Morgunblaðið - 17.02.2022, Síða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022
Ambrose Evans-Pritchard leiðir
alþjóðleg viðskiptaskrif í The
Daily Telegraph og hefur í gegnum
tíðina reynst gleggri en margur um
stöðu og horfur. Í nýjasta pistli sín-
um er hann með hugann við Rúss-
land og efnahagslega stöðu þess
gagnvart
umheim-
inum.
- - -
Evans-
Pritch-
ard hefur
pistil sinn á
þessum orð-
um: „Rússland hefur safnað upp er-
lendum gjaldeyrisforða upp á 635
milljarða dala, sem er sá fimmti
mesti í heimi og heldur áfram að
vaxa. Skuldir Rússlands nema 18%
af landsframleiðslu, sem eru þær
sjöttu minnstu í heimi og fara
minnkandi.
Landið hefur hreinsað upp
bankakerfi sitt og heldur vel á fljót-
andi gjaldmiðli sínum sem gerir
hagkerfið sveigjanlegt.
Það er með afgang af rekstri rík-
issjóðs og treystir ekki á erlenda
fjárfesta til að fjármagna ríkisút-
gjöld. Það hefur minnkað mjög
hversu háð það er tekjum af olíu-
sölu ríkisins.“
- - -
Áfram heldur frásögnin af því
hve mjög Rússland hefur
styrkt stöðu sína efnahagslega og
hve vel það gæti staðist efnahags-
legar refsiaðgerðir. Þá kemur fram
að Rússland gæti stöðvað sölu á
gasi til Evrópu í tvö ár án þess að
lenda í alvarlegum fjárhagslegum
vanda. Evrópa, sem fær 41% af gasi
sínu frá Rússlandi, þyldi hins vegar
aðeins nokkrar vikur ef skrúfað
væri fyrir rússneska gasið, segir
Evans-Pritchard.
- - -
Þetta vekur upp spurningar um
hvorir þola betur harðar efna-
hagsþvinganir, ríki Vestur-Evrópu
eða Rússland.
Hvorir þola
þvinganirnar?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Stjórn Læknafélags Íslands (LÍ)
kom nýverið saman til fundar þar
sem samþykkt var að skora á stjórn-
völd að standa við þau fyrirheit að
efla heilsugæsluna.
Fjármögnun heilsugæsluþjónust-
unnar á höfuðborgarsvæðinu árin
2019-2022 hafi engan veginn fylgt
auknum verkefnum, auknum fjölda
samskipta, auknum fjölda skjólstæð-
inga og launaþróun. „Helsta aukn-
ingin undanfarin ár hefur verið í
fjármögnun sérverkefna, t.d. leg-
hálsskimana og geðheilsuteyma, en
fjármögnun grunnþjónustu í heilsu-
gæslu hefur setið eftir. Samhliða
þessu hafa komugjöld verið lækkuð
og lítur út fyrir að sá kostnaður hafi
verið látinn falla á þjónustuaðilana.
Skortur er á heimilislæknum og Ís-
land er eftirbátur nágrannaþjóða í
uppbyggingu grunnheilsugæslu. LÍ
er tilbúið að leggja fram tölulegar
upplýsingar, máli félagsins til stuðn-
ings.
Stjórn LÍ skorar á stjórnvöld að
standa við gefin loforð um eflingu
þessarar þjónustu, þar sem slíkt er
ekki sjáanlegt í þróun fjármögnunar.
Að telja almenningi trú um að verið
sé að efla ákveðna þjónustu þegar
slíkt stenst ekki nánari skoðun er
ekki ásættanlegt að mati félagsins,“
segir í ályktun Læknafélagsins.
Standi við fyrirheit um heilsugæsluna
- Læknafélag Íslands skorar á stjórn-
völd - Fjármagn ekki fylgt verkefnum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Heilsugæslan Sýnataka og bólu-
setningar eru viðbótarverkefni.
Gunnur Líf Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóra mannauðssviðs Sam-
kaupa, hlaut stjórnunarverðlaun
Stjórnvísis í flokki millistjórnenda.
Gunnur er aðeins 34 ára og segir í
umsögn dómnefndar að henni hafi
tekist að „umbreyta menningu
rótgróins fyrirtækis sem um mun-
ar“.
Afhendingin fór fram við hátíð-
lega athöfn á Grand hóteli í fyrra-
dag en þetta er þrettánda árið í röð
sem Stjórnvísi verðlaunar þá
stjórnendur fyrirtækja sem þykja
hafa skarað fram úr á sínu sviði.
Veitt voru verðlaun í þremur
flokkum.
Aðrir Handhafar Stjórn-
unarverðlauna Stjórnvísi 2022 eru:
Í flokki yfirstjórnenda Guðmundur
Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar
tryggingafélags. Í flokki milli-
stjórnenda Jóhann B. Skúlason, yf-
irmaður smitrakningarteymis al-
mannavarna, og Sigurjón Ólafsson,
sviðsstjóri þjónustu- og þróun-
arsviðs Hafnarfjarðarbæjar. Og í
flokki framkvöðla Stefanía Bjarney
Ólafsdóttir, stofnandi og fram-
kvæmdastjóri AVO.
Stjórnvísiverðlaunin Handhafar verðlauna ásamt forseta Íslands.
Umbreytti menningu
rótgróins fyrirtækis
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Eldhúsinnréttingar
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15