Morgunblaðið - 18.02.2022, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.02.2022, Blaðsíða 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2022 ✝ Svana L. Ing- valdsdóttir fæddist í Reykja- vík 5. júlí 1956. Hún lést 4. febr- úar 2022 á Land- spítalanum Hring- braut. Foreldrar Svönu voru Anna Helena Benedikts- son, f. 6. júlí 1918, d. 28. mars 1994 og Ingvaldur Benediktsson klæðskeri, f. 17. nóvember 1918, d. 24. janúar 1999. Börn hennar eru Róbert Ingi Richardsson, f. 28. nóv- ember 1983 og Eva Rós Gúst- avsdóttir, f. 12. júlí 1989. Barnabörn Svönu eru Helga Hafdal Jónsdóttir og Snædís Lilja Ólafsdóttir. Systkini Svönu eru Erlendur Ingvalds- son og Vilborg Ragnhildur Ingvaldsdóttir. Svana ólst upp í Reykjavík og stundaði ballett í Þjóðleik- húsinu til 8 ára aldurs, eftir það fluttist hún til Sauð- árkróks með foreldrum og bróður. Á unglingsárum sínum stundaði hún nám á Núpi og árið 1977 fluttist hún til Kaupmanna- hafnar og vann þar sem hárskeri. Hún fluttist síðar til Reykjavíkur aftur þar sem hún eignaðist bæði börnin sín. Svana lærði rakarann og fór síðar í hársnyrtinám, hún opn- aði rakarastofuna Cortex árið 1986 sem var til húsa á Berg- staðastræti 28a. Síðar starfaði hún við hárgreiðslu í Þjóðleik- húsinu. Árið 2005 útskrifaðist Svana sem hómópati og starf- aði við það ásamt öðrum heilsumiðandi lausnum og að- stoðaði fólk við að bæta heilsu sína þar eftir. Á efri árum fluttist hún aftur til Kaup- mannahafnar og til Spánar og naut lífsins þar til hún fluttist aftur til Íslands. Útför Svönu fer fram frá Víðistaðakirkju í dag, 18. febrúar 2022, klukkan 13. Ég veit ekki hvar skal byrja. Ekki hafði mig órað fyrir því að skrifa minningargrein um þig nærri því strax, elsku móðir mín, þú varst enn á besta aldri þegar þú varst tekin frá okkur. Því miður er það óraunveruleg- ur veruleiki sem við þurfum að læra að lifa með. Maður tekur því sem sjálfsögðum hlut að eiga ynd- islega móður og áttar sig ekki á því hversu hverfult og ósann- gjarnt lífið getur verið fyrr en það sem maður elskar hvað mest er skyndilega tekið frá manni. Það er sárt að hugsa til þess að geta aldrei aftur hringt í þig til að spjalla þó ekki væri nema fyrir það eitt að fá að heyra rödd þína aftur. Ég veit ekki hvernig aðrir upp- lifðu sín eigin samskipti eða sam- töl við mömmu mína en við hlóg- um oft að því hvernig aðrir upplifðu samtölin okkar á milli. Ég hef oft fengið spurninguna „við hvern varstu að tala?“ eftir samtöl í símann við hana. Þegar svarið mitt var „mömmu“ þá fylgdi spurningin „voruð þið að rífast?“ Fyrst þegar ég fékk þessa spurningu þá hló ég hissa, en áttaði mig svo fljótt á því að þegar hún hækkaði róminn þá fór ég í sömu tóntegund. Það er ekki að furða að fólki fannst eins og við værum að rífast þó að í okkar huga værum við bara að eiga ósköp venjulegt samtal. Það er í raun ómögulegt fyrir mig að koma því í orð hversu ótrú- lega þakklátur og heppinn ég er að hafa fengið þann heiður að fá að kalla þig móður mína. Allt sem þú lagðir á þig og fórn- aðir svo við systkinin gætum átt góða æsku