Morgunblaðið - 17.02.2022, Síða 28

Morgunblaðið - 17.02.2022, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Loðnuskipin sem voru að veiðum í gær voru flest vestan við Eyjar. Góður gangur hefur verið í vertíðinni síðustu daga, en loðnan gengur hratt vestur með suðurströndinni. Stefán Frið- riksson, framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja, segir að vonandi verði gott veður, góð veiði og kröftug- ar loðnugöngur á næstunni svo allt gangi upp og kvótinn náist. „Menn eru bjartsýnir þegar veðurspáin er góð, en svartsýnni ef spáir illa,“ segir Stefán. Hann segir að góð loðna hafi veiðst undanfarið, en algengt sé að stærsta loðnan sé í fremstu göngunni. Hrogna- fylling er nú 15-16% og í vikunni var byrjað að frysta hrygnu fyrir Japans- markað. Hrognafylling eykst með hverjum deginum og gæti hrognataka byrjað um eða upp úr mánaðamótum í Faxaflóa og Breiðafirði. Afkastamikill floti Stefán segir að vertíðin, sem byrjaði í desember, hafi verið erfið veðurfars- lega, en flotinn sé afkastamikill og bú- ið sé að veiða yfir helming heildarkvót- ans upp á 662 þúsund tonn. Þangað til í lok síðustu viku veiddu skipin í troll fyrir norðaustan land, en skiptu þá yf- ir á nót. Nótaveiðar séu mun háðari góðu veðri og í lægðagangi eins og verið hefur í vetur geti verið erfitt að athafna sig við suðurströndina. Spurður um markaði segir Stefán að eftirspurn sé eftir loðnuafurðum á mörkuðum. Verð sé almennt við- unandi, en ekki sambærilegt við ver- tíðina í fyrra þegar kvótinn var miklu minni en núna og kom í kjölfar tveggja ára án loðnuafla. Mjöl og lýsi fer að stórum hluta til Noregs og Skotlands, þar sem helstu kaupendur eru framleiðendur fóðurs fyrir fiskeldi. Nokkur frysting hefur verið á hæng fyrir markaði í Austur- Evrópu og byrjað er að frysta hrogna- loðnu á Japan. Verðmætasta afurðin er síðan loðnuhrognin í lok vertíðar og segir Stefán að eftirspurn sé eftir þeim og reiknað sé með mikilli fram- leiðslu. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað var í fyrradag haft eftir Tómasi Kárasyni, skipstjóra á Beiti NK, að vertíðin hefði gengið vel til þessa, „þetta er þrusuvertíð“. Troll- veiðin hafi staðið lengi og verið drjúg. „Útlitið er bara gott að mínu mati varðandi framhald vertíðarinnar. Það er oft sem loðnan fer að þétta sig þeg- ar hún er komin vestur fyrir strenginn en að undanförnu hefur hún verið dá- lítið tætingsleg,“ sagði Tómas. Komnir með 60 þúsund tonn Í gærmorgun mátti sjá norsku skip- in halda hvert af öðru úr fjörðum eystra, þar sem þau höfðu haldið sig vegna veðurs. 30 þeirra voru komin á loðnuslóð upp úr hádegi. Annar eins fjöldi beið þess að fá leyfi til að hefja veiðar, en 30 skip mega vera að veið- um á sama tíma. Síðasti veiðidagur Norðmanna á vertíðinni hér við land er á þriðjudag- inn. Samkvæmt upplýsingum Land- helgisgæslunnar voru norsku skipin búin að tilkynna um 60 þúsund tonna afla í gær, en þau mega alls veiða 145 þúsund tonn í lögsögunni. Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Nótaveiðar Sigurður VE, skip Ísfélagsins, á veiðum undan Suðurlandi fyrir nokkrum dögum. Skipin voru við Eyjar í gær og afli var yfirleitt góður. Búið er að veiða rúmlega helming kvótans. Góð loðnuveiði vestan við Eyjar - Eftirspurn eftir afurðum og viðunandi verð - Hrognafylling nú 15-16% og fryst fyrir Japan Brælur til sjávarins hafa verið lyftistöng fyrir Vök Baths skammt frá Egilsstöðum að und- anförnu. Norskir sjómenn á loðnuskipunum, sem hafa verið að veiðum úti fyrir Austurlandi síðustu vikur, hafa fjölmennt í fljótandi náttúrulaugarnar hjá Vök. Oft hafa þeir þurft að bíða inni á höfnum eystra eftir að veður gengi niður á miðunum eða eftir að fá leyfi til að hefja veiðar. Þá hefur verið notalegt að geta brugðið sér í Vök. „Þeir hafa komið hingað nokk- ur kvöld síðustu vikur, oft um 15 manns og mest rúmlega 30 í einu,“ segir Aðalheiður Ósk Guð- mundsdóttir, framkvæmdastjóri Vök Baths. „Þetta hefur gengið vel fyrir sig, einu áskorarnirnar hafa tengst því að við eigum ekki til ótakmarkað af sundskýlum. Flestir hafa sjómennirnir þurft að leigja sundskýlu enda eru þær tæpast staðalbúnaður þegar far- ið er á loðnuvertíð. Suma daga hafa skýlurnar verið á þrotum, en allt hefur þetta bjargast.“ Aðalheiður segir að alla jafna séu janúar og febrúar rólegir mánuðir. Í ár hafi áhugi árskorta- hafa, bestu viðskiptavina hjá Vök, og norsku sjómennirnir fært aukið líf í laugarnar síðustu vik- urnar. Hún segir útlitið gott í ár og talsvert sé um fyrirspurnir frá erlendum og innlendum hópum. Vök Baths tók til starfa í júlí 2019 og nánast allan tímann hef- ur glíma við heimsfaraldur verið í gangi. Aðalheiður segir að síð- asta ár hafi 62% viðskiptavina verið innlendir og þrátt fyrir tak- markanir verði árið gert upp með hagnaði. Sundskýlur á þrotum VINSÆLL VIÐKOMUSTAÐUR Vök Baths Í laugunum á sumardegi. Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is stalogstansar.is VARAHLUTIR Í KERRUR 2012 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.