Morgunblaðið - 18.02.2022, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2022
_ Knattspyrnukonan Kristín Erna
Sigurlásdóttir er komin aftur í uppeld-
isfélag sitt ÍBV eftir þriggja ára fjar-
veru. Hún lék í vetur með ítalska C-
deildarliðinu Apulia Trani en með Vík-
ingi og KR undanfarin tvö tímabil á
Íslandi. Annars lék hún með ÍBV frá
2009 til 2019 að undanskildu einu ári
með Fylki.
_ Frjálsíþróttaþjálfarinn Vésteinn
Hafsteinsson greindi frá því á RÚV í
gær að Svíarnir Daniel Ståhl og Sim-
on Petterson muni keppa á afmælis-
móti FRÍ á Selfossi í maí. Undir stjórn
Vésteins unnu þeir gull- og silfur-
verðlaun í kringlukasti á ÓL í fyrra.
_ Bogfimikonan Anna María Alfreðs-
dóttir úr íþróttafélaginu Akri keppir
um bronsverðlaun í U21-árs flokki
kvenna á Evrópumeistaramótinu sem
fram fer í Slóveníu þessa dagana. Hún
mætir hinni tyrknesku Ipek Tomruk í
leiknum um þriðja sætið á morgun en
Anna María rétt missti af sæti í úr-
slitaleiknum eftir tap gegn Songul Lok
frá Tyrklandi í undanúrslitum, 141:145.
Anna María er annar Íslendingurinn til
þess að keppa um verðlaun í U21-árs
flokki á Evrópumeistaramóti en Guð-
björg Reynisdóttir gerði það fyrst árið
2019.
_ Haraldur Franklín Magnús úr GR
lék fyrsta hringinn á Opna Höfðaborg-
armótinu í golfi í gær á einu höggi yfir
pari vallarins. Leikið er á Royal Cape-
vellinum í Höfðaborg í Suður-Afríku en
mótið er liður í Áskorendamótaröð
Evrópu og er annað mót tímabilsins.
Skor keppenda var gott í gær þannig
að Haraldur er aftarlega í röðinni en
hann deilir 119.-146. sæti af 216 kepp-
endum á mótinu.
_ Ómar Ingi Magnússon skoraði 5
mörk og Gísli Þorgeir Kristjánsson 4
mörk þegar Magdeburg burstaði
Göppingen, 37:26, í þýska handbolt-
anum í gærkvöld. Gísli átti 5 stoðsend-
ingar og Ómar 3. Magdeburg er sem
fyrr í efsta sæti deildarinnar.
_ Kanadíska stjarnan Sidney Crosby
hefur skorað 500 mörk fyrir Pitts-
burgh Penquins í NHL-deildinni í ís-
hokkí. Crosby skoraði mark nr. 500 á
móti grannliðinu Philadelphia Flyers.
Eitt
ogannað
Kvennalið Breiðabliks í knattspyrnu
fékk liðsauka í gær þegar Þórdís
Hrönn Sigfúsdóttir og Helena Ósk
Hálfdánardóttir gengu til liðs við
Kópavogsfélagið. Þórdís sneri aftur
frá Apollon á Kýpur þar sem hún lék
frá því í ágúst á síðasta ári. Þórdís,
sem er 28 ára, lék með Blikum til
2013 og aftur 2021 en hefur einnig
spilað með KR, Þór/KA og sænsku
liðunum Älta og Kristianstad. Hel-
ena, sem er tvítug, kemur frá FH en
hún var í láni hjá Fylki á síðasta
tímabili og hefur annars leikið með
FH frá 15 ára aldri.
Tvær bætast
við hjá Blikum
Ljósmynd/Blikar.is
Breiðablik Þórdís Hrönn Sigfús-
dóttir er komin frá Kýpur.
Kanada er ólympíumeistari í ís-
hokkí kvenna á nýjan leik eftir sig-
ur á Bandaríkjunum, 3:2, í úrslita-
leik í Peking í gærmorgun. Kanada
vann þar með sinn fimmta sigur á
sjö leikum frá því greinin var tekin
upp í Nagano 1998 en Bandaríkin
náðu að rjúfa sigurgönguna í
Pyongchang fyrir fjórum árum. Sa-
rah Nurse var í aðalhlutverki en
hún skoraði eitt mark og lagði upp
eitt fyrir Marie-Phillip Poulin sem
gerði hin tvö. Nurse skoraði fimm
mörk og átti 13 stoðsendingar í
leikjum Kanada í Peking.
Kanada endur-
heimti titilinn
AFP
Kanada Sarah Nurse, til vinstri, og
samherjar fagna ólympíugullinu.
DANMÖRK
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Kristín Dís Árnadóttir er eina ís-
lenska knattspyrnukonan í dönsku
úrvalsdeildinni um þessar mundir en
hún skrifaði undir tveggja og hálfs
árs samning við Bröndby í janúar.
Kristín, sem er 22 ára gömul, hef-
ur verið lykilmaður í vörn bik-
armeistara Breiðabliks undanfarin
ár en hún hefur tvívegis orðið Ís-
landsmeistari með liðinu; 2018 og
2020, og þrívegis bikarmeistari;
2016, 2018 og 2021.
Þá lék hún stórt hlutverk með lið-
inu sem tryggði sér sæti í riðla-
keppni Meistaradeildarinnar síðasta
haust og lék alla sex leiki liðsins í B-
riðli keppninnar gegn París SG,
Real Madrid og Kharkiv.
„Þessir fyrstu dagar hérna úti
hafa verið ótrúlega skemmtilegir,“
sagði Kristín Dís í samtali við Morg-
unblaðið.
„Ég er strax búin að koma mér vel
fyrir og mér hefur verið tekið mjög
vel af bæði þjálfurum og leik-
mönnum Bröndby. Það var alls ekk-
ert skrifað í stein að ég myndi yf-
irgefa Breiðablik þegar
Meistaradeildarævintýrinu lauk.
Ég vildi fyrst bíða aðeins og sjá
hvernig þetta myndi þróast en svo
heyrði ég af áhuga Bröndby. Ég
fann það strax hjá sjálfri mér að
þetta var eitthvað sem ég var mjög
spennt fyrir og eftir að hafa skoðað
málin betur varð ég í raun sannfærð
um að þetta væri rétta skrefið fyrir
mig,“ sagði Kristín.
Nýtt lið í mótun í Bröndby
Þrátt fyrir ungan aldur á hún að
baki 89 leiki í efstu deild þar sem
hún hefur skorað sjö mörk en hún
lék sinn fyrsta meistaraflokksleik
fyrir félagið sumarið 2016, þá 16 ára
gömul.
„Ég er búin að spila lengi í úrvals-
deildinni heima og þetta var líka
góður tímapunktur til þess að prófa
eitthvað alveg nýtt. Ég fann fyrir
áhuga frá öðrum liðum en ein af
ástæðunum fyrir því að ég ákvað að
fara til Bröndby er sú að ég veit að
ég get bætt mig og þroskast í Dan-
mörku, bæði sem leikmaður og sem
manneskja.
Danska deildin er líka mjög sterk,
þótt það sé kannski ekki talað mikið
um hana, og hún er mun jafnari en
fólk gerir sér grein fyrir. Bröndby
er mjög stór klúbbur í Danmörku og
það er verið að byggja upp nýtt lið
hérna. Það voru margir leikmenn
sem gengu til liðs við félagið fyrir
þetta tímabil, meðal annars frá Sví-
þjóð, og stefnan er sett hátt á næstu
árum.“
Á Breiðabliki allt að þakka
Kristín kemur úr mikilli knatt-
spyrnufjölskyldu en móðir hennar,
Kristín Anna Arnþórsdóttir, lék 12
A-landsleiki fyrir Ísland og skoraði
63 mörk í 99 úrvalsdeildarleikjum
fyrir Val, og systir hennar Ásta Eir
hefur verið fyrirliði Breiðabliks und-
anfarin ár, ásamt því að eiga að baki
8 A-landsleiki fyrir Ísland.
„Ég er búin að vera í Breiðabliki
síðan ég var fjögurra ára og það var
því mjög erfitt að kveðja uppeldis-
félagið. Bæði systkini mín, þau Esra
Þór og Ásta Eir, hafa spilað fyrir fé-
lagið og ég á því allt að þakka ef svo
má segja. Ég hef upplifað mín bestu
augnablik á ferlinum með Breiða-
bliki og unnið alla þá titla sem í boði
eru sem er ómetanlegt.
Ég ætla rétt að vona það að systir
mín muni sakna mín, bæði innan
sem utan vallar, enda erum við bún-
ar að spila ansi lengi saman, hlið við
hlið, í vörninni. Ég á að sjálfsögðu
eftir að sakna hennar og allra gömlu
liðsfélaganna mikið en að öllu gríni
slepptu þá studdi hún vel við bakið á
mér í öllu þessu ferli og hún er mjög
ánægð fyrir mína hönd.“
Mikilvægast að spila
Bröndby, sem hafnaði í þriðja sæti
úrvalsdeildarinnar fyrir jól og leikur
í úrslitariðli deildarinnar sem hefst í
mars, er sigursælasta lið danska
kvennaboltans en liðið hefur tólf
sinnum orðið Danmerkurmeistari,
síðast árið 2019, og ellefu sinnum
hefur liðið orðið bikarmeistari, síð-
ast árið 2018.
