Morgunblaðið - 17.02.2022, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 17.02.2022, Blaðsíða 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022 ✝ Sverrir Theo- dór Þorláksson fæddist á Skálum á Langanesi 2. júní 1933. Hann lést á Landspítala Foss- vogi 18. janúar 2022 eftir stutt veikindi. Foreldrar hans voru Þorlákur Árnason útgerða- maður, f. 20.5. 1890, d. 2.11. 1963 og Fanney Lovísa Jónsdóttir sím- stjóri, f. 9.2. 1898, d. 16.2. 1982. Sverrir var næstyngstur barna þeirra hjóna, en hin voru Jón Árni Þorláksson, f. 17.12. 1922, d. 24.6. 1924, Sigurður Jón Þorláksson, f. 2.9. 1927, d. 11.4. 1983 og Kolbrún Þorláksdóttir, f. 28.4. 1937, d. 27.8. 2019. Börn Kolbrúnar eru Sverrir Þór, f. 2.5. 1956, d. 11.12. 2015 og Einar Þór, f. 17.1. 1968. Sverrir giftist 31.12. 1959 Kristjönu Guðmundsdóttir frá Höfða, Vatnsleysuströnd. For- 1985, maki Ílona Sif Ásgeirs- dóttir, f. 1991. Þau eiga tvíbura fædda 2017: Emil Ernir Í. Ragn- arsson og Rögnvaldur Mar Í. Ragnarsson. Dætur Þórarins eru Kristjana Diljá Þórarinsdóttir, f 1993, móðir hennar er Ester Inga Ósk- arsdóttir, f. 1973, Birta Líf Þór- arinsdóttir, f. 2002 og Dagný Sól Þórarinsdóttir, f. 2004. Sverrir ólst upp á Skálum á Langanesi og flutti þaðan 12 ára gamall, árið 1945 til Reykjavík- ur. Hann vann sem sendill til 17 ára aldurs og flutti þá til Eng- lands þar sem hann vann á sveitabæ. Tveimur árum seinna fluttist hann til Noregs, réð sig á skip og sigldi um allan heim. Hann lauk matreiðslumeistara- prófi í Noregi 26 ára gamall og vann á hótelum í Suður-Noregi til ársins 1958 þegar hann flutti til Íslands. Sverrir vann sem matreiðslumeistari á ýmsum hótelum á Íslandi, lengst af á Hótel Holti og sinnti hinum ýmsu áhugamálum, kenndi með- al annars svifflug í áratugi, var einn af stofnendum Klúbbs matreiðslumeistara ásamt því að sinna störfum í fleiri félagasam- tökum. Útför fór fram í kyrrþey. eldrar hennar voru Guðmundur Össur Einarsson sjómað- ur, f. 10.9. 1913, d. 15.1. 1946 og Dagný Karlsen verslunarkona, f. 24.11. 1920, d. 15.3. 2017. Sverrir og Krist- jana bjuggu lengst af í Garðabæ og seinni ár í Hafnar- firði. Þau eignuðust fjögur börn: Tvíburadætur, 1) önnur þeirra fæddist andvana og 2) Margréti Sverrisdóttir, f. 22.11. 1961. Maki Margrétar er Örn Ey- steinsson, f. 1958. Sonur Mar- grétar er Theodór Fannar Ei- ríksson, f. 1994. Faðir hans er Eiríkur Sæmundsson, f. 1965. 3) Fannar Þorlákur Sverrisson, f. 29.11. 1968, d. 5.4. 1997. 4) Þór- arinn Gunnar Sverrisson, f. 21.8. 1973, giftur Ernu Rós Magn- úsdóttur, f. 1967. Sonur Ernu er Ragnar Stefán Rögnvaldsson, f. Sverrir vinur minn er einhver merkilegasti maður sem ég hef kynnst á minni lífsleið. Ég kynntist Sverri fyrir mörgum árum. Fastagestir Kolaportsins muna eflaust vel eftir honum, þar sem hann og fjölskylda voru með flottan bás fullan af alls kyns djásnum og gömlum hlut- um sem ég kann ekki að nefna. Hann átti marga fasta við- skiptavini sem voru að leita að spennandi hlutum á sviði safn- ara. Þú komst aldrei að tómum kofunum hjá honum þegar um söfnunarhluti