Morgunblaðið - 17.02.2022, Qupperneq 30
DAGMÁL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
„Það virðist vera að Drífa Snædal sé
að einangrast og það mun hafa heil-
mikil áhrif á kjaraviðræður ef það
rætist.“
Þetta segir Gísli Freyr Valdórs-
son, ráðgjafi hjá KOM og ritstjóri
Þjóðmála, þegar litið er yfir nýjustu
atburði í valdabaráttunni innan
verkalýðshreyfingarinnar þar sem
Sólveig Anna Jónsdóttir náði að nýju
völdum í Eflingu, næststærsta stétt-
arfélagi landsins.
Hörður Ægisson, ritstjóri Inn-
herja á visir.is, tekur í sama streng
og segir vendingar síðustu vikna
hafa komið á óvart þar sem Vilhjálm-
ur Birgisson, formaður Verkalýðs-
félags Akraness, og Ragnar Ingólfs-
son, formaður VR, lýstu yfir
stuðningi við framboð hennar. Bend-
ir Hörður á að það hafi ekki alltaf
verið miklir kærleikar milli þeirra,
m.a. þegar lokisins tókst að reka
smiðshöggið á hina svokölluðu lífs-
kjarasamninga árið 2019.
Launakröfur áfram miklar
Þeir telja báðir að stefni í nokkur
átök á vinnumarkaði á árinu, þar
sem áfram verði sótt á miklar launa-
hækkanir. Hins vegar sé óvíst að
vinnumarkaðurinn í heild muni taka
undir ákall um sérstakt átak við
hækkun lægstu launa. BHM og fleiri
aðilar hafi sagt að nú verði áhersla
fremur lögð á prósentuhækkanir á
öll laun. Hörður segir í samtalinu í
Dagmálum að margt bendi til þess
að verðbólga muni fara í 7% á þessu
ári og að það undirstriki mikilvægi
þess að allir aðilar stilli saman
strengi. Varhugavert sé fyrir verka-
lýðshreyfinguna að líta aðeins til
hagnaðartalna stærstu skráðu fyrir-
tækja landsins, hagkerfið sé ekki
byggt upp í kringum þau heldur
minni fyrirtæki þar sem annar veru-
leiki blasi við, m.a. vegna mikils auk-
ins launakostnaðar síðustu árin.Tali
gegn betri vitund.
Arðsemin hefur verið vandamál
Í liðinni viku kom í ljós að við-
skiptabankarnir þrír, Landsbank-
inn, Íslandsbanki og Arion banki
höfðu skilað um 80 milljarða hagnaði
á liðnu ári. Hörður segir að það sé
ágæt útkoma fyrir bankana en að
vandinn á fyrri árum hafi einmitt
verið sá að arðsemi af starfsemi
bankanna hafi ekki staðist saman-
burð við aðra banka á Norðurlönd-
um. Ljóst sé að tekjurnar nú komi
ekki af okurlánastarfsemi eða aukn-
um umsvifum á húsnæðismarkaði
heldur þóknanatekjum og jákvæðum
virðisbreytingum.
Tali um hug sinn þvert
Spurðir út í hugmyndir Lilju Al-
freðsdóttur, menningar- og við-
skiptaráðherra um að leggja aukinn
bankaskatt á fyrirtækin ef þeir skili
ekki hluta af arðsemi sinni aftur til
heimilanna í landinu, segja þeir báðir
að tillögur hennar séu ótrúverðugar.
Fullyrðir Gísli Freyr beinlínis að
hún geti ekki haft raunverulega trú á
að þessar tillögur muni skila nokkru.
Spurður út í viðbrögð Benedikts
Gíslasonar, bankastjóra Arion
banka, sem brást jákvætt við hug-
myndum Lilju, segir Hörður að þau
beri helst vott um að þungavigtar-
fólk á fjármálamarkaði hafi litla trú á
að raunverulegur hljómgrunnur sé
fyrir málflutningi ráðherrans.
Forseti ASÍ virðist vera að
einangrast í hreyfingunni
Tæpitungulaust Gísli Freyr Valdórsson, ráðgjafi hjá KOM og ritstjóri Þjóðmála, og Hörður Ægisson, ritstjóri Inn-
herja á Vísi, mættu í settið hjá Dagmálum og ræddu stöðuna í hagkerfinu á vinnumarkaðnum um þessar mundir.
