Morgunblaðið - 17.01.2022, Side 27
af nálinni að Bolton sýni íslenskum
leikmönnum áhuga því Guðni Bergs-
son, Eiður Smári Guðjohnsen, Arnar
Gunnlaugsson, Heiðar Helguson,
Birkir Kristinsson, Ólafur Páll Snorra-
son og Grétar Rafn Steinsson hafa
allir verið á mála hjá félaginu.
_ Dómarar við ástralskan alríkis-
dómstól höfnuðu áfrýjunarbeiðni
tenniskappans Novak Djokovic um að
vísa honum ekki úr landi í gær. Djoko-
vic var handtekinn á laugardagskvöld
eftir að stjórnvöld í Ástralíu höfðu
ógilt landvistarleyfi hans í landinu. Ell-
efu daga baráttu hins óbólusetta
tenniskappa um að fá að keppa á
Opna ástralska mótinu er því formlega
lokið. Djokovic sagðist „virkilega von-
svikinn“ út af-
ákvörðun Ástrala
um að hann skuli
yfirgefa landið en
hann ætlar að
verða við þeirri
beiðni. „Ég virði
úrskurð dómstóls-
ins og verð sam-
vinnufús í
tengslum við brottför mína úr land-
inu,“ sagði Djokovic, sem er í efsta
sæti heimslistans, í yfirlýsingu.
Áströlsk stjórnvöld lýstu því meðal
annars yfir að áframhaldandi vera
Djokovic í Ástralíu gæti ýtt undir and-
stöðu við bólusetningar og því bæri að
vísa honum úr landi. Draumur hans
um að setja met með því að vinna sitt
21. stórmót er því úr sögunni í bili.
_ Rafael Benítez hefur verið rekinn
sem knattspyrnustjóra Everton eftir
sex mánuði í starfi. Everton hefur að-
eins unnið einn deildarleik síðan í
september og er liðið í 15. sæti ensku
úrvalsdeildarinnar, sex stigum fyrir of-
an fallsæti. Liðið tapaði fyrir Norwich
á útivelli á laugardag, 1:2, en Norwich
var í botnsæti deildarinnar fyrir leik-
inn. Wayne Rooney, fyrrverandi leik-
maður Everton, hefur verið orðaður
við stjórastöðuna hjá liðinu en hann
hefur gert afar góða hluti með Derby í
B-deildinni, þrátt fyrir gríðarlega erf-
iða stöðu félagsins.
_ Sæunn Björnsdóttir hefur gengið
til liðs við Knatt-
spyrnufélagið
Þrótt á lánssamn-
ingi frá Haukum
og mun leika með
félaginu út árið.
Sæunn, sem er
fædd árið 2001,
lék með Fylki í
efstu deild síðasta
sumar en hún er uppalin hjá Haukum í
Hafnarfirði. Alls á hún að baki 34 leiki í
efstu deild með Haukum og Fylki. Áður
höfðu þær Katla Tryggvadóttir, Ólöf
Sigríður Kristinsdóttir, Danielle
Marcano og Freyja Karín Þorvarðar-
dóttir einnig skrifað undir samning við
Þróttara um að leika með liðinu á
komandi keppnistímabili.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2022
Í BÚDAPEST
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslenska karlalandsliðið í handknatt-
leik er með framhaldið á Evrópu-
mótinu í eigin höndum eftir afar
mikilvægan eins marks sigur gegn
Hollandi í B-riðli keppninnar í Búda-
pest í Ungverjalandi í gær.
Leiknum lauk með 29:28-sigri ís-
lenska liðsins en fyrr um daginn
vann Ungverjaland 31:30-sigur gegn
Portúgal í Búdapest. Ísland er í
efsta sæti riðilsins með 4 stig og
mætir Ungverjalandi í úrslitaleik
um sæti í milliriðlum í lokaumferð
riðlakeppninnar á morgun en Ung-
verjar eru með 2 stig í þriðja sætinu.
