Morgunblaðið - 17.02.2022, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 17.02.2022, Blaðsíða 52
52 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022 40 ÁRA Silja ólst upp að stóru leyti í Leirár- og Melasveit en flutti um fermingu í V-Landeyjar og seinna á Hvolsvöll. Nú býr hún í Gerðum 2 í Flóa. Silja er hjúkrunarfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og vinnur á göngudeild og lyflækningadeild á HSU á Selfossi. „Áhugamálin eru hannyrðir, garðrækt og búskapurinn, en við erum með u.þ.b. 70 mjólkurkýr ásamt nautaeldi, nokkrar ær og reið- hross handa stelpunum.“ FJÖLSKYLDA Eiginmaður Silju er Stefán Geirsson, f. 1981, bóndi í Gerð- um. Dætur þeirra eru Melkorka Álf- dís, f. 2006, Margrét Lóa, f. 2009, Kristjana Ársól, f. 2011, Ásgerður Saga, f. 2013, og Elsa Björk, f. 2021. For- eldrar Silju eru Kristjana Karen Jónsdóttir, f. 1958, sjúkraliði, og Kjartan Már Benediktsson, f. 1955, sjómaður og bóndi. Þau eru búsett á Hvolsvelli. Silja Rún Kjartansdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Láttu ekki aðra hafa áhrif á skoðanir þínar. Einhver kemur þér til hjálpar á ögur- stund. 20. apríl - 20. maí + Naut Það lítur út fyrir að þú sitjir uppi með hálfgert leiðindaverk í dag. Skoðaðu stöðu þína og reyndu að finna út hvað það er sem þú vilt fá út úr lífinu. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú átt ýmsar hliðar til og getur sýnt þær að vild. Þú færð skemmtileg verk- efni sem gera kröfur til allra þinna hæfileika. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Vinnufélagi þinn er greinilega yfir sig hrifinn af þér. Ekki draga hann á asnaeyr- unum ef þú ert ekki á sömu blaðsíðu. Þú færð hrós frá einstaklingi sem þú ert nýbú- in/n að hitta. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Neikvæð gagnrýni dregur kjark úr öll- um. Ekki eyða tímanum í niðurrif, það kemur nýr dagur á morgun með ný tækifæri. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Gerðu þér glaðan dag því það þarf ekki að kosta mikið. Allt hefur sinn tíma og þú færð að ræða málin, þannig að öll kurl komi til grafar. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þér finnst þú eiga erfitt með að setja öðrum mörk. Æfðu þig þá. Leiðindi er orð sem ekki er til í þinni orðabók, þess vegna ertu svona vinmargur/mörg. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þegar sólin sest verður þú bú- inn að taka ákvörðun í vissu máli. Sérvitur manneskja verður á vegi þínum, ekki dæma hana úr leik fyrirfram. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Meiriháttar atvinnutækifæri kemur upp í hendurnar á þér. Veltu málinu fyrir þér, en ekki of lengi. Ertu búin/n að gera góðverk í dag? 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þetta er góður tími til sjálfskoð- unar. Sættu þig við það sem þú færð ekki breytt og leggðu þig fram um að auðga líf þitt. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú ert eins og suðupottur og þarft að fá útrás fyrir reiði þína. Horfur í ástalífinu eru góðar og mikið af skapandi verkefnum á döfinni. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Eitthvað á eftir að koma þér svo á óvart að þú munt undrast eigin viðbrögð. Það er ekki auðvelt að kenna gömlum hundi að sitja en það ætti að takast. Ó li Grétar Blöndal Sveinsson fæddist 17. febrúar 1972 á Land- spítalanum í Reykja- vík. Þegar hann var nokkurra mánaða gamall flutti fjölskylda hans í vinnubúðir við Lagarfossvirkjun og dvaldi þar í tvö ár meðan faðir hans vann sem staðarstjóri verktakans við bygg- ingu virkjunarinnar. Eftir það flutti fjölskyldan aftur til Reykja- víkur og við fjögurra ára aldurinn til Egilsstaða, þar sem hann ólst upp. „Eitt er mér minnisstætt, þegar ég átta ára gamall var