og sinnt þeim áhuga- málum sem við vildum verður ekki metið til fjár og fljótlega eftir unglingsárin þá skildi maður bet- ur og lærði að vera þakklátur fyr- ir þig og allt sem þú gerðir. Mér þykir svo vænt um þann tíma sem við fengum saman þó ég hefði óskað þess og áætlað að sá tími hefði orðið lengri. Öll ferðalögin sem við fórum í bæði í sveitina til Steina frænda á Kirkjubæjarklaustur og sumarið sem þú tókst að þér vinnu á hár- greiðslustofunni á Reyðarfirði. Ferðalög sem við fórum í erlend- is, hvort sem það var vegna skyndilegra búferlaflutninga eða ævintýraþrá. Þú áttir það til að taka skyndiákvarðanir og fyrr en varði varstu flutt í lítinn bæ lengst uppi í fjöllum á Spáni. Sérlega þótti mér vænt um ferð okkar til Ítalíu þar sem öll fjölskyldan fagnaði 60 ára afmælinu þínu. Það sem einkenndi þig og gerði þig að ótrúlegu einstöku mann- eskjunni sem þú varst var sá eig- inleiki að geta verið sammála um að vera ósammála án þess að mis- munandi skoðanir hefðu áhrif á vinskap. Þennan eiginleika kenndir þú mér og mun hann fylgja mér alla tíð. Það eru litlu hlutirnir sem ég á eftir að sakna mest sem gerðu okkur svo náin og svo góða vini. Það eru forréttindi og alls ekki sjálfsagt að geta kallað móður sína sinn besta vin. Nú ertu farin yfir móðuna miklu á fund foreldra þinna og annarra ástvina sem þegar hafa farið í ferðalagið eilífa. Við mun- um hittast á nýjan leik þegar minn tími kemur en þangað til mun ég heiðra minningu þína og hugsa með hlýhug og söknuði um þig og tíma okkar saman. Takk fyrir að vera þú, vera ein- stök og að vera móðir mín. Ég mun ávallt elska þig. Þinn sonur. Róbert Ingi. Elsku mamma, að minnast þín og lýsa persónuleika þínum er jafn auðvelt og að elska þig. Sterkur karakter sem einkennd- ist af hjálpsemi, yndislegum hlátri sem smitaði út frá sér, þrjósku sem átti sér engin takmörk, ást á matargerð sem skilaði sér til mín, góðum tónlistarsmekk, þraut- seigju, sterkum skoðunum og stóru hjarta sem stækkaði bara með árunum. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig, Óla og stelpurn- ar, ég veit ekki hvað ég hefði gert án þín, allra þinna ráða, aðstoðar og dásamlegu nærveru. Þú varst svo yndisleg amma, orð geta ekki lýst þakklæti mínu vegna þessa, stelpurnar eru svo heppnar að hafa fengið að njóta góðs af hlýju þinni. Að eiga svo hjálpsama og yndislega móður er dásamlegt, öll ráðin komu alltaf frá svo fallegum stað enda stend ég sjálfa mig að því nú í sífellu að taka upp símann og ætla að biðja þig um ráð. Enda- lausar áminningar um elskuleg- heitin og hjálpsemina eru um allt hús, ilmolíublöndurnar við hinum og þessum kvillum, krem við háls- bólgum, remedíur, bætiefni svo eitthvað sé nefnt. Þú varst kona með lífsreynslu á við 100 manns, ævintýragjörn, óhrædd, sjálfstæð og frjáls. Þú kenndir mér sjálf- stæði, að horfa fram á við og að vera meira í núinu, enda sagðirðu alltaf við mig: „Eva mín, þú ert allt of langt á undan sjálfri þér, það hefur ekkert upp á sig.