Morgunblaðið - 17.02.2022, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.02.2022, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022 bokakaffid.is tugir þúsunda titla í netbókabúðinni BÆKUR nýjar og notaðar á kostakjörum Sími 546 3079 Opið virka daga 11–18 Laugardaga 11–16 Ævintýraheimur bókaormanna Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@mbl.is Sólveig Anna Jónsdóttir, nýkjörinn formaður Eflingar, segist vera ánægð og þakklát fyrir það traust sem henni og félögum hennar á Bar- áttulistanum hefur verið sýnt til að leiða félagið og að berjast fyrir hönd verka- og láglaunafólks. Hún telur réttast að kalla saman aukaaðalfund strax til að for- ystuskipti geti átt sér stað sem fyrst, en aðalfundur hefur yfirleitt farið fram í byrjun apríl. Spurð hvernig hún sjái fyrir sér að koma inn á skrifstofuna aftur, eftir allt sem á undan er gengið segir hún það verða að koma í ljós. Því hefur verið lýst yfir opinberlega af hálfu starfsfólks að margir séu óttaslegnir og kvíði endurkomu Sólveigar. Hún segist skilja að ákveðnir aðilar hafi áhyggjur. „Ég skil auðvitað að fólk sem hefur til dæmis farið fram í fjölmiðlum með gífuryrðum, ásökunum og aðför að mannorði mínu hafi núna áhyggjur af því að ég muni koma aftur til starfa. En ég er búin að fara í gegnum þessa kosningu og er með þetta skýra um- boð félagsfólks til þess að stýra félag- inu. Það er nú bara svo,“ segir hún. Spurð hvort hún telji sig geta starfað áfram með öllum sem þarna vinna segir Sólveig: „Ég hef sagt það aftur og segi það aftur nú á ný að þær manneskjur sem hafa farið gegn mér opinberlega, til dæmis með greina- skrifum og vegið gróflega að mann- orði mínu, starfsheiðri og persónu, ég get ekki ímyndað mér að þær hafi sérstakan áhuga á að starfa áfram á sama vinnustað og ég,“ segir hún. Starfa áfram af heilindum Óformlegur starfsmannafundur var haldinn á skrifstofu Eflingar í gærmorgun og sagði Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Eflingar að stemningin hefði verið þung. Margir séu að meta sína stöðu en fólk sinni þó áfram starfi sínu af heilindum fyrir félagsmenn. Ólöf Helga Adolfsdóttir, núverandi varaformaður Eflingar og oddviti A- listans, er vonsvikin yfir því að hafa beðið lægri hlut í formannskjörinu en hún heldur þó ótrauð áfram sinni baráttu fyrir félagsmenn Eflingar, en hún á a.m.k. ár eftir af sinni stjórn- arsetu. Ólöf tók við sem varaformaður í nóvember á síðasta ári, eftir að Sól- veig Anna sagði af sér formennsku. Hún fer nú aftur í ritarastöðuna sem hún gegndi áður. Spurð hvernig legg- ist í hana að vinna aftur með Sólveigu segir Ólöf að það leggist bara vel í sig að halda áfram baráttunni fyrir fé- lagsmenn, óháð því hver er í for- mannssætinu. Henni beri skylda til þess að halda áfram. Ekki verði ráðist í uppsagnir án samráðs við stjórn Eflingar Ólöf segist hafa gætt sín á því í kosningabaráttunni að vera ekki með nein gífuryrði. „Ég kannski spurði nokkurra spurninga en að öðru leyti tel ég mig ekki hafa farið yfir neitt strik, borið út óhróður eða lygar,“ segir hún. Spurð hvort henni finnist Sólveig hafa gert það svarar hún því játandi. „Mér finnst hún hafa farið yfir strikið þegar kemur að starfsfólki skrifstof- unnar. Mér þykir mjög miður að hún hafi stillt þessu þannig upp að þetta væri starfsfólk skrifstofunnar á móti verkalýðnum. Sem það svo sann- arlega er ekki, enda er skrif- stofufólkið launafólk líka og mikið til félagsmenn í Eflingu. Þannig að mér finnst það mjög ósanngjarnt og er mjög óánægð með það.