Morgunblaðið - 17.02.2022, Page 64
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
*Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar
með fyrirvara um prentvillur.
Fyrir
lifandi
heimili
RIVERDALE KENTON
Lukt. H39 cm. 39.990 kr.
Lukt. H35 cm. 26.990 kr.
KARE DOUGH
Borðlampi. Gylltur eða silfur.
46.990 kr.
BROSTE TISVILDE
Matardiskur. 3.490 kr.
Forréttadiskur. 2.890 kr.
Hliðardiskur. 1.890 kr.
Espresso bolli. 990 kr.
Kanna. 25 cl. 1.690 kr.
Skál. Ø24 cm. 7.890 kr.
Skál. Ø17 cm. 2.890 kr.
Skál Ø15 cm. 2.790 kr.
„Erkitýpur og vængj-
aðar verur“ er yfirskrift
sýningar á verkum eftir
Messíönu Tómasdóttur
sem verður opnuð í sýn-
ingarsal Seltjarnarness,
Gallerí Gróttu, í dag,
fimmtudag, kl. 17. Hún
sýnir 18 textílverk af
vængjuðum verum og
erkitýpum, bæði sem
veggskúlptúra og leik-
brúður. Við opnun sýn-
ingarinnar verður flutt
tónverk eftir Rory
Murphy sem tileinkað
er Erkitýpunum. Texta Oddnýjar Eirar Ævarsdóttur
syngur Messíana Halla Kristinsdóttir sópran. Messíana
hefur haldið fjölda myndlistarsýninga og er höfundur
að leikmyndum og búningum um 80 leiksýninga, ópera
og sjónvarpsverka hér á landi og erlendis.
Erkitýpur og vængjaðar verur á
sýningu Messíönu Tómasdóttur
FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 48. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu leikur í nótt
fyrsta leik sinn á árinu 2022 þegar það mætir Nýja-
Sjálandi í Carson í Kaliforníu. Þetta er fyrsti leikurinn
af þremur á alþjóðlegu móti í Bandaríkjunum. Mótherj-
arnir búa yfir gríðarlegri reynslu og eru á lið á sitt
fimmta heimsmeistaramót í röð á næsta ári. »54
Fyrsti landsleikur ársins í nótt
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þuríður Hjörleifsdóttir, Ingibjörg
Stephensen og Greta Håkansson eru
önnum kafnar ekkjur um nírætt,
hittast í kaffi oft í viku og hafa verið
vinkonur frá barnsaldri. Þuríður og
Ingibjörg hafa alltaf flutt á svip-
uðum tíma og átt heima við sömu
götur frá því þær voru sex ára og
Greta hefur búið nálægt þeim lengst
af. Þær voru bekkjarsystur í
Kvennaskólanum í Reykjavík og
eiga heima í göngufæri hver við aðra
í Garðabæ. „Við komum reglulega
við í bakaríinu,“ segir Greta. „Það er
alltaf heitt á könnunni hjá okkur,“
botnar Þuríður eða Didda, eins og
hún er kölluð.
Konurnar eru hressar og finna sér
ætíð eitthvað að gera saman. „Við
erum til dæmis í gönguhópi og för-
um í göngu á mánudögum og mið-
vikudögum,“ heldur Didda áfram.
„Við Greta erum auk þess í Kór eldri
borgara í Garðabæ og mætum á
söngæfingar á fimmtudögum,“ bætir
Ingibjörg eða Bíbí við. „Ég reyni
líka að fara flesta morgna í sund,“
minnir Greta á og Bíbí grípur bolt-
ann á lofti. „Það er nóg að ein okkar
geri það.“
Þær eru saman í saumaklúbbi sem
þær stofnuðu ásamt þremur öðrum
stúlkum að loknu námi í Kvenna-
skólanum. Ein er látin en hinar hitt-
ast einu sinni í mánuði og þegar eig-
inmennirnir voru á lífi var haldin
árshátíð með mökum. Þær segjast
hafa verið miklar hannyrðakonur en
dregið hafi úr prjónaskapnum. „Við
höfum ekki tíma til þess að standa
lengur í honum, því það er svo mikið
að gera,“ segir Bíbí. Þær séu jafn-
framt í Kvenfélagi Garðabæjar og
mæti líka á fundi í Félagi eldri borg-
ara en þeir hafi reyndar fallið niður í
faraldrinum.
Skerjó, Hrísateigur, Garðabær
Bíbí og Didda kynntust og smullu
saman þegar þær voru fimm og sex
ára gamlar í Skerjafirði. Vegna lagn-
ingar flugbrautarinnar í stríðinu
voru hús fjölskyldnanna tekin niður,
efnið flutt og húsin sett aftur upp við
Hrísateig. Þær gengu í Laugarnes-
skóla eins og Greta, sem átti þá
heima í Kleppsholtinu, og fóru svo
allar í Kvennaskólann. Þar styrktust
böndin þannig að ekki hefur slitnað
á milli síðan. „Þetta er svo góður fé-
lagsskapur,“ segir Greta. „Við erum
svo skemmtilegar,“ bætir Bíbí við,
en Didda og Greta fóru saman í hús-
mæðraskóla í Danmörku áður en al-
varan tók við. „Samheldnin hefur
alltaf verið svo mikil,“ segir Didda.
Jón Þ. Sveinsson, tæknifræðingur
og einn af stofnendum Tæknifræð-
ingafélags Íslands, var eiginmaður
Diddu og framkvæmdastjóri og
aðaleigandi Stálvíkur hf. Bíbí var
gift Helga K. Hjálmssyni, forstjóra
Tollvörugeymslunnar, og eigin-
maður Gretu var Sigurður Björns-
son, bæjarverkfræðingur Kópavogs-
bæjar. Hjónin voru með fyrstu
íbúum á Flötunum í Garðabæ og létu
til sín taka í bænum. Jón var til
dæmis í bæjarstjórn og Helgi einn af
stofnendum Tónlistarfélags Garða-
hrepps, sem síðar varð Tónlistar-
skóli Garðabæjar. Sigurður var líka
virkur í Tónlistarfélaginu og fram-
arlega í Skógræktarfélagi Garð-
arbæjar en skógrækt átti hug þeirra
allra. Karlarnir voru í hópi stofn-
enda kirkjukórs Garðakirkju og þau
voru öll í kórnum nema Didda. „Ég
dró Gretu og mennina okkar með í
kórinn,“ segir Bíbí. „Ég þoldi ekki
samkeppnina,“ útskýrir Didda
vegna fjarverunnar frá söngnum,
sem þær kynntust fyrst hjá Ingólfi
Guðbrandssyni í Laugarnesskóla.
Vinkonurnar mættu alltaf í peysu-
fötum á Peysufatadaginn í Kvennó
og þá sagði Ragnheiður Jónsdóttir
skólastýra, fröken Ragnheiður, við
þær: „Alltaf eruð þið eins.“ Sam-
takamátturinn hefur fylgt þeim og
bekknum þeirra síðan, leggja þær
áherslu á.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Hressar Þuríður Hjörleifsdóttir, Ingibjörg Stephensen og Greta Håkansson hafa verið vinkonur frá barnsaldri.
Samtaka í lífsgleðinni
- Vinkonurnar hafa búið við sömu götur í um 85 ár