“ og það er alveg rétt hjá þér. Samvera okkar í gegnum árin var ómetanleg, við töluðum sam- an að lágmarki fimm sinnum í viku og vorum duglegar að hitt- ast. Þegar þú bjóst í sama stiga- gangi og við hélt ég að ég yrði ekki svo heppin aftur en svo bjóstu hjá okkur í Fagrahjalla í tæpt ár og var sá tími okkur svo dýrmætur. Ég fékk að kynnast þér á nýjan hátt sem ég er svo þakklát fyrir. Þú lagðir svo mikið á þig til að veita okkur Róbert dásamlegt líf. Komst mér að í Þjóðleikhúsinu svo þar fengum við að eyða yndislegum tíma sam- an, þú greiddir mér fyrir leiksýn- ingar og fórst með mig um allt leikhús í hvert sinn sem tími gafst til. Takk fyrir að kenna mér hvað það þýðir að fara sínar eigin leiðir, að vera sjálfstæð, að vera sterk en á sama tíma að vera hlý og góð. Elsku besta mamma mín, að minnast þín er auðvelt en að sakna þín er erfiðara en orð geta lýst. Þú varst tekin frá okkur allt of snemma, við vorum nýbúnar að baka saman jólasörurnar okkar þegar þú veiktist og ætluðum að elda krónhjört annan í jólum sem enn liggur í frystinum hjá þér. Það er ákveðin huggun í því og á sama tíma er það svo sárt að þú varst með ýmislegt á döfinni, námskeið sem þig langaði að halda og ætlaðir sjálf á, ferðalög, heilsumeðferðir sem þú vildir bjóða upp á o.fl. sem ég vissi ef- laust ekki af, enda varstu kraft- mikil kona og komst sífellt á óvart. Mér líður eins og það vanti á mig aðra höndina, það hefur aldrei liðið svona langur tími milli þess sem við tölum saman og sá tími mun einungis lengjast. Ég veit þú verður alltaf hjá mér þó það hafi stórt skarð myndast í lífi mínu og okkar allra. Takk fyrir að vera mamma mín, ég elska þig. Þín dóttir, Eva Rós Gústavsdóttir. Elsku amma, takk fyrir allar góðu stundirnar saman, bíóferð- irnar, ísferðirnar og kósíkvöldin okkar. Ég mun sakna þín og gleði þinnar mikið. Hér er ljóð sem ég skrifaði til þín. Augun þín lýsa eins og grasið grænt, hárið þitt er fjöður af svani. Þú gefur þína ást til allra, allir elska þig á móti. Brosið þitt skín eins og sólin. Snædís Lilja Ólafsdóttir. Systir mín góð, eg sé í anda þig, sólblik í augum, mömmu svip á vanga, söknuður var að sjá á eftir þér. Alfaðir góður annist fyrir mig ykkur, og láti kærleiksblóm anga, vorgyðjan syngi „sonnettu“ frá mér. (Benedikt Einarsson) Mín ástkæra systir, kvaddi okkur svo fljótt. Blessuð sé sál hennar sem gistir má hún nú sofa rótt hún skilur eftir söknuð svo skjótt draumar okkar brustu svo hljótt. Má minning hennar lifa endalaust. Guð geymi þig mín elsku ástkæra systir. (Vilborg Ingvaldsdóttir) Þín systir, Vilborg Ingvaldsdóttir. Ég held ég hafi aldrei fundið fyrir því að vera einmana í lífinu því ég hafði alltaf Svönu vinkonu. Þú gerðir líf mitt auðugt og fag- urt. Því er svo erfitt að átta sig á því að þú sért dáin. Allt svo óraun- verulegt og ósanngjarnt, við vor- um að plana svo margt sem við ætluðum að gera og að geta ekki hringt í þig til að spjalla um alla heima og geima eins og við vorum svo vanar að gera er svo sárt. Í 43 ár áttum við hvor aðra í gegnum súrt og sætt og ég hugsa til allra þeirra dásamlegu stunda sem við höfum lifað og létum lítið hindra okkur í að ferðast um heiminn