Morgunblaðið - 17.02.2022, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 17.02.2022, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Reginn hf. / 512 8900 / reginn@reginn.is / reginn.is Boðið verður upp á streymi frá fundinum til þeirra hluthafa sem eftir því óska. Þeim hluthöfum sem kjósa að fylgjast með fundinum í gegnum streymi gefst kostur á að senda spurningar inn á fundinn með tölvupósti á fjarfestatengsl@reginn.is. Ekki verður boðið upp á rafrænar atkvæðagreiðslur á fundinum en þeim hluthöfum sem fylgjast með fundinum í gegnum streymi gefst kostur á að sendaumboðsmanná fundinn semgreiðir atkvæði fyrir þeirra hönd eða veita forstjóra félagsins umboð til þess að fara með atkvæði þeirra á fundinum. Þeir hluthafar sem óska eftir því að fylgjast með fundinum í gegnum streymi eru beðnir um að senda tölvupóst á netfangið fjarfestatengsl@reginn.is og þeir munu fá sendan hlekk á streymi af fundinum áður en hann hefst. Dagskrá fundarins er svohljóðandi, sbr. 15. gr. samþykkta félagsins: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins sl. starfsár. 2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endur- skoðanda lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar eða taps á næstliðnu reikningsári. 4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu lögð fram til samþykktar. 5. Ákvörðun umheimild til stjórnar um kaup á eigin bréfum í samræmi við tillögu stjórnar þar að lútandi. 6. Tillögur til breytinga á samþykktum, ef einhverjar hafa borist. 7. Kosning félagsstjórnar. 8. Kosning endurskoðanda. 9. Kosning nefndarmanna í tilnefningarnefnd, sé skipunar- tími nefndarmanna liðinn eða ef nefndarmaður hefur látið af störfum. 10. Ákvörðunumþóknuntilstjórnarmannaognefndarmanna undirnefnda stjórnar og tilnefningarnefndar fyrir næsta kjörtímabil. 11. Önnurmál. Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð og skal það dagsett. Óskað er eftir að umboð berist tímanlega fyrir dagsetningu aðalfundar á fjarfestatengsl@reginn.is og skal það vera undirritað af hluthafa eða prókúruhafa. Einnig er fundarmanni heimilt að framvísaumboði viðmætinguáaðalfundenþá skal þess gætt að mæta tímanlega til að hægt sé að yfirfara umboð m.t.t. gildis þess. Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu eftir að þeim hefur verið framvísað við afhendingu fundargagna eða eftir setningu fundarins, hvort heldur sem fyrr er. Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á aðalfundinum, ef hann gerir skriflega kröfu umþað til stjórnar áður en tvær vikur eru til aðalfundarins. Nánar um heimildir hluthafa til að fá mál tekin til meðferðar á fundinum vísast til 18. gr. samþykkta félagsins sem finna má á heimasíðu þess, www.reginn.is/fjarfestavefur. Atkvæðagreiðslur og kosningar verða einungis skriflegar á fundinum ef einhver atkvæðisbærra fundarmanna krefst þess. Stjórnarkjör skal jafnan vera skriflegt, ef tillögur koma fram um fleiri menn en kjósa skal um. Varðandi heimild til að krefjast hlutfalls- eða margfeldiskosningar við kjör stjórnarmanna vísast til 24. gr. samþykkta félagsins, en krafa um það skal hafa borist stjórn félagsins minnst fimm dögum fyrir hluthafafund. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á heimasíðu félagsins. Tillögu tilnefningarnefndar um samsetningu stjórnar, og önnur framkomin framboð, má finna á heimasíðu félagsins, www.reginn.is/fjarfestavefur. Sérstök athygli er vakin á því að samkvæmtsamþykktumfélagsinsberaðtilkynnaumframboð til stjórnar skriflega minnst sjö sólarhringum fyrir aðalfund, eða fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 3. mars 2022. Framboðum skal skila á skrifstofuReginshf. eðameð tölvupósti ánetfangið tilnefningarnefnd@reginn.is. Tilnefningarnefnd getur breytt tillögu sinni þar til fimm dagar eru til aðalfundar. Endanlegar upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund. Þar sem kjör tilnefningarnefndar er á dagskrá fundarins er óskað eftir framboðum í tilnefningarnefnd sem skal