Morgunblaðið - 17.02.2022, Síða 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022
D
auðinn á Níl er byggð á
samnefndri skáldsögu
Agöthu Christie frá
1937 og er framhald af
Morðinu í Austurlandahraðlestinni
(2017). Þar snúa aftur Tom Bate-
man og Branagh, úr fyrri mynd-
inni sem sá síðarnefndi leikstýrði,
sem Bouc og Hercule Poirot og
yfirvararskeggið fær sína eigin
baksögu, ólíkt sögupersónunum.
Spæjarinn Poirot er nú staddur í
Egyptalandi þar sem hann hittir
vin sinn Bouc sem kynnir hann
fyrir nýgiftu hjónunum Linnet
(Gal Gadot) og Simon (Armie
Hammer), sem eru í brúðkaups-
ferð með vinum sínum og ættingj-
um. Jackie eða Jaccqueline de
Bellefort (Emma Mackey), fyrrum
unnusta Simons, eltir þau á rönd-
um. Hjónin langar að flýja frá
Jackie en vilja ekki trufla brúð-
kaupsferðina og kjósa því að fara
um borð í skemmtiferðaskipið S.S.
Karnak með gestum sínum og er
Poirot þeirra á meðal. Ljóst er að
Jackie er ekki sú eina sem hjónin
þurfa að óttast því eins og Linnet
segir við Poirot: „Þegar þú ert
auðugur, þá er enginn raunveru-
lega vinur þinn.“
Kvikmyndin hefst þó ekki í
Egyptalandi heldur í fyrri heims-
styrjöldinni þar sem ungur Poirot
notar hugann til þess að hjálpa
herliði sínu við að endurheimta
land þeirra en skaddast á andliti
og neyðist til að láta sér vaxa
skegg. Þótt baksaga skeggsins sé
skemmtileg þá bætir hún litlu við
núverandi sögu enda er erfitt að
ímynda sér að skeggið hafi haft
bein áhrif á morðið á Níl. Í kjölfar-
ið fáum við að kynnast fyrrum ást-
konu Poirot í nokkrar mínútur áð-
ur en hún deyr sem er ætlað að
útskýra af hverju hann velur það
einmanalega líf sem hann lifir.
Þessar viðbætur við söguna sem er
ætlað að dýpka skilninginn á
tveimur sögupersónum, Poirot og
yfirvararskegginu hans, eru óþarf-
ar og hægja aðeins á frásagnar-
framvinndunni.
Drifkraftur spennunnar á að
vera hið ástríðufulla samband Sim-
ons og Linnet en leikurunum tekst
ómögulega að sannfæra áhorf-
endur um að þau séu svo ástfangin
af hvort öðru að þau séu tilbúin að
eyðileggja trúlofun (hans) og dýr-
mæta vináttu (hennar) til að vera
saman. Leikararnir hafa nákvæm-
lega engan neista og er tímasetn-
ing þeirra og líkamstjáning alltaf
röng. Einnig er komið í veg fyrir
að áhorfendur geti notið landslags-
ins því myndheildin er gjarnan
grunn, gervileg og gljáandi. Í
mörgum atriðum er ljóst að þau
eru tekin upp fyrir framan grænan
skjá sem fælir áhorfandann frá
enda er aðdráttarafl þessara
mynda tækifærið til að sjá hóp af
efnuðu og glæsilegu fólki á
fallegum stöðum.
Valið í aðalhlutverkin, Simons og
Linnet, hefur einnig verið gagn-
rýnt. Armie Hammer er kynntur á
mjög líkamlegan og kynferðislegan
hátt sem ef til vill veldur ein-
hverjum áhorfendum óþægindum í
ljósi ásakana á hendur honum um
að hafa beitt nokkrar konur grófu
kynferðilsegu ofbeldi. Gal Gadot er
líka umrædd en hún starfaði í tvö
ár sem hermaður í ísraelska
varnarliðinu og hefur meðal ann-
ars verið gagnrýnd fyrir yfirlýs-
ingu sem hún sendi frá sér um of-
beldi milli Ísraels og Palestínu.