var að ræða. Þar var hann á heimavelli. Jóga og austurlensk fræði voru honum ofarlega í huga og með mikla þekkingu á þeim and- ans heimi. Hann var einnig mik- il tungumálamaður og því fékk ég að kynnast þegar ég var með fjölskyldu hans á Kanaríeyjum fyrir nokkrum árum. Hann tal- aði spænsku reiprennandi svo eftir var tekið. Sverrir og eig- inkona hans Kristjana og Magga dóttir þeirra fóru suður á bóginn á hverju ári og dvöldu þar oft jól og áramót. Ég var svo heppinn að fá að eyða einum jól- um með þeim og borðuðum við saman á skansinum á aðfanga- dagskvöld og áttum góðan tíma saman. Margar góðar og falleg- ar minningar koma fram í hug- ann núna. Sverrir var mikill AA-maður og hann var minn trúnaðarmað- ur og sá sem ég get alltaf leitað til á mínum fyrstu árum í edrú- mennsku. Þar gat ég alltaf feng- ið góð ráð og hann hvatti mig áfram, sem var mér ómetanlegt og betri fyrirmynd gat ég ekki fundið. Það hefur haldið fram á daginn í dag. Ógleymanleg er svifflugsferð sem við fórum saman fyrir mörgum árum, þar sem við svíf- um um loftin blá sem fuglarnir fljúgandi og vorum hamingju- samir, glaðir og frjálsir (eins og við segjum oft í AA). Lífssögu Sverris kunna aðrir betur að segja frá en ég veit að hann lærði matreiðslu í Noregi og var verðlaunamatreiðslu- maður sem vann í mörg ár hjá Þorvaldi í Síld og fiski á Hótel Holti ef ég man þetta allt rétt. Hann var mikið tengdur fluginu (sviffluginu, og var seinna gerð- ur að heiðursfélaga). Þannig að það er af svo mörgu að taka. Sverrir minn, fyrir strák sem ekki alltaf vissi hvað tæki við næst, þá var það svo dýrmætt að geta leitað til þín og fengið góð ráð og hlýtt faðmlag og það besta var að bros þitt var aldrei langt undan. Betri vin gat ég ekki eignast. Hvíl í friði kæri vinur. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Ég votta fjölskyldu Sverris Þorlákssonar mína innilegustu samúð. Páll Höskuldsson, Björgvin, Noregi. Sverrir Theodór Þorláksson Við kveðjum nú kæran vin og sam- starfsfélaga, Axel Nikulásson. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að vera samferða honum í fjögur ár í sendiráði Íslands í London og svo aftur um stund í utanríkisráðu- neytinu á Rauðarárstígnum. Mín allra fyrsta minning um Axel var þegar ég, nýgræðingur- inn og enn í námi, hafði verið beð- in að skjótast til að taka á móti Axel Arnar Nikulásson ✝ Axel Arnar Nikulásson fæddist 2. júní 1962. Hann lést 21. janúar 2022. Útför hans fór fram 7. febrúar 2022. honum og fjölskyld- unni í nýjum húsa- kynnum þegar þau fluttu til Bretlands frá Kína. Ég kom mér vel fyrir á milli stórra stafla af flutningskössum en eitthvað hefur mér leiðst biðin því ég veiddi gamlan reyf- ara upp úr bóka- kassa og komst ansi langt með lesturinn. Í dyragætt- inni blasti svo skyndilega við mér stór, mikill og að því er virtist nokkuð brúnaþungur maður. Umbúðirnar segja ekki alla sög- una enda kom fljótt í ljós að stutt var í stríðnislegt bros og mikla ljúfmennsku og urðum við góðir mátar. Í London fundum við fljótt að þarna var kominn góður og traustur liðsmaður