Morgunblaðið - 18.02.2022, Qupperneq 10
18. febrúar 2022
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 124.34
Sterlingspund 168.45
Kanadadalur 98.09
Dönsk króna 19.003
Norsk króna 13.987
Sænsk króna 13.42
Svissn. franki 134.46
Japanskt jen 1.0748
SDR 174.33
Evra 141.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 176.1073
10 FRÉTTIR
Viðskipti| Atvinulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2022
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
anngjörnu verði og að
ki förum við með bílinn
n í endurskoðun, þér
kostnaðarlausu.
á s
au
þin
að
hafi hún krafið
hann afdráttar-
lauss svars um
hvort hann myndi
víkja úr stjórn
eða „freista þess
að sitja áfram í
stjórn Brynju í
trássi við vilja
ÖBÍ og án um-
boðs bandalags-
ins“. Lögmenn
málsaðila skiptust svo á bréfum en 2.
febrúar sl. sendi lögmaður Brynju,
fyrir hönd meirihluta stjórnar, ÖBÍ
bréf „þar sem bent var á að ákvarð-
anir stefnda um afturköllun umboða
stjórnarmanna og skipanir nýrra
stjórnarmanna hafi verið í ósam-
ræmi við skipulagsskrá sjóðsins og
því markleysa“, að því er segir í
stefnunni.
Tryggi rétta skipan í sjóðinn
„Með hliðsjón af því var skorað á
aðalstjórn stefnda [ÖBÍ] að kjósa tvo
aðalmenn og einn varamann í stjórn
stefnanda til fjögurra ára með lög-
mætum hætti í samræmi við ákvæði
1. mgr. 5. gr. skipulagsskrár stefn-
anda [Brynju]. Stefndi hefur hvorki
orðið við þessari áskorun né svarað
henni. Er stefnanda því nauðugur sá
kostur að höfða mál þetta til að
tryggja að skipað verði með réttum
hætti í stjórn sjóðsins,“ segir jafn-
framt í stefnunni.
Daginn eftir hafi birst frétt á vef
ÖBÍ þar sem Garðar hafi verið bor-
inn þungum sökum. Hann hafi virt að
vettugi ákvörðun Öryrkjabandalags-
ins um skipan nýrra stjórnarmanna.
Metnar á ríflega 30 milljarða
Brynja er eitt stærsta fasteigna-
félag landsins og voru eignir þess
metnar á um 30 milljarða í fyrra og
tekjurnar voru þá rúmlega milljarð-
ur. Sjóðurinn á rúmlega 860 íbúðir og
eru flestar á höfuðborgarsvæðinu.
Brynja hefur leigutekjur af íbúðun-
um en fær að auki framlag frá ÖBÍ
sem er í hlutfalli við ágóðahlut frá Ís-
lenskri getspá.
Garðar Sverrisson, stjórnarfor-
maður sjóðsins, ritaði í tilefni af for-
mannafundi ÖBÍ í síðustu viku bréf
til aðildarfélaga Öryrkjabandalags-
ins. Kemur þar fram sú skoðun hans
að fjárhagslegir hagsmunir hafi átt
þátt í stjórnarskiptunum í Brynju.
Varaði hann jafnframt við „óhróð-
ursherferð gegn stjórn Brynju sem
örfáir einstaklingar í forystu ÖBÍ
hafa hrundið af stað með hjálp lög-
manns ÖBÍ“.
„Alvarlegt spillingarmál“
„Hér er um alvarlegt spillingarmál
að ræða þar sem fjársterkir aðilar
reyna að seilast í þau verðmæti sem
okkur er treyst fyrir. Þá er þetta í
fyrsta sinn sem forysta ÖBÍ kemur í
veg fyrir að stjórn bandalagsins gef-
ist kostur á að ræða milliliðalaust við
stjórn Brynju í aðdraganda stjórnar-
kjörs,“ skrifaði Garðar en Morgun-
blaðið hefur bréfið undir höndum.
