Morgunblaðið - 17.02.2022, Page 42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022
Tónlist
fyrir sálina
Matur
fyrir líkamann
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Lifandi píanótónlist
öll kvöld
Opnunartími
Mán.–Fös. 11:30–14:30
Öll kvöld 17:00–23:00
Borðapantanir á matarkjallarinn.is
eða í síma 558 0000
Jennifer er af sænsku og taílensku bergi brotin og ólst
upp í litlum bæ í Svíþjóð. Hún starfar sem fyrirsæta um
heim allan en í hjáverkum gerir hún ýmislegt annað eins
og að elda. Hún og kærasti hennar, Skúli Jón Firðgeirs-
son, eignuðust í fyrra sitt fyrsta barn og búa í íbúð í
Stokkhólmi sem þau hafa gert upp eftir sínu höfði en
gætt þess vel að halda í upprunalega eiginleika íbúðar-
innar og er útkoman einstaklega vel heppnuð.
Byggði eldhúsið nákvæmlega eftir eigin höfði
„Eldhúsið gerðum við á sama tíma og við fluttum frá
Íslandi til Stokkhólms haustið 2019. Við gerðum nokkrar
breytingar á íbúðinni og stærsta breytingin var senni-
lega að flytja eldhúsið í stærra rými og byggja nýtt,“
segir Jennifer í samtali. „Við eyðum miklum tíma í eld-
húsinu og þess vegna fannst okkur rosalega mikilvægt
að það væri stórt og miðsvæðis í íbúðinni. Það er 3,5
metra lofthæð í íbúðinni þannig að nú höfum við feikinóg
skápapláss og svo gerðum við matarbúr úr gömlum
„walk in closet“ sem fyrir var í rýminu. Ein af mínum
stærstu ástríðum í lífinu er að elda og þess vegna var
þetta sérstaklega gaman fyrir mig að geta byggt eldhús-
ið nákvæmlega eins og ég vildi hafa það,“ segir Jennifer.
Liturinn á innréttingunni er einstakur
Hvaðan er innréttingin? „Eldhúsið er sett saman úr
hlutum frá nokkrum fyrirtækjum. Allir innviðir, skápar,
hillur og þess háttar eru úr IKEA. Svo keyptum við
framhliðar og skápahurðir frá fyrirtæki sem heitir Picky
Living (pickyliving.se). En það gaf okkur þann mögu-
leika að velja nákvæmlega það útlit og þann lit sem við
vildum á eldhúsið. Komum bara með litakóða og þeir
framleiddu allt í þeim lit sem við vildum. Háfurinn er frá
sænsku fyrirtæki sem heitir Fjäråskupan, og gas-
eldavélin er frá Bertazzoni. Borðplatan er frá kitchens
by paul (kitchens.se),“ segir Jennifer.
Eldhúsið er í mjúkum jarðlitum frá gólfi til lofts, þar
sem efniviðurinn fær alls staðar að njóta sín. „Ég elska
jarðliti, finnst þeir svo róandi og auðvelt að para saman
með þeim – þannig að við notuðum mjúkan beige-lit á
stóran hluta af íbúðinni sjálfri og liturinn á eldhúsinu er í
sama tón. Við völdum síðan borðplötu í aðeins dekkri
jarðlit: shittake, og ég er rosalega ánægð með útkomuna.
Þar sem það er gas í húsinu kom ekkert annað til greina
en að nýta það og kaupa stóra gaseldavél. Við keyptum
vél frá ítalska merkinu Bertazzoni og ég elska hana. Gas-
eldavélin ásamt háfnum frá Fjäråskupan brýtur aðeins
upp þetta meira „clean look“ og gefur andstæður, sem
heppnaðist nákvæmlega eins og við höfðum hugsað okk-
ur,“ segir Jennifer að lokum og við tökum heilshugar
undir – eldhúsið er geggjað.
Undurfagurt eldhús Jennifer Berg
Jennifer Berg er lesendum Matarvefjar mbl að góðu kunn enda höfum við
deilt uppskriftum frá henni í gegnum tíðina. Þá ekki síst þegar hún bloggar á
íslensku en sænska síðan hennar nýtur mikilla vinsælda í heimalandinu en
þangað fluttist hún á ný eftir að hafa búið hér á landi.
Ljósmyndir/ Jennifer Berg
Ljósmynd/Aðsend
Búrskápur
Jennifer hafði
dreymt um góð-
an búrskáp og
breytti fataskáp
í einn slíkan.
Jafnvægi náð Háfurinn
og eldavélin eru ótrúlega
vel heppnuð og mynda hið
fullkomna mótvægi við
milda tóna sem einkenna
eldhúsið.
Úthugsað Hvert
einasta smáatriði
í eldhúsinu
er úthugsað.
Eldhúsgyðja
Jennifer Berg er
margt til lista
lagt og hefur
meðal annars
verið boðin þátt-
taka í sænsku
Master Chef
þáttunum.