í teymið, sem sinnti verkefnum sínum af alúð og fagmennsku fram í fing- urgóma. Axel hafði komið víða við á ferlinum og gat sótt úr reynslu- banka sínum frá fyrri störfum hjá lögreglunni, í körfuboltanum og við sögukennslu. Það kom sér einstaklega vel á Ólympíuleikun- um 2012 þegar hann gegndi hlut- verki fulltrúa sendiráðsins gagn- vart ÍSÍ og skipuleggjendum leikanna. Ekkert verkefni var of smátt eða ómerkilegt, hvort sem það var að redda íþróttasokkum, skipuleggja Íslendingabar fyrir gesti sem ekki náðu miðum á leikana eða bjarga strandaglóp- um með glötuð vegabréf. Axel varð ein mín helsta fyr- irmynd í starfi og duga þessi skrif varla til að lýsa nægilega vel þeim frábæra manni sem hann hafði að geyma. Hann var hörku- duglegur og afkastamikill kollegi, vel lesinn, lífsglaður og afar hnyttinn í tilsvörum, rífandi skemmtilegur, tók sjálfan sig ekki of hátíðlega, mikill fjöl- skyldumaður og voru hann og Guðný höfðingjar heim að sækja. Axel gæfi sennilega lítið fyrir lof- ræðu af þessu tagi um sjálfan sig en lítillæti einkenndi hann ein- mitt svo vel og sú sérstaka geta að lyfta samferðafólki sínu upp, hvar sem hann var staddur. Við Axel var hægt að ræða heima og geima, hvort sem það voru heimsmálin, ljóðin hans Káins, reyfarar um þjáða lögreglumenn í Ystad, eða skiptast á fyndnum tilvitnunum úr The Big Lebowski með tilheyrandi hlátrasköllum. Hann kom til dyranna eins og hann var klæddur og voru þær ætíð opnar fyrir nýgræðingnum, sem oftar en ekki þurfti á góðum ráðum að halda. Ég verð ævinlega þakklát fyrir vináttu og samvinnu okkar Axels í gegnum tíðina og votta Guð- nýju, Fríðu, Agli, Bjargeyju og öðrum aðstandendum mína inni- legustu samúð. Minning um ein- stakan mann lifir. Kristín Halla Kristinsdóttir. Elsku afi. Það er erfitt að hugsa til þess að þú sért far- inn þótt þú hafir í raun lagt af stað fyrir þó nokkru. Mér fannst ég alltaf vera yngsta barnið þitt og finnst það enn í dag enda bjuggum við mamma hjá ykkur til að byrja með. Ég hef alla tíð litið svo mikið upp til þín enda ekki annað hægt. Þú varst alltaf til staðar og alltaf til í að hjálpa, sama hvað það var. Allt frá því að dansa með mig á tánum eða gefa mér ís þegar mamma eða amma voru búnar að segja nei, yfir í að kenna mér að bera Otto Tulinius ✝ Otto Tulinius fæddist 18. mars 1939. Hann lést 15. janúar 2022. Útför Ottos fór fram 4. febrúar 2022. virðingu fyrir pen- ingum, sjálfri mér og öllum í kringum mig. Fyrir mér varstu alltaf svo virðulegur, en líka sá allra klárasti, heiðarlegasti og besti. Þú kenndir mér að standa á mínu og mikilvægi þess að vera heiðar- leg. Ég man svo vel eftir því þegar ég spurði þig hvort þú værir til í að leiða mig inn kirkjugólfið þeg- ar við Sævar giftum okkur. Auð- vitað fannst þér það meira en sjálfsagt og ég var svo montin að hafa þig með mér í þessu. Þú sagðir við mig á leiðinni í kirkj- una „Adda mín, þú veist svo að hjónaband á að vera gott í byrjun og batna upp frá því.