Morgunblaðið - 17.02.2022, Side 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022
Bergþór Pálmason 70 ára
fyrrverandi yfirþjónn
Það er gefandi
að vera sjálfboðaliði!
Þegar ég greindist með krabbamein naut ég aðstoðar
Ljóssins. Mig langaði að gefa til baka og hef unnið sem
sjálfboðaliði þar undanfarin ár.
Tilgangur Vöruhúss tækifæranna er að auðvelda fólki á þriðja æviskeiðinu að gera breytingar á lífi sínu
og láta óskir sínar rætast. Vöruhúsið er spennandi nýjung sem svarar kalli sífellt stækkandi hóps fólks sem
komið er yfir miðjan aldur og vill feta nýjar slóðir í lífinu á einn eða annan hátt.
Líttu inn á vöruhús tækifæranna.is
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Nýtt bakarí og kaffihús hefur verið opnað að
Seljavegi 2 í Vesturbæ Reykjavíkur, í sama
rými og veitingastaðurinn Héðinn Kitchen &
Bar. Innangengt er á milli staðanna.
Eigendur bæði kaffihússins og veitingastað-
arins eru veitingamennirnir margreyndu Elías
Guðmundsson og Viggó Vigfússon.
Blaðamaður Morgunblaðsins kíkti í heim-
sókn á Hygge, eins og nýi staðurinn heitir, og
fékk þar að gæða sér á lungamjúku súrdeigs-
brauði og bragðgóðu bakkelsi.
Viggó lýsir nýja staðnum sem Micro bakaríi,
sem þýðir að allar veitingar eru bakaðar á
staðnum.
Sérhannaðir bollar
Nostrað hefur verið við útlit kaffihússins og
allir kaffibollar, kertastjakar, blómavasar og
loftljós eru t.d. sérhönnuð fyrir Hygge.
Viggó segir að sérlega mikil áhersla hafi
verið lögð á hljóðvistina á kaffihúsinu. Gólf- og
loftefni hafi verið valin sérstaklega til að fólki
líði vel og finnist notalegt að sitja inni á staðn-
um, vinna í fartölvunni eða eiga þar samræður.
„Við vöndum alls staðar til verka, ekki bara í
bakkelsinu heldur í öllum smáatriðum innan-
húss.“
Viggó segir að þó svo að hann og Elías séu
eigendur Hygge þá eigi þær Guðrún Klara
Sigurðardóttir, sem hefur umsjón með rekstri
kaffihússins, og Þórey Lovísa Sigurmunds-
dóttir bakari langmesta heiðurinn af útkom-
unni. „Við Elías erum bara tveir miðaldra karl-
ar en þær eru ungar, hugmyndaríkar og
óhræddar að prófa nýja hluti. Það var frábært
að fá þær með okkur í verkefnið.“
Eins og Viggó útskýrir var mörgum hug-
myndum að nöfnum velt upp áður en Hygge
varð fyrir valinu. „Þórey kom með hugmynd-
ina og við leyfðum henni að ráða nafninu.“
Eins og stendur á útihurðinni merkir
danska orðið „hygge“ að eiga góða stund með
vinum sínum og fjölskyldu og hafa það nota-
legt saman.
Áður en Guðrún hóf störf á Hygge hafði hún
unnið sem þjónn og á kaffihúsi. „Ég kom svo
hingað, fór að skipta mér af og spurði hvort ég
mætti vera með,“ segir Guðrún og hlær.
Spurð um sína aðkomu segist Þórey hafa út-
skrifast sem bakari fyrir fjórum árum. Hún
hafi síðan tekið sér smá pásu þar til henni var
boðin vinna á Hygge. „Það var geggjað. Ég
vissi að ég átti að fara að baka, en ég vissi ekki
hve umfangsmikið það yrði.
Það hefur verið mjög gefandi að fá að taka
svona mikinn þátt í að móta starfsemina. Það
er gaman að fá þetta mikið traust frá yf-
irmönnum sínum.“
Fimm mánaða þróun
Viggó segir að fimm mánuði hafi tekið að
þróa rétta deigið í sætabrauðið, móta réttu
uppskriftirnar og finna besta hráefnið í mat og
drykki. „Þetta er búið að taka miklu lengri
tíma en við ætluðum, en við erum rosalega
ánægð með útkomuna. Við leggjum upp með
að hafa enga fasta ramma í vöruúrvalinu.
Þetta verður dálítið lifandi. Úrvalið verður
breytilegt.“
Þórey segir að spornað verði við matarsóun
á Hygge og ekkert fari til spillis. Þar skipti
máli að vera í nánu samstarfi við Héðinn Kitc-
hen & Bar.
Innblástur að utan
Viggó segir að innblásturinn fyrir kaffihúsið
komi frá Danmörku. Undir það taka Þórey og
Guðrún. „Innblásturinn kemur frá þessum
nýju skandinavísku kaffihúsum og bakaríum.“
Viggó segir aðspurður að Seljavegurinn sé
góð staðsetning fyrir kaffihús af þessari teg-
und. Í Vesturbænum sé mikið af ungu fólki
sem hafi ánægju af því að sækja kaffihús. Þá
muni fjölga um hundruð manna í hverfinu á
næstu misserum samfara mikilli uppbyggingu
á svæðinu. Enn fremur er Center hótel með
starfsemi á hæðunum fyrir ofan kaffihúsið
með næstum tvö hundruð hótelherbergi og
mun Hygge þjónusta hótelið rétt eins og Héð-
inn Kitchen & Bar gerir nú þegar.
Útisvæði með vorinu
Viggó bætir að lokum við að hann sjái fyrir
sér að útisvæði verði opnað með vorinu þar
sem gestir geti setið úti í sólinni, gætt sér á
huggulegum veitingum og notið lífsins.
Innblásturinn kemur frá Skandinavíu
- Micro bakarí þar sem allt er bakað á staðnum - Sömu eigendur og að Héðinn Kitchen & Bar
- Breytilegt úrval Engin matarsóun - Sérhannaðir innanstokksmunir - Hugað að hljóðvist
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Kaffi Viggó Vigfússon, Þórey Lovísa Sigurmundsdóttir og Guðrún Klara Sigurðardóttir á Hygge. Opið verður alla daga frá 8 til 17.
Birna Hafstein,
formaður Félags
íslenskra leikara,
sækist eftir 2.-3.
sæti í prófkjöri
Sjálfstæðis-
flokksins í
Reykjavík. Birna
er menntaður
leikari og hefur
gegnt marg-
víslegum stjórn-
unar- og trúnaðarstörfum í menn-
ingargeiranum. Hún situr m.a. í
stjórnum Samtaka skapandi greina
og Bandalags íslenskra listamanna,
Útflutnings- og markaðsráði Ís-
landsstofu, Kvikmyndaráði og Höf-
undarréttarráði og hefur áður setið
í stjórn Hörpu, Þjóðleikhúsráði og
stjórn Stockfish kvikmyndahátíðar,
og var í nokkur ár formaður
Bandalags sjálfstæðra leikhópa og
forseti Sviðslistasambands Íslands.
Birna stefnir á 2.-3.
sæti í Reykjavík
Birna
Hafstein
Orri Björnsson,
forstjóri líf-
tæknifyrirtæk-
isins Algalífs,
sækist eftir 2.
sæti í prófkjöri
Sjálfstæð-
isflokksins í
Hafnarfirði. Auk
uppbyggingar
Algalífs frá 2012
hefur hann starfað í lyfja- og líf-
tæknigeiranum víða um heim, m.a.
á vegum Sameinuðu þjóðanna.
Orri hefur gegnt trúnaðar-
stöðum fyrir Sjálfstæðisflokkinn
bæði í Hafnarfirði og á landsvísu. Í
bæjarmálum hefur hann gegnt for-
mennsku í ýmsum starfshópum,
ráðum og nefndum, auk starfa í
bæjarstjórn.
Á árum áður gat Orri sér frægð-
ar sem einn helsti glímukappi
landsins.
Orri Björnsson vill
2. sæti í Hafnarfirði
Orri Björnsson
2022 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
Atli Stefán Yngvason viðskiptafræðingur býður sig fram
í 1.-3. sæti á framboðslista Pírata fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar í vor en prófkjör Pírata í Reykja-
vík fer fram 22.-26. febrúar.
Fram kemur í tilkynningu að Atli Stefán hafi rekið
ráðsölustofuna Koala, sé meðstofnandi Vegangerð-
arinnar og stýri hlaðvarpinu Tæknivarpinu. Hann er
jafnframt formaður Pírata í Reykjavík.
Segir Atli Stefán í tilkynningunni að Píratar hafi verið
að skila góðu starfi í Reykjavík. Til að móta og viðhalda
góðu samfélagi þurfi fagleika, gagnsæi og samvinnu.
Taka þurfi góðar ákvarðanir og útfæra þær af vandvirkni.
Býður sig fram í prófkjöri Pírata
Atli Stefán
Yngvason