Morgunblaðið - 17.02.2022, Page 28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Loðnuskipin sem voru að veiðum í
gær voru flest vestan við Eyjar. Góður
gangur hefur verið í vertíðinni síðustu
daga, en loðnan gengur hratt vestur
með suðurströndinni. Stefán Frið-
riksson, framkvæmdastjóri Ísfélags
Vestmannaeyja, segir að vonandi
verði gott veður, góð veiði og kröftug-
ar loðnugöngur á næstunni svo allt
gangi upp og kvótinn náist. „Menn eru
bjartsýnir þegar veðurspáin er góð, en
svartsýnni ef spáir illa,“ segir Stefán.
Hann segir að góð loðna hafi veiðst
undanfarið, en algengt sé að stærsta
loðnan sé í fremstu göngunni. Hrogna-
fylling er nú 15-16% og í vikunni var
byrjað að frysta hrygnu fyrir Japans-
markað. Hrognafylling eykst með
hverjum deginum og gæti hrognataka
byrjað um eða upp úr mánaðamótum í
Faxaflóa og Breiðafirði.
Afkastamikill floti
Stefán segir að vertíðin, sem byrjaði
í desember, hafi verið erfið veðurfars-
lega, en flotinn sé afkastamikill og bú-
ið sé að veiða yfir helming heildarkvót-
ans upp á 662 þúsund tonn. Þangað til
í lok síðustu viku veiddu skipin í troll
fyrir norðaustan land, en skiptu þá yf-
ir á nót. Nótaveiðar séu mun háðari
góðu veðri og í lægðagangi eins og
verið hefur í vetur geti verið erfitt að
athafna sig við suðurströndina.
Spurður um markaði segir Stefán
að eftirspurn sé eftir loðnuafurðum á
mörkuðum. Verð sé almennt við-
unandi, en ekki sambærilegt við ver-
tíðina í fyrra þegar kvótinn var miklu
minni en núna og kom í kjölfar tveggja
ára án loðnuafla.
Mjöl og lýsi fer að stórum hluta til
Noregs og Skotlands, þar sem helstu
kaupendur eru framleiðendur fóðurs
fyrir fiskeldi. Nokkur frysting hefur
verið á hæng fyrir markaði í Austur-
Evrópu og byrjað er að frysta hrogna-
loðnu á Japan. Verðmætasta afurðin
er síðan loðnuhrognin í lok vertíðar og
segir Stefán að eftirspurn sé eftir
þeim og reiknað sé með mikilli fram-
leiðslu.
Á heimasíðu Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað var í fyrradag haft eftir
Tómasi Kárasyni, skipstjóra á Beiti
NK, að vertíðin hefði gengið vel til
þessa, „þetta er þrusuvertíð“. Troll-
veiðin hafi staðið lengi og verið drjúg.
„Útlitið er bara gott að mínu mati
varðandi framhald vertíðarinnar. Það
er oft sem loðnan fer að þétta sig þeg-
ar hún er komin vestur fyrir strenginn
en að undanförnu hefur hún verið dá-
lítið tætingsleg,“ sagði Tómas.
Komnir með 60 þúsund tonn
Í gærmorgun mátti sjá norsku skip-
in halda hvert af öðru úr fjörðum
eystra, þar sem þau höfðu haldið sig
vegna veðurs. 30 þeirra voru komin á
loðnuslóð upp úr hádegi. Annar eins
fjöldi beið þess að fá leyfi til að hefja
veiðar, en 30 skip mega vera að veið-
um á sama tíma.
Síðasti veiðidagur Norðmanna á
vertíðinni hér við land er á þriðjudag-
inn. Samkvæmt upplýsingum Land-
helgisgæslunnar voru norsku skipin
búin að tilkynna um 60 þúsund tonna
afla í gær, en þau mega alls veiða 145
þúsund tonn í lögsögunni.
Morgunblaðið/Börkur Kjartansson
Nótaveiðar Sigurður VE, skip Ísfélagsins, á veiðum undan Suðurlandi fyrir nokkrum dögum. Skipin voru við Eyjar í gær og afli var yfirleitt góður. Búið er að veiða rúmlega helming kvótans.
Góð loðnuveiði vestan við Eyjar
- Eftirspurn eftir afurðum og viðunandi verð - Hrognafylling nú 15-16% og fryst fyrir Japan
Brælur til sjávarins hafa verið
lyftistöng fyrir Vök Baths
skammt frá Egilsstöðum að und-
anförnu. Norskir sjómenn á
loðnuskipunum, sem hafa verið
að veiðum úti fyrir Austurlandi
síðustu vikur, hafa fjölmennt í
fljótandi náttúrulaugarnar hjá
Vök. Oft hafa þeir þurft að bíða
inni á höfnum eystra eftir að
veður gengi niður á miðunum
eða eftir að fá leyfi til að hefja
veiðar. Þá hefur verið notalegt að
geta brugðið sér í Vök.
„Þeir hafa komið hingað nokk-
ur kvöld síðustu vikur, oft um 15
manns og mest rúmlega 30 í
einu,“ segir Aðalheiður Ósk Guð-
mundsdóttir, framkvæmdastjóri
Vök Baths. „Þetta hefur gengið
vel fyrir sig, einu áskorarnirnar
hafa tengst því að við eigum ekki
til ótakmarkað af sundskýlum.
Flestir hafa sjómennirnir þurft
að leigja sundskýlu enda eru þær
tæpast staðalbúnaður þegar far-
ið er á loðnuvertíð. Suma daga
hafa skýlurnar verið á þrotum,
en allt hefur þetta bjargast.“
Aðalheiður segir að alla jafna
séu janúar og febrúar rólegir
mánuðir. Í ár hafi áhugi árskorta-
hafa, bestu viðskiptavina hjá
Vök, og norsku sjómennirnir fært
aukið líf í laugarnar síðustu vik-
urnar. Hún segir útlitið gott í ár
og talsvert sé um fyrirspurnir frá
erlendum og innlendum hópum.
Vök Baths tók til starfa í júlí
2019 og nánast allan tímann hef-
ur glíma við heimsfaraldur verið í
gangi. Aðalheiður segir að síð-
asta ár hafi 62% viðskiptavina
verið innlendir og þrátt fyrir tak-
markanir verði árið gert upp með
hagnaði.
Sundskýlur
á þrotum
VINSÆLL VIÐKOMUSTAÐUR
Vök Baths Í laugunum á sumardegi.
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
VARAHLUTIR Í
KERRUR
2012
2021
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum