Morgunblaðið - 17.02.2022, Side 55

Morgunblaðið - 17.02.2022, Side 55
ÍÞRÓTTIR 55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022 Með heimsfaraldrinum hafa komið upp nýjar aðstæður á stórmótum í íþróttum. Nú getur komið upp sú staða að fólk fari í einangrun á hótelherbergi og beint út í harða keppni að henni lokinni. Kórónuveiran hefur auðvitað haft ýmisleg önnur áhrif á íþróttaheiminn, en þetta er ef til vill nýjasta dæmið. Eftir að fjöldi fólks í heiminum fékk bólusetn- ingu, og það oftar en einu sinni, er íþróttafólkið sjaldan mjög veikt þegar það smitast. Tvívegis hefur það gerst á nýju ári að íslenskir íþróttamenn hafa meiðst við það að fara beint úr einangrun í keppni. Aron Pálmarsson meiddist eftir nokkr- ar mínútur í leiknum gegn Svart- fjallalandi á EM karla í hand- knattleik og Sturla Snær Snorrasson snemma í sviginu á Vetrarólympíuleikunum í Peking. Þarna eru komnar mjög sterk- ar vísbendingar um hversu skrít- ið það er fyrir mannslíkamann þegar vel þjálfaður íþróttamaður, sem æfir daglega, fer inn á her- bergi í marga daga. Fyrir Pétur og Pál myndi það ef til vill ekki skipta miklu máli. Öðru máli gegnir um íþrótta- fólk í háum gæðaflokki. Í þessum tveimur tilfellum fóru menn svo gott sem beint í keppni eftir að hafa verið í einangrun. Ekki á lauflétta æfingu heldur í átök þar sem meiningin er að standa sig gegn íþróttamönnum í heimsklassa. Nú er bakvörður dagsins ekkert sérlega fróður um líkamsstarfs- semina en ég get ímyndað mér að kerfið fái einhvers konar sjokk. Viðbrigðin eru svo mikil og þegar farið er beint í mikil átök þá lætur eitthvað undan. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Lengjubikar karla A-deild, riðill 3: Keflavík – Kórdrengir ............................. 0:2 Staðan: KR 1 1 0 0 5:0 3 Kórdrengir 1 1 0 0 2:0 3 Leiknir R. 1 1 0 0 3:2 3 Vestri 0 0 0 0 0:0 0 Keflavík 2 0 0 2 2:5 0 Afturelding 1 0 0 1 0:5 0 Ítalía B-deild: Alessandria – Lecce ................................ 1:1 - Þórir Jóhann Helgason lék fyrstu 78 mínúturnar með Lecce en Davíð Snær Jó- hannsson var ekki í hópnum. C-deild: Triestina – Virtus Verona ...................... 2:1 - Emil Hallfreðsson lék fyrstu 72 mínút- urnar með Virtus Verona. Spánn Atlético Madrid – Levante ...................... 0:1 Staða efstu liða: Real Madrid 24 16 6 2 48:20 54 Sevilla 24 14 8 2 36:16 50 Real Betis 24 13 4 7 45:29 43 Barcelona 23 10 9 4 38:27 39 Atlético Madrid 24 11 6 7 42:34 39 Meistaradeild N/M-Ameríku 16-liða úrslit, fyrri leikur: Santos Laguna – CF Montréal ............... 1:0 - Róbert Orri Þorkelsson var varamaður hjá Montréal en kom ekki við sögu. Meistaradeild karla 16-liða úrslit, fyrri leikir: Salzburg – Bayern München ................ (1:0) Inter Mílanó – Liverpool....................... (0:0) _ Leikjunum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. Algarve-bikar kvenna Danmörk – Ítalía ...................................... 0:1 Noregur – Portúgal.................................. 0:2 Frakklandsmót kvenna Brasilía – Holland..................................... 1:1 4.$--3795.$ Gríðarlega óvænt úrslit urðu í átta liða úrslitum íshokkíkeppni karla á Vetrarólympíuleikunum í Peking í gær þegar Slóvakía sigraði Banda- ríkin 3:2 eftir langa vítakeppni þar sem Peter Chehlarik skoraði sig- urmarkið. Slóvakar mæta Svíum í undanúrslitum á morgun en Svíar sigruðu Kanada 2:0, með tveimur mörkum á lokamínútunum. Í hinum undanúrslitaleiknum leika Rússar, Ólympíumeistararnir frá 2018, við Finna en Rússar sigruðu Dani 3:1 og Finnar lögðu Sviss á sannfær- andi hátt, 5:1. Afar óvæntur sigur Slóvaka AFP Óvænt Slóvakar fagna sigrinum á Bandaríkjamönnum í gær. Handboltamaðurinn Aron Dagur Pálsson er genginn til liðs við Nor- egsmeistarana Elverum og kemur til þeirra frá sænska úrvalsdeild- arliðinu Guif. Aron hefur samið við Elverum um að leika með liðinu út þetta keppnistímabil. Meðal sam- herja Arons hjá Elverum er lands- liðsmaðurinn Orri Freyr Þorkels- son. Aron Dagur, sem er 25 ára gamall, hefur áður leikið með Al- ingsås í Svíþjóð, Stjörnunni og Gróttu. Elverum er langefst í norsku úrvalsdeildinni og í góðri stöðu í Meistaradeild Evrópu. Aron til norsku meistaranna Morgunblaðið/Eggert Noregur Aron Dagur Pálsson er kominn til liðs við Elverum. ÓL 2022 Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Vetrarólympíuleikarnir í Peking hafa reynst skíðamanninum Sturlu Snæ Snorrasyni vægast sagt erf- iðir. Sturla, sem er 27 ára gamall, var með háleit markmið fyrir leikana og ætlaði sér meðal annars að enda í einu af 30 efstu sætunum í svigi karla sem er hans sterkasta grein. Markmiðin voru hins vegar fljót að breytast eftir að hann greindist með kórónuveiruna laugardaginn 5. febrúar, degi eftir setningarathöfn leikanna þar sem hann var fánaberi Íslands ásamt skíðagöngukonunni Kristrúnu Guðnadóttur. Sturla eyddi sjö dögum í ein- angrun á kórónuveirusjúkrahúsi í Peking. Hann dvaldi í átta fer- metra sjúkraherbergi þar sem að- búnaðurinn var ekki upp á marga fiska. Hann ákvað að hætta við keppni í stórsvigi hinn 13. febrúar, tveimur dögum eftir að hann losnaði úr ein- angrun, og í fyrrinótt féll hann úr keppni í svigi eftir að hafa meiðst illa á leið sinni niður brekkuna. „Tilfinningin núna er vægast sagt skrítin,“ sagði Sturla í samtali við Morgunblaðið stuttu eftir að hann féll úr keppni í sviginu. „Þessir leikar hefðu ekki getað farið verr. Það er bara nákvæmlega þannig og það er í raun erfitt að finna lýsingarorð til að lýsa því hvernig þetta fór. Eftir á að hyggja var ég engan veginn tilbúinn í þetta eftir vikulanga einangrun. Vöðv- arnir höfðu rýrnað eftir dvöl mína á sjúkrahúsinu en ég var ekki tilbú- inn að horfast í augu við þá stað- reynd. Ég reyndi að einbeita mér að því að vera úthvíldur fyrir svigkeppn- ina en að ná bara tveimur æf- ingadögum fyrir svigið, og snjóinn í Peking, var engan veginn nóg. Þetta er erfiður snjór að skíða í og hann hafði sitt að segja eins og sást þar sem margir keppendur skíðuðu út úr brautinni. Ef ég hefði haft viku til þess að undirbúa mig er ég nokkuð viss um að ég mér hefði gengið mun betur, en svona fór því miður,“ sagði Sturla. Tímabilið líklega búið Sturla féll ofarlega í brautinni en í fyrstu virtist eins og hann hefði hreinlega skíðað út úr braut líkt og fjöldi keppenda á undan honum. „Þegar á reyndi þá höndlaði lík- aminn illa átökin í brautinni enda miklu meira álag í keppni en á æf- ingu. Þú gefur þig allan í þetta í keppni á meðan þú getur leyft þér að taka því aðeins rólega á æfingum og byggt þannig upp hraðann hægt og rólega. Ég byrjaði að finna fyrir verkjum strax í annarri beygju og í fjórða beygju er eins og allt gefi sig. Ég tognaði í kviði, í nára og marðist líka á mjaðmabeini við átökin. Það er nokkuð augljóst að vöðvarnir fengu bara algjört sjokk. Ég ætlaði að sýna þjóðinni hvað í mér býr en þegar á reyndi gaf líkaminn sig. Sturla óttast að tímabilið hjá hon- um sé búið eftir meiðsli gærdagsins. „Lukkudísirnar hafa engan veg- inn verið mér hliðhollar á þessum leikum, sem og á tímabilinu heilt yf- ir. Ég meiðist fyrst í október þegar vöðvafestingar við nárann gefa sig og það hefur verið að plaga mig í all- an vetur. Svo meiðist ég núna í svig- inu og ég er skíthræddur um að tímabilið sé svo gott sem búið hjá mér. Það er ekki hægt að kenna mótshöldurum hér í Kína um það þegar einhver smitast af kór- ónuveirunni. Þessi veira herjar á alla og það var klárlega óheppni að greinast með hana í Peking og tíma- setningin hefði í raun ekki getað verið verri. Það er hins vegar alveg klárt mál að þessi aðbúnaður á sjúkrahúsinu í Peking hafði sitt að segja. Ég verð að segja að það kom mér á óvart að það hafi ekki verið gert betur ráð fyrir því að fólk gæti smitast á leik- unum og þá hefði kannski verið hægt að búa betur um það íþrótta- fólk sem greindist. Ég er ekki að kenna því um það hvernig þetta fór hjá mér persónulega enda var ég mjög veikur og gat lítið æft fyrstu dagana í einangrun en maturinn sem ég fékk var ekki að hjálpa mér að halda uppi vöðvamassa.