1927, d. 22. júlí 2005, og Kristbjörg Pálína Jakobsdóttir, f. 30. júlí 1913, d. 8. ágúst 2011. Bræður Aðalsteins: Haukur, f. 31. mars 1949, d. 29. maí 2011, Kjartan, f. 4. júlí 1951, Jakob, f. 8. ágúst 1953, Sigurður Rúnar, f. 8. ágúst 1955, og Halldór Ingi- mar, f. 6. júní 1957. Aðalsteinn var lengi til sjós og var það í einum túrnum á Hvammstanga árið 1987 sem hann kynntist konu sinni, Hólm- fríði Dóru Sigurðardóttur, f. 3. september 1959. Hófu þau sam- búð árið 1988 og giftu sig árið 1997. Dóra átti fyrir tvö bón- usbörn, eins og Aðalsteinn gjarnan kallaði eldri börnin sín, þau Sigurð, f. 21. mars 1980, og Mar- gréti Helgu, f. 10. apríl 1982. Að- alsteinn og Dóra áttu eina dóttur saman, Guðrúnu Ósk, f. 26. nóv- ember 1992. Aðalsteinn vann einnig í Meleyri en seinni árin vann hann við akst- ur, fyrst á flutningabílum og síð- ustu ár sem rútubílstjóri. Árið 2008 fluttu þau hjónin í Landeyjasveit, fylgdu Guðrúnu dóttur sinni sem vildi fara á Suð- urlandið í framhaldsnám, og voru þar í eitt ár áður en þau fluttu svo á Hvolsvöll. Árið 2016 fluttu þau aftur á Norðurlandið, nú í Vatnsdals- hóla. Útför Aðalsteins fer fram frá Blönduóskirkju í dag, 17. janúar 2022, klukkan 14 og má nálgast streymi frá útför á face- booksíðu Blönduóskirkju. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat Elsku pabbi/báta-afi. Mér finnst alveg ótrúlegt að þú sért farinn, að hugsa til þess að fyr- ir rúmum sex mánuðum vorum við að hlaupa á eftir óþekkum hrossum og þú hljópst á undan mér upp einn þann erfiðasta hól í Vatnsdalshólum sem ég hef prílað upp á, við vorum uppi á toppnum og vissulega bléstu úr nös en úff, ég hélt að ég næði ekki andanum. Ég hafði orð á því þá að ég væri ekki viss um að ég kæmist nið- ur, þetta var svo bratt og loft- hræðslan fór að gera vart við sig. „Iss, við finnum bara aðra leið niður, komdu hérna,“ sagð- ir þú og svo arkaðir þú af stað yfir hólinn og fannst auðveldari leið niður. Þetta lýsir þér svo vel, ef það er eitthvert vesen þá finnum við bara aðra leið. Þú sagðir mér oft frá því þegar ég spurði þig fyrst hvort ég mætti kalla þig pabba, varst svo ánægður, en það var ég sem var heppin að þú vildir vera pabbi minn. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur, endalaus þolinmæði, því ekki var ég nú auðveld á ung- lingsárunum og gerði þér hlut- ina ekki auðvelda. Þú kenndir mér að vinna, vera sjálfstæð og reyndir að kenna mér þolin- mæði. Ég átti pínu erfitt með að venjast skrítnu matarvenj- unum þínum, brauði með miklu smjöri og púðursykri eða að skella eins og einni skeið af súkkulaðispæni í kaffibollann til að fá sparikaffi. En þú kunn- ir sko að gera dýrindismáltíð úr engu. Varst svo góður við mömmu, og alveg magnað að fylgjast með þér þegar hún byrjaði að tuða, þú sast og hlustaðir, hristir stundum hausinn en leyfðir henni alltaf að rasa út. Ég heyrði þig aldrei hækka röddina við hana og aldrei við okkur. Þegar Ársæll Aðalsteinn fæddist þá varstu svo ánægður og svo stoltur þegar þú heyrðir í kirkjunni að hann fengi að heita í höfuðið á þér. Það var gaman að fá að fylgjast með ykkur leika saman, hann fór með þér á sjó svo þú gætir sýnt „Nabba“ hvernig sjómenn vinna, tókst hann með þér í flutningabílinn og kenndir hon- um á traktorinn. Elsku pabbi/báta-afi, við kveðjum þig með miklum trega, takk fyrir allt, minning þín mun lifa um alla tíð. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Magga Helga og Nabbi (Ársæll Aðalsteinn). Aðalsteinn Tryggvason ✝ Steinunn Lofts- dóttir fæddist 13. júní 1928. Hún lést 25. nóvember 2021. Foreldrar henn- ar voru Loftur Sig- fússon sjómaður og Kristín Jónína Sal- ómonsdóttir verka- kona. Árið 1944 kynnt- ist Steinunn eig- inmanni sínum, Matthíasi Vil- hjálmi Gunnlaugssyni bílasala, f. í Vestmannaeyjum 24. júlí 1919, d. 21. mars 1973. Börn þeirra eru: 1) Guðrún Gunnlaug, f. 3. júlí 1946, gift Baldri Jónssyni. 2) Reynir Pétur, f. 25 október 1948. 3) Kristinn Loftur, f. 4. desember 1950, giftur Drop- laugu G. Stefánsdóttur. 4) Ása Þórunn, f. 25. apríl 1952, gift Erni Ingólfssyni. 5) Erla Gerð- ur, f. 29. nóvember 1954, gift Kristni Valdimarssyni. 6) Matt- hildur Sonja, f. 24. janúar 1956, gift Herði Sig- urgeirssyni. 7) Ás- dís, f. 26. maí 1959, gift Árna Georgssyni. 8) Sig- ríður Halldóra, f. 3. mars 1962. Eru afkomendur þeirra 22 barna- börn, 44 lang- ömmubörn og fimm langalang- ömmubörn. Matti lést fyrir aldur fram að- eins 53 ára, þá var yngsta barn- ið aðeins 11 ára. Þetta voru erf- iðir tímar fyrir Steinunni og börnin en þau voru samhent og stóðu þétt saman. Fljótlega eftir að Matti lést fór Steinunn að vinna og vann hún á Vífils- stöðum í 20 ár. Seinustu ár hefur Steinunn verið í þjónustuíbúð í Boðaþingi og var komin í hjólastól eftir að fæturnir gáfu sig. Útför fór fram í kyrrþey 6. desember 2021. Elsku mamma mín, nú erum við búin að kveðja þig og þú ert komin til pabba. Ég veit að þér líður betur núna en söknuðurinn er sár. Ég er svo þakklát fyrir all- ar þær stundir og ferðir sem við áttum saman, þær voru ómetan- legar fyrir mig. Mér finnst erfitt að heyra ekki í þér á kvöldin eins og við gerðum alltaf áður en þú fórst að sofa. Þú varst límið í fjöl- skyldunni og hélst okkur systk- inunum saman. Takk fyrir allt elsku mamma mín, ég kveð þig með söknuð í hjarta en ég veit að þú ert komin í góðar hendur hjá pabba og öllum hinum. Þín dóttir, Guðrún (Gunna). Elsku besta mamma mín, Steinunn Loftsdóttir, lést þann 25. nóvember síðastliðinn. Mamma átti langa og góða ævi, hún var 93 ára þegar hún lést. Til minningar um mömmu til himnaríkis ég sendi, þér kveðju mamma mín. Á því virðist enginn endi, hve sárt ég sakna þín. Þú varst mín stoð og styrkur, þinn kraftur efldi minn hag. Þú fældir burtu allt myrkur, með hvatningu sérhvern dag. Nú tíminn liðið hefur, en samt ég sakna þín. Dag hvern þú kraft mér gefur, ég veit þú gætir mín. (Steinunn Valdimarsdóttir) Ég mun sakna þín ætíð elsku mamma mín. Elska þig. Kveðja, þín dóttir Sonja. Elsku besta mamma mín, nú ertu farin í sumarlandið til pabba. Mikið verðið þið ánægð að hittast loksins. Alltaf var nú gaman þegar við komum í heim- sókn til þín í Boðaþing og við tók- um í spil. Þér þótti það ekki leiðinlegt þar sem