Það er þó ekki vandræðalaust að
yfirfæra Agöthu Christie í fjölda-
afþreyingu á 21. öld enda eru bæk-
ur hennar afurðir þess tíma sem
þær voru skrifaðar á, þ.e. miðrar
20. aldar, og endurspegla ekki
endilega viðhorf samtímans. Líkt
og í Morðinu í Austurlanda-
hraðlestinni er leikarahópurinn
fjölbreyttur ólíkt aðlögun John
Guillermin frá árinu 1978. Kenneth
Branagh sýnir til dæmis svarta
hermenn berjast fyrir Belgíu í
fyrri heimsstyrjöldinni sem er ætl-
að að sýna hvernig evrópskar her-
sveitir reiddu sig á nýlendur sínar
eins og þegar Kongóbúar börðust
fyrir Belgíu. Í hópi brúðkaupsgest-
anna og hinna grunuðu sem leggja
leið sína niður Níl eru svörtu og
bresku leikkonurnar Sophie
Okonedo og Letitia Wright sem
leika frænknatvíeykið Salome og
Rosalie Otterbourne. Í skáldsög-
unni eru þær hvít bresk móðir og
dóttir en myndin gerir þær að
afrísk-amerískum blústónlistar-
konum. Í myndinni er einnig ný
persóna, lögfræðingurinn Andrew
Katchadourian, leikinn af ind-
verska leikaranum Ali Farzal og
lagaður eftir annarri persónu í
skáldsögunni, Andrew Pennington.
Þessar breytingar á fyrri sögu
eru mikilvægar en ekki nóg til
þess að gera kvikmyndina góða.
Kvikmyndin er þó ágætt áhorf en
erfitt er að ímynda sér að hún
verði einhverjum eftirminnileg líkt
og bækur Agöthu Christie nema ef
til vill hið umtalaða skegg Poirot.
Saga skeggsins
Dauði Spæjarinn Poirot er nú staddur í Egyptalandi þar sem hann hittir vin sinn Bouc sem kynnir hann fyrir ný-
giftu hjónunum Linnet (Gadot) og Simon (Hammer), sem eru í brúðkaupsferð með vinum og ættingjum.
Sambíóin, Smárabíó
og Háskólabíó
Death on the Nile/ Dauðinn á Níl
bbmnn
Leikstjórn: Kenneth Branagh. Handrit:
Michael Green. Aðalleikarar: Kenneth
Branagh, Tom Bateman, Gal Gadot,
Armie Hammer, Emma Mackey, Annette
Bening, Russell Brand, Rose Leslie.
Bandaríkin, 2022. 126 mín.
JÓNA GRÉTA
HILMARSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Leikkonan Tanja
Björk Ómars-
dóttir er tilnefnd
til kanadísku
kvikmynda- og
sjónvarpsverð-
launanna, The
Academy of Ca-
nadian Cinema &
Television Aw-
ards, fyrir besta
leik konu í auka-
hlutverki fyrir leik sinn í kvik-
myndinni Le Bruit des Moteurs, eða
Vélarhljóð. Tanja leikur íslenska
kappaksturskonu og talar frönsku í
myndinni. Verðlaunin eru þau
merkustu í Kanada á sviði kvik-
mynda og sjónvarpsefnis og eru
veitt af kvikmynda- og sjónvarps-
akademíunni þar í landi líkt Ósk-
arsverðlaunin í Bandaríkjunum eða
Eddan hér á Íslandi.
Myndin var að hluta til tekin á
Íslandi og er leikstjóri hennar, Phil-
ippe Grégoire, einnig tilnefndur
fyrir bestu leikstjórn en myndin er
hans fyrsta í fulltri lengd. Í mynd-
inni segir af ungum manni sem er
leystur tímabundið frá störfum og
heldur hann til heimabæjar síns og
kynnist þar Aðalbjörgu, sem Tanja
leikur. Tveir aðrir Íslendingar
leika í myndinni, ef marka má
Internet Movie Database, þeir Arn-
mundur Ernst Björnsson og Ingi
Hrafn Hilmarsson.
Tilnefnd til kana-
dískra verðlauna
Tanja Björk
Ómarsdóttir
Ingibjörg Elsa
Turchi, bassa-
leikari og tón-
skáld, heldur
tónleika í Mengi í
dag kl. 17 ásamt
Magnúsi Trygva-
syni Eliassen
trommuleikara,
Tuma Árnasyni
saxófónleikara,
Hróðmari Sig-
urðssyni gítarleikara og Magnúsi
Jóhanni Ragnarssyni píanóleikara.
Munu þau leika nýtt efni af væntan-
legri plötu og mögulegt að gamlir
slagarar fái að fljóta með. Aðgangs-
eyrir er kr. 2.500.
Ingibjörg og
hljómsveit í Mengi
Ingibjörg Elsa
Turchi