send- ur á Siglufjörð um sumarið til afa og ömmu. Eitthvað byrjaði það brösuglega sem varð til þess að ég ákvað að strjúka til Egilsstaða. Það gekk hins vegar ekki vel, þar sem ég gekk inn Siglufjörðinn í stað þess að ganga út fjörðinn. En ástæðan fyrir þessari slæmu byrj- un þarna á Siglufirði var vænt- anlega sú að ég var vanur miklu frjálsræði þegar ég var á Eiðum hjá ömmu minni í föðurætt. Ég var mjög upptekinn sem barn og unglingur og átti fjölda- mörg áhugamál, auk þess sem fjöl- skyldan var dugleg að taka þátt í heyskap og réttum inni í Fljótsdal og ég síðar hjá vini mínum á Finnsstöðum í Eiðaþinghá. Fyrir utan fótboltann stundaði ég bæði skák og siglingar. Ég var Austur- landsmeistari í skólaskák nokkrum sinnum og náði það góðum árangri í siglingamótum að ég var eitt sinn sendur með unglingaliði Íslands til Danmerkur til að keppa á kænum. Síðar meir var ég einnig í liði Ís- lands sem tók þátt í tvíliðakeppni á stærri seglbátum á Írlandi 1995. Ég var einnig mikið í fjalla- mennsku og klifri og var m.a. for- maður unglingadeildar Lands- bjargar á Egilsstöðum um tíma.“ Óli Grétar gekk í Grunnskólann og Menntaskólann á Egilsstöðum. Eftir það fór hann til Konstanz í Þýskalandi í eitt ár og lærði þýsku, eðlisfræði og stærðfræði. Eftir að hafa þurft að fara í skurð- aðgerð á ökkla ákvað hann að klára háskólanámið á Íslandi og útskrifaðist 1995 með gráðu í eðl- isfræði frá Háskóla Íslands. Eftir árs hlé, þar sem hann vann sem kennari í eðlisfræði og stærðfræði við Menntaskólann á Egilsstöðum, þá fór hann í framhaldsnám í vatnaverkfræði til Fort Collins í Colorado þar sem hann lauk MSc- prófi árið 1998 og PhD-prófi árið 2002. „Þessi ár voru einstaklega góð enda náttúran, skíðasvæðin og veðurfar í Colorado með besta móti og fékk ég reglulega fjöl- skyldumeðlimi í heimsókn. Árið 2001 kynntist ég eiginkonu minni Anne-Andrée frá Kanada í brúð- kaupi bróður hennar í Acapulco í Mexíkó, en bróðir hennar var skólafélagi minn frá Colorado. Við fluttum síðan til New York árið 2002 þar sem ég var nýdoktor hjá Columbia University að vinna að verkefni fyrir Hydro Quebec í Kanada og síðan árið 2004 til Ís- lands. Ég byrjaði ungur að vinna sem mælingamaður á Verkfræðistofu Austurlands hjá pabba og svo í níu sumur frá og með bílprófsaldri hjá Vatnamælingum Orkustofnunar með aðsetur hjá Rarik á Egils- stöðum. Þessi vinna var góður skóli og oft mikil ævintýri sem fylgdu þessum mælingaverkefnum. Árið 2004 hóf ég störf hjá Lands- virkjun og hef verið þar í ýmsum stjórnendastöðum og lengst af sem framkvæmdastjóri þróunarsviðs frá 2010 til 2021. Núna er ég forstöðumaður þróunar vatnsafls hjá Landsvirkjun. Þessi tími hefur verið mjög ánægjulegur og krefj- andi og hef ég komið að undirbún- ingi og byggingu á Kárahnjúka- virkjun, Búðarhálsvirkjun, tveimur vindmyllum við Búrfell, Þeista- reykjavirkjun og stækkun Búr- fellsvirkjunar.“ Óli Grétar hefur setið í ýmsum stjórnum og er núna m.a. í stjórn Orkurannsóknasjóðs Landsvirkj- unar og í stjórn og framkvæmda- stjórn International Hydropower Association. „Helstu áhugamál snúa að al- Óli Grétar Blöndal Sveinsson, forstöðumaður hjá Landsvirkjun – 50 ára Hjónin Óli Grétar og Anne-Andrée stödd á Altea á Spáni. Vinnur að þróun vatnsafls Með börnunum Lilja, Óli Grétar og Lúkas í bátsferð á Altea. Afmælisbarnið Óli Grétar í utanvegahlaupi á Tenerife. Til hamingju með daginn Gerðar Elsa Björk Stefánsdóttir fæddist 12. október 2021. Hún vó 4.050 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Silja Rún Kjartansdóttir og Stefán Geirsson. Nýr borgari –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 15. mars 2022 Auglýsendur athugið SÉRBLAÐ B A BLAÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.