mikið var hlegið og gant- ast. Alltaf verður pláss fyrir þig við spilaborðið hjá okkur systk- inum, elsku mamma. Það verður mikið tómarúm nú þegar þú ert farin. Ég var vön að hringja áður en ég kom til þín til að athuga hvort þig vantaði eitt- hvað úr búðinni, elsku mútta mín. Alltaf var heilög stund hjá þér þegar þú varst að horfa á Glæstar vonir og Leiðarljós og maður passaði sig að hringja ekki á þeim tíma. Þú varst mikil hann- yrðakona og ég lærði mikið af þér. Elsku mamma mín, þú varst best og ég elska þig. Þín dóttir, Erla Gerður. Mamma var dugleg og glæsi- leg kona sem hugsaði vel um okkur börnin og ég sakna mömmu mikið. Það voru oft erf- iðir tímar og hún var úrræðagóð og gerði mikið úr litlu. Mamma var reglusöm kona og hún elsk- aði pabba þannig að hún sá ekki sólina fyrir honum. Mamma varð fyrir mikilli sorg þegar pabbi dó fyrir aldur fram en það var henni erfiður missir. Eftir að pabbi dó 1973, þurfti mamma að fara á vinnumark- aðinn og starfaði mjög lengi á Vífilsstöðum. Hún tók bílprófið seint en skipti um bíl alltaf á tveggja til þriggja ára fresti þar sem hún vildi vera á nýlegum bíl- um. Mamma var skýr allt fram á síðasta dag. Hún spilaði á hverj- um degi Fimm kórónur og hún mundi eftir afmælisdögum flestra langt fram eftir aldri en hún átti 79 afkomendur. Mamma, nú ert þú komin til pabba og það er gaman hjá ykk- ur núna en við fjölskyldan sökn- um þín. Guð blessi þig og megir þú hvíla í friði. Þinn sonur, Kristinn L. Matthíasson. Nú höfum við kvatt ástkæra tengdamóður mína, sem er kom- in í faðm Matta eiginmanns síns sem lést fyrir tæpum 49 árum. Steinunn var jákvæð mann- eskja og leið best í faðmi fjöl- skyldunnar. Ég kom snemma inn í fjölskylduna, fyrir 60 árum, þá rúmlega 17 ára, þegar ég kynnt- ist elstu dóttur hennar, Gunnu. Matthíasi þótti ekki verra að ég var Eyjapeyi en hann var einnig frá Vestmannaeyjum. Steina var mikil gæðakona, aldrei hallmælti hún tengdasyn- inum. Eftir að börnin voru upp- komin ferðaðist hún mikið með okkur Gunnu og börnunum okkar. Það var alltaf gott að hafa hana með enda voru þær Gunna mjög tengdar og börnin dáðu hana. Ég er þakklátur fyrir okkar kynni og allar góðu stundirnar sem við áttum með henni. Ég votta öllum aðstandendum inni- lega samúð. Þinn tengdasonur, Baldur Jónsson. Elsku amma Steina. Sem barn dreymdi mig oft dauða þinn, ég man eftir mörgum nóttum þar sem ég vaknaði grátandi og hélt þú værir dáin, mamma mín sagði mér að þessir draumar táknuðu langlífi og má svo sannarlega segja að hún hafi haft rétt fyrir sér því þú náðir að verða 93 ára gömul. Þrátt fyrir háan aldur er maður aldrei tilbúinn og und- irbúinn þegar loks kallið kemur, en þó var eitthvað sem sagði mér að það færi að styttast þegar ég heimsótti þig síðast. Þú varst orðin þreytt og þú sættir þig aldrei við að þurfa að nota hjóla- stól og vera svona upp á aðra komin. Við amma áttum einstakt sam- band enda ólst ég upp hjá henni fyrstu árin mín með mömmu. Ég var alveg frá fyrstu tíð mikil ömmustelpa og fannst fátt betra en að vera hjá ömmu, mjúki faðmurinn og hlýjan sem kom frá henni. Amma var