Á sama tíma mætast Holland og
Portúgal en Holland er með 2 stig í
öðru sætinu og Portúgal er án stiga.
Eftir mjög jafnan leik í fyrri hálf-
leik náðu Íslendingar smá tökum á
leiknum þegar leið á fyrri hálfleik-
inn. Fyrir vikið fór liðið til búnings-
herbergja í hléi með forskot, 15:13.
Leikurinn byrjaði vel fyrir Ísland
sem komst í 3:1 en Hollendingar
breyttu því í 4:5. Í framhaldinu var
jafnt á mörgum tölum. Eins og
minnst hafði verið á í greinum hér í
blaðinu á mbl.is síðustu daga þá er
mjög erfitt að eiga við Luc Steins og
Dani Baijens í stöðunni maður á
móti manni. Þeir eru snarpir og
kröftugir eins og margir af okkar
mönnum. Það er því ekki auðvelt að
verjast hollenska liðinu en það gekk
á köflum ágætlega hjá íslenska lið-
inu. Í sókninni skutu okkar menn vel
á markið. Hollenski markvörðurinn
Bart Ravensbergen varði í það
minnsta aðeins eitt skot í fyrri hálf-
leik. Í því ljósi var sorglegt að vera
ekki með meira forskot eftir fyrri
hálfleikinn. Vegna brottvísana fengu
Viggó Kristjánsson og Elliði Snær
Viðarsson að koma inn á snemma
leiks. Undir lok fyrri hálfleiks skor-
aði Viggó tvívegis en Ómar Ingi
Magnússon fékk tvær brottvísanir á
fyrstu 19 mínútunum og var því á
hættusvæði.
Elvar Örn Jónsson var í sömu
stöðu þegar hann fékk sína aðra
brottvísun á 41. mínútu. Á heildina
litið gekk vörnin þó ágætlega. Fyrir-
séð var að Holland myndi skora tölu-
vert í leiknum þar sem liðið spilar
mjög hratt. Aldursforsetinn Björg-
vin Páll Gústavsson stóð fyrir sínu
fyrir utan fyrstu tíu mínúturnar í
síðari hálfleik þegar hann kólnaði.
Í sókninni gerði íslenska liðið full-
mörg mistök. Liðið missti boltann of
oft án þess að ná skoti á markið. Um
tíma í síðari hálfleik var Ísland fimm
mörkum yfir en Hollendingar náðu
að vinna það upp og jafna. Fimm
marka munur er ekki unninn leikur í
handboltanum en útlitið virtist mjög
gott í stöðunni 21:16.
Öðrum sigri
landað í
Búdapest
- Ísland með fullt hús stiga eftir fyrstu
tvo leikina í B-riðli Evrópumótsins
Ljósmynd/Szilvia Micheller
Átök Janus Daði Smárason átti frábæra innkomu hjá íslenska liðinu en hér
er hann í harðri baráttu við varnarmenn hollenska liðsins í Búdapest í gær.
MVM Dome, Búdapest, EM karla, B-
riðill, 16. janúar 2022.
Gangur leiksins: 2:3, 5:4, 7:7, 10:9,
10:12, 13:15, 15:19, 17:22, 20:24,
22:24, 26:27, 28:29.
Mörk Íslands: Sigvaldi Björn Guð-
jónsson 8, Aron Pálmarsson 6, Ómar
Ingi Magnússon 4/3, Gísli Þorgeir
Kristjánsson 4, Viggó Kristjánsson 2,
Elliði Snær Viðarsson 2, Bjarki Már
Elísson 1, Elvar Örn Jónsson 1, Ýmir
Örn Gíslason 1.
ÍSLAND – HOLLAND 29:28
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson
10.
Utan vallar: 14 mínútur.
Mörk Holland: Kay Smits 13/7, Dani
Baijens 6, Bobby Schagen 4, Luc
Steins 2, Samir Benghanem 2, Rut-
ger Ten Velde 1.
