Morgunblaðið - 17.02.2022, Side 24

Morgunblaðið - 17.02.2022, Side 24
24 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022 Miðstöð íslenskra bókmennta auglýsir eftir styrkumsóknum Þýðingastyrkir eru veittir til að þýða á íslensku mikilvæg verk úr samtímanum, erlendar fagur- bókmenntir og fræðirit. Einnig myndríkar bækur fyrir börn og ungmenni. Barna- og ungmennabóka– sjóðurinn Auður styrkir útgáfu vandaðra bóka sem skrifaðar eru á íslensku, fyrir yngri lesendur. Umsóknarfrestur er til 15. mars 2022 Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á www.islit.is eru veittir til útgáfu og miðlunar íslenskra ritverka, þar sem kappkostað er að styrkja verk sem hafa menningarlegt og þekkingarfræðilegt gildi. Útgáfustyrkir Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Umhverfis- og loftslagsmál og græn verkefni eru áskorun fyrir samfélagið allt sem um leið fela í sér mikil tækifæri. Nú teljum við mikil- vægt að umræðan verði svo að segja tekin niður á jörðina og formgerð, svo úr megi skapa lausnir,“ segir Árni Sigurjónsson, formaður Sam- taka iðnaðarins. Á dögunum var á vettvangi sam- takanna hrundið af stað Ári grænn- ar iðnbyltingar. Til þess er efnt í því skyni að vekja athygli á mikilvægi grænna umskipta í íslensku at- vinnulífi. Grunnstefið þar er sam- kvæmt markmiðum stjórnvalda; að Ísland verði kolefnishlutlaust og óháð jarðefnaeldsneyti fyrir árið 2040. Það helst aftur í hendur við markmið Parísarsamningsins um að halda hnattrænni hlýnun innan við 2°C og leita leiða til að takmarka hlýnun við 1,5°C. Ísland hefur alla burði til að ná forystu í loftslagsmálum og græn- um lausnum, segir Árni. Forskot okkar felist í reynslu og þekkingu Íslendinga við framleiðslu og nýt- ingu á endurnýjanlegri orku. Hjá mörgum íslenskum fyrirtækjum sé sömuleiðis unnið að þróun lausna sem stuðla eiga að minni kolefn- islosun. Samtök iðnaðarins tileinkuðu árið 2020 nýsköpun. Umhverfis- og lofts- lagsmál komu þar eðlilega inn í myndina. Nú stendur til að skerpa þar á og komast lengra. Á síðustu árum hafa, segir Árni, verið gerðar miklar breytingar til hins betra á starfsumhverfi nýsköpunarfyr- irtækja og mikilvægt er að nýta þann meðvind og bæta í eins og hægt er. Leiðarvísir að markmiðum „Umhverfismál eru rædd af sífellt meiri þunga í atvinnulífinu. Til þess að nálgast þann vanda, sem við stöndum frammi fyrir, á ábyrgan og lausnamiðaðan hátt þá höfðum við á síðasta ári meðal annars forgöngu um að útbúinn yrði á vettvangi Grænvangs Loftslagsvegvísir at- vinnulífsins, sem mæltist vel fyrir. Þar er meðal annars að finna ýmis hagnýt ráð og leiðir sem geta hjálp- að til við að ná árangri svo markmið stjórnvalda um kolefnishlutlaust Ís- land árið 2040 verði að veruleika,“ segir Árni og heldur áfram: „Í grænum verkefnum þarf ann- ars að skapa rétta umgjörð svo lausnirnar verði til. Til þess þarf bæði viðeigandi regluverk og fjár- magn. Í Þýskalandi var nýlega kynntur fjárfestingapakki stjórn- valda upp á rúmlega 40 milljarða evra í þeim tilgangi að umbreyta innlendum orkuiðnaði og sam- göngum til að ná loftslagsmark- miðum. Sambærileg stefna er rekin í mörgum öðrum löndum í Norður- Evrópu, eins og Íslendingar þurfa að hafa til hliðsjónar.“ Álið og kolefnið Ýmsar grænar og gagnmerkar staðreyndir úr íslensku atvinnulífi liggja fyrir, rétt eins og Samtök iðn- aðarins benda á. Þar er til dæmis tiltekið að í álverunum hafi kolefn- isnotkun fyrir hvert framleitt tonn af áli dregist saman um 75% frá árinu 1990. Slíkt hefur gerst með nýjum vinnubrögðum sem þróuð hafa verið á grundvelli rannsókna. Stóriðjan hafi sett sér markmið um kolefnishlutleysi og hafa nokkur fyrirtæki farið í samstarf við ís- lenska fyrirtækið Carbfix um að binda koltvísýring í berg. Einnig er bent á að starfsemi stoðtækjaframleiðandans Össurar hafi verið kolefnishlutlaus