Á fyrrnefndum formannafundi
hafi ekki verið gerð málefnaleg grein
fyrir afstöðu fráfarandi stjórnar
Brynju, heldur einungis komið fram
„dylgjur um annarlegar hvatir í
bland við fjölskrúðug ósannindi lög-
manns, sem formaður hafði áður bor-
ið út innan stjórnar ÖBÍ til að koma
þar í veg fyrir upplýst og lýðræðis-
legt kjör“.
Jafnframt hafi vakað fyrir for-
manni ÖBÍ að „fyrirbyggja að heil-
steyptasta fólkið yrði kjörið til að
gæta hagsmuna Brynju gagnvart
þeim sem nú vilja gera sér Hátúns-
lóðina að féþúfu og fjármagna
skúffufyrirtæki huldumanna sem
víða vilja hagnast á nýbyggingum“.
Hússjóðurinn í hart
við Öryrkjabandalagið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Átök Garðar Sverrisson, formaður stjórnar Brynju, telur brögð í tafli við val í stjórn hússjóðsins.
- Saka formann bandalagsins um spillingu - Hússjóðurinn á 30 milljarða í eignum
Garðar
Sverrisson
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Brynja, hússjóður Öryrkjabanda-
lagsins, hefur stefnt Öryrkjabanda-
lagi Íslands (ÖBÍ) vegna skipanar
nýrra stjórnarmanna hjá sjóðnum.
Nánar tiltekið er krafist ógildingar á
ákvörðunum Öryrkjabandalagsins á
fundum aðalstjórnar 17. janúar og
31. janúar í ár, sem fólu í sér aftur-
köllun á umboði stjórnarmanna og
skipan nýrra stjórnarmanna í stjórn
sjóðsins.
Þetta kemur fram í stefnu Brynju
á hendur Öryrkjabandalaginu en
málið er höfðað fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur. Meðal helstu dóm-
krafna er að ákvörðun aðalstjórnar
ÖBÍ, sem tekin var á fundi hennar
31. janúar sl., um að afturkalla um-
boð Garðars Sverrissonar, Arnþrúð-
ar Karlsdóttur og Ingveldar Jóns-
dóttur í stjórn stefnanda, verði felld
úr gildi.
Sömuleiðis að ákvörðun ÖBÍ um
skipan nýrra stjórnarmanna 17. jan-
úar og svo aftur 31. janúar verði felld
úr gildi. Jafnframt að aðalstjórn ÖBÍ
verði gert að kjósa tvo aðalmenn og
einn varamann til fjögurra ára í
stjórn Brynju.
Við skipanina 17. janúar staðfesti
aðalstjórn ÖBÍ ákvörðun fram-
kvæmdaráðs hinn 9. desember sl. en
hinn 31. janúar var um ákvörðun að-
alstjórnar að ræða.
Skyldi hætta í stjórn
Fram kemur í stefnunni að 9. des-
ember síðastliðinn hafi aðalstjórn
ÖBÍ falið framkvæmdaráði banda-
lagsins að skipa stjórnarmenn í
stjórn Brynju.
Sama dag hafi Þuríður Harpa Sig-
urðardóttir, stjórnarformaður ÖBÍ,
hringt í Garðar Sverrisson, stjórnar-
formann Brynju, og tilkynnt honum
þá ákvörðun að hann hætti í stjórn
Brynju vegna sólarlagsákvæðis í
verklagsreglum ÖBÍ, en þar sé mið-
að við að fólk á vegum ÖBÍ skuli ekki
sitja lengur en sex ár í stjórnum á
vegum bandalagsins nema rík
ástæða þyki til annars.
Upphófust síðan bréfaskipti milli
Þuríðar Hörpu og Garðars en í stefn-
unni segir að hinn 29. desember sl.