Varin skot: Bart Ravensbergen 7.
Utan vallar: 12 mínútur.
Áhorfendur: 14.587.
EM karla 2022
A-RIÐILL, Debrecen:
N-Makedónía – Svartfjallaland .......... 24:28
Slóvenía – Danmörk............................. 23:34
Staðan:
Danmörk 2 2 0 0 64:44 4
Svartfjallaland 2 1 0 1 49:54 2
Slóvenía 2 1 0 1 50:59 2
Norður-Makedónía
2 0 0 2 49:55 0
B-RIÐILL, Búdapest:
Portúgal – Ungverjaland..................... 30:31
Ísland – Holland................................... 29:28
- Erlingur Richardsson þjálfar Holland.
Staðan:
Ísland 2 2 0 0 57:52 4
Holland 2 1 0 1 59:57 2
Ungverjaland 2 1 0 1 59:61 2
Portúgal 2 0 0 2 54:59 0
C-RIÐILL, Szeged:
Frakkland – Úkraína ........................... 36:23
Króatía – Serbía ................................... 23:20
Staðan:
Frakkland 2 2 0 0 63:45 4
Serbía 2 1 0 1 51:46 2
Króatía 2 1 0 1 45:47 2
Úkraína 2 0 0 2 46:67 0
D-RIÐILL, Bratislava:
Þýskaland – Austurríki........................ 33:29
- Alfreð Gíslason þjálfar Þýskaland.
Hvíta-Rússland – Pólland.................... 20:29
Staðan:
Pólland 2 2 0 0 65:51 4
Þýskaland 2 2 0 0 67:58 4
Austurríki 2 0 0 2 60:70 0
Hvíta-Rússland 2 0 0 2 49:62 0
E-RIÐILL, Bratislava:
Tékkland – Bosnía................................ 27:19
Spánn – Svíþjóð .................................... 32:28
Staðan:
Spánn 2 2 0 0 60:54 4
Svíþjóð 2 1 0 1 58:50 2
Tékkland 2 1 0 1 53:47 2
Bosnía 2 0 0 2 37:57 0
F-RIÐILL, Kosice:
Slóvakía – Litháen................................ 31:26
Noregur – Rússland............................. 22:23
Staðan:
Rússland 2 2 0 0 52:49 4
Noregur 2 1 0 1 57:48 2
Slóvakía 2 1 0 1 56:61 2
Litháen 2 0 0 2 53:60 0
Olísdeild kvenna
Stjarnan – ÍBV ..................................... 24:33
Haukar – Valur..................................... 26:24
Staðan:
Fram 11 9 1 1 295:260 19
Valur 11 8 0 3 303:245 16
Haukar 11 6 1 4 302:290 13
KA/Þór 10 5 1 4 265:263 11
Stjarnan 12 5 0 7 305:315 10
HK 10 3 1 6 227:250 7
ÍBV 8 3 0 5 213:207 6
Afturelding 9 0 0 9 187:267 0
Grill 66-deild kvenna
Víkingur – ÍBV U ................................. 23:21
Stjarnan U – FH................................... 22:30
Selfoss – Fjölnir/Fylkir ....................... 25:19
Grill 66 deild karla
Hörður – Vængir Júpíters................... 32:25
Kórdrengir – Afturelding U................ 31:24
Evrópubikar kvenna
16-liða úrslit:
Dunajska Streda – Kristianstad ........ 21:23
Kristianstad – Dunajska Streda ........ 21:33
- Andrea Jacobsen skoraði fjögur mörk
fyrir Kristianstad í hvorum leik, en liðið
tapaði einvíginu, samanlagt 44:54.
Noregur
Molde – Oppsal .................................... 30:20
- Birta Rún Grétarsdóttir skoraði eitt
mark fyrir Oppsal.
