Morgunblaðið - 17.02.2022, Page 1
Grísakótilettur
með beini
1.259KR/KG
ÁÐUR: 2.099 KR/KG
Lambahryggur
Frosinn
2.687KR/KG
ÁÐUR: 3.199 KR/KG
VERÐ-
SPRENGJA!
40%
AFSLÁTTUR
250 g
Jarðarber
398KR/ASKJAN
ÁÐUR: 569 KR/ASKJAN
30%
AFSLÁTTUR
TILBOÐ ILµA Áe"¿Ãe FEBRÚAR
FRÁBÆR TILBOÐ
Í NÆSTU NETTÓ
MIKIL
VONBRIGÐI
Í PEKING
SLÚÐUR
HEFUR
MIKIL ÁHRIF
GRÉTA BERGRÚN 18STURLA Í SVIGI 55
.Stofnað 1913 . 40. tölublað . 110. árgangur .
F I M M T U D A G U R 1 7. F E B R Ú A R 2 0 2 2
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ef áætlanir Landsvirkjunar ganga
eftir og nauðsynleg leyfi fást í tíma
verður unnt að hefja undirbúnings-
framkvæmdir við Hvammsvirkjun í
neðrihluta Þjórsár undir lok þessa
árs og auglýsa útboð á byggingar-
framkvæmdum. Þetta er þó háð af-
greiðslu á virkjanaleyfi og fram-
kvæmdaleyfi. Þá hefur stjórn
Landsvirkjunar ekki ákveðið að ráð-
ast í framkvæmdina.
„Aðalatriðið er að við séum með
skilvirt kerfi þar sem leyfisveitingar
taki ekki of langan tíma en á sama
tíma sé ekki veittur afsláttur af gæð-
um leyfisveitinganna,“ segir Guð-
laugur Þór Þórðarson, umhverfis-,
orku- og loftslagsráðherra, þegar
hann er spurður hvort leyfisveitinga-
kerfi virkjana sé nógu skilvirkt.
Landsvirkjun sótti um virkjanaleyfi
fyrir Hvammsvirkjun fyrir átta
mánuðum. Orkustofnun hefur nú
svarað og óskað eftir nánari upplýs-
ingum.
Byrjað á frárennslisskurði
Eftir áratuga undirbúning þar
sem forsendur hafa iðulega breyst
hillir nú undir að framkvæmdir hefj-
ist við Hvammsvirkjun sem er efst
fyrirhugaðra virkjana í neðrihluta
Þjórsá og verður áttunda aflstöð
Landsvirkjunar á Þjórsár-Tungna-
ársvæðinu. Undirbúningsfram-
kvæmdir felast meðal annars í vega-
gerð, greftri á frárennslisskurði,
aðstöðusköpun og færslu á mastri
Búrfellslínu sem liggur yfir vinnu-
svæðið.
Valur Knútsson, forstöðumaður á
framkvæmdasviði Landsvirkjunar,
segir að vegna erfiðs aðgangs að efn-
isnámum hafi verið ákveðið að byrja
á því að grafa frárennslisskurðinn og
nota efnið við uppbyggingu vega.
Framkvæmdir á þessu ári
- Undirbúningur Hvammsvirkjunar í Þjórsá er á lokastigi - Umhverfisráðherra
leggur áherslu á að leyfisveitingaferli sé skilvirkt en þó enginn afsláttur gefinn
Hvammsvirkjun
» Uppsett afl Hvammsvirkj-
unar verður allt að 95 mega-
vött og orkuvinnslugeta um
720 gígavattstundir. Nýtir
virkjunin vatn sem þegar hefur
runnið í gegnum aðrar afl-
stöðvar á Þjórsársvæðinu.
» Uppsett afl núverandi afl-
stöðva á svæðinu er 1.040
megavött og orkuvinnslugeta í
góðu vatnsári 6.800 gígavatt-
stundir.
MVirkjanir og leyfi … »26-27
_ Á sunnudag-
inn eru 140 ár
liðin frá því
Kaupfélag
Þingeyinga
var stofnað,
það fyrsta
innan sam-
vinnuhreyfing-
arinnar. Kaup-
félögin hafa af
því tilefni gef-
ið út blað sem
fylgir Morgunblaðinu í dag. Þar
má meðal annars lesa pistil eftir
Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrver-
andi forseta Íslands, þar sem
hann rekur sögu samvinnuforms-
ins og spáir um framtíð þess. Þar
segir að upplýst ung kynslóð í
öllum álfum gangi nú í smiðju
samvinnuformsins og sjái sem
spennandi valkost.
SÍS Blaðið fylgir
Morgunblaðinu í dag.
Samvinnuhreyfingin
fagnar 140 árum
Þegar pósthúsum Íslandspósts verð-
ur lokað á Hellu og Hvolsvelli verður
ekkert pósthús frá Selfossi að Höfn í
Hornafirði. Guðrún Hafsteinsdóttir,
þingmaður Suðurkjördæmis, segir
þessa þjónustuskerðingu slæma
þróun og bendir á að stöðugildin
þrjú sem tapast við lokunina jafn-
gildi um 200 á höfuðborgarsvæðinu.
Hörður Jónsson, framkvæmda-
stjóri rekstrarsviðs Íslandspósts,
segir að til standi að fækka einnig af-
greiðslum en fjölga pósthólfum á
höfuðborgarsvæðinu.
Á Hvolsvelli verða lögð niður tvö
störf sem eru 1,75 stöðugildi og eitt
fullt starf á Hellu.
Starfsfólkinu býðst vinna hjá
Póstinum á Selfossi. Þá verður póst-
ur afgreiddur úr bílum. »4
Morgunblaðið/Eggert
Lokað Pósthúsið á Hellu lokar.
Ekkert póst-
hús á stóru
landsvæði
Töluverðu hefur kyngt niður af snjó síðustu daga
á höfuðborgarsvæðinu og nutu kátir krakkar
þess að leika sér í snjónum fyrir framan Hörpuna
í dag. Snjóþungi í Reykjavík þessa vikuna hefur
verið töluverður og mældist snjódýptin á mánu-
dag tuttugu og fimm sentimetrar. Samkvæmt
veðurspám Veðurstofu Íslands má búast við
norðaustlægri eða breytilegri átt á morgun,
þremur til átta metrum á sekúndu og éljagangi.
Morgunblaðið/Eggert
Snjóþungi undanfarna
daga í Reykjavík