Morgunblaðið - 17.02.2022, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 17.02.2022, Blaðsíða 54
54 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022 Coca Cola-bikar karla 16-liða úrslit: Stjarnan – KA....................................... 24:27 Valur – HK............................................ 31:29 Vængir Júpíters – Víkingur ................ 19:31 Grótta – Haukar................................. (19:22) ÍR – Selfoss ........................................ (18:20) _ Tveimur síðustu leikjunum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Meistaradeild karla A-riðill: Meshkov Brest – Aalborg................... 29:33 - Aron Pálmarsson lék ekki með Aalborg vegna meiðsla. Arnór Atlason er aðstoð- arþjálfari liðsins. Montpellier – Vardar Skopje ............. 25:28 - Ólafur Andrés Guðmundsson lék ekki með Montpellier vegna meiðsla. _ Aalborg 16, Montpellier 16, Pick Szeged 14, Kiel 13, Elverum 8, Vardar Skopje 7, Zagreb 6, Meshkov Brest 4. B-riðill: Flensburg – Kielce .............................. 25:33 - Teitur Örn Einarsson skoraði eitt mark- fyrir Flensburg. - Haukur Þrastarson skoraði 2 mörk fyrir Kielce en Sigvaldi Björn Guðjónsson var ekki með vegna meiðsla. _ Kielce 16, Veszprém 13, París SG 12, Barcelona 12, Flensburg 9, Motor Zaporoz- hye 8, Porto 8, Dinamo Búkarest 6. Noregur Drammen – Halden ............................. 37:29 - Óskar Ólafsson skoraði 4 mörk fyrir Drammen. Þýskaland B-deild: Gummersbach – Hagen ...................... 30:26 - Elliði Snær Viðarsson skoraði ekki fyrir Gummersbach en Hákon Daði Styrmisson er frá vegna meiðsla. Guðjón Valur Sig- urðsson þjálfar liðið. Emsdetten – Coburg ........................... 27:29 - Anton Rúnarsson skoraði 5 mörk fyrir Emsdetten og Örn Vésteinsson 3. - Tumi Steinn Rúnarsson skoraði 2 mörk fyrir Coburg. _ Efstu lið: Gummersbach 32, Nordhorn 30, Hüttenberg 26, Hamm 25, Hagen 25. Svíþjóð Guif – Ystad IF..................................... 31:35 - Daníel Freyr Ágústsson varði 11 skot í marki Guif, var með 24% markvörslu. Sviss Winterthur – Zug ................................ 31:30 - Harpa Rut Jónsdóttir skoraði ekki fyrir Zug. E(;R&:=/D Subway-deild kvenna Fjölnir – Grindavík............................... 90:66 Keflavík – Breiðablik ........................... 73:58 Haukar – Valur .................................. (50:41) _ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. Staðan fyrir leik Hauka og Vals: Njarðvík 16 11 5 1082:1007 22 Fjölnir 16 11 5 1321:1224 22 Valur 16 11 5 1220:1151 22 Haukar 14 8 6 1057:1005 16 Keflavík 16 7 9 1237:1205 14 Breiðablik 17 5 12 1233:1366 10 Grindavík 17 3 14 1204:1396 6 1. deild kvenna KR – Stjarnan....................................... 70:81 Belgía Bikarinn, undanúrslit, seinni leikur: Antwerp Giants – Oostende............... 72:82 - Elvar Már Friðriksson skoraði 16 stig, gaf 6 stoðsendingar og tók 5 fráköst fyrir Antwerp sem tapaði 150:172 samanlagt. Belgía/Holland Landstede Hammers – Amsterdam .. 83:68 - Þórir Guðmundur Þorbjarnarson skor- aði 18 stig fyrir LH, gaf 5 stoðsendingar og stal boltanum fimm sinnum. >73G,&:=/D KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Subway-deildin: Seljaskóli: ÍR – Valur........................... 18.15 Keflavík: Keflavík – Þór Ak................. 19.15 Ísafjörður: Vestri – Tindastóll ............ 19.15 Ásgarður: Stjarnan – KR .................... 