og njóta lífsins. Minnist ég þá helst ferðar okkar til N.Y. 1979, rétt eftir að við höfðum kynnst og þá varð ekki aftur snú- ið. Við áttum svo margt sameig- inlegt. Tónlist, þá helst jazz og blús, en duttum oft í „disco feel- ing“. Þú elskaðir salsa og hafðir betri sveiflu en ég og sat ég bara oft hjá og horfði á gleðina streyma frá þér, þú elskaðir að dansa, ég man ekki eftir neinu matarboði þar sem ekki var sett plata á fón- inn og dansað. Framandi matar- gerð, námskeið í indversku, kín- versku, súkkulaðigerð og allt sem í boði var skelltum við okkur sam- an í. Eftir að börnin okkar fæddust breyttist margt og mest til hins betra, þá urðu tímar okkar yfir- vegaðri og ábyrgðin tók völdin en við hættum aldrei að njóta lífsins. Hvað ég á eftir að sakna þín, elsku vinkona. Við vorum með þagnarsamn- ing, þar sem þú sást um hárið á mér og ég spáði í spilin fyrir þig og þá var oft mikið hlegið, þetta voru okkar stundir. Þú varst mögnuð manneskja, með óendan- lega visku og alltaf tilbúin í að deila henni ef það kæmi einhverj- um að gagni. Yndislegu börnin þín tvö, tengdabörn og barnabörn mun ég halda áfram að rækta vin- skap við og veit ég að þú verður hjá okkur þegar við hittumst. Ég kveð mína ástkæru vinkonu með miklum söknuði, en minning- arnar um góða og trygga mann- eskju mun ég ávallt varðveita með mér. Elsku Eva, Óli, Helga og Snæ- dís, Róbert og Ágústa, sendi ykk- ur alla mína samúð og styrk í ykk- ar sorg sem og ættingjum og vinum. Alda Björg Norðfjörð. Elsku Svana mín, nú sit ég hér á Íslandi og græt sorgartárum á meðan ég skrifa minningargrein um þig, elsku frænka. Mikið á ég eftir að sakna þín, þú varst mér alltaf svo góð. Í mörg ár varstu mér eins og móðir, þar sem móðir mín bjó í Danmörku og ég á Ís- landi. Ég gat alltaf treyst á þig og þú varst líka minn besti trúnaðar- vinur. Elsku Svana, þú varst alltaf svo hjálpsöm og orkumikil, hjólaðir um alla Kaupmannahöfn og átt- um við svo góðar stundir saman á öllum þeim kaffihúsum og veit- ingastöðum sem við heimsóttum. Okkur fjölskyldunni fannst alltaf svo gaman að fá þig í mat og varstu börnum okkar svo góð, eins og þú værir amma þeirra líka. Þú kvaddir okkur allt of fljótt, á besta aldri, en þú skilur eftir svo mikið ríkidæmi. Eva Rós dóttir þín og Róbert sonur þinn, þau eru bæði yndisleg og með hjarta úr gulli, þér tókst vel til í uppeldinu. Þar að auki varstu einstaklega lánsöm með tengdabörn og barnabörn og ég veit hvað þú naust þess að vera amma. Þú munt alltaf eiga stað í hjörtum okkar allra. Elsku Eva Rós, Ró- bert og fjölskylda, megi Guð geyma móður ykkar, tengdamóð- ur og ömmu og veita ykkur styrk og hlýju á þessum erfiða tíma. Kærleikskveðja, Sara. Svana. Þú varst sterkasta manneskjan í fjölskyldunni. Lítil í stærð en stór í kærleik, ást, hlátri og ævintýrum, bjóst á Spáni, Danmörku og fluttir aftur til Ís- lands – allt á þínum efri árum, því- líkt ævintýri. Hvort sem það var að fá okkur bjór saman í Kaupmannahöfn, ganga á ströndinni á Srí Lanka eða ég að drekka kakó sem barn heima hjá þér, þá munu minning- ar mínar af þér ávallt framkalla bros. Ég mun sakna heimagerða íssins þíns, ótrúlegu kínversku réttanna þinna úr eldhúsinu og vinaigrette-salatanna. Ég mun að eilífu sakna þín. Þar til við hitt- umst seinna eftir þetta líf. Ást, þinn frændi, Jonas. Elsku Svana mín. Það flæða fram margar góðar og fallegar minningar frá því að við sáumst fyrir nærri 48 árum og margs er að minnast. Við hitt- umst fyrst á dansgólfinu á mið- hæðinni í Klúbbnum í upphafi diskósins þegar fimmtudags- kvöldin voru opin fyrir 18 ára og eldri og fólk streymdi þangað til þess að dansa. Það var sko dansað og dansað allt kvöldið – bömpið varð fljótlega vinsælt og tókum við m.a. þátt í að halda sýningu uppi á sviði í Laugarásbíói einn laugardagseftirmiðdag. Ég gerði mér fljótt grein fyrir því hvaða eiginleikum þú bjóst yf- ir sem heilluðu mig en það var gleðin, létta lundin og hláturinn fyrst og fremst, þú kunnir svo sannarlega að útiloka það sem skipti ekki máli og veltir þér sjaldan upp úr smáatriðum. Á komandi árum tókst með okkur djúp sönn vinátta sem var okkur báðum mjög dýrmæt, við treystum hvor á aðra og það var gott að eiga þig að í einu og öllu. Það fór ekki framhjá mér hvað þú bjóst yfir miklu umburðarlyndi og fordóma áttir þú bara alls enga. Þegar ég sagði þér frá því fyrir 44 árum að nú ætti ég ekki lengur kærasta heldur kærustu og hafði kviðið því hvernig þú tækir því, þá var það nú óþarfi því þú sagðir bara: „Só what“ eins og ekkert væri sjálfsagðara – tókst henni vel og áttum við margar góðar stundir saman á komandi árum í alls konar bralli og braski því ork- an var gífurleg og þú hamhleypa til allra verka svo bóngóð og vildir allt fyrir alla gera. Þú fórst í rakaraiðn og náðir langt í þínu fagi. Fagmennskan og metnaðurinn var mikill. Rakst m.a. þínar eigin stofur og tókst að þér nema í læri. Við gerðum sam- komulag, þú sást um hárið á mér og enginn var flinkari með skærin og strípurnar lúkkuðu vel. Það er ekkert stærra eða merkilegra en fæðing barns. Það var því mikil eftirvænting þegar frumburðurinn fæddist og ég fékk að vera hjá þér ásamt Fjólu mágkonu þinni og varð vitni að þinni ótrúlegu seiglu og dugnaði sem einkenndu þig alltaf. Það voru þung skref að stíga inn á Gjörgæsluna á LSH til að kveðja þig, elsku vinkona, þakklát fyrir samfylgdina og lærdóminn. Börnin þín tvö, Eva og Róbert, hafa svo sannarlega staðið sig vel og svo gott að sjá hvað þau eru samrýnd og góðir vinir. Starfsfólk GG veitti þér ómet- anlega þjónustu og umönnun sem er á heimsmælikvarða – ekkert öðruvísi – og það ber vel að þakka. Ættingjum þínum og vinum votta ég samúð mína. Minning þín lifir. Við sjáumst svo aftur seinna og tökum spjallið – góða ferð. Þín Björg (Bögga). Fyrstu kynni mín af lífskún- sternum Svönu voru eftirminni- leg þar sem hún var á leið niður stigann á Rakarastofunni Klapp- arstíg snemma á níunda ára- tugnum í herrafrakka með stutt aflitað hár og rauða rönd í skipt- ingunni, nýlent frá Kaupmanna- höfn. Hún var stór persónuleiki og laðaði fólk að sér. Svana varð mér kær og góð vinkona, meist- arinn minn í hársnyrtiiðninni og mikilvægur mentor á mínum yngri árum. Svana umbreytti og opnaði dyr að mörgum menning- arheimum. Mataráhugi hennar fleytti mér beint inn í austrænan matarheim með því að draga mig með sér á námskeiðin hennar Rannveigu Pálma. Á þeim tíma var ég ekki viss um hvað kartöflur áttu að sjóða lengi en þarna var námsefn- ið sushi-gerð löngu áður en það varð hluti af matarmenningu landans. Við áttum margar góðar stundir á fallega heimilinu hennar á Grettisgötu við að saxa og brytja smátt til steikingar í kín- verska matargerð, spilandi jazz og var alltaf stutt í hláturinn hjá Svönu. Svana var vinamörg og þeir tilheyrðu öllum litum regn- bogans. Hún kynnti fyrir mér skemmtilega vini sína í samfélagi homma sem voru á þessum árum að tínast heim erlendis frá þar sem þeir þurftu að nema land hér í viðhorfum landans. Hún var hugrökk og uppá- tækjasöm og einn daginn lagði hún til að við færum í nudd þar sem vinur hennar Örn Jónsson væri nýkominn úr námi. Óreynd sá ég fyrir að það gæti verið nokk- uð þægilegt en það fylgdi ekki sögunni að maður yrði allur út- stunginn því hann hafði numið nálastungur. Þessi nálastungu- meðferð breytti lífsfarvegi mínum og nudd varð síðan farvegur mannsins mín seinna í gegnum Örn. Seinna meir breytti Svana atvinnu sinni frá hársnyrtingu yf- ir í heilsuráðgjöf. Það var yndislegt að deila með henni gleðinni þegar ljósgeislinn hennar hann Róbert Ingi fæddist og verða vitni að hjartahlýjunni í töffaranum Svönu. Nokkrum ár- um seinna fórum við í gegnum meðgöngu á sama tíma, ég með eldri son minn og hún með hinn ljósgeislann í lífinu sínu, hana Evu Rós. Við áttum margar ánægjulegar stundir í barnaaf- mælum og kærum vinafundum með okkar góðu vinkonum, Sig- ríði og Bryndísi Ósk. Það var lagður grunnur að þeirri vináttu þegar unnu saman í hári á skemmtilegu árunum á Loftleið- um og Cortex. Svana var ferðafluga og var mikið með annan fótinn erlendis, það urðu færri en kærir endur- fundir síðustu árin og var það allt- af eins og að hitta stóru systur sína. Hún var óhrædd að fara sín- ar eigin leiðir, litríkur frum- kvöðull, hreinskilin og hlý mann- eskja. Ég er afar þakklát fyrir að hafa notið hennar vináttu og fyrir hennar tilstilli opnaði hún dyr og umbreytti lífi mínu. … gegnum tímann liggur vegur til nýrrar nálægðar. (Úr ljóði eftir Sigurð Pálsson) Hjartans samúð sendi ég elsku Róbert Inga, Evu Rós, fjölskyldu og vinum. Megi sólin læðast upp stigann og umvefja ástvini Svönu. Heba Helgadóttir. Svana L. Ingvaldsdóttir - Fleiri minningargreinar um Svönu L. Ingvalds- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BJÖRG AÐALSTEINSDÓTTIR, Holtaseli 35, Reykjavík, lést á Landspítalanum sunnudaginn 6. febrúar. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 21. febrúar klukkan 13. Þorgerður Einarsdóttir Guðbjartur G. Gissurarson Viktoría E. Ragnarsdóttir Jónas V. Bjargmundsson Sigríður Ragnarsdóttir Smári Hólm Kristófersson Ágústa Ragnarsdóttir Þórður Ólafur Traustason Guðbjörg Ó. Ragnarsdóttir Guðmundur Baldvinsson ömmubörn og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.