Morgunblaðið - 17.02.2022, Page 4

Morgunblaðið - 17.02.2022, Page 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022 22. FEBRÚAR - 01. MARS - 7 DAGAR ABORA CATARINA BY LOPESAN 4* VERÐ FRÁ129.900 KR Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN VERÐ FRÁ 159.900 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA 22. FEBRÚAR - 01. MARS - 7 DAGAR SERVATURE WAIKIKI 4* VERÐ FRÁ89.900 KR Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN VERÐ FRÁ 124.500 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA FLUG & GISTING SÓLARTILBOÐ TIL KANARÍ ALLT INNIFALIÐ ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS SENDUOKKUR PÓST ÁINFO@UU.IS & FÁÐU TILBOÐ FYRIR ÞIG &ÞÍNA FJÖLSKYLDU Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Þetta er að mínu mati neikvætt skref,“ segir Guðrún Hafsteinsdótt- ir, fyrsti þingmaður Suðurkjördæm- is, um fyrirhugaða lokun pósthúsa á Hellu og Hvolsvelli 1. maí í vor. „Við þingmenn hefðum viljað að þessi þjónusta hefði verið áfram tryggð í þessum sveitarfélögum. Við á landsbyggðinni erum alltaf í varn- arbaráttu við að tryggja störf og að það sé veitt góð þjónusta. Við viljum að fólk setjist að úti á landi en það er erfitt að fá það til þess ef þjónustu- stigið er miklu lægra en annars stað- ar. Við viljum gjarnan að íbúar í Rangárþingi ytra og eystra búi við sambærilega póstþjónustu og er á höfuðborgarsvæðinu.“ Við lokun pósthúsanna tveggja tapast tæplega þrjú stöðugildi. Guð- rún sagði það jafngilda því að yfir 200 manns misstu vinnuna á einum vinnustað á höfuðborgarsvæðinu. Auk lokunar pósthúsa hafa bankar einnig lokað útibúum á Suðurlandi. „Ég á heima í Hveragerði þar sem búa rúmlega þrjú þúsund íbúar. Þar er engin bankaafgreiðsla. Yngra fólk finnur kannski ekki mikið fyrir því en eldri íbúar finna verulega fyrir því,“ segir Guðrún. Póstþjónusta öll í endurskoðun Íslandspóstur er að endurskoða þjónustu sína í ljósi breyttra að- stæðna. „Í pípunum er fækkun póst- húsa á höfuðborgarsvæðinu sam- hliða fjölgun póstboxa. Ég get ekki upplýst nánar um það nú,“ segir Hörður Jónsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Íslandspósts. Bréf- sendingum hefur fækkað um 75% frá 2010 en pökkum fjölgað. „Við munum þurfa að fjölga póst- boxum á landsbyggðinni en fækka pósthúsum. Hvar nákvæmlega það verður gert liggur ekki fyrir, nema á Hellu og Hvolsvelli. Við verðum samt áfram með póstþjónustu á þessum stöðum,“ segir Hörður. Á Hvolsvelli verða lögð niður tvö störf sem eru 1,75 stöðugildi og eitt fullt starf á Hellu. Starfsfólkinu býðst vinna hjá Póstinum á Selfossi. Póstafgreiðsla færist úr niður- lögðum pósthúsum í póstbíla, sem verða á ferðinni alla virka daga, og póstbox. Heimakstur sendinga verð- ur víðtækari en nú. Einnig verður hægt að póstleggja sendingar í gegnum póstboxin og bílana. Sé ekki hægt að afgreiða sendingu í gegnum póstbox kemur póstbíllinn heim til viðtakanda. En hvernig borgar mað- ur fyrir að póstleggja bréf eða sækja pakka ef ekki er pósthús? „Bílstjórar póstbílanna eru með posa. Við bjóðum líka upp á sjálf- virka skuldfærslu. Komi sending þá skuldfærist kostnaðurinn sjálfkrafa og viðtakandinn getur sótt send- inguna í póstbox,“ segir Hörður. Útburður bréfa verður tvo daga í viku frá 1. maí og dreifing bréfa og pakka í dreifbýli tvisvar í viku. Þetta eru nauðsynleg viðbrögð við miklum samdrætti bréfasendinga, sem hefur haft mikil áhrif á tekjugrunn fyrir- tækisins, að sögn Harðar. Færri pósthús en fleiri póstbox - Neikvætt skref að loka tveimur pósthúsum á Suðurlandi, að mati þingmanns - Munar um hvert starf - Aðlögun að breyttum veruleika, segir Pósturinn - Bréfsendingum fækkaði um 75% frá 2010 8 Staðsetning pósthúsa Loftmyndir ehf. Höfuðborgar- svæðið Hagatorg Síðumúli Þönglabakki Höfðabakki Dalvegur Litlatún Fjarðargata Háholt Alls8 pósthús Vesturland Akranes Borgarnes Stykkishólmur Grundarfjörður Ólafsvík Búðardalur Alls6 pósthús Vestfirðir Ísafjörður Bolungarvík Súðavík Patreksfjörður Hólmavík Drangsnes Alls6 pósthús NV-land Hvammstangi Blönduós Skagaströnd Sauðárkrókur Alls4 pósthús NA-land Siglufjörður Akureyri Grenivík Dalvík Ólafsfjörður Húsavík Laugar Mývatn Kópasker Raufarhöfn Þórshöfn Alls 11 pósthús Austurland Vopnafjörður Egilsstaðir Seyðisfjörður Reyðarfjörður Eskifjörður Neskaupstaður Fáskrúðs- fjörður Breiðdalsvík Djúpivogur Alls9 pósthús Suðurland Höfn Selfoss Hveragerði Hella Hvolsvöllur Vestmannaeyjar Alls6 pósthús Suðurnes Reykjanesbær Grindavík Alls 2 pósthús Heimild: Pósturinn 52 pósthús eru á landinu öllu Pósthús Lokar 1. maí nk. Morgunblaðið/Eggert Lokað Pósthúsunum á Hvolsvelli og Hellu verður lokað í vor. 52 pósthús eru alls á landinu en fá eftir á Suðurlandi. Guðrún Hafsteinsdóttir Hörður Jónsson Bjarni Benediktsson, fjár- málaráðherra og formaður Sjálf- stæðisflokksins, finnur að frétta- flutningi af rannsókn lögreglu tengdum fréttum af svonefndum „skæruliðahópi Samherja“, þar sem áherslan hafi öll verið út frá hags- munum hinna grunuðu blaðamanna en ekki á það hverjar sakargiftirnar væru, líkt og venjan væri í ámóta fréttum. Blaðamannafélag Íslands og Félag fréttamanna hafa svarað Bjarna í yfirlýsingu sinni, þar sem kemur fram að félögin telji frelsi blaðamanna til að fjalla um mikilvæg fréttamál og veita valdhöfum aðhald vera lýðræðissamfélaginu lífs- nauðsynlegt. „Blaða- og fréttamenn eru sem einstaklingar jafnir öðrum að lögum, t.d. ef þeir eru grunaðir um ölvunar- akstur, fjársvik eða ofbeldibrot. Um störf þeirra gegnir hins vegar öðru máli. Um þau gilda önnur lög og reglur en um önnur störf, vegna hlutverks þeirra.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Átelur vinnu- brögð fjölmiðla - BÍ og FF svara Bjarna í yfirlýsingu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.