skipuð að minnsta kosti þremur nefndarmönnum sem skulu hafa nauðsynlega þekkingu og reynslu miðað við störf nefndarinnar. Meirihluti nefndarmanna skal vera óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess samkvæmt sömu reglum og gilda um óhæði stjórnarmanna, sbr. lið 2.3 í Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja. Þá skal að minnsta kosti einn nefndarmaður vera óháður stórum hluthöfum félagsins, þ.e. þeim sem ráða 10% eða meira af heildarhlutafé eða atkvæðamagni í félaginu, einir eða í samstarfi við aðra sbr. lið 2.3 í Leiðbeiningumumstjórnarhætti fyrirtækja. Við framangreint mat er litið heildstætt til beinna og óbeinna tengsla nefndarmanna. Framboðseyðublað og nánari upplýsingar um starfsemi tilnefningarnefndar er að finna á heimasíðu félagsins www.reginn.is/fjarfestavefur Gögn vegna fundarins verða aðgengileg á skrifstofu félagsins og á vefsvæði tengdu aðalfundi á heimasíðu félagsins, www.reginn.is/fjarfestavefur, en endanlegdagskrá og tillögur verða aðgengilegar a.m.k. tveimur vikum fyrir aðalfund, sbr. 18. gr. samþykkta félagsins. Aðalfundur félagsins verður án pappírsgagna. Kópavogur, 16. febrúar 2022. Stjórn Regins hf. Stjórn Regins hf. boðar til aðalfundar félagsins í Hörpu, Rímu fundarsal, fimmtudaginn 10. mars 2022, kl. 16:00. AÐALFUNDUR 10.MARS2022ÍHÖRPU Nýlega gagnrýndu nokkrir þingmenn Samfylkingarinnar harðlega að ákveðið var við myndun nýrrar rík- isstjórnar að fjölga ráð- herrum um einn, úr ell- efu í tólf. Slík fjölgun er í sjálfu sér ekki æskileg en ráðherrar hafa áður verið tólf talsins og breytingin var nið- urstaða viðræðna samsteypustjórnar þriggja ólíkra flokka um verkaskipt- ingu í áframhaldandi stjórnarsam- starfi. Það kemur úr hörðustu átt þegar þingmenn Samfylkingarinnar gagn- rýna stækkandi stjórnsýslubákn. Samfylkingin er ráðandi afl í borg- arstjórn Reykjavíkur þar sem kostn- aður æðstu stjórnsýslu hefur marg- faldast og báknið þanist út að sama skapi. Vilji flokkurinn raunverulega minnka báknið, ætti hann að vinna gegn örum vexti þess hjá Reykjavík- urborg. Hafa vinnubrögð borgarstjórnar batnað? Þingmenn Samfylkingarinnar komu því til leiðar ásamt VG að borg- arfulltrúum í Reykjavík var fjölgað með lagaboði um 53% við samþykkt nýrra sveitarstjórnarlaga árið 2011 en fjölgunin tók gildi 2018. Varla dettur nokkrum manni í hug að vinnubrögð borgarstjórnar hafi batn- að á þessu kjörtímabili þrátt fyrir þessa miklu fjölgun. Á sínum tíma kom fram að borgarfulltrúar Sam- fylkingar og VG hefðu átt frum- kvæðið að breytingu ákvæðisins og orðið hefði verið við því vegna þrá- beiðni þeirra. Þegar umrætt laga- ákvæði var samþykkt var Dagur B. Eggertsson varaformaður Samfylk- ingarinnar og sat þingflokksfundi hennar sem slíkur. Fjölgun borgarfulltrúa um 53%, úr 15 í 23, hefur engu skilað nema stærra bákni, auknum kerfiskostnaði og þá hefur óráðsían í rekstri borg- arinnar aukist. Umrætt lagaákvæði hefur ekki einungis haft áhrif á fjölgun borg- arfulltrúa í Reykjavík. Það hefur haft eða mun einnig hafa áhrif á fjölgun bæjarfulltrúa í Garðabæ, Mosfellsbæ og Vestmannaeyjabæ í óþökk meiri- hluta íbúa og bæjarfulltrúa í þessum sveitarfélögum, sem eru ósammála Samfylkingunni um að stækka þurfi stjórnsýslubáknið frekar. Í síðustu viku lagði ég fram frum- varp til laga um breytingu á sveit- arstjórnarlögum nr. 138/2011, ásamt nokkr- um þingmönnum Sjálf- stæðisflokksins, Mið- flokksins og Flokks fólksins. Breytingin fel- ur í sér að svigrúm sveitarfélaga verði auk- ið til að ákveða fjölda kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum sínum. Í tilviki Reykjavíkur verði t.d. afnumin sú skylda að hafa borg- arfulltrúa 23. Verði frumvarpið að lögum yrði einungis um heimild að ræða þannig að borgarstjórn geti t.d. sjálf ákveðið hvort hún vilji hafa borgarfulltrúa 23 eða 15 eins og var lengi vel. Breytingin myndi ekki einungis hafa áhrif í Reykjavík heldur í nokkrum sveitarfélögum, sem hafa nú þegar verið eða verða þvinguð til þess að fjölga bæjarfulltrúum og auka þannig kostnað og flækjustig í stjórnsýslu sinni. Vilja ekki allir sjálfstjórn sveitarfélaga? Allt frá því umrætt lagaákvæði var samþykkt 2011, hafa borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins oft lagt fram til- lögur um að borgarstjórn óski eftir því við Alþingi að lögunum verði breytt þannig að heimilt verði á ný að fækka borgarfulltrúum í 15, kjósi borgarstjórn það. Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar hafa aldrei viljað samþykkt slíkar tillögur heldur svæft þær, fellt eða vísað frá. Ég hygg að allir þingmenn og sveitarstjórnarmenn séu í orði kveðnu sammála því að sveitarfélög eigi að hafa sem mest að segja um skipulag stjórnsýslu sinnar. Þrátt fyrir stórorðar yfirlýsingar um víð- tæka sjálfstjórn og sjálfsákvörð- unarrétt sveitarfélaga vilja þing- menn og borgarfulltrúar Samfylkingarinnar hins vegar þvinga Reykjavík og önnur sveit- arfélög með lagaboði til að stækka of stórt bákn enn frekar með því að fjölga kjörnum fulltrúum. Eftir Kjartan Magnússon » Samfylkingin og VG lögþvinguðu Reykjavík til að fjölga borgarfulltrúum og stækka þannig báknið, sem var of stórt fyrir. Kjartan Magnússon Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Minnkum báknið – Fækkum borgar- fulltrúum Skuldir Reykjavík- urborgar voru í upphafi kjörtímabilsins 299 milljarðar en nema núna um 400 millj- örðum. Skuldirnar hafa vaxið hratt á kjörtíma- bilinu, samkvæmt áætl- un er gert ráð fyrir að þær verði 453 millj- arðar árið 2025. En hvað koma þær okkur íbúum Reykjavíkur- borgar við? Hvers vegna á okkur ekki að vera sama þegar verið er að gagnrýna meirihlutann fyrir þá miklu skuldasöfnun sem hefur verið á kjörtímabilinu? Vegna þess að við sem búum í Reykjavík erum líka ábyrg fyrir þessum skuldum, því það er okkar að greiða þær niður með sköttum og gjöldum sem sveitarfé- lagið leggur á okkur. Það er ekki hægt að halda uppi góðu þjónustu- stigi hjá sveitarfélögum nema fjár- mál þeirra séu sterk. Sveitarfélag sem safnar skuldum líkt og Reykja- víkurborg hefur gert er ekki sveitar- félag sem á auðveld rekstrarár fram- undan. Því það kemur jú alltaf að skuldadög- um. Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem innheimtir há- marksútsvar eða 14,52%. Það er því langt frá því að ríkið beri ábyrgð á öllu því sem er tekið af okkur í skatta um hver einustu mán- aðamót. Nú getur þú fundið reiknivél inni á valgerdur.is þar sem þú sérð hvað af sköttunum þínum fer til Reykjavík- urborgar og hvað til ríkisins. Ef launaseðlarnir okkar væri þannig settir upp að við myndum geta séð hvað sveitarfélagið sem við búum í tekur af okkur í skatta á mánuði og síðan hvað ríkið er að taka af okkur þá gerðum við eflaust mun meiri kröfur til sveitarfélaganna. Við ger- um miklar kröfur um góða löggæslu, betra heilbrigðiskerfi og lægri skatta til ríkisins. Það er hins vegar ekki sama pressa á sveitarfélög, einfald- lega vegna þess að við gerum okkur ekki grein fyrir því hvað við erum að greiða mikið til þeirra og hverjar skyldur þeirra eru. Þessu þarf að breyta. Ef við gætum um hver mán- aðamót séð á launaseðlinum hvað fer í skatta til sveitarfélagsins þá væri okkur ekki sama um skuldastöðuna og við myndum gera kröfur í kosn- ingum um lækkun skatta sem sjaldan er gerð í sveitarstjórnarkosningum. Breyting á launaseðlinum okkar myndi verða til þess að við sæjum að ríkið er ekki að taka til sín megnið af því sem er tekið af okkur í skatta. Það er því ótrúlegt að við getum ekki séð þetta svart á hvítu á launaseðl- inum. Þetta getur þú hins vegar séð núna á valgerdur.is. Launaseðillinn þinn, hvað fær sveitarfélagið? Eftir Valgerði Sigurðardóttur »Nú getur þú fundið reiknivél inni á val- gerdur.is þar sem þú sérð hvað af sköttunum þínum fer til Reykja- víkurborgar og hvað til ríkisins. Valgerður Sigurðardóttir Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. valgerdur.sigurdardottir@reykjavik.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.