“ Spurð hvort hún búist við því að það verði einhverjar uppsagnir á skrifstofunni þegar Sólveig taki aftur við formennsku segir Ólöf það ekki formanns að taka slíkar ákvarðanir án samráðs við stjórnina. „Formaður hefur ekki neitt ein- vald. Stjórnin ber sameiginlega ábyrgð á hagsmunum félagsins. Hún mun ekki geta farið í neitt svona án þess að vera með stuðning frá stjórn- inni,“ segir Ólöf. Skilur áhyggjur af endurkomu - Sólveig Anna vill kalla saman aukaaðalfund strax vegna forystuskipta - Ólöf Helga segist halda ótrauð áfram baráttu fyrir félagsmenn Eflingar - Þung stemning á starfsmannafundi í gærmorgun Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ánægð Sólveig Anna, sem hefur verið endurkjörin formaður Eflingar, fagnaði kosningasigrinum með félögum sínum á kosningavöku í fyrrakvöld. Úrslit formannskosninga í Eflingu Fjöldi á kjörskrá og kjörsókn 2018 og 2021 2018 2021 Á kjörskrá Greiddu atkvæði A-LISTI stjórnar og trúnaðarráðs Fjöldi atkvæða: 2018: 519 / 2021: 1.434 B-LISTI Sólveigar Önnu Jónsdóttur Fjöldi atkvæða: 2018: 2.099 / 2021: 2.047 C-LISTI Fjöldi atkvæða: 2021: 331 Heimild: Efling 8,5% 37% 20% 52% 80%Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga 16.578 2.628 25.842 3.900 2018 2021 16% kjörsókn 15% kjörsókn B-listi Sólveigar Önnu og félaga fær alla fulltrúana sjö í 15 manna stjórn Eflingar sem kosnir voru í stjórnarkjörinu, þar sem framboðs- listinn fór með sigur af hólmi. Tals- vert fleiri kusu í kosningunum nú en í formannskjörinu árið 2018 eða 3.900 samanborið við 2.618 fyrir fjórum árum, sem er 49% aukning. Á sama tíma hefur félagsmönnum á kjörskrá aftur á móti fjölgað verulega. Þeir voru 16.578 þegar kosið var árið 2018 en 25.842 nú og hefur fjölgað um 55,9%. Kjör- sókn sem hlutfall af öllum atkvæð- isbærum félagsmönnum er lítið eitt minni nú, eða 15,09%, en árið 2018 þegar 15,8% kosningabærra félagsmanna á kjörskrá nýttu at- kvæðisrétt sinn. B-listi Sólveigar Önnu fékk 53,7% greiddra atkvæða í kjörinu sem lauk í fyrrakvöld en 80,2% í kosningunum árið 2018 en þá voru tveir listar í kjöri. B-listinn fékk heldur færri atkvæði í kosning- unum núna en fyrir fjórum árum eða 2.047 samanborið við 2.099 atkvæði árið 2018. A-listinn fékk 37,6% atkvæða en A-listi uppstill- inganefndar, sem boðinn var fram 2018 fékk þá 19,8% greiddra at- kvæða. Stuðningur B-listans meðal allra kosningabærra félagsmanna er 7,9% en var 12,6% árið 2018. omfr@mbl.is Fleiri kusu en fyrir fjórum árum B-LISTI SÓLVEIGAR ÖNNU FÉKK ALLA SJÖ STJÓRNARMENNINA Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Staðan er hægt og bítandi að verða viðráðanlegri,“ segir Gylfi Þór Þor- steinsson, forstöðumaður farsóttar- húsa Rauða krossins. Dregið verður úr starfsemi farsótt- arhúsanna á næstunni samfara afléttingum sam- komutakmarkana og breytingum á kórónuveiru- faraldrinum. Gylfi segir við Morg- unblaðið að hann búist við því að húsunum verði lokað hverju á fætur öðru. „Við erum með fjögur hótel í notkun í Reykjavík í dag og eitt á Akureyri. Hótelið á Akureyri er reyndar fullt núna og fyllist alltaf jafnharðan aftur. Faraldurinn þar í bæ er 2-3 vikum á eftir Reykjavík. Hér í Reykjavík er- um við með samninga um Hótel Lind út apríl en öðrum hótelum verður lok- að einu af öðru á næstunni.“ Hann segir að flestir sem greinast séu sem betur fer með tiltölulega væg einkenni. Lítið sé um ferðamenn á landinu sem þurfi á farsóttarhúsum að halda. Þó séu alltaf einhverjir sem þurfi að geta leitað til farsóttarhúsa. „Við höfum til dæmis verið að aðstoða heimilislausa sem hafa greinst og svo eru alltaf mismunandi aðstæður hjá fólki. Metfjöldi smita greindist á þriðjudag og margir þurfa að bíða í 2-3 daga eftir niðurstöðum og ein- angra sig á meðan. Það er enn þá ein- hver þörf fyrir okkur en hún fer minnkandi.“ Fækka farsóttar- húsum á næstunni - Hótel Lind út apríl - Enn er allt fullt á hótelinu á Akureyri Morgunblaðið/Eggert Sóttvarnahús Fjögur hús eru í notkun í Reykjavík en fækkar brátt. Gylfi Þór Þorsteinsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.