Sláturfélag Suðurlands skilaði 234
milljóna króna hagnaði á nýliðnu
ári, samanborið við 259 milljóna
króna tap árið
áður. Rekstrar-
tekjur félagsins
jukust um tæpa
1,7 milljarða
króna og stóðu í
rúmum 13 millj-
örðum. EBITDA
nam 1.026 millj-
ónum króna en
var 363 milljónir
árið 2020. Eigið
fé félagsins nam
í árslok 5.350
milljónum, eignir 10.631 milljón og
eiginfjárhlutfall var 50%.
Undir samstæðureikning félags-
ins falla, auk SS, dótturfélögin
Reykjagarður hf. og Hollt og gott
ehf.
Betri markaðsaðstæður
Bendir félagið á að betri mark-
aðsaðstæður og aðgerðir sem grip-
ið hafi verið til, skýri bætta afkomu
milli ára.
Vöru- og umbúðanotkun var
6.316 milljónir og jókst um tæpan
milljarð milli ára. Launakostnaður
nam 3.605 milljónum og hækkaði
aðeins um 1% milli ára. Annar
rekstrarkostnaður nam 2.211 millj-
ónum og jókst um 2% frá árinu
2020.
Veltufé frá rekstri án vaxta og
skatta nam 956 milljónum, saman-
borið við 361 milljón 2020. Veltu-
fjárhlutfall var 2,4 og jókst úr 1,8
frá fyrra ári.
SS er skráð á First North-
markað Kauphallar Íslands en við-
skipti með bréf félagsins eru stop-
ul.
SS hagnast
um 234
milljónir
SS Rekstrartekjur
námu 13 millj-
örðum króna.
- Rekstrartekjur
námu 13 milljörðum
eða um níutíu milljörðum íslenskra
króna. Eignirnar jukust um rúmlega
18% milli ára, en þær voru 536 millj-
ónir evra í lok árs 2020.
Eigið fé skipafélagsins nemur nú
ríflega 261 milljón evra en það var
um 231 milljón evra árið á undan.
Eiginfjárhlutfall Eimskipafélags-
ins er 41,22% en það var 43,02% árið
á undan.
Ánægður með frammistöðuna
Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri
Eimskips, segist í tilkynningunni
vera mjög ánægður með frammi-
stöðuna á fjórða ársfjórðungi og
árinu í heild. „Framlag starfsmanna
var framúrskarandi og okkur tókst
að halda uppi háu þjónustustigi í
mjög krefjandi rekstrarumhverfi.
Fjárhagslega héldum við áfram að
byggja á samþættingu og hagræð-
ingu síðustu ára, þeim aðlögunum
sem gerðar hafa verið á rekstrinum
ásamt virkri tekjustýringu ásamt
hagstæðu ytra umhverfi, sér-
staklega á alþjóðaflutningsmörk-
uðum,“ segir Vilhelm.
Stjórn félagsins mun leggja til
17,7 m. evra arðgreiðslu og lækka
hlutafé um 7,5 m. evra.
Hagnaður Eimskipafélags Íslands á
fjórða ársfjórðungi síðasta árs nam
13,7 milljónum evra, eða tæpum
tveimur milljörðum króna, saman-
borið við 0,8 milljónir evra fyrir
sama tímabil ársins 2020, sem jafn-
gildir 113 milljónum íslenskra
króna.
Hagnaður félagsins fyrir árið
2021 í heild sinni nam 5,7 millj-
örðum króna og margfaldaðist frá
árinu á undan þegar hagnaðurinn
var rúmlega 631 milljón króna. Í til-
kynningu segir að um methagnað sé
að ræða á síðasta ári.
Eignir Eimskips í lok tímabilsins
námu rúmum 634 milljónum evra,
Hagnaður Eimskips 2 ma.kr.
- Hagnaður árs-
ins 2021 í heild
var 5,7 milljarðar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Flutningar Eignir nema um níutíu
milljörðum íslenskra króna.