Morgunblaðið - 17.02.2022, Síða 20

Morgunblaðið - 17.02.2022, Síða 20
20 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022 Við kynnumst tveimur spennandi löndum með sína framandi menningarheima og mikla náttúrfegurð, sem lætur engan ósnort- inn. Kynnumst hinum æva gömlu höfuðborgum Yerevan og Tblisi, förum upp í Kákassufjöllin, skoðum ævagömul klaustur, virki og kirkjur. Kynnumst vel vínmenningu landanna og fáum að smakka. Röltum um gamlan heilsubæ, göngum eftir hengibrú. Ekki má gleyma fólkinu sem tekur okkur fagnandi en íbúar beggja landa eru einstaklega gestrisnir og kynnumst við þeim. Við erum í ævintýri sem er við allra hæfi. Síðumúli 29 - 108 Reykjavík | Sími 588 8900 info@transatlantic.is | www.transatlantic.is Perlur Kákasusfjalla, hlið Evrópu að Miðausturlöndum og Asíu Forn menning, heillandi mannlíf, hrífandi saga og stórkostleg náttúra Georgía og Armenía 20.-30. maí 2022 Innifalið er flug með tösku, hótel með morgunmat, fullt fæði í Georgiu og Armeniu, allar skoðunarferðir, ísl. farastjóri ásamt heimamanni og aðgangur þar sem við á. Verð á mann í 2ja manna herbergi er 359.700 kr. Takmarkaður fjöldi. Takmarkað sætamagn Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Kaka ársins 2022, sem svo er kölluð, kemur í sölu í dag, samkvæmt venju rétt fyrir konudaginn. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir iðnaðarráðherra tók í gær á móti fyrstu kökunni, sem valin var eftir keppni meðal bakara. Sigurvegarinn í ár var Rúnar Felix- son, bakarameistari hjá Mosfellsbak- aríi. Kakan, sem þykir sérstaklega bragðgóð, er með pistasíu-mousse með creme-brulee-miðju, hindberja- geli og stökkum pistasíubotni, hjúpuð súkkulaði og toppuð með pist- asíukremi. Hún verður í sölu í bak- aríum landsins út þetta ár. „Ég hafði lengi haft í huga að búa til köku þar sem hindber og pist- asíuhnetur væru saman. Þetta þurfti auðvitað sína útfærslu og nokkrar til- raunir, en svo gekk allt upp að lok- um,“ segir Rúnar Felixson bakari í samtali við Morgunblaðið. Alls tíu kökur bárust í keppnina, fjórar kom- ust í undanúrslit og Rúnar átti tvær þeirra. Hin kakan úr hans smiðju var með mandarínur og heslihnetur sem uppistöðu. Bragðast vel, segir bak- arinn, sem telur ekki ólíklegt að hnossgæti þetta fari í sölu í sumar. Bakari í 31 ár Rúnar Felixson hefur starfað við bakaraiðnina í alls 31 ár. Hóf störf í Mosfellsbakaríi síðasta haust en hef- ur komið víða við á löngum ferli. „Mér finnst þetta alltaf jafn skemmtilegt starf. Er alltaf að fá nýj- ar og skemmtilegar hugmyndir að einhverju sem útbúa má og sigur í keppninni nú er pepp til að halda áfram. Hér í Mosfellsbakaríi er köku- baksturinn á minni könnu, bæði það sem er selt í búðinni og sérpantað til dæmis í veislur. Núna eru skemmti- legir tímar að ganga í garð í starfinu, konudagurinn er rétt að detta inn, svo kemur bolludagurinn sem er mikil hátíð í nánast heila viku. Þegar henni sleppir er síðan orðið stutt í fyrstu fermingarnar með öllum sín- um veislum,“ segir Rúnar. Ljósmynd/Birgir Ísleifur Kaka Frá vinstri: Hafliði Ragnarsson, formaður Landssambands bakarameistara, Rúnar Felixson bakarameistari, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir iðnaðarráðherra og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Bragðgóð og hjúpuð með hindberjum og hnetum - Kaka ársins frá Rúnari - Hnossgæti - Tíu í úrslitum Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Slökkviliðið á Akureyri hefur fengið nýjan björgunarstigabíl sem leysir af hólmi eldri körfubíl sem er frá árinu 1989. Stigabíllinn er af gerð- inni Scania, stiginn og yfirbyggingin var smíðuð í Frakklandi og eru fulltrúar seljenda bílsins væntan- legir til Akureyrar þar sem kenna á nokkrum liðsmönnum á bílinn. Þeir munu í kjölfarið miðla af þekkingu sinni til allra annarra starfsmanna slökkviliðsins. Maron Pétursson, deildarstjóri hjá slökkviliðinu á Akureyri, segir að með tilkomu nýja bílsins verði gríð- arleg breyting til hins betra þegar kemur að björgunarstörfum. Nýi bíllinn er búinn margvíslegum nú- tímaþægindum sem þann gamla skortir. Það flýtir fyrir öllum ferlum og auðveldar störf hvort heldur er unnið við að bjarga mannslífum eða verðmætum. Hann segir eldri bílinn ekki henta lengur, víða hátti þannig til á Akur- eyri að götur séu þröngar og erfitt að komast um á svifaseinum bíl. Farið var að ræða um bílaskipti fyrir sjö árum, en tímamót urðu í október árið 2020 þegar skrifað var undir samn- ing um kaup á Scania-bílnum. „Það hafa svo eins og gengur á tímum heimsfaraldurs orðið tafir á afhend- ingu, en loks er bíllinn kominn norð- ur og má segja að langþráður draumur okkar hafi ræst,“ segir Maron. Veitir mikið öryggi Stigabíllinn kemst 32 metra upp í loft í beinni stöðu og við bætast tveir metrar, frá jörðu og upp í stiga. Hitamyndavél er í bílnum sem gerir að verkum að menn eru fljótari að greina hvar mestur hiti er í brenn- andi byggingum, það flýti mjög fyrir öllu björgunarstarfi að sögn Marons. Þá nýtist bíllinn við fleira en útköll vegna elds. Hann segir að ekki síður sé horft til björgunarstarfa í tengslum við umferðarslys, m.a. þeg- ar bílar lenda utan vega. Þá er hægt að nýta bílinn til að sækja slasað fólk og ferja það í körfunni að sjúkrabíl í stað þess að ganga með það langar leiðir. „Þessi bíll veitir okkur öllum íbúum bæjarins mikið öryggi og við fögnum því innilega að hafa fengið hann til afnota,“ segir Maron. Nýr stigabíll til slökkvi- liðsins á Akureyri - Kemst 32 metra upp í loft - Leysir af eldri bíl frá 1989 Akureyri Maron Pétursson er deildarstjóri slökkviliðsins á Akureyri. Morgunblaðið/Margrét Þóra Stigabíll Nýi stigabíllinn nær 32 metra upp í loft. Hann er búinn mörgum kostum, m.a. hitamyndavél, og leysir af hólmi körfubíl frá árinu 1989. Á aukaaðalfundi Bílgreina- sambandsins (BGS) sl. þriðjudag var samþykkt tillaga stjórnar um að sameinast Samtökum verslunar og þjónustu (SVÞ). Þessir aðilar undirrituðu vilja- yfirlýsingu fyrir rúmu ári um aukið samstarf. Frá undirritun yfirlýsing- arinnar hafa samtökin unnið saman að hagsmunamálum aðildarfyrir- tækja hvorra tveggja samtaka og hefur reynslan af samstarfinu í senn verið jákvæð og leitt fram víðtæk samlegðaráhrif, segir í tilkynningu. Í ljósi reynslunnar af samstarfi BGS og SVÞ undanfarið ár ákváðu stjórnir samtakanna að tillaga um sameiningu yrði lögð fyrir aðalfund hvorra tveggja samtaka. Niðurstaða fundar BGS var einróma samþykki sameiningar en aðalfundur SVÞ fer síðan fram 17. mars. Verði samein- ingin samþykkt þar þá tekur hún gildi 1. apríl næstkomandi. Bílgreinasambandið sameinast SVÞ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.