“ Stefnan sett á heimsbikarinn Þrátt fyrir áföllin í Peking horfir Sturla bjartsýnn fram veginn en hann er sem stendur í 183. sæti heimslistans í svigi. „Þessi reynsla í Peking mun klár- lega styrkja mig en eins og ég horfi á þetta núna er ég auðvitað gríð- arlega svekktur. Þetta hefur verið átakanleg lífsreynsla og tímabilið líka í heild sinni. Vonandi var þetta stormurinn á undan logninu því ég held að það sé alveg óhætt að segja að ég sé búinn að taka út minn skammt af óheppni fyrir næstu ár- in.“ Að mínu mati og þjálfarans míns er skíðunin mín góð miðað við allt sem á undan hefur gengið. Ég hef ekki náð að sýna mínar bestu hliðar undanfarin ár en stefnan er að öðl- ast keppnisrétt í heimsbikarnum. Ég þarf að vera í 150. sæti eða neðar til þess að fá sjálfkrafa keppnisrétt þar. Það hefur alltaf verið stefnan hjá mér að keppa í heimsbikarnum, alveg frá því að ég man eftir mér, og mér finnst ég of nálægt því núna til þess að gefast upp á þeim draumi.“ Sturla keppti einnig á leikunum í PyeongChang í Suður-Kóreu árið 2018. Þar dró hann sig úr keppni í svigi vegna meiðsla sem hann varð fyrir í stórsviginu þar sem honum tókst ekki að ljúka keppni og hann á því ennþá eftir að ljúka keppni í alpagreinum á Ólympíuleikum. „Þessi spurning, um það hvort þetta sé ekki bara komið gott, kem- ur alltaf upp í hugann þegar illa gengur og þá fer maður að velta því fyrir sér af hverju maður sé að standa í þessu. Ég held að þetta sé eitthvað sem allir íþróttamenn upp- lifi einhvern tíma á sínum ferli en ég á nóg inni ennþá og ætla mér að sanna mig á stóra sviðinu áður en ég legg skíðin á hilluna. Eins og þetta horfir við mér er ég rétt að byrja,“ sagði Sturla við Morgunblaðið. Erfitt að finna réttu orðin - Sturla Snær Snorrason hefur lokið keppni á Vetrarólympíuleikunum í Peking - Horfir bjartsýnn fram á veginn og stefnir á heimsbikarinn í alpagreinum Ljósmynd/SSS Vonbrigði Sturla Snær Snorrason ætlaði sér að ná langt á Vetrarólymp- íuleikunum í Peking en veikindin settu strik í reikninginn. Skíðagöngumennirnir Isak Stian- son Pedersen og Snorri Einarsson höfnuðu í 20. sæti af 25 liðum í liða- keppni í sprettgöngu á Vetraról- ympíuleikunum í Peking í gær- morgun. Þeir komu í mark á tímanum 21:05,66 mínútum sem var tutt- ugasti besti tími undankeppninnar en dugði þeim ekki til þess að kom- ast áfram í úrslitin. Snorri gekk fyrsta, þriðja og fimmta hlutann á meðan Isak gekk annan, fjórða og sjötta hlutann. Þeir urðu í tíunda sæti af tólf í seinni riðli undankeppninnar. Ítalía, Svíþjóð, Sviss, Austurríki, Rússland og Bandaríkin urðu í sex efstu sætum riðilsins og komust í úrslitin. Isak og Snorri voru tæpum 54 sekúndum á eftir bandaríska lið- inu og því talsvert langt frá því að komast áfram. Úrslitin fóru síðan fram í kjölfar- ið og þar voru það Erik Valnes og Johannes Klæbo sem voru fljótastir og tryggðu Norðmönnum enn ein gullverðlaunin á þessum leikum. Þeir gengu á 19:22,99 mínútum og voru tæpum þremur sekúndum á undan Finnum sem fengu silfrið og rúmum fjórum sekúndum á undan Rússum sem hrepptu brons- verðlaunin. Noregur er þá kominn með 13 gull á leikunum, Þýskaland 10, Bandaríkin 8 og Kína 7. Gullið til Noregs og Ísland í 20. sæti AFP Peking Snorri Einarsson í liða- keppni sprettgöngunnar í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.