í fyrra. Algalíf, sem framleiðir fæðubót- arefni úr smáþörungum sem fyrir- tækið ræktar, hefur fengið vottun fyrir kolefnishlutleysi á sínum vörum. Þá eru á Íslandi ýmis fyrir- tæki sem vinna að úrvinnslu á sorpi og eru leiðandi á sínu sviði í þessum málum. Árangurinn spyrst út „Árangur Íslands í loftslags- málum spyrst út og vekur athygli. Áðurnefndur Grænvangur, sem er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir, og Samtök iðnaðar- ins eiga aðild að, hefur miðlað sög- um um þetta út um heim allan. Vel hefur gengið að vekja athygli er- lendis á því sem við höfum fram að færa, til dæmis í erlendum fjöl- miðlum. Þá hefur sýningin Græn framtíð, sem hýst er í Grósku í Vatsnmýrinni í Reykjavík og fjallar um framlag okkar til loftslagsmála, markmið og lausnir, vakið athygli en Friðrik krónprins Danmerkur var fyrsti gesturinn til að skoða sýn- inguna í lok síðasta árs. Óhætt er að segja að við getum sannarlega aukið verðmætasköpun á þessum grunni. Eflt frekar hugverkaiðnað, sem er orðinn fjórða stoð hagkerfisins og gæti orðið helsta útflutningsgrein Íslendinga,“ segir Árni og áfram: „Okkur Íslendingum þykir held ég öllum afar vænt um náttúruna og landið okkar. Umræðan um um- hverfis- og loftslagsmál tekur stundum óvænta stefnu því hún vill vera tilfinningahlaðin. En hér er samt mikilvægt að halda stað- reyndum til haga, svo sem að í orkufrekum iðnaði eru fyrirtækin að vinna alveg frábært starf í umhverf- ismálum með kolefnisjöfnun og minni útblæstri. Sjávarútvegur, sem oft á samleið með iðnaði, hefur gert ótrúlega hluti með tilliti til grænna sjónarmiða. Nú bregður hins vegar svo við að hita þarf katla fiskimjöls- verkmiðjanna með olíu af því fram- boð á raforku dugar ekki. Slíkt kall- ar á úrbætur í öflun grænnar raforku og flutningskerfi hennar, því við núverandi aðstæður verður orkuskiptum ekki komið við í sum- um landshlutum. Það er óþolandi og óviðunandi staða. Skapa verður grænum lausnum sem best skil- yrði.“ Forskotið felst í reynslu og þekkingu - SI slær tón - Græn bylting - Verk- efni og umgjörð - Verðmætasköpun Morgunblaðið/Sigurður Bogi Grænt Umræðan um loftslagsmál verði svo að segja tekin niður á jörðina og formgerð, svo úr megi skapa lausnir,“ segir Árni Sigurjónsson, formaður Samtaka iðnaðarins, um verkefnin sem eru fram undan á vettvangi samtakanna. Morgunblaðið/Árni SæbergMorgunblaðið/Sigurður Bogi Umhverfi Hop jökla er ein helsta birtingarmynd loftslagsbreytingar á Íslandi. Gegn þeim má vinna meðal annars með betri nýtingu á grænni endurnýjanlegri orku og því að og draga úr losun. Samtök iðnaðarins boða til Iðnþings þann 10. mars nk., þar sem græna iðnbyltingin verður í brennidepli. Þá stefna Samtök iðnaðarins að því að gera á næstunni greiningar á umhverfisáhrifum, áskorunum og tækifær- um einstakra geira iðnaðar, það er byggingariðnaði, matvælaframleiðslu og svo framvegis. Margt fleira er í bígerð. „Við teljum mikilvægt að dýpka umræðuna og gefa skýr dæmi um hvaða grænu breytinga er þörf á einstaka sviðum. Áhugi félagsmanna okkar á umhverfis- og loftslagsmálum er raunverulegur og því höfum við lagt mikla áherslu á að fá þá að borðinu með sín sjónarmið, sem hefur ver- ið ánægjulegt ferli,“ segir Árni Sigurjónsson og heldur áfram: Í gegnum tíðina höfum við sem störfum í iðnaðinum tekið ýmis mál fyr- ir eins og nú er gert, brotið þau til mergjar og mótað stefnuna samkvæmt því. Sum af stefnumálum okkar eru auðvitað eilífðarmál, svo sem starfs- skilyrði atvinnugreinarinnar almennt. Nú setjum við grænu málin hins vegar efst á blað og gerum að sérstöku áhersluefni þetta árið, því þau skipta samfélagið miklu og í þeim felast líka mikil tækifæri til framtíðar.“ Áhuginn er raunverulegur GRÆNU MÁLIN ERU TÆKIFÆRI FRAMTÍÐAR Morgunblaðið/Sigurður Bogi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.