- Verðbólga stefnir í 7% - Hugmyndir ráðherra um bankaskatt ótrúverðugar
30 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022
17. febrúar 2022
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 124.46
Sterlingspund 168.57
Kanadadalur 97.83
Dönsk króna 18.973
Norsk króna 13.995
Sænsk króna 13.354
Svissn. franki 134.69
Japanskt jen 1.0764
SDR 174.36
Evra 141.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 176.8522
« Hlutabréf Origo
hækkuðu um tæp
8% í viðskiptum í
Kauphöll í gær og
nam velta með bréf
félagsins 364 millj-
ónum króna. Bætt-
ist þessi hækkun
við 3,85% hækkun
frá deginum áður
þar sem veltan
nam 601 milljón
króna. Í gær var greint frá því að sjóður
í eigu Stefnis hefði aukið við hlut sinn í
félaginu og hefði fjárfest í 5 milljónum
hluta í því fyrir tæpar 380 milljónir
króna.
Á þessu ári hefur félagið hækkað um
13,9% en síðustu 12 mánuði nemur
hækkunin 105,5%. Markaðsvirði félags-
ins stendur nú í 35,5 milljörðum króna.
Origo fer með himin-
skautum í Kauphöll
Jón Björnsson,
forstjóri Origo.
STUTT
Hagnaður fjölmiðla- og fjarskipta-
félagsins Sýnar á nýliðnu ári nam
2.100 milljónum króna. Fól það í sér
talsverðan viðsúning frá fyrra ári
þegar tap varð af rekstri þess upp á
405 milljónir króna. Það sem tryggði
viðsnúning í afkomunni var sala á
svokölluðum óvirkum fjarskiptainn-
viðum. Bókfært virði þeirra var 401
milljón króna en söluandvirðið var
6.946 milljónir króna. Í samræmi við
reikningsstaðla er hluta hagnaðarins
skotið á frest og miðað við það nam
bókfærður söluhagnaður að frá-
dregnum kostnaði við söluna 2.552
milljónum. Ef ekki hefði komið til
sölu innviðanna hefði tap af rekstri
félagsins því numið 451 milljón
króna.
Tekjur af reglulegri starfsemi
námu 21.765 milljónum króna og
jukust um 821 milljón milli ára eða
3,9%.
EBITDA félagsins á árinu, leið-
rétt fyrir áhrifum af innviðasölunni,
nam 6.432 milljónum króna og
hækkaði um 693 milljónir miðað við
árið 2020. Þá var aðlagað EBITDA-
hlutfall 29,6%, samanborið við 27,4%
árið 2020.
Eiginfjárhlutfall félagsins var
28,9% í lok árs 2021.
Spá félagsins fyrir þetta ár gerir
ráð fyrir tekjuvexti umfram hækkun
veðrlags auk þess sem nýlegar
tekjustoðir muni skila góðum vextir.
Einnig er gert ráð fyrir að áhrif
heimsfaraldursins fari þverrandi og
að reikitekjur vegna ferðalaga fólks
milli landa muni taka við sér.
Morgunblaðið/RAX
Tekjuvöxtur Heiðar Guðjónsson er
forstjóri og einn af hluthöfum Sýnar.
Sýn snýr tapi í
hagnað milli ára
- Viðsnúningur-
inn byggir á sölu
óvirkra innviða
« Nýjar tölur Þjóðskrár sýna að vísitala
íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu
hækkaði um 1,7% milli desember og
janúarmánaðar. Í desembermánuði
hafði verðið hækkað um 1,8%. Bendir
Hagsjá Landsbankans á að sú hækkun
hafi komið á óvart þar sem tölur fyrri
mánaða hafi fremur gefið til kynna að
markaðurinn væri að róast.
Þar er einnig bent á að verð á sérbýli
sé að hækka hraðar en á fjölbýli. Árs-
takturinn í hækkun þeirra eigna sé
meiri.
Íbúðaverðið heldur
áfram að blása út