ekki af þeirri kynslóð sem var endilega alltaf að segja manni hvað hún elskaði mann, hún þurfti þess ekki, þú fannst það. Amma var glaðlynd kona og fordómalaus og sá það besta í öllum. Það sem hún var glöð með allt sitt fólk, hún var svo stolt af okkur öllum og leidd- ist ekki að segja okkur fréttir af stórfjölskyldunni í Kópavogi. Amma keyrði bíl alveg þangað til hún varð 88 ára, geri aðrir betur, hún var geggjaður bílstjóri og lagði mikið upp úr því að vera á nýbónuðum bíl og helst nýjum. Hún var líka nýjungagjörn og vildi hafa almennilegt sjónvarp svo hún gæti horft á Glæstar vonir og Leiðarljós í almennileg- um græjum og svo vildi hún eiga almennilegan síma og auðvitað fékk hún sér facebook en hún var óhrædd við tæknina og kunni á allar fjarstýringarnar meira en margur kann. Lengi vel var amma til skiptis hjá börnunum sínum á jólunum, það voru bestu jólin þegar hún var hjá okkur, sem mér fannst allt of sjaldan því hún þurfti að skipta sér á svo marga staði. Eft- ir að amma fór á elliheimili var það fastur liður hjá okkur öllum að heimsækja hana og ég held að fáir hafi fengið jafn mikið af heimsóknum eins og hún amma mín enda stór og samheldin fjöl- skylda á bak við hana og hún var miðpunkturinn hjá okkur. Amma vissi fátt skemmtilegra en að spila og oftar en ekki var tekið í spil og mér fannst alltaf svo merkilegt hvað hún var svo fljót að leggja saman tölurnar langt á undan flestum, ég er nokkuð viss um að ef amma mín hefði farið í íþróttir hefði hún verið mikil keppniskona. Í nóvember voru fimm af sex dætrum hennar á Spáni svo við barnabörnin sáum um að heim- sækja ömmu skipulega og eitt skiptið þegar ég fór til ömmu hringdi ég myndsímtal til Spánar þar sem við gátum spjallað sam- an við systurnar, það fannst ömmu voðalega gaman og mikið hlegið og eftir símtalið segir hún við mig: „Meira fjörið alltaf í þessum stelpum, ég er svo glöð hvað þeim semur vel og eru góð- ar vinkonur.“ Þetta fannst mér fallegt. En nú er komið að kveðju- stund elsku amma mín. Það er sárt að kveðja þig en minningin lifir um brosmilda góða konu sem ég elskaði afar heitt. Þú verður ávallt í hjarta mínu amma mín. Steinunn Þorkelsdóttir. Steinunn Loftsdóttir Kær skólasystir mín hún Ingibjörg Þorkelsdóttir lézt hinn 7. desember sl. Það er gott að minnast hennar Ingu Þorkels, en eins erfitt að kveðja hana. Hún var ávallt sú fyrsta sem ég talaði við um skólabekkinn okkar. Við erum jafnöldrur og hófum nám haustið 1940 í sama bekk í Kvennaskól- anum í Reykjavík. Núna eru 3-4 á lífi af þeim sem útskrifuðust úr Kvennaskólanum á lýðveldisvor- inu 1944. Skólatíminn okkar er Ingibjörg Þorkelsdóttir ✝ Ingibjörg Þor- kelsdóttir fæddist 15. mars 1926. Hún lést 7. des. 2021. Útför Ingibjarg- ar fór fram 20. des- ember 2021. einmitt stríðstíminn með öllum þeim breytingum sem því fylgdu. Inga Þor- kels var falleg og myndarleg ung stúlka sem var mik- ið fyrir sundíþrótt- ina, einnig teiknaði hún mjög mikið, jafnvel svo að mað- ur hélt að hún yrði listmálari þegar á liði. Hún var létt í lund og hlát- urmild – en það fór ekki mikið fyrir henni. En svo vorum