Morgunblaðið - 17.02.2022, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 17.02.2022, Qupperneq 42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022 Tónlist fyrir sálina Matur fyrir líkamann Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Lifandi píanótónlist öll kvöld Opnunartími Mán.–Fös. 11:30–14:30 Öll kvöld 17:00–23:00 Borðapantanir á matarkjallarinn.is eða í síma 558 0000 Jennifer er af sænsku og taílensku bergi brotin og ólst upp í litlum bæ í Svíþjóð. Hún starfar sem fyrirsæta um heim allan en í hjáverkum gerir hún ýmislegt annað eins og að elda. Hún og kærasti hennar, Skúli Jón Firðgeirs- son, eignuðust í fyrra sitt fyrsta barn og búa í íbúð í Stokkhólmi sem þau hafa gert upp eftir sínu höfði en gætt þess vel að halda í upprunalega eiginleika íbúðar- innar og er útkoman einstaklega vel heppnuð. Byggði eldhúsið nákvæmlega eftir eigin höfði „Eldhúsið gerðum við á sama tíma og við fluttum frá Íslandi til Stokkhólms haustið 2019. Við gerðum nokkrar breytingar á íbúðinni og stærsta breytingin var senni- lega að flytja eldhúsið í stærra rými og byggja nýtt,“ segir Jennifer í samtali. „Við eyðum miklum tíma í eld- húsinu og þess vegna fannst okkur rosalega mikilvægt að það væri stórt og miðsvæðis í íbúðinni. Það er 3,5 metra lofthæð í íbúðinni þannig að nú höfum við feikinóg skápapláss og svo gerðum við matarbúr úr gömlum „walk in closet“ sem fyrir var í rýminu. Ein af mínum stærstu ástríðum í lífinu er að elda og þess vegna var þetta sérstaklega gaman fyrir mig að geta byggt eldhús- ið nákvæmlega eins og ég vildi hafa það,“ segir Jennifer. Liturinn á innréttingunni er einstakur Hvaðan er innréttingin? „Eldhúsið er sett saman úr hlutum frá nokkrum fyrirtækjum. Allir innviðir, skápar, hillur og þess háttar eru úr IKEA. Svo keyptum við framhliðar og skápahurðir frá fyrirtæki sem heitir Picky Living (pickyliving.se). En það gaf okkur þann mögu- leika að velja nákvæmlega það útlit og þann lit sem við vildum á eldhúsið. Komum bara með litakóða og þeir framleiddu allt í þeim lit sem við vildum. Háfurinn er frá sænsku fyrirtæki sem heitir Fjäråskupan, og gas- eldavélin er frá Bertazzoni. Borðplatan er frá kitchens by paul (kitchens.se),“ segir Jennifer. Eldhúsið er í mjúkum jarðlitum frá gólfi til lofts, þar sem efniviðurinn fær alls staðar að njóta sín. „Ég elska jarðliti, finnst þeir svo róandi og auðvelt að para saman með þeim – þannig að við notuðum mjúkan beige-lit á stóran hluta af íbúðinni sjálfri og liturinn á eldhúsinu er í sama tón. Við völdum síðan borðplötu í aðeins dekkri jarðlit: shittake, og ég er rosalega ánægð með útkomuna. Þar sem það er gas í húsinu kom ekkert annað til greina en að nýta það og kaupa stóra gaseldavél. Við keyptum vél frá ítalska merkinu Bertazzoni og ég elska hana. Gas- eldavélin ásamt háfnum frá Fjäråskupan brýtur aðeins upp þetta meira „clean look“ og gefur andstæður, sem heppnaðist nákvæmlega eins og við höfðum hugsað okk- ur,“ segir Jennifer að lokum og við tökum heilshugar undir – eldhúsið er geggjað. Undurfagurt eldhús Jennifer Berg Jennifer Berg er lesendum Matarvefjar mbl að góðu kunn enda höfum við deilt uppskriftum frá henni í gegnum tíðina. Þá ekki síst þegar hún bloggar á íslensku en sænska síðan hennar nýtur mikilla vinsælda í heimalandinu en þangað fluttist hún á ný eftir að hafa búið hér á landi. Ljósmyndir/ Jennifer Berg Ljósmynd/Aðsend Búrskápur Jennifer hafði dreymt um góð- an búrskáp og breytti fataskáp í einn slíkan. Jafnvægi náð Háfurinn og eldavélin eru ótrúlega vel heppnuð og mynda hið fullkomna mótvægi við milda tóna sem einkenna eldhúsið. Úthugsað Hvert einasta smáatriði í eldhúsinu er úthugsað. Eldhúsgyðja Jennifer Berg er margt til lista lagt og hefur meðal annars verið boðin þátt- taka í sænsku Master Chef þáttunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.