20.15 HANDKNATTLEIKUR Coca Cola-bikar karla, 16-liða úrslit: Digranes: Kórdrengir – ÍBV.................... 19 Coca Cola-bikar kvenna, 16-liða úrslit Dalhús: Fjölnir/Fylkir – ÍBV ................... 18 Austurberg: ÍR – Grótta...................... 19.30 Selfoss: Selfoss – Haukar .................... 19.30 Varmá: Afturelding – HK.................... 19.30 ÍSHOKKÍ Íslandsmót kvenna, Hertz-deildin: Egilshöll: Fjölnir – SR ......................... 18.45 Í KVÖLD! FÓTBOLTI Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Lokaundirbúningur íslenska kvennalandsliðsins fyrir Evr- ópumótið í fótbolta hefst í kvöld þegar það mætir Nýja-Sjálandi í Carson í Kaliforníu. Það er fyrsti leikur liðsins af þremur í sterku alþjóðlegu móti, She Believes Cup, sem bandaríska knattspyrnusambandið hefur haldið undanfarin ár og býður jafnan þremur sterkum landsliðum til leiks. Leikur Íslands og Nýja-Sjálands hefst ekki fyrr en klukkan eitt að nóttu að íslenskum tíma, 17 síðdegis að staðartíma. Þremur tímum síðar hefst viðureign hinna tveggja lið- anna í mótinu, Bandaríkjanna og Tékklands, sem er leikinn á sama velli, Dignity Health Sports Parks, heimavelli LA Galaxy, en hann rúm- ar 27 þúsund áhorfendur. Carson er 90 þúsund manna útborg frá Los Angeles, um 20 km í suður frá mið- borg stórborgarinnar. Það er ekki bara EM á Englandi í sumar sem er í sigtinu hjá landsliðs- konunum, heldur eru þær á leið í tvo lykilleiki í undankeppni HM í apríl, í Hvíta-Rússlandi og Tékklandi. Stjörnukonan meðal þeirra reyndustu Mótherjarnir í nótt, Ný- Sjálendingar, hafa verið lengi fram- arlega í flokki í heimsfótboltanum og hefur leikið í lokakeppni fjögurra síðustu heimsmeistaramóta. Þá er liðið þegar komið í fimmtu loka- keppnina í röð, HM 2023, sem annar gestgjafanna en keppnin fer fram á Nýja-Sjálandi og í Ástralíu. Nýsjálenska liðið er í 22. sæti heimslista FIFA, sjö sætum á eftir Íslandi, og er með gríðarlega reynda leikmenn. Þar á meðal er Betsy Hassett, miðjumaður Stjörnunnar, sem er fjórða leikjahæsta landsliðs- kona Nýja-Sjálands frá upphafi með 126 landsleiki en hinar þrjár sem eru fyrir ofan hana eru allar í hópn- um í dag. Tvær þeirra leika í banda- rísku atvinnudeildinni og sú þriðja með Tottenham á Englandi. Með liðinu leikur einnig Olivia Chance, fyrrverandi leikmaður Breiðabliks, sem nú leikur með Celtic í Skot- landi. Þá eru í liðinu leikmenn frá m.a. Liverpool á Englandi, Avalds- nes í Noregi og Umeå í Svíþjóð og sex þeirra leika í áströlsku atvinnu- deildinni. Léku um brons 2016 Þetta verður annar leikur Íslands og Nýja-Sjálands frá upphafi. Liðin skildu jöfn, 1:1, í Algarve-bikarnum í Portúgal í mars árið 2016 í leik um bronsverðlaunin á mótinu. Andrea Rán Hauksdóttir kom Íslandi yfir en Amber Hearn jafnaði fyrir Nýja- Sjáland. Ísland vann vítaspyrnu- keppni þar sem Guðbjörg Gunn- arsdóttir markvörður og Sandra María Jessen tryggðu íslenskan sig- ur í bráðabana. Þorsteinn Halldórsson landsliðs- þjálfari sagði á blaðamannafundi í gær að hann reiknaði með að allir 23 leikmennirnir í hópnum myndu taka þátt í leikjunum þremur og líklega yrðu miklar breytingar á byrj- unarliðinu á milli leikja. Dagný Brynjarsdóttir og Glódís Perla Vig- gósdóttur gætu spilað sinn 100. landsleik gegn Bandaríkjunum, ef þær koma við sögu í báðum leikj- unum á undan. Fyrsti af þrem- ur hörkuleikjum - Ísland mætir Nýja-Sjálandi í nótt Ljósmynd/KSÍ Kalifornía Karólína Lea Vilhjálmsdóttir fremst í flokki á æfingu landsliðs- ins