“ Það er svo mikið til í þessu en þetta var bara eitt af svo ótalmörgum góðum ráðum sem þú hefur gefið mér í gegnum tíðina. Það var bara allt- af hægt að stóla á þig, ekki bara ég heldur allir, alltaf. Mér fannst alltaf svo fyndið þegar ég kom í heimsókn í Birkil- undinn, að þú varst oftast á ein- hverjum þeytingi. Þú settist kannski hjá okkur í smástund en svo varstu farinn að brasa eitt- hvað. Alltaf með einhver verkefni eða í reddingum, þú stoppaðir aldrei lengi á sama stað. Svo þeg- ar þú hættir að vinna og seldir Kæliverk hélt ég að nú færi eitt- hvað að róast hjá þér. Næst þeg- ar ég kom í heimsókn varstu bú- inn að stofna fyrirtæki í bílskúrnum. Elsku afi, takk fyrir allar ráð- leggingarnar, öll knúsin, allan ís- inn, allar snjósleðaferðirnar og öll skiptin sem þú dansaðir með mig á tánum. Takk fyrir að vera pabbi minn. Ég veit að þú hefur það gott í sumarlandinu hjá ömmu Höllu. Þangað til næst. Þín Agnes Tulinius (Adda rófa). Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, VALGERÐUR GUÐNADÓTTIR, lést á Fossheimum á Selfossi 21. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum innilega auðsýnda samúð og umönnun á Fossheimum. Gunnar Skúlason Guðjón Skúlason Jóhanna Sóley Jóhannesdóttir Steinunn Guðný Skúladóttir Nína Edda Skúladóttir Jakob Skafti Magnússon ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginkonu minnar og móður, HAFDÍSAR GÍSLADÓTTUR, Miðleiti 2, Reykjavík. Einnig færum við sérstakar þakkir til starfsfólks á líknardeild Landspítalans fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur. Grétar E. Ágústsson Áslaug E. Grétarsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HJÖRDÍS BÁRA ÞORVALDSDÓTTIR, Bogabraut 17, Skagaströnd, verður jarðsungin frá Hólaneskirkju á Skagaströnd föstudaginn 18. febrúar klukkan 14. Hægt verður að nálgast streymi frá útför á www.mbl.is/andlat. Gunnar Þór Gunnarsson Bryndís Björk Guðjónsdóttir Anna Elínborg Gunnarsdóttir Matthías Björnsson Áslaug Sif Gunnarsdóttir Örn Torfason ömmu- og langömmubörn Ástkær faðir minn, GUÐJÓN ÓLAFSSON, bóndi og fyrrv. oddviti, Syðstu-Mörk, V-Eyjafjöllum, lést á Hjúkrunarheimilinu Kirkjuhvoli, Hvolsvelli, föstudaginn 11. febrúar. Útförin fer fram frá Stóra-Dalskirkju laugardaginn 19. febrúar klukkan 14. Athöfninni verður streymt á promynd.is/gudjon, hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat. Björgvin Guðjónsson Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÍNA GUÐBJÖRG RAGNARSDÓTTIR, lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 1. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Viðar Sigurðsson Norðfjörð Óskar Sævarsson Guðbjörg Eyjólfsdóttir Jóhanna Sævarsdóttir Viðar Geirsson Erlendur Sævarsson Arna Þórunn Björnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Við sendum hjartans þakkir fyrir fallegar kveðjur og hlýhug við fráfall og útför okkar elskaða HJALTA ÁRNASONAR, bónda í Galtafelli. Hans er sárt saknað. Guðrún Hermannsdóttir Guðmundur Hjaltason Valborg Tryggvadóttir Árni Hjaltason Dúna Rut Karlsdóttir Inga Jóna Hjaltadóttir Borgþór Vignisson afabörn, langafabörn og aðrir ástvinir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.