Morgunblaðið - 17.02.2022, Side 44

Morgunblaðið - 17.02.2022, Side 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022 Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Hugi Halldórsson byrjaði með nýju hlaðvarpsþættina 70 mínútur með Simma Vill fyrir skömmu. Hugi er vanur hlaðvarpsstjórnandi enda hefur hann verið með nokkur vinsæl hlaðvörp og trónir nýja hlaðvarpið, sem hóf göngu sína í febrúar, nú í efstu sætum íslenska vinsældalist- ans fyrir hlað- vörp. Hann lýsir hlaðvarpinu sem óvissuferð sem enginn ætti að missa af. „70 mínútur er gamalt nafn í nýj- um búningi. Þetta er ekkert í lík- ingu við þættina sálugu heldur var ákveðið að nota nafnið enda kannast margir í mark- hópnum við það. Hugmyndin kom yfir léttu rauðvínsspjalli milli mín og Simma. Ég hafði nýhætt með fyrra hlaðvarp og var að hugsa hvað ég gæti tekið mér fyrir hendur næst. Fjölmiðlabaktería Simma og mál- gleði hans hafa ekki farið neitt þótt hann sé á kafi í fyrirtækjarekstri, svo við hnoðuðum saman í þátt sem við mundum báðir hafa gaman af og vonandi þeir sem hlusta,“ sagði Hugi Halldórsson Spurður út í það hvernig honum finnist að hlaðvarpið hangi í efstu sætum íslenska hlaðvarpsvinsælda- listans svaraði hann: „Það er auðvitað skemmtileg viðurkenning að vera á toppnum. Ég hef farið á toppinn með samtals fjög- ur hlaðvörp og það er kúnst að halda hlaðvarpinu sínu á toppnum eða við hann,“ sagði Hugi. „Gaman að fólk skuli gefa sér tíma til að hlusta á okkur Simma, ef fólk hættir að hlusta þá er þetta í versta falli hressandi kvöldstund hjá okkur tveim,“ bætti hann kíminn við. Hér eru nokkur af uppáhalds- hlaðvörpum Huga sem hann mælir með. Chess After Dark „Ótrúlega skemmtileg nálgun á heiðarlegu spjalli á meðan tefld er skák. Ég er mikill „human interest“-aðdáandi og stjórnendur Chess Af- ter Dark eru með skemmtilegar að- ferðir til að komast inn hjá viðmæl- anda sínum.“ Beint í bílinn „Hef ekki misst af þætti ennþá. Auðvelt að hlusta á þá félaga, sennilega því ég tengi mjög vel við húmorinn þeirra eftir öll þessi ár. Velti því stundum fyrir mér hvenær þeir missa það en úr því sem komið er þá verður líklega ekkert úr því.“ Í ljósi sögunnar „Vandaðasta hlaðvarp Íslands. Vera er ein- faldlega langbest. Öll heimildavinna, frá- sögn og efnistök fær 10 í einkunn. Líklega ekki margir sem gera sér grein fyrir því það það er mikil list að koma öllu þessu efni saman á einfaldan og skýran hátt á aðeins 40 mín. „Ama- tör“ myndi klúðra þessu í alltof löngu máli.“ Crime Junkie „Reynd- ar ég mikill aðdáandi alls sem kemur frá AudioChuck. Óleyst morðmál eða dularfull mannshvörf er mitt kaffi. Ashley Flowers er Vera þeirra Ameríkana, heldur manni við efnið allan þáttinn og missir aldrei sjónar á því sem hlustandinn vill heyra.“ Serial (1. sería) „Fékk mál Adnan Syed á heilann eftir að hafa hlustað á þessa seríu. Gat ekki hætt að hlusta og er líklega búinn að hlusta, lesa og horfa á meira efni um þetta mál en nokkur annar Íslendingur. Mæli mjög mikið með.“ Bestu hlaðvörpin frá Huga Halldórs Ekkert í líkingu við þættina sálugu Hugi Halldórsson er nýfarinn í loftið með glænýja hlaðvarpsþætti ásamt Simma Vill með kunnuglegu nafni. Þeir eru þó ekkert í líkingu við þættina sálugu og tróna nú í fyrstu sætum íslenska hlaðvarps- vinsældalistans. K100 fékk Huga til að gefa álit á sín- um uppáhaldshlaðvörpum sem hann mælir með hér. Hugi Halldórsson Vinsælt 70 mínútur byrja vel. Íslensku þjónustufyrirtækin eru á finna.is ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA? Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Björn Páll Pálsson, ferðalangur og eigandi ferðaskrifstofunnar Crazy Puffin Adventures, hóf í gær 11 daga langan eyðimerkurtúr Máritaníu í Norður-Afríku ásamt hóp af fólki frá ýmsum löndum, meðal annars Ís- landi, Svíþjóð og Bretlandi. „Teika“ lest í 18-20 tíma Felur ferðin meðal annars í sér að dvelja í Sahara-eyðimörkinni og „teika“ lest, þ.e.a.s. að sitja ofan á lest í 18-20 tíma. Björn ræddi við þá Sigga Gunnars og Friðrik Ómar í Síðdegisþættinum á K100 á dögunum um ferðina en hann hefur nú bætt við tveimur öðrum ævintýraferðum um Máritaníu í vetur, í nóvember og des- ember. Fyrir ferðina eyddi Björn viku í Máritaníu, sérstaklega í höfuðborg landsins til að undirbúa sig en þar hefur hann meðal annars dvalið í tjaldi í miklu sandfoki. Heillandi hvað borgin er slæm „Það er búið að vera mjög skemmtilegt,“ sagði Björn sem þó tók undir að borgin væri líklega versta höfuðborg í heimi. „Ég skal bara taka undir það. Ég hef komið á mjög marga skrítna staði og ég held ég verði bara að við- urkenna að þetta sé sá alversti. Það er bara heillandi hvað hann er slæm- ur,“ sagði Björn kíminn. „Mér líður eins og ég sé í risastór- um sandkassa með rosalega mikið af rusli í kringum mig. Svo er mjög mik- ið af vindi hérna núna þannig að það er búið að vera sandstormur hérna stanslaust í 5 daga,“ sagði Björn. Spurður um hvernig aðstæður séu í landinu varðandi Covid, sagði Björn að það væru einhverjir með grímu en nánast allir væru frekar með sér- staka klúta fyrir andlitinu. „Svo þeir þurfa í raun ekki grímu,“ sagði Björn. Hægt er að fylgjast með ferðinni sem byrjaði í gær, miðvikudag, á in- stagram-reikningi Crazy Puffin Ad- ventures en viðtalið má heyra í heild sinni á K100.is. Ferðast um Sahara- eyðimörkina í 11 daga Björn Páll Pálsson hefur ferðast víða um heim- inn. Hann hefur verið á ferðalagi um framandi lönd í yfir 12 ár en nú ferðast hann með hóp í Máritaníu og um Sa- hara-eyðimörkina. Máritanía Úlfaldar eru víða í Máritaníu enda góður ferðamáti. Ferðalangur Björn nýtur lífsins í Máritaníu en 11 daga ferðalag um landið og Sahara-eyðimörkina byrj- aði í gær. Núaksjott Höfuðborg Máritaníu er að sögn Björns ekki með bestu stöð- um á jarðríki en þar er mikið af rusli og mikið sandfok. Alla föstuda ga í febrúar með Aventur a Hlustaðu til að vin na! Ef þú hey rir í K100 þotu nni þá hringi r þú í

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.