í Carson í gær. Leikurinn við Nýja-Sjáland fer fram í nótt. Stefán Darri Þórsson, fyrirliði karlaliðs Fram, hefur samið að nýju við handknattleiksdeild Fram um að spila með liðinu til ársins 2025, eða næstu þrjú keppnistímabil að þessu loknu. Stefán Darri er 27 ára gamall og hefur leikið með Fram mestallan ferilinn en var um þriggja ára skeið með Stjörnunni og spænska liðinu Alcobendas áður en hann sneri aft- ur í Safamýrina sumarið 2019. Hann hefur spilað 13 af 14 leikjum Fram í deildinni í vetur og skorað í þeim 32 mörk. Framlengdu við fyrirliðann Morgunblaðið/Árni Sæberg Samdi Stefán Darri Þórsson verður áfram í röðum Fram næstu árin. Forráðamenn West Ham hafa rætt við Dagnýju Brynjarsdóttur, lands- liðskonu í knattspyrnu, um að vera áfram hjá félaginu á næsta keppn- istímabili. Samningur Dagnýjar við West Ham rennur út í sumar en Dagný sagði á blaðamannafundi KSÍ í gær að hún hafi fengið þau skilaboð að hjá West Ham sé vilji til að gera við hana nýjan samning. Hún orðaði það þannig að viðræður væru hafnar en lagði áherslu á að margt geti gerst í boltanum og ekk- ert sé staðfest fyrr en skrifað hafi verið undir samninga. West Ham vill halda Dagnýju Ljósmynd/@westhamwomen London Dagný Brynjarsdóttir fagnar marki fyrir West Ham. KA gerði góða ferð í Garðabæ í gærkvöld og lagði þar Stjörnuna að velli, 27:25, í sextán liða úrslitum bikarkeppni karla í handknattleik. Patrekur Stefánsson var marka- hæstur hjá KA með sex mörk þó hann fengi rauða spjaldið um miðj- an síðari hálfleik. Ólafur Gúst- afsson skoraði fimm mörk og Bruno Bernat varði 18 skot. Tandri Már Konráðsson og Björgvin Hólm- geirsson skoruðu sex mörk hvor fyrir Stjörnuna. Valsmenn lentu í miklum vand- ræðum á Hlíðarenda með HK sem komst tvisvar tveimur mörkum yfir um miðjan síðari hálfleik. Valur var sterkari á endasprettinum og vann 31:29. Valur mætir Víkingi sem vann Vængi Júpíters, 31:19. Arnór Snær Óskarsson skoraði 9 mörk fyrir Val og Vignir Stef- ánsson 5 en Hjörtur Ingi Hall- dórsson skoraði 7 mörk fyrir HK. _ Leikjum Gróttu – Hauka og ÍR – Selfoss var ekki lokið þegar blað- ið fór í prentun. Sjá mbl.is/sport/ handbolti. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Garðabær Færeyingurinn Allan Nordberg skoraði þrjú mörk fyrir KA í gærkvöld og reynir hér skot að marki Stjörnumanna í leiknum. KA sló Stjörnuna út Keflvíkingar halda í vonina um að komast í úrslitakeppnina í Subway- deild kvenna í körfuknattleik en liðið vann Breiðablik í Keflavík í gær 73:58. Anna Ingunn Svans- dóttir, Eygló Kristín Óskarsdóttir og Daniela Morillo voru stigahæst- ar hjá Keflavík með 19 stig hver. Isabella Ósk Sigurðardóttir var stigahæst hjá Breiðabliki með 15 stig. Er Keflavík í 5. sæti með 14 stig en Breiðablik er næstneðst með 10 stig. Bikarmeistarar Hauka eru í 4. sæti og líklegar til að safna stigum. Njarðvík, Valur og Fjölnir eru með 22 stig en Fjölnir vann sannfærandi sigur 90:66 á Grindavík í Graf- arvoginum. Dagný Lísa Davíðs- dóttir var öflug í liði Fjölnis eins og oft áður á þessu keppnistímabili. Skoraði hún 23 stig og var stiga- hæst. Robbi Ryan var stigahæst hjá Grindavík með 24 stig. _ Leik Hauka og Vals var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. Sjá mbl.is/sport/ korfubolti. Enn von hjá Keflavík Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stigahæst Dagný Lísa Davíðsdóttir sækir að körfu Grindavíkur í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.