við líka ákaflega stilltar í okkar bekk. Fyrir aftan mig sátu af- brigða skemmtilegar stúlkur og var Inga Þorkels þar á meðal. Gamaldags hefðir voru í Kvennaskólanum á þeim tíma sem okkur þótti kindugt og yrði hlegið að þeim viðburði í dag. Þá máttum við taka borðskúffurnar okkar úr borðinu og þramma í röð frá Kvennaskólanum alveg niður í Hafnarstræti til Ziemsen og láta setja nýjar skrár og lykla í skúffurnar. Ég talaði oft um það við Ingu að okkur vantaði einhverja til að teikna hala- rófuna sem var send í umrætt erindi. Annars var þetta ekki eina halarófan sem sjá mátti við Tjörnina í þá daga. Á þeim tíma urðum við fara í leikfimi upp í ÍR-hús við Landakot og til að mæta aftur í tíma urðum við að hlaupa niður alla Túngötu en á horni Tjarnargötu og Vonar- strætis var bakaríið Kerff sem bakaði þau allra bestu vínar- brauð. Við keyptum okkur því vínarbrauð og gat því þá að líta aðra halarófu með skólatösku og leikfimisdót í annarri hendi og vínarbrauð sem nartað var í í hinni þegar hringt var inn í tíma. Fyrstu árin eftir útskrift var ekki mikill samgangur milli skólasystranna en eftir fimm ár hittumst við í Oddfellow og er það fróðleg mynd af kvenna- blóma þess tíma. Inga giftist síðar Guðna sín- um, skólabróður Halldórs míns, og stofnuðu þau fyrirtæki sitt í Kópavogi. Eftir að við Halldór eignuðumst dætur okkar og höfðum fluzt í Kópavoginn hringdi Inga í mig og bauð fram barnapíu svo Kristín hennar kom og passaði Steinunni mína. Eftir það varð allt nánara því við fórum að leggja leið okkar upp á Kársneshæðina og versla við Guðna og Ingu uns matvöru- verslun kom á Þinghólsbrautina í næstu götu við okkur. Við skólasysturnar reyndum að hittast á hverju vori, oftast í Kaffi Flóru í Grasagarðinum í kaffispjalli en á einu útskriftar- afmælinu hittumst við á Grand hóteli hvar Inga hafði útbúið svo fallegt minningarborð um hóp- inn með myndum af okkur öll- um. Ekki má gleyma að við reynd- um nokkrar að viðhalda þeirri hefð að fara og gróðursetja tré í reit sem okkur var úthlutaður í Heiðmörk. Reiturinn okkar er merktur Kvennaskólinn í Reykjavík 1940-1944. Þegar Inga veiktist á seinni árum var það tölvuvæðingin sem hélt henni gangandi, því það voru „litlu Guðnarnir“ sem pöss- uðu upp á að amma gæti haldið við tölvukunnáttu sinni, skrifað niður hugðarefni sín og orðað hugsanir sínar. Við skólasyst- urnar nutum líka góðs af því að Inga hélt rafrænt utan um nafnalistana okkar, myndir og minningar. Síðasta skiptið sem við hitt- umst heima hjá henni á Borg- arholtsbrautinni var á kjördegi en eftir að hafa kosið hafði ég bakað pönnukökur sem ég ákvað að færa Ingu. Þegar ég kom til hennar var hún með sjónvarpið opið og var að fylgjast með stór- afmælishátíð danska krónprins- ins og úr varð að við sátum eins og gestir í Amalienborg, með forseta Íslands og fleira fyrir- fólki, og drukkum kaffi úr henn- ar fínasta stelli og borðuðum pönnukökur. Guð blessi minningu Ingi- bjargar Þorkelsdóttur. Jóhanna Guðmundsdóttir. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einn- ig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.