%$.62)0-#
Spánn
Real Madrid – Zaragoza..................... 94:69
- Tryggvi Snær Hlinason skoraði 6 stig
fyrir Zaragoza, tók sex fráköst og stal ein-
um bolta á 16 mínútum.
B-deild:
Prat Joventut – Gipuzkoa .................. 70:81
- Ægir Már Steinarsson skoraði 11 stig
fyrir Gipuzkoa, tók tvö fráköst og gaf tvær
stoðsendingar á 24 mínútum.
Ítalía
Napoli – Fortitudo Bologna ............... 86:89
- Jón Axel Guðmundsson skoraði 2 stig
fyrir Fortitudi Bologna og tók eitt frákast á
fjórtán mínútum.
Rúmenía
Agronomia – Phoenix Constanta ...... 57:83
- Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 19 stig
fyrir Phoenix Constanta, tók átta fráköst
og gaf fimm stoðsendingar á 32 mínútum.
1. deild kvenna
Þór Ak. – Ármann ................................ 65:69
Vestri – Aþena/UMFK ........................ 61:82
Staða efstu liða:
Ármann 11 9 2 897:697 18
ÍR 10 8 2 759:599 16
Þór Ak. 12 7 5 866:802 14
Snæfell 11 6 5 834:797 12
Aþena/UMFK 11 6 5 781:786 12
KR 10 6 4 754:713 12
Hamar/Þór 10 5 5 724:707 10
4"5'*2)0-#
Í BÚDAPEST
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Elvar Örn Jónsson segir íslensku
landsliðsmennina ætla sér áfram í
milliriðil á EM í handknattleik en það
er ekki öruggt þótt liðið hafi unnið
fyrstu tvo leikina í Búdapest.
Ísland hefur unnið Portúgal og
Holland en svo gæti farið að liðið
þyrfti að ná í stig gegn heimamönn-
um, Ungverjum, í síðustu umferð
riðlakeppninnar á morgun.
„Það verður hörkuleikur og Ung-
verjar á heimavelli sem gefur þeim
mikið. Þeir hafa aðeins verið að
ströggla í mótinu en við vitum að þeir
eru með frábært lið. Við vitum að þeir
munu mæta dýrvitlausir í leikinn.
Þeir ætla sér að ná árangri á EM á
heimavelli. En við ætlum okkur líka
að komast í milliriðilinn. Þetta verður
úrslitaleikur,“ sagði Elvar Örn þegar
Morgunblaðið greip hann að leiknum
loknum gegn Hollandi í gær í Búda-
pest.
„Þetta gerist ekki betra varðandi
stigin því við erum með tvo sigra eftir
tvo leiki. En við þurfum að horfa að-
eins til baka á þennan leik og sjá
hvers vegna við gerðum ekki alveg
eins vel og við viljum. Þeir opnuðu
okkur fullmikið á tímabili, sérstaklega
í fyrri hálfleik. En það er mikilvægt
að vinna svona leiki þar sem við náum
ekki að spila af okkar bestu getu. Tvö
stig eru hins vegar tvö stig og þau eru
gríðarlega mikilvæg að þessu sinni.“
Elvar Örn sinnir mikilvægu hlut-
verki í vörninni og hann var ekki bein-
línis öfundsverður í gær því hann
þurfti á löngum köflum að gæta leik-
stjórnandans snjalla, Luc Steins, sem
leikur með franska stórliðinu París
SG.
„Þetta er gríðarlega erfitt. Hol-
lendingar hafa ekki tekið neitt eðli-
lega miklum framförum síðustu tvö
ár. Þetta er ekki lengur lið sem við
eigum að vinna heldur er þetta frá-
bært lið,“ sagði Elvar Örn í samtali
við Morgunblaðið.
Ljósmynd/Szilvia Michellere
Drjúgur Það mæddi mikið á Elvari Erni Jónssyni gegn Hollendingum í gær.
Við ætlum okkur
áfram í milliriðla
- Ótrúlegar framfarir hollenska liðsins