„Bröndby á það sameiginlegt með
Breiðabliki að vilja berjast um alla
þá titla sem í boði eru. Það heillaði
mig líka mikið að fara til félags sem
vill vera að berjast á toppnum enda
er ég orðin mjög vön því að vera í
þannig umhverfi. Það eru komin ein-
hver ár síðan félagið varð síðast
Danmerkurmeistari og markmiðið
er að koma liðinu aftur í fremstu röð.
Ég er búin að vera inn og út úr
landsliðshópnum undanfarin ár en
markmiðið er að sjálfsögðu að vera í
hópnum sem fer til Englands í loka-
keppnina í sumar. Ein stærsta
ástæðan fyrir því að ég valdi
Bröndby er sú að ég veit að ég er að
fara að spila hjá félaginu. Ef ég ætla
mér að vera í landsliðinu þá þarf ég
að vera að spila reglulega fyrir mitt
félagslið og standa mig vel. Við þurf-
um svo bara að bíða og sjá hverju
það mun skila mér,“ bætti Kristín
Dís við í samtali við Morgunblaðið.
Saknar mín vonandi eitthvað
- Kristín Dís Árnadóttir leikur ekki lengur við hlið systur sinnar í vörn Breiða-
bliks - Samdi við sigursælasta félag Danmerkur, Bröndby, á dögunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Varnarjaxl Kristín Dís Árnadóttir stöðvar sóknarmann Vals í toppslag á síð-
asta tímabili. Nú er hún komin í raðir Bröndby í Danmörku.
Subway-deild karla
ÍR – Valur.............................................. 80:83
Keflavík – Þór Ak ................................. 97:77
Vestri – Tindastóll .............................. 88:107
Stjarnan – KR....................................... 90:79
Staðan:
Þór Þ. 16 12 4 1548:1406 24
Keflavík 17 12 5 1533:1426 24
Njarðvík 15 11 4 1405:1237 22
Valur 17 10 7 1390:1356 20
Stjarnan 17 10 7 1523:1464 20
Grindavík 16 9 7 1368:1353 18
Tindastóll 16 8 8 1408:1447 16
Breiðablik 16 7 9 1685:1667 14
ÍR 17 7 10 1520:1504 14
KR 15 7 8 1340:1386 14
Vestri 16 3 13 1263:1435 6
Þór Ak. 16 1 15 1205:1507 2
NBA-deildin
Orlando – Atlanta ............................. 109:130
Boston – Detroit ............................... 111:112
Indiana – Washington...................... 113:108
New York – Brooklyn ...................... 106:111
Chicago – Sacramento ..................... 125:118
Memphis – Portland......................... 119:123
Minnesota – Toronto.......................... 91:103
Oklahoma City – San Antonio ......... 106:114
Phoenix – Houston ........................... 124:121
Golden State – Denver..................... 116:117
LA Lakers – Utah ............................ 106:101
57+36!)49,
Anna Shcherbakova frá Rússlandi,
sautján ára heimsmeistari í list-
hlaupi kvenna á skautum, bætti ól-
ympíugullinu í safn sitt í gær þegar
seinni hluti keppninnar fór fram á
Vetrarólympíuleikunum í Peking í
gær.
Allra augu voru á hinni fimmtán
ára gömlu löndu hennar, Kamilu
Valievu, sem var efst eftir fyrri
hlutann en hefur verið látlaust í
fréttunum vegna lyfjaprófsins sem
hún féll á heima í Rússlandi fyrir
áramótin. Valieva þoldi ekki álagið,
hlekktist nokkrum sinnum á og
endaði í fjórða sæti. Shcherbakova
var önnur eftir fyrri hlutann og
fylgdi því vel á eftir en hún náði sín-
um besta árangri, 255,95 stigum.
Alþjóðaíþróttadómstóllinn heim-
ilaði Valievu að keppa áfram á leik-
unum eftir að hún hafði verið sett í
bann að lokinni liðakeppninni í
Peking. Alþjóðaólympíunefndin
hafði í kjölfarið ákveðið að verð-
laun yrðu ekki afhent ef Valieva
yrði meðal þriggja efstu en til þess
kom ekki. Alexandra Trusova frá
Rússlandi fékk silfrið og Sakamoto
Kaori frá Japan bronsið.
AFP
Vonsvikin Kamila Valieva missti af möguleikanum á verðlaunasæti á Vetr-
arólympíuleikunum þegar henni hlekktist nokkrum sinnum á í gær.
